Vísir - 29.12.1962, Side 5
V í SIR . Laugardagur 29. desember 1962.
5
30 þúsund kr. skaðabœtur
auk vurðhulds fyrir árás
Síðustu sýningar
í sakadómi Reykjavíkur var
maður nokkur dæmdur í 30 daga
varðhald skilorðsbundið og 30
þús. króna skaðabætur fyrir lík-
amleg meiðsli, sem hann veitti
maiini í átökum norður á Siglufirði
í júnimánuði í fyrra.
Málsatvik eru í aðalatriðum
sem hér greinir:
Laugardagskvöldið 3. júlí 1961
var dansleikur haldinn að Hótel
Höfn á Siglufirði í tilefni sjó-
mannadagsins. Ákærður var á
dansleik þessum og gerðist mjög
ölvaður. Lyktaði veru hans þar
þannig, að dyraverðir hússins fjar-
lægðu hann úr húsinu nokkru eftir
miðnætti, enda hafði hann þá, að
sögn dyravarða haft í frammi
miklar óspektir. Kváðust dyra-
verðir hafa orðið að beita ákærðan
valdi, þar sem hann vildi ekki fara
út með góðu, en ekki hefði hann
verið beittur neins konar harð-
ýðgi umfram það, sem venjulegt er
og nauðsynlegt í slíkum tilfellum.
Ákærður hefur sjálfur fyrir
dómi talið sig sökum ölvunar
muna lítið eftir því, sem gerðist á
umræddum dansleik, kvaðst þó
viss um, að hann hefði ekki verið
með óspektir í danssalnum og
taldi dyraverði hafa komið fram
af fullkomnum fantaskap og skilið
hann eftir meðvitundarlausan fyr-
ir framan húsið.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Gssrðnr Ólofsson
ÚRSMIÐUR LÆKJARTORGI
Simi 10081
FYRIR
GAMLÁRS-
KVÖLD
Enskir skrautflugeldar
Skipa flugeldar
Yokerblys
Bengalblys
Gosfjöll
Stjörnuregn
Sólir
Stjörnueldspýtui
Stjörnuljós og fleira
seljum við ódýrt, sama
hvort keypt er fyrir 50
aura eða 100 krónur.
Laugaveg 13.
Forstöðumaður dansleiksins,
maður hálffimmtugur að aldri,
varð var við að ákærður lá á gang-
stéttinni fyrir utan hótelið. Hafði
hann þá tal af öðrum dyravarð-
anna, er taldi ekki ráðlegt að hug-
að væri að ákærðum, enda hafi
lögregla þegar verið kvödd á vett-
vang. Forstöðumaðurinn áleit þó
skyldu sína að bjóða ákærðum
hjálp svo fremi sem hann þarfn-
aðist hennar. Gekk hann í þessu
Kennedy —
Framhald af bls. 16
ELDFLAUGAR
OG KJARNORKUVOPN
Kennedy ræddi einnig mikið
um hernaðarstöðuna eins og
hún er nú milli austurs og vest-
urs og ræddi um þýðingu kjarn
orkuvopna og eldflauga. Hann
var 'mjög ákveðinn þegar hann
skýrði frá þvl að Bandaríkin
myndu ekki veitta Frökkum
neina aðstoð til að koma sér
upp kjarnorkuvopnum. Hann
sagði að það hefði mikla þýð-
ingu að Bandaríkjamenn hefðu
nú komið sér upp eldflauga-
stöðvum neðanjarðar. Það gerði
það að verkum að Rússar gætu
ekki slegið þá út af laginu í
fyrstu lotu.
í lok samtalsins benti Kenn-
edy á þá athyglisverðu stað-
reynd, að ef Bandaríkjamenn
hefðu ekki tekizt skyldur á
herðar að verja vestræna menn
ingu í stríðslok væri líklegt að
kommúnisminn hefði flætt yfir
allan heiminn.
Þessi kvikmynd var stór at-
hyglisverð og ætti að gefa fleir
um kost á að sjá hana.
Smyglaðar —
Framh at ols. I.
selt aftur á 75 krónur, nema þegar
hann seldi í stykkjatali, þá seldi
hann hverja sprengju á 3 krónur.
Af þeim 11 pökkum, sem piltur-
inn taldi sig hafa keypt, var hann
búinn að selja 8 þegar hann náðist,
en 3 pakka sem eftir voru gerði
lögreglan upptæka.
Tómas sagði að það væri eink-
um tvær tegundir sprengja sem
eru í umferð, þessar Camel-
sprengjur, og önnur gerð sem ber
nafnið Bandit-sprengjur, en þær
eru báðar bannaðar af Iögreglu-
yfirvöldunum, þannig að hvorki
sala þeirra né notkun er heimil.
Eru talsverð brögð að því að strák
ar fara að húsum, hringja dyrabjöll
um og varpa sprengjunni inn um
dyragættina um leið og opnað er.
Þær mynda háan og mikinn hvell,
en eru að öðru leyti yfirleitt ekki
hættulegar. Þó geta þær valdið
íkveikju ef þær Ienda á eldfimu
efni, og eins valdið meiðslum ef
þær springa t.d. á andliti fólks
eða við hörund.
Mestar líkur eru taldar á að
sprengjum þessum hafi verið smygl
að með skipum og skömmu fyrir
jól komust tollverðir yfir 20 þús-
und stykki, sem átti að koma í
land úr m.s. Arnarfelli.
Seyðísfjarðarm. <—
Framh. at bls 16. í
að fjarlægja muni frá fanganum, er
hann var lokaður inni.
Slökkviliðsstjóri rannsakar bruna !
leifarnar til að kanna hvort þar
finnist nokkrar eldspýtur, en eigi
hafði setudómaranum borizt
skýrsla um það.
skyni að ákærðum, en þá skipti
það engum togum að ákærður
sparkaði í hægri öxl forstöðu-
mannsins, þreif um leið til hans
og dró niður. Veltust þeir um
stund i götunni þar til menn komu
forstöðumanninum til hjálpar.
Lögreglan kom á vettvang ör-
skömmu síðar. Var ákærður þá í
miklum árásarhug, þannig að lög-
reglan varð að handjárna hann.
Síðan var hann færður í fanga-
geymslu.
Af forstöðumanninum er það
hins vegar að segja að hann fékk
miklar þrautir í öxlina eftir spark-
ið og fór strax sömu nótt til lækn-
is. Læknirinn taldi að það tæki
hinn slasaða alllangan tíma að
ná sér aftur, enda var hann frá
vinnu um 8 vikna skeið. Krafðist
hann skaðabóta að upphæð 30
þús. kr. fyrir atvinnutjón og þján-
ingabætur.
Ármann Kristinsson sakadómari
í Rvík kvað upp dóm í máli þessu
og dæmdi ákærðan í 30 daga varð-
hald, en fullnustu refsingar skyldi
þó fresta og falli hún niður að
liðnum tveim árum, hafi sakborn-
ingur ekki brotið af sér að nýju
innan þess tíma. Þá var ákærða
gert að greiða 30 þús. kr. í skaða-
bætur samkvæ...t kröfu forstöðu
mannsins, ásamt 7% ársvöxtum
frá 26. ágúst 1961 til greiðsludags.
Loks var ákærður dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað, þar
með talin málsvarnarlaun skipaðs
verjanda síns, Guðmundar Ingva
Sigurðssonar hrl.,' að upphæð 3
þús. kr.
Skipaskoðun Danmerkur
hefur sent útgerðarmönn-
um þar í landi leiðbeining-
ar vegna þess að á því hef-
ur borið að undanfömu, að
nýleg fiskiskip hafa farizt
skyndilega, án þess að
nokkuð virtist að. Sérstak-
lega virðist þetta algengt
á hinum nýju stálfiskibát-
um. Hefur þetta vakið
grunsemdir um að stálbát-
arnir séu hættulegir.
En skipaskoðunin danska segir
að stálbátar séu ekkert verri en
trébátar. Það verði aðeins að gæta
þess að hafa nóga ballast í þeim.
Er það álit Friberts skipaskoðun-
arstjóra í Kaupmannahöfn, að
slysin hafi orðið vegna þess, að
ekki var nóg kjölfesta í skipun-
um.
Þegar slysin urðu, gekk danska
kipaskoðunin í það af miklum
krafti að rannsaka orsakir skiptap-
anna. Og nú verða framkvæmdar
víðtækar veltuprófanir á bátum,
sem eru sömu tegundar og þeir sem
hafa farizt. Hafa nokkrir bátseig-
endur gefið sig fram og fara til-
Nú eru aðeins eftir þrjár sýn-
ingar á ástralska leikritinu
Sautjánda brúðan, sem sýnt hef
ur verið að undanförnu í Þjóð-
leikhúsinu. Leikurinn hefur ver-
ið sýndur 15 sinnum og verð-
raunir fram á þremur stöðum í
Frederikshaven, Skagen og Hirts-
hals.
Það þýðingarmesta er, að kjöl-
festan sé nóg, en einnig er vara-
samt að hafa sjálfstýringu í gangi
í vondum veðrum, þar sem þá er
Átján menn biðu bana, þar af 4
bprn, en 30 meiddust hættulega og
liggja í sjúkrahúsi, en álíka marg-
ir meiddust en ekki meira en svo,
að þeir þurftu ekki sjúkrahússvist.
Slysið varð fyrir norðan bæinn
Crewe í Norður-Englandi, í járn-
brautarskiptistöðinni Coppenhall,
þar sem Iestin sem fer milli Liver
pool og Birmingham stóð kyrr.
Þegar' miðdegislestin frá London
til Glasgow kom, brunaði hún með
23ja km. hraða á hina og voru
allir eða nær allir þeir, sem meidd
ust, í Birminghamlestinni.
Björgunarstarfið var ákaflega
erfitt, því að skiptistöðin er frem-
ur afskekkt og gekk í fyrsta lagi
erfiðlega að koma hjálparliði á
vettvang, og eins að koma þang-
að nauðsynlegum björgunartækj-
um. Flestir farþegar i báðum lest-
um voru á heimleið úr jólaheim-
ur næsta sýning á sunnudags-
kvöld.
Myndin er af Róbert og Guð-
björgu í hlutverkum sínum.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
ekki hægt að stýra skipinu eins vel
upp í ölduna. H. Juul .forstjóri
skipaskoðunarinnar, hefur skorað á
eiginkonur sjómanna að fá menn
sína til að kynna sér vel þessar
reglur. Með því gæti verið, að kon-
urnar bjargi lifi eiginmanna sinna.
sóknum. Nokkrar hjúkrunarkonur
voru meðal farþega. Kom það sér
vel og gengu þær rösklega að því
að veita fyrstu aðstoð, binda um
sár manna o. s. frv. Borðdúkar og
handklæði voru klippt 1 ræmur,
sem notaðar voru sem sjúkrabindi
til.bráðabirgða. Þetta er eitt mesta
járnbrautarslys á Bretlandi um
margra ára skeið.
Barizt / Katanga
í gær hófust bardagar í Elisa-
bethville, höfuðbæ Katanga, milli
herliðs S. Þ. og hersveita Tsjom-
bes. Hófust þeir með því að her-
menn Tsjombes byrjuðu sprengju-
skothríð á etíópíska hermenn, sem
voru á verði í bænum. Segja fylgis-
menn Tsjombes að þeir hafi snúizt
til varnar þar sem þeir hafi fengið
ugglausar upplýsingar um það, að
hcrlið S. Þ. ætlaði að liandtaka
Tsjombe.
Duusku skipaskoðunin
tekurmálin fástum tökum
Átján biðu bana
í járnbrautarslysi