Vísir - 06.06.1964, Blaðsíða 3

Vísir - 06.06.1964, Blaðsíða 3
3 vfsi^. ^ugaru^öur b. j LOFTLEIÐIR / Árið 1962 ákváðu Loftlelðir að hefja byggingarframkvæmdir á Reykjavflairflugvelli. Teikningar að þeim gerðu arkitektamir Gisli Halldórsson, Ólafur Júlíus son og Jósef Reynis. Var upp- haflega gert ráð fyrir tveim álm um, flugafgreiðslu og skrifstofu byggingu. Nú er verið að ljúka fyrri á- fanganum, skrifstofubyggingu f annarri af hinum tveim fyrir- huguðu álmum, en búlð er að steypa upp kjaliara hinnar. Stærð þess húss, sem nú er lokið, er um 10 þúsund rúm- metrar. Það er þrj&r hæðir og kjallari, og hvorfiæð um 800 fer metrar að ffcttarmáli. í kjallara verður salur til flug þjálfimar og annarra kennslu- starfa, hitaklefi skjalahirzlur og aðrar geymslur. Á fyrstu hæð er símavarzla og almenn afgreiðsla ,en megin hluta þeirra hæðar er enn óráð- stafað, enda ekki fyrirhugað að fullgera strax. Á annarri og þriðju hæð eru skrifstofur hinna ýmsu deflda félagsins. Nokkurt nýmæli má það telja, að einum aðalverktaka Þórði Kristjánssyni óg Ragnari Bárðar synl var falin öll byggingafram kvæmdin, eftir að kjallarasteypu lauk, og urðu þeir þannig ábyrg lr fyrir verkinu öllu. Verktaki Iagði í upphafl fram sundurilðun á tilboði sfnu, og hefir hún ver- ið notuð til grundvallar mánaðar Iegum reikningsskilum, en þá hafa hinir ýmsu áfangar verið metnir og greiðslur inntar af hendi samkvæmt þeim. Upphaflega var áætlað, að lokið yrði við aðra og þriðju hæð í febrúarm. sl., en tveim mánuðum sfðar að fullgera kjall ara og fyrstu hæð. Vegna verk- falla var fyrri áfanga ekki náð fyrr en 1 lok maímánaðar sl., en þá gátu Loftieiðir flutt skrifstof ur sínar frá Reykjanesbraut 6 f byggtngima. Blaðamenn skoða lfkan hlnnar nýju ffugvélar Loftleiða af Rolls-Royce 400 gerð. Lfkanið kom fyrir nokkru heim frá flugsýningu sem haldin var f Englandi, en sem stendur er það 1 kennslustofu Loftleiða f nýju byggingunni og notað þar við kennslu áhafnanna. Þarna eru starfsstúlkur í bókanadeild Loftleiða f nýju húsakynnunum. Frá vinstri á myndinni eru: Þórey Kolbeins, Sigurbjörg Sigurðardóttir og Ásta Baldvinsdóttir. Á sunnudaginn verður sjó- mannadagurinn haldinn hátfðleg ur f 27. skipti. Dagskrá verður öll með svipuðu sniðl og undan farið. Fréttamenn ræddu i gær við nokkra af stjómarmeðlimum Sjómannadagsráðs, en ráðið sér um allan undirbúning sjómanna dagsins heimilisstjórn að Hrafn- istu ásamt Sigurjóni Einarssyni framkvæmdastjóra og einnig hef ur Sjómannadagsráð með hönd um stjórn Laugarásbíós. 13. júní n. k. eru liðin 10 ár frá því, að forseti íslands lagði hornstein að Hrafnistu. Enn í dag en unnið af fullum krafti við byggingarframkvæmd ir að Hrafnistu. Nú er fokheld álma, sem á að geta rúmað 64 vistmenn og þegar hafa verið gerðar teikningar að annarri álmu, sem á að geta rúmað 62 vistmenn. Með tilkomu álm- unnar, sem nú er fokheld, stór- batnar öll aðstaða til vinnu fyr- ir vistmennina. En allt frá því heimilið tók til starfa hefur verið reynt að skapa því vist- fólki sem getur unnið aðstöðu til þess. Eftirspuru eftir dvöl á Hrafn- istu er mjög mikil og er hvert rúm skipað. Um þessar mundir dvelja 196 vistmenn að Hrafn- istu, þar af 44 I sjúkradeild. Rekstur Laugarásbíós hefur gengið ágætléga og hefur kvik- .nyndahúsið greitt til Hrafnistu 870 þús. f leigutekjur á ári, tvö undanfarin ár. Bókfærðar eignir á Hrafnistu nema nú um 40 milljónum króna. 1 fyrrasumar byrjaði stjóm Sjómannadags- ráðs að reka sumardvalarheimili fyrir bðm að Laugalandi I Holt- um. Þar dvðldust 1 fyrra um 40 böm sjómanna, en í sumar^. munu dveljast þar um 50 böm. Þá sér Sjómannadagsráð um út- gáfu Sjómannadagsblaðsins, en ritstjórar þess em nú Halldór Jónsson og Guðmundur H. Oddsson. Blaðið í ár er mjög fjölbreytt. Meðal efnis er grein eftir form. Sjómannadagsráðs Pétur Sigurðsson. Frásögn og myndir frá sjómannadeginum í fyrra. Grein sem néfnist: Orust- an við Sevastopol. Bergtröllið á Skagafirði, frásögn eftir Þor- stein Jósepsson. Lítil ferðasaga, eftir Einar Thoroddsen. Þá er í blaðinu fjöldinn allur af mynd- um, stuttum greinum og frá- sögnum. Stjórn Sjómannadags- ráðs skipa þeir: Pétur Sigurðs- son, formaður, Guðmundur H. Oddsson, gjaldkeri, Kristinn Sigurðsson, ritari, Hilmar Jóns- son og Tómas Guðjónsson. Dagskrá 27. sjómannadagsins I verður sem hér segir: Fyrri hluti hátíðahaldanna fer fram við Austurvöll. Þar verður minningarathöfn. Á eftir flytja ávarp Emil Jónsson, sjávarút- vegsmáiaráðherra, Valdimar Indriðason, fulltrúi útgerðar- manna, örn Steinsson, forseti ^F.F.S.l. fulltrúi sjómanna og Á sunnudaginn hefst ráð- stefna að . Bifröst í Borgarfirði um „Hagræðingu í íslenzku at- vinnulífi“. Er það Stjórnunar- félag Islands sem efnir til henn- ar og er markmið ráðstefnunn- ar að stuðla að hvers konar vinnuhagræðingu í íslenzku at- vinnulífi. Bæði Alþýðusamband íslands og Vinnuveitendasam- bandið styðja ráðstefnuna og koma tveir erlendir sérfræðing- ar á ráðstefnuna að tilhlutan þeirra og flytja erindi. Pétur Sigurðsson, form. Sjó- mannadagsráðs afhendir heiðurs merki. Þegar hátíðahöldunum lýkur á Austurvelli hefst kapp- róður í Reykjavíkurhöfn. Þá verða dansleikir á vegum sjó- mannadagsins £ nokkrum sam- komuhúsum um kvöldið. Fram- kvæmdastjóri sjómannadagsins er Geir Ólafsson, loftskeytamað ur. t Að tilhlutan Alþýðusambands íslands kemur Egil Ahlsen for- stöðumaður hagrseðingardeildar norska Alþýðusambandsins. Og að tilhiutan Vinnuveitendasam- bandsins kemur John Andrésen frá norska Vinnuveitendasam- bandinu. Ráðstefnan hefst á sunnu- dagskvöldið í Bifröst. Flytur Jakob Gíslason raforkumála- stjóri, formaður Stjórnunarfé- lags íslands setningarræðu og Framh. á bls. 5. Hogræðingarráðstefna í BORGARFIRÐI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.