Vísir - 29.12.1964, Blaðsíða 16

Vísir - 29.12.1964, Blaðsíða 16
* s”: VtSIR Tómas Einarsson, rannsóknarlögreglumaður sést hér með nokkra af kínverjum, sem götulögreglan tók af þeim 30 piltum sem hún hand- tók á Þorláksmessu í miðbænum. Hér er einkum um að ræða tvær tegundir svonefnda „Camel“ og „Bandit". Ljósm. Vísis B.G. Þriðjudagur 29. desember 1964. Um 30 pikar handteknir fyrir kín verja-sprengingar Götulögreglan handtók á Þor láksmessu um 30 pilta, sem voru að sprengja kínverja á göt um úti og höfðu sumir f frammi ólæti og hrekki. Voru piltarnir færðir á lögreglustöðina, og síð að gefnar á flesta skýrslur. Mál þessara drengja voru afgreidd f gær hjá rannsóknariögreglunni og sakadómi. Vísir sneri sér í gær til Tóm asar Einarssonar, rannsóknar lögreglumanns, sem rannsakaði mál þeirra pilta, sem teknir voru. Sagði Tómas að hér væri einkum um að ræða tvær teg undir kínverja, svokallaða „bandit“ og „Camel“. Ekki er vitað til að slikt sé selt hér í verzlunum, enda innflutningur óheimill. Flestir piltanna segjast fá kín verjana með þeim hætti, að ein hverjir ókunnugir menn víki sér að þeim og bjóði þeim kínverja Eru þeir yfirleitt seldir á 3.50 til 5.00 kr. stk. Mál margra pilt anna voru afgreidd með réttar áminningu, en sumir fengu sekt ir. Full ástæða er til þess að vara foreldra við því, að láta börn sín vera með slíkan vam ing„ þar sem bæði er um að ræða algjörlega óheimilan vam ing og mörg undanfarin ár hafa hlotizt slys af þessum kínverja sprengingum. Hafa unnið sóiarhring við snjómoksturinn Verkamenn Reykjavíkurborgar hafa nú unnið rúman sólarhring við snjómokstur og öll tæki borg arinnar, sem að gagni mega koma hafa verið f notkun þennan tfma við að ryðja snjó af götunum. Jón Ólafsson yfirverkstjóri hjá Reykjavíkurborg sagði í viðtali í morgun, að snjómoksturinn hefði byrjað kl. 3 í gærdag, og hefði verið unnið f alla nótt. Einkum hefðu það verið aðalumferðaræð- amar, sem reynt var að haldá opn um, en það hefði gengið erfiðlega vegna mikillar fannkomu og foks. Einnig hefði það valdið miklum vandræðum hvað litlir bílar, sem sátu fastir voru fyrir hinum fljót virku snjómoksturstækjum. „Eftir snjólétta vetur kunna bílstjórar ekki að útbúa sig í snjó,“ sagði Jón. „Þannig eru tiltölulega fáir bílar með keðjur og annar hver bíll eða tæplega það með snjóhjól barða.“ Jón sagði, að f snjómokstrinum væru mílli 60 og 70 vérkanienn, mest f Miðbænum, 5 vegheflar, 11 jarðýtur og 2 stórar ámoksturs- skóflur. Allar aðalumferðaræðarn ar voru færar bilum með keðjum eða snjóhjólbörðum, í morgun, en í úthverfum var víða mjög þungfært EINSTÁKT FISKILEYSI í N0RÐURHÖFUM í ÁR mm Dr. Jcikob Magnússon segir frú fiskileif ú togarnmiðum Japanskar botn- vörpur í togarana í haust voru framkvæmdar á veg um Fiskideiidar Atvinnudeildar til- raunir með japanska botnvörpu fyr ir togara. Gáfust þær tilraunir vel og mælir dr. Jakob Jakobsson fiski fræðingur með vörpunni við þær aðstæður, sem nú eru fyrir hendi. Dr. Jakob flutti erindi í útvarpið í fyrrakvöld og ræddi m.a; um til- raunir þessar. Tilraunírnar voru framkvæmdar á fiskileitarskipinu Þorstein'i þorskaþit í haust og er ætlunin að halda þeim áfram f vet- ur. Japanska varpan er fjögurra leysa og með þar til gerðum toghlerum. Hún er 56 m. að lengd frá væng- endum út á pokaenda og hefur ann að lag en venjuleg botnvarpa, og Framh. á bls. 6. Fiskileit á togaramiðum á þessu ári hefur leitt í ijós, að einstakt fiskileysi hefur verið f. Norðurhöf um undanfarið og hefur það valdið hinum sáralitla afla togaranna á þessu ári. Dr. Jakob Magnússon fiskifræð- ingur flutti erindi í útvarpið í fyrra kvöld um þessa fiskleit, en hann hefur séð um hana af hálfu Fiski- deildar. 1 ár voru fjárveitingar í fyrsta sinn svo ríflegar, að hægt var að halda úti skipi í stöðugri fiskileit. Þorsteinn þorskabítur hef- ur verið í leitarleiðöngrum síðan í mal í vor undir skipstjórn Hall- c|órs Gíslasonar. Farnir voru fjórir leiðangrar, einn við ísland, tveir tíi Austur-Grænlands og einn til Ný- fundnalands. Niðurstaða þessarar fiskijeitar varð sú, að einstakt fiskileysi reynd ist vera á yfirferðarsvæðunum. Þetta virðist vera almennt fyrir- bæri hér f Norðurhöfum í ár, svo sem afli togara, ekki aðeins ís- lenzkra, heldur einnig annarra þjóða, ber með sér ,enda hefur það komið fram i markaðsverði á fiski á undanförnum mánuðum. Dr. Jakob tók fram, að á Nýfundna- landsmiðum hefði sums staðar ver ið grundvöllur til veiða, hvað magn sr.erti, þótt því hefði ekki verið sinnt. Dr. Jakob sagði einnig frá fiskileit norska skipsins Johann Hjort við Austur-Grænlan< gerði tilraunir viða, en varð vart, og hefur aldrei verið jafn dautt hjá þeim áður á þessum slóð um .. .............« Á Hafnar- fjorðarvegi Þessi rnynd var tekin skömmu eftir kl. 11 í gærkvöldi á Arn- arneshæðinni. Þarna má greina 8 bíia, sem allir eru fastir. Far- | þegarnir hafa yfirgefið flesta og gengið eða fengið bílferð til Hafnarfjarðar. Ljósm. Vísis I. M.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.