Vísir - 06.10.1965, Page 8
ioo
VÍSIR . Miðvikudagur 6. október 1968.'
tkgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ö. Thor&rensen
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Söhistjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7,00 eintakið ('
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. /
a—\
Herferð gegn hungri
Eitt erfiðasta viðfangsefnið, sem mannkynið þarf nú )
að glíma við, er að finna leiðir til þess að koma í \
veg fyrir að stór hluti jarðarbúa svelti eða þjáist \
meira og minna af næringarskorti. Talið er, að mann- f1
kynið sé nú um 3.300 milljónir. Fyrir hálfri öld var /
það um 1600 milljónir, og hefur því tvöfaldazt síðan. )
Og á næstu 35 árum mun því fjölga upp í 6.000 millj. J
Þannig heldur fjölgunin áfram með sívaxandi hraða, (
ef ekkert óvænt kemur fyrir til hindrunar. /
En hér með er ekki öil sagan sögð. Hið hörmulega )
er, að fólkinu fjölgar mest í vanþróuðu löndunum, þar )
sem meiri hlutinn sveltur nú þegar. Það er því auð- \
sætt ,að hér þarf að koma til öflug, alþjóðleg sam- \
vinna og samhjálp, ef nokkur von er á að verða um (
að bægja hungurvofunni frá dyrum mikils hluta jarð- í
arbúa næstu áratugina. Matvælagjafir ná skammt. )
Þær geta dregið úr sárasta hungri á takmörkuðum )
svæðum í bili ,en eru engan veginn framtíðarlausnin, \
þótt þær yrðu stórlega auknar frá því sem nú er. \
Hið eina, sem nokkurs árangurs má vænta af (
til frambúðar, er að auka framleiðslu hinna vanþró- //
úðu landa sjálfra, hjálpa þeim til að eignast tækin )
og kenna þeim að nota þau. Samkvæmt útreikning- )
um sérfróðra manna er talið, að matvælaframleiðsla \
heimsins þurfi helzt að hafa aukizt um 290% árið (
2000, frá því sem nú er ,og sjá allir, hve gífurlegt (
átak muni þurfa til þess, jafnvel þótt nýjar og nú /
óþekktar framleiðsluaðferðir kunni að finnast á þeim )
35 árum, sem eftir eru af öldinni. )
Hungur er eflaust framandi hugtak öllum þorra \
núlifandi íslendinga. Þó er enn á lífi hér fólk, sem i
þekkti það í uppvexti sínum af eigin raun. Og flest )
þekkjum við hörmulegar frásagnir um sult og ör- )
birgð í þessu landi fyrir fáum mannsöldrum. Þess \
mættum við gjarna minnast oftar en við gerum, nú \
á þessum tímum velmegunar og allsnægta, og fara (
betur og sparlegar með mat en margir gera. /
Þrátt fyrir hernaðarátök þau, sem enn eiga sér )
stað í heiminum og ýmiss konar togstreitu þjóða í )
milli, á hugsjónin um samhjálp vaxandi skilningi og \
fylgi að fagna með hverju árinu, sem líður. Þar hafa \
Bandaríkin forustu, og framlag þeirra mun marg- (
faldast á næstu árum. En hér þurfa allar þjóðir ,sem //
aflögufærar eru, að leggja fram sinn hlut. Við ís- )
lendíngar erum fáir og smáir, og okkar lóð verður allt- )
af létt á vogarskálinni, en eigi að síður bei okkur sið- \
ferðileg skylda til að vera með. Og ekkert framlag (
er svo lítið, að það geti ekki orðið einhverjum til (
hjálpar. /
Innan skamms mun almenningi gefast tækifæri til )
að leggja fram skerf til þessarar hjálparstarfsemi. \
Þióðin hefur oftast brugðizt vel við í líkum tilvikum, \
og svo mun eflaust enn verða. Slík mannúð verður \
okkur ævinlega til sæmdar í samstarfi þjóðanna. (
i. . I i'ii'PIWWMMWMWBBgWMBgeBWMgjMMWMnMMBMBgWMBMWWBiggra lh"iM ——
Tómas Tryggvason,
jarðfræðingur
Nokkur minningarorð
J^nn hefur hinn slyngi sláttu-
maður slegið snögglega
einn úr hópi íslenzkra náttúru-
fræðinga. 1 þetta sinn var það
Tómas Tryggvason, nestor ís-
lenzkra jarðfræðinga og þó að-
eins 58 ára gamail, í nær fullu
starfsfjöri, störfum hlaðinn
fram á síðustu stund með ótal
verkefn; framundan.
Tómas Tryggvason var fyrsti
íslendingurinn, sem nam tii
fullnustu þá þýðingarmiklu
grem jarðfræðinnar, sem nefn-
ist petrógrafía eða bergfræði og
var í nær tvo áratugi einn um
það hérlendis að vera hámennt
aður í þeirri grein. Háskólanám
sitt hóf Tómas í Kaupmanna-
höfn 1933, en honum fór eins
og þeim er þetta ritar, að þykja
Svíþjóð vænlegri til jarðfræði-
náms en Danmörk, og hann
flutti til Uppsalaháskóla, þar
sem aðalkennari hans var Helge
Baddund, einn hinn mikilhæf-
asti bergfræðingur Norðurlanda
og stórbrotinn persónuleiki.
Licentiatprófi lauk Tómas 1943
og fjallaði licentiatritgerð hans
um Skjaldbreið og hraun hans,
gagnmerk ritgerð. Á háskólaár-
um sínum vann hann á sumr-
um að jarðfræðirannsóknum
ýmist hérlendis eða í Svíþjóð
og að loknu licentiatprófi vann
hann í þrjú ár í Svíþjóð og
Finnlandi að segul-og raf-
magnsmælingum f sambandi við
málmleit. Einn vetur var hann
við framhaldsnám í Þýzkalandi.
Það var þvf bæði bóklega og
verklega gagnmenntaður jarð-
fræð'ingur sem settist að á ís-
landi 46 í þvf- skyni að helga
þvl landi starfskrafta sína, þótt
frama- og fjárvon væri meiri er-
lendis. Jarðfræðileg reynsla
hans hafði beint honum að hag-
nýtum jarðfræðilegum verkefn-
um og á því sviði vann hann að
alstarf sitt hérlendis, mikilsvert
brautryðjendastarf, sem hér
verða ekki gerð nein viðunandi
skil. Aðeins skal minnt á rann-
sóknir hans á biksteini í Loð-
mundarfirði og Prestahnúk —
en biksteinn getur orðið mjög
mikilvæg útflutningsvara —
rannsóknir á kísilgúr f Mývatni
Tómas Tryggvason
jarðfræðingur.
og víðar og staxf hans sem jarð
fræðilegur ráðunautur Sogs-
virkjunarinnar. Flestar ritgerðir
hans frá síðari árum fjalla um
hagnýta jarðfræði, en þó gafst
honum stöku sinnum tími til
að sinna sinn'i gömlu aðalgrein
bergfræðinni, og síðasta ritgerð
hans, sem komst á prent fyrir
fáum mánuðum var bérgfræði-
legs eðlis, í sambandi við síð-
asta Heklugos. Allan tímann frá
heimkomu s'inni til Islands starf
aði Tómas við Atvinnudeild Há-
skólans. Síðustu árin átfi hann
sæti í Rannsóknaráði og ýms-
um öðrum störfum gegndi
hann, sem hér verða ekki rak-
'in.
„Ja, vánnen Tomas, han har
fátt slita mycket, han“ sagði
finnskur prófessor. Birger OM-
son frá Ábo, sem dvaldist hér 1
sumar. Sá hinn sami hafði unn-
ið að jarðfræðirannsóknum með
Tómasi í Norður-Finnlandi og
kynnzt honum vel. Já, Tómas
Tryggvason hafði svo sannar-
lega erfiðað mikið um sfna daga
ekki sízt framan af ævinni, Leið
in út á langskólaveginn gat ver
ið ærið erfið fátækum sveita-
pilti á kreppuárunum. Sann-
leikurinn var og sá, að Tómas
var orðinn talsvert slitinn af
vinnu þegar hann kom í mennta
skóla, og það átti ekki fyrir hon
um að l'iggja að taka sér marga
hvfldina síðar um sfna ævidaga.
En mikill gæfumaður var Tóm
as í sínu einkalífi. Sumarið 1944
kvæntist hann sænskri konu,
Kerstin Jancke frá Uppsölum,
sem var og er mikið afbragð
kvenna, og voru þau hjón svo
samhent f einu og öllu, að
sjaldgæft mun vera. Þau eign-
uðust fjögur böm, tápmikil og
mannvænleg. Heimilisbragur
var allur hinn ánægjulegasti og
kryddaður sérstæðúm húmor,
sem hressand; var að uppTifa,
en erfitt með orðum að lýsa.
1 okkar fámenna þjóðfélagi
er það tilfinnanlegur þjóðar-
skað; er fær vísindamaður fell
ur í valinn fyrir aldur fram.
Það er mikil eftirsjá í Tómasi
Tryggvasyni. Hann vann þjóð
sinni vel og mikið og hann var
drengur góður, sem gott er að
m'innast.
Sigurður Þórarinsson
Leiðbeiningar um vöruval
\
frá Neytendasamtökunum
Neytendasamtökunum berast
stöðugt fyrirspumir um gæði
ýmiss konar heimilistækja, sem
lengi á að búa að og eru til-
tölulega dýr, svo sem þvotta-
véla, ísskápa, saumavéla, raf-
magnseldavéla o.s.frv. Stundum
er jafnvel beinlínis spurt t.d.
hvaða þvottavél eða saumavél
sé bezt, eða hverri tegund Neyt
endasamtökin mæli með.
Af ofurskiljanlegum ástæðum
geta engin neytendasamtök tek
/ið á sig þá ábyrgð að mæla með
neinum ákveðnum tegundum
tækja á hinum síbreytilega mark
aði, og það fer mjög eftir að-
stæðum hvað hverjum er bezt
Alþjóðlegt samstarf Neytenda-
samtaka gerir það aftur á móti
kleift að veita margháttaðar
upplýsingar um gæði ýmiss kon
ar heimilistækja og annarra inn
fluttra vara, sem hér eru á mark
aði og byggjast á niðurstöðum
rannsókna, sem gerðar hafa ver
ið erlendis.
Neytendasamtökin fá öll rit
sem systursamtök þeirra gefa
út og hefur fyrirspyrjendum
verið gefinn kostur á því að
kynna sér umsagnir, sem þar er
að finna, um þær vörutegundir,
sem þeir hafa haft áhuga á Neyt
endasamtökin í Bandaríkjunum
hafa um langt árabil gefið ár-
lega út Leiðbeiningabók neyt-
enda, og er þar bæði um að
ræða almennar leiðbeiningar
um val á hinum ýmsu vöruteg-
undum og niðurstöður rann-
sókna, sem gerðar hafa verið á
árinu. Er sú bók á fimmta
hundrað blaðsíður. Nú liafa
norsku samtökin tekið upp
sama hátt og er fyrsta ,bók
þeirra yfir 300 bls.
Neytendasamtökin haf samið
við bæði þessi systursamtök
um að fá nokkurt upplag af
þessum bókum fyrir íslenzka
neytendur, sem vissulega geta
numið þama margan verðmæt-
an fróðleik. Norska bókin, sem
heitir KJ0PERÁD er þegar kom
in til landsins, en hin amerfska
væntanleg mjög bráðlega.
Leiðbeiningabækur þessar
verður hægt að fá í skrifstofu
Neytendasamtakanna, Austur-
stræti 14 og hina norsku sem
sagt nú þegar og kostar kr. 50
hvor. Að sjálfsögðu er einnig
hægt að senda þangað pöntun
og greiðslu og fá þær póstsend
ar aðra eða báðar.
Sérstakt Neytendablað um gólf
teppi.
Vegna fjölmargra fyrirspurna
um gólfteppi, skal þess getið,
að meðal þeirra rita, sem fé-
lagsmenn Neytendasamtakanna
hafa fengið og nýir félagsmenn
geta fengið, er sérstakt Neyt-
endablað, sem helgað er gólf-
teppum, vali á þeim og meðferð
Innritun nýrra félagsmanna ann
ast bókaverzlanir f Reykjavík
og um land allt. En simi skrif-
stofunnar er 19722.