Vísir - 08.12.1964, Blaðsíða 6

Vísir - 08.12.1964, Blaðsíða 6
6 V í S IR . Þriðiudagur 8. desember 1964. 1 fyrsta skipti i íslenzkri rétt- arsögu settust brír sakadómar- ar við eitt og sama dómsborð, er hnífstungumálið alræmda, sem gerðist að Hraunteigi 18 að kvöldi 12. maí s.l., var dómtekið Íí sakadómi Reykjavíkur í gær. Þetta er gert samkvæmt heim- ild, sem gerð var með breyt ingu á réttarfarslögunum 1961, ef um sérstaklega vandamikil mál, flókin eða stórfelld er að ræða. Sakadómararnir þrír, sem dóminn skipa, eru þeir Þórður Björnsson yfirsakadómari og 5 Halldór Þorbjörnsson og Gunn- B iaugur Briem sakadómarar. 1 Atburðasagan, sem liggur að baki þessa alvarlega máis hefur áður verið rakin hér í blaðinu í höfuðatriðum. Til glöggvunar má þó benda á að hér virðist vera um „ástardrauma" að ræða. Árið 1962 kynnast þau Guðríður Eria Kjartansdóttir, 19 ára að aldri, og Lárus Stefáns- son, 21 árs. Eftir að kynni þeirra hófust, dvaldist hún erlendis um skeið, en á meðan héldu þau uppi bréflegu sambandi og sömu leiðis héldu kynni þeirra áfram um skeið eftir að hún kom heim. Þó kemur að því að Guðríður Erla vill slíta tengslum við Lár- us, þvert gegn vilja hans. Um miðjan dag 12 maí s. 1. hættir Lárus vinnu á vinnustað sínum, kaupir sér rýting og brennivíns- flösku og labbar sig heim á heimili Guðríðar Erlu að Hraun- teigi 18. Fyrst i stað eru þau þrjú saman, vinkona Erlu er með þeim, en hún þarf að bregða sér frá og þá notar Lár- us tækifærið að spyrja hina gömlu vinkonu sína hvort hún vilji koma með sér nokkurn tíma norður i Vatnsdal í Húnphjngi, Guðríður Eria segir hr þá að hún muni ekki gera það og að hún sé tekin saman við ann- an mann. Það er þá, sem Lárus tekur fram rýtinginn í>g stingur stúlk una mörgum stungum, sumum djúpum, og hleypur að því búnu á brott. í stiganum mætti hann vinkonu Guðríðar Erlu og greiddi henni höfuðhögg um leið og hann hljóp fram hjá henni og út. Lárus fékk sér leigubíl eftir að út var komið og ók út á Grandagarð, þá með þeim ásetn- ingi að fyrirfara sér. Fyllti hann vasa sína grjóti og steypti sér í sjóinn. En Lárus var syndur og greip til sundtaka. Synti hann þá aftur í land og gaf sig fram við lögregluna. Lárus var settur í geðrann- sókn og samkvæmt yfirlýsingu Tómasar Helgasonar læknis, sem framkvæmdi hana, er Lár- us talinn „vel greindur, dulur, innhverfur og kaldlyndpr". Þess má geta, að Guðríður Erla lá margar vikur í sjúkra- húsi, en útskrifaðist þaðan seinni hluta júlímánaðar. Jónatan Þórmundsson flutti málið af hálfu saksóknara, en Örn Clausen flutti vörn af hálfu sakbornings. 24 bátar með21,200mál Jólasnjór og hárlakk á — Við fylium á fyrir hvern sem vill, þetta nær langt út fyr ir alit, sem heitir snyrtivörur, segir Ágúst Kristmanns, for- 'stjóri Snyrtivara h.f„ sem hafa tekið upp þá nýjung að fylla ýmis efni á brúsa, sem er hægt að úða úr, eða svonefnda aero- sol brúsa, en aerosol er orðið alþjóðlegt heiti á þessari gerð brúsa. Áfyllingin er margvísleg sem dæmi má nefna bæði jóla snjó og hárlakk, ísvara og ryð vamarefni, erlendis eru þeir jafnvel farnir að setja matvæli svo sem rjóma, sem kemur þeyttur út þegar honum er sprautað og kaffi. Geysimikið er flutt inn af margs konar framleiðsluvöru, sem er fyllt á brúsa, en með því að framkvæma áfyllinguna hér, lækkar verð um a. m. k. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðherra og Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri eru nýkoninir heim af fundi Efnahags- og framfara- stofnunarinnar í París. Auk þeirra sátu fundinn þeir Pétur Thorsteins son ambassador Islands í París og Einar Benediktsson sendiráðunaut- ur. Á fundinum í París var rætt um áætlun OECD um að auka þjóðar- ‘ekjur aðildarríkjanna um 50% á brúsum ágúst síðastliðnum og fram- kvæmdir hafnar þá. Grundvöllur starfseminnar er framleiðsla hárlakks, en einnig er búið að fylla á brúsa ryðvarn arefni og ísvara á b'ifreiðir, byrjað er að fylla á tekkolíu og húsgagnagljáa cg í framtíð- inni er ætlunin að koma með slökkvivökva, sem hentugt er að hafa í bifreiðum, bakteríu- drepandi lofthréinsiefni, bletta- vatn, ýmisiegt í snyrtivörum o. fl„ en framieiðslumöguleikarnir eru mjög miklir og alltaf bæt'ist eitthvað við í hverjum mánuði. Fyllt er á 500 brúsa á dag, en mögulegt er : ð auka afköst- in upp í 2000 brúsa á dag með I manni við hverja vél, seg'-'r Magnús Eymundsson, en hann sér um áfyllinguna og fór gagn- gert tii Þýzkalands og Englands til þess að kynna sér starfsað- ferðirnar, en sem stendur sta rfa þrír við áfyllinguna. tímabilinu 1960—1970. En einnig var rætt um hinn nýja 15% toil Breta á innfiuttar iðnaðarvörur. Var deilt harðlega á Breta fyrir tollinn, en hann er ekki talinn vera í samræmi við stefnu OECD. Gylfi Þ. Gíslason sótti einnig fund UNESCO, menningar- og vfs- indastofnunar S. Þ. í París, en ís- land hefur nf lega gerzt aðili að þeirri stofnun. i Mikii síldveiði var í nótt á Aust : urlandsmiðum. Fengu 24 bátar sam tals 21.200 mál. Þeir eru: Ásbjörn, 1100, Kristján Valgeir 500, Reykjanes 400, Helga 1000, Guðbjörg 1000, Fróðaklettur 1000, Þórður Jónasson 800, Margrét í kvöld verður framhaldsaðal- fundur VÖKU, féiags lýðræðissinn aðra stúdenta, haldinn í Þjóðieik húskjallaranum. Fundurinn hefst ki. 20.30. Færð — Framh afbls. 1 átti að senda „trukk“ yfir hana í dag til aðstoðar við áætlunarbíl- ana ef á þyrfti að halda. Vaðlaheiði er líka ófær orðin nema jeppum og stórum bílum, en sæmileg færð um Dalsmynni Á Snæfellsnesi hefur kyngt nið- ur snjó og liggur þar jafnfallinn snjór yfir allt. Hvað lítið sem hvessir þar má búast við þreifandi byi. Fjallvegir eru þungfærir, en Fróðárheiðina átti að ryðja í dag og gera hana færa öllum bílum. Kerlingarskarð er aftur á móti þungfært. Bröttubrekku átti að moka í dag og búizt viö að hún yrði greið allri umferð upp úr kl. 3 e. h. í dag- Stúdentar — Framh. af bls. 1 málið verði tekið upp aftur á þeim forsendum, að nýja reglugerðin hafi ekki tekið gildi fyrr en eftir innritun þessara lyfjafræðistúdenta. Menntamálaráðherra hefur fyrir sitt leyti lýst því yfir, að fjárhagshlið máisins ætti ekki að hindra kennslu i þessari grein, en hann geti ekki gripið fram fyrir hendur Háskóla- ráðs. 300, Þorbjörn II. 1000, Jón Kjart ansson 900, Bergur T200, Arnar 1250, Viðey 1300, Gísli lóðs 750, Helgi Flóventsson 1200, Sigurpáll 1100, Hrafn Sveinbjarnaraon III. 1200, Hólmanes 800, Guðrún Þor- kelsdóttir 800, Páll Pálsson 800, Ás Að loknum aðalfundarstörfum flytur forsætisráðherra dr. Bjarni Benediktsson erindi um deilumál ísraelsmanna og Araba, en sem kunnugt er fór forsætisráðherr- ann í opinbéra heimsókn til ísra- els í október sl. Þess má vænta, að fundurinn verði fjölmennur, enda er nér um merkilegt vandamál að ræða, sem mikið hefur verið deilt um á al- þjóðavettvangi og sett hefur svip sinn á heimsmálin undanfarin ár. Að erindinu loknu gefst fundar mönnum kostur á að beina fyrir- spurnum til forsætisráðherrans. ★ Stjóroarherinn í Suður Viet nam hefur fellt 115 skæruliða í orrustu, en manntjón hans var 27 fallnir og 65 særðir, þar af 4 bandarískir herráðunautar. ★ Jomo Kenyatta forsætisráð herra Kenya segir, að Kenya verði áfram hlutlaust riki, — kvað hánn alit hjal um að Ken ya væri að verða kommúnista ríki .diúmbúgg og lygi.“ ★ Dr. King leiðtogi blökku- manna i USA predikaði í st. Pálskirkju sl. sunnudag og kvað allar þjóðir verða að gera sér grein fyrir, að ef þær gætu ekki lifað f samlyndi og reyndu þór 1100, Sunnutindur 700, Arn firðingur 750, Fagriklettur 250 og reif nótina.. Og ef til vill nokkrir bátar til með einhvern afla. Deon Rusk hefur hér stuttu viðdvöl Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandarikjanna, er væntanlegur hingað til lands n.k. laugardag síð degis og mun hafa hér stutta við dvöl, að því er Agnar Klemenz Jónsson ráðuneytisstjóri i utanríkis ráðuneytinu tjáði blaðinu í morgun Ráðherrann er á leið til Parísar til þess að sitja þar hina árlegu ráðstefnu utanríkisráðherra NATO ríkjanna og heldur áfram ferð sinni sunnudagsmorguninn 13. des. Agnar sagði, að dvöl Rusks hér yrði mjög stutt. þar eð hann yrði að halda áfram för sinni snemma á sunnudagsmorgun. Agnar kvaf enn ekki vitað hvort utanrík'sráð herra íslands mundi sjálfur geta sótt ráðherrafundinn í París. að hjálpa hver annarri myndi tortíming oíða ailra. Hann er á leið til Osió * *tii þess að taka við friðarverðlaunum Nóbels. ★ Sameinað þjóðþing ítaliu kemur saman 16. þ.m. lii þess að kjósa ríkisforseta í stað Segni. •k Nýbirtar hagskýrslur Sþ herma, að íbúataia heims sé 3283 milljónir og aukist um 65 milljónir á ári og verði að ó- breyttu komin upp í 7000 milij árið 2000. Fólksflesta land heims er Kína með 690 millj. (áætlað) en næst Indland með 498 miiijóniF. 30%. Vélar..ur voru settar upp Viðskipta mála ráð- herraáfundiOECD Forsætisráðherra ræðir deilumál Araba og ísraels á Vökufundi ERLENDAR FRÉTTIR í STUTTU MÁLI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.