Tölvumál - 01.03.1999, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.03.1999, Blaðsíða 5
Ffá formanni Óskar B. Hauksson Þau tæki sem við erum að nota mikið í dag, eins og mús og lyklaborð, eru í raun mjög gömul tækni Þann 20. janúar var tilkynnt að gengið hefði verið frá samningi á milli íslenska n'kisins og Microsoft um þýðingu á Windows á íslensku. Þetta eru merk tíðindi og þeim ber að fagna en Menntamálaráðherra þakkaði við þetta tækifæri Skýrslutæknifélaginu fyrir aðstoð þess í málinu. Félagið hefur frá upphafi staðið vörð um íslenska tungu og lagt metnað sinn í að gefa út tölvuorðasafn í samvinnu við íslenska málstöð. Nýjasta útgáfa þess kom út á síðasta ári og hefur selst mjög vel eða í um 700 eintökum. Á jólaráðstefnu Skýrslutæknifélagsins var fjallað um svokallaða tungutækni og hvernig unnt er að nýta hana til að auðvelda tölvunotkun fatlaðra, til dæmis þeirra sem eru blindir. Það er sjaldgæft að heyra ráðstefnugesti taka andköf af undrun eins og gerðist á þessari ráðstefnu þegar sýnt var hvernig hægt er að vinna við Word ritvinnsluna með því að gefa einungis talaðar skipanir. Þetta leiðir hugann að því hver verði þróunin í samskiptum manns og tölvu á næstu árum en þróunin virðist vera rnjög ör á þessu sviði. Þau tæki sem við erum að nota mikið í dag, eins og mús og lykla- borð, eru í raun mjög gömul tækni, ntúsin var til dæmis þróuð upp úr 1960. Þróaðar hafa verið ýmsar gerðir af benditækjum sem eru notuð við ýmsa sérhæfða tölvu- vinnu til dæmis við gerð tölvulíkana í flugvélaiðnaði. Fyrir almenning verður tungutæknin, og þeir möguleikar sem hún gefur vafalaust, það sem á eftir að valda hvað mestum breytingum í tölvunotkun. Þá er aftur spumingin hvort að við verðunt að tala við tölvurnar okkar á ensku? Vonandi berum við gæfu til þess að leggjast á eitt að takast á við það verkefni að íslenskan verði eitt af þeim málum sem verði skiljanlegt fyrir tölvur framtjðar- innar. Til þess að svo megi verða þurfa stjórnvöld og atvinnulífið að taka höndum saman við að veita þessu máli liðsinni. I erindi Dr. Rögnvaldar Olafssonar á jólaráðstefnunni komu frarn mjög athyglisverðar spurningar varðandi hversu mikið við erum í reiðubúin að kosta til að halda íslenskunni inn í tölvuheiminum og hvort að við séurn tilbúin að forgangsraða í þessum efnum. Nú eru umræður í gangi urn framtíð bókstafsins ð og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig því málið reiðir af. Fagráð í upplýsingatækni hefur á undanfömum árum lagt á sig rnikla vinnu til þess að halda séríslensku stöfunum inni í alþjóðlegum stafatöflum. Ef til vill verðum við neydd til þess að forgangsraða í þessum efnum innan skamms. Hvað gerist til dæmis með fjölbreyttari notkun GSM síma í gagnasendingum, ekki eru íslenskir stafir fyrirferðamiklir á lykla- borði þeirra. Þessi mál verða án efa í sviðsljósinu á næstu mánuðum og verða sennilega jafn heitt umræðuefni og títtnefnd forgangsröðun í heilbrigðis- geiranum. Sennilega hefur spumingin um framtíð íslenskrar tungu verið jafn brennandi eins og nú þegar við stöndum frammi fyrir þessum möguleikum tækninnar. Við í Skýrslutæknifélaginu munum áfram stuðla að faglegri umfjöllun um málefnið og reyna eftir bestu getu að standa vörð um íslensku í tölvunotkun og fögnum því, þegar vinnast áfangasigrar eins og með íslenskun Windows stýrikerfisins. Oskar B. Hauksson er forstöðumaður upplýsingavinnslu Eimskipafélags Islands hf. og formaður Skýrslutæknifélags Islands Tölvumál 5

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.