Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 15

Vísir - 27.09.1966, Blaðsíða 15
V1SIR . Þriðjudagur 27. september 1966. 22 15 f" J. B. Prisfley; Mæturgestir Penderel gretti sig, en var ann- ars næsta skoplegur á svip. — Gott og vel, ég vissi ekki að ég væri svona athyglisverð- ur, sagði harin, en ég verð víst að reyna að skýra málið.-Ég fór í stríðið þegar ég var 17 ára, strauk úr skóla til þess aö gerast sjálf- boðaliði, — og varð að segjast vera 19 ára til þess að ég yröi tek- mn í herinn. Annars ætla.ég ekki að fara að tala um heimsstyrj- Orðsending til bifreiða- eigenda Nú getið þið nýtt hjólbarða ykkar til fullnustu með því að láta okkur dýpka eða skera nýtt munstur í hjólbarða ykkar. — Opið virka daga kl. 8-12.30 og 14 - 20, laugardaga frá kl. 8 - 12.30 og 14 -18, og sunnudaga frá kl. 14-18. MUNSTUR OG HJÓLBARÐAR Eergstaðastræti 15 (gengið inn frá Spítalastig) öldina — þið þurfiö enga fræðslu um hana. Faöir minn lét í raun- inni lífið af hennar völdum, — lagði of hart að sér við störf í þágu ættjarðarinnar. og eldri bróð- ir minn tættist sundur af sprengju við Passchandaele. Jim var ágæt- is drengur og ég dáöi hann. Ung- ir menn eins og hann eru salt jarðar, hvort sem þeir eru Eng- lendingar, Frakkar eöa Þjóðverjar eða Bandaríkjamenn. Fólk botnar ekkert í hvernig heimurinn er orö- inn — ef til vill vegna þess að það hugsar ekki út i hvað heimur- inn missti með þessum ungu mönn um, sem áttu aö verða forustu- menn á ýmsum sviöum, með aldri og þroska. Það hefði margt verið öðruvísi, ef þeir hefðu fengið að lifa, piltar eins og Jim. En aörir — menn af allt öðrum stofni fengu að halda lífinu. Ég orðlengi þetta ekki frekar, nema aö ég var á- horfandi að þessu, þátttakandi í mörgu, og það var eina uppeld- ið, sem ég fékk eftir að ég strauk úr skóla. Og í styrjaldarlok varð ég ástfanginn. Ég var upþi í sveit mér til hvíldar og heilsubótar. Það var yor og allt i blóma. Við kynnt- umst, fórum i gönguferðir saman, og braut okkar var blómum stráö, fannst okkur, og hún ætlaði að bíða eftir mér. Ég varð að fara aftur til Frakklands, en hvað sem á gekk hugsaði ég einungis um hana, og svo leið að hausti 1918. Þá var öllu lokið okkar á milli. Ég fékk bréf frá henni. Hún hafði komizt að þeirri niðurstöðu, að við ættum ekki saman. Hún haföi kynnzt öðrum En hún sagðist vona að viö yrðum vinir áfram. Og þeg- ar ég var laus úr hemum leitaöi ég mér atvinnu. Hann þagnaði sem snöggvast og sló létt fingurgómunum á borðplöt una. — Áfram, áfram, sagði Sir Willi- am og kenndi óþolinmæði i rödd hans. — Ég skal reyna að vera stutt- orður, sagði Penderel, piltar eins og Jim voru fallnir, ástin var líka dá- in, öngþveiti ríkti í heiminum, líf- ið virtist mér flækja, sem ekki var hægt aö greiða sundur. En vinnu varð ég að fá. Það leysir allan vanda, hugsaði ég, að vinna, þræla, hamast. — Ég hefði getað byrjað nám I Oxford eða Cambridge en hafði enga löngun til þess, — í háskóla mundi ég ekki læra neitt, sem mig langaði að læra, og það var heimskulega ályktað, en svona var það. Mér varð kunnugt um á- ætlanir um framkvæmdir í Afríku og ég nurlaði saman þangað til ég komst þangað. Þar áttu að vera fyrirtaks fyrirtæki fyrir fyrrverandi unga hermenn. En þetta reyndust tóm svik. Áfrika hafði engin not fyrir mig og ég kom heim niöur- brotinn maður. Ég lifði hálfgerðu slæpingslífi í Lundúnum um hríð, var í félagsskap manna sem eins var ástatt og fyrir mér. Við slæpt- umst, drukkum saman.Urðum svo leiðir á þessu lífi. Sumir fóru í Black and Tan til þess að berja á Irum. Þaö vildi ég ekki. Mér féll vel við íra. Og þegar ég var ger- samlega auralaus, gerðist ég sjó- maður en féll það ekki og hefði eins viljað vera í fangelsi eins og á skipi, en ég þraukaði, þar til ég var afskráður. Enn slæpingslíf. Reyndi að vera rithöfundur. Um þetta leyti dó móðir mín. Hún hafði búið við fremur þröng kjör, eftir að pabbi og Jim dóu, og eina systir mín hafði gifzt til Ind- lands. Ég erfði dálitla upphæð, en hún entist mér ekki lengi — pen- ingar endast aldrei lengi, ef maður hefir ekkert mark aö keppa að og er vinalaus i þokkabót. Hann þagnaði, horfði á hin til skiptis. Frásögn hans virtist eng- in áhrif hafa haft á Horace Femm. Sir William var á svipinn eins og honum liöi hálfilla, en Gladys og Philip og Margaret kona hans horfðu á hann meö samúð. Svo hóf hann máls aftur og var æstur: — Ykkur finnst víst, að ég hafi verið að reyna að réttlæta mig en svo er ekki, þaö er ekkert eins dæmi, að svona fari fyrir piltum nýsloppnum úr skóla, og þeim eru ekki neinar málsbætur í að hafa misst feður sína og bræður og hafa verig gabbaðir. Sé einhver kjarkur og dugur í mönnum ættu þeir að geta sigrazt á slíku mót- læti, en mér finnst ég lifa í myrkri, án þess að hafa kraft til þess að brjótast út úr því. Þið vitið um hvað ég spurði Waverton — ég vildi vita hvort hann hugsaði eins og ég, en svo var ekki. Ég hafði komizt að raun um, að ef maður álpast út í lífið eins og ég gerði veröi maður gabbaður og verði fyrir áfalli. Maður verður víst fyrir annarri reynslu ef. maður fer að öllu rólega, þá kannski lagast allt og allt fer vel, en annars verð- ur maður eins og mállaus skepna og þá er lífið ekki neins virði. — Það er kannski ekki eins breitt bil og þér ætlið á milli hugs- anabrauta okkar, sagöi Philip, mér finnst bara, að maöur eigi að gera eitthvað sjálfur til þess að sigrast á erfiðleikunum. Eldhúsið, ,sem allar húsmœdur dreymir um Hagkvccmni, sfilfegurð og vönduð vinna á öllu. iit Skipulcggjum og gerum ydur fasf verdtilbod. Leitið upplysiriga, ALBERTSSON & P.O. BOX 571, SÍMI: 1-93-44 HANNESSON REYKJAVÍK ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr Harðplosíi: Format innrcttingar bjóða upp á annatS hundrað tcgundir skcpa og litaúr- val. Allir skópar með baki og borðplata sér- smiðuð. Eldhúsið fæst mcð hljóðcinangruð- um stólvaski og raftækjum af vönduðustu gcrð. - Sendið eða komið með mól of eldhús- inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis og gcrum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag- stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn í tilboðum frú Hús & Skip hf. Njótið hag- stæðra greiðsluskilmóla og . lækkið byggingakostnaðinn. HÚS &SKIP hf • • LAUGAVEGI 11 • SlMl 21515 T A R Z A N Tarzan, er Bilski flugstjóri hjá þér? Nei, Yeats hershöfðingi. Enda þótt ég geti nærri því snert hann frá þeim staö, sem ég er á. Hvers vegna getum viö þá ekki lent og tekið ykkur báða upp í? Þaö er smáatriði varöandi 50 villimenn, sem fegnir bæta ykkur við fórnardýr sfn. Notaðir bílar Höfum nokkra vel meö fama bíla til sýnis og sölu hjá okkur. Taunus 17 M 4 dyra árg. ‘62. ■ Taunus 17 M 2 dyra árg. ‘60. Rambler 1963. Vauxhall Velox ‘63. Galaxie 500. Cortina 1966. Commer sendibíll 700—1000 kg., árg. 1962. Falkon 1965. Skoda 1202 station árg. ‘64. Tækifæri til þess að gera góö bíla- kaup. Hagstæö greiðslukjör. Bíla- skipti koma til greina. Ford-umboðið Sve/’nn Egilsson h.f. Laugavegi 105, Reykjavik Símar 22466 og 22470. FRAMKÖLLUM FILMURNAR FLJÓTT OG VEL CEVAFOTO MlSTURSTRÆTI 6 METZELER hjólbarðarnir eru sterkir og mjúkir, enda vestur-þýzk gæða- vara. Hjólbarða- og benzinsalan við Vitatorg. Simi 23900 Barðinn h.f. Ármúla 7. Simi 30501 Almenna Verzlunarfélagið h.t. i Skipholti 15. Sfmi 10199 | ■ .«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.