Vísir - 30.05.1967, Síða 16
miMfllll.ltHllllllM
VI s IR
Þnðjudagur 30. maí 1967.
Waferston flytur
fyrirlesfur í dag
Albert Waterston, aðalsérfræð-
ingur Alþjóðabankans í áætlunar-
gerð, sem hingað er kominn í boði
Efnahagsstofnunarinnar, flytur fyr-
irlestur á vegum Viðskiptadeildar
Háskóla Islands í dag kl. 17.15 í
1. kennslustofu.
Fyrirlesarinn mun fjalla um gerð
efnahagsáætlana og þá reynslu,
sem fengizt hefur á umliðnum ára-
tugum. — Waterston hefur starfað
við Alþjóðabankann um tuttugu
Framhald á bls. 10.
„HvíturBenz á 60, stöðii
Lögreglan i radarmælingum á hin-
um „teppalögðu" götum
(Bj „Um leið og malbikið hefur verið lagað, þá eykst hrað-
inn“, sagði Jón Gunnarsson, lögregluþjónn nr. 141 við Vísi
í gær. Hann og Þorsteinn Steingrímsson, lögregluþjónn nr.
78, sátu í lögreglubifreið gegnt skrifstofum Vísis við Lauga-
veg 178 og mældu hraða umferðarinnar inn Laugaveginn
og Suðurlandsbrautina.
Við höfðum fylgzt með þeim félögum út um gluggann
hjá okkur á Vísi nokkra stund, en stóðumst að endingu
ekki mátið og gengum út til þeirra til skrafs og ráðagerða.
„Hvað er á seyði hjá ykkur?“
„Við erum aö mæla hraðann
á bílunum, hér á nýmalbikaöa
kaflanum. Notum til þess rad-
arinn, sem þú sérö hér.“
Það var Jón Gunnarsson, sem
varð fyrir svörum, og um leið
benti hann á apparat fyrir fram-
arb sig, undir mælaboröinu á
bílnum. Þetta var lítill kassi
með nokkrum tökkum, mæli-
skífu og vísi, sem slóst til og
frá. Skífan sýndi tölur frá 0
og upp í 160 km.
„Getið þið lesiö beint af mæl-
inum hraöa bílanna?"
„Já. Svo höfum viö sjálfrita
aftur í bílnum. Hann gerir línu-
rit af umferðinni jafnóðum. Það
er hægt aö sjá hraða bílanna af
honum líka.“
Þorsteinn Steingrímsson sat
undir stýri lögreglubifreiðarinn-
ar og beinir athygli okkar að
hlut, sem var ekki óáþekkur
ljóskastara 1 útliti.
„Þetta er appara^.ið, sem bein-
ir radargeislanum í þá átt sem
við viljum."
„Hvaö er geislinn breiður?"
„Hann er ekki breiður fyrst,
en breikkar fljött þegar lengr?
dregur, og er orðinn geysibreið-
ur á 10 metrum.“
Þorsteinn hefur haft auga
með umferðinni á meðan og
segir nú snöggt: „Þarna kemur
hvítur Mecedes Benz á tals-
veröri ferð,“
Viö fylgjumst með í mælitæk-
inu og ekki ber á öðru, en
Framhald á bls. 10.
Magnús Einarsson hjá sjálfritaranum.
Svíarnir þóttu
tii lítils sóma
Lítill sómi var frændum okkar
Svíum að komu tundurspillisins
Hallands hingað til Reykjavíkur.
Dátamir þar um borð virtust ekki
búa við mikinn aga, ef dæma má
eftir framkomu þeirra í landi. Hvar
vetna blöstu við mönnum niðri í bæ
fullir sjóliðar á föstudags- og laug-
ardagskvöld, og framkoma sumra
beirra með mestu endemum. Sáust
veir kasta af sér vatni utan við hús
á almannafæri, og einn mann léku
þeir svo illa að það stór sér á hon-
um á eftir. Hittu þeir hann á götu
báðu hann um eld í sígarettu og
begar hann hafði gefið þeim það,
-lógu þeir hann. Fékk hann glóð-
’.rauga á bæði og marbletti og hrufl
ur. Þetta vom verstu dæmin, en
drykkjulæti sjóliðanna vöktu al-
■nenna athygli. Það er orðið langt
síðan sjóliðar á herskipum sém
hingað hafa komið í heimsókn, hafa
Enri meðvifuEid-
arlous
Stúlkan sem slasaðist austur við
Skógafoss á miðvikudaginn í síð-
ustu viku, er enn meðvitundarlaus,
samkvæmt þeim upplýsingum, sem
Vísir fékk á Landakotsspítala í
morgun. Hefur hún ekki komið til
rneðvitundar frá því að slysiö varð.
sézt á götunum svona ölvaðir al-
mennt.
á að starf-
semin iamist ekki
Haldið áfram á sömu braut i skattarannsóknum
Guðmundur Skaftason skatta-
rannsóknarstjóri hefur sagt starfi
sínu lausu, svo og þrír aðrir starfs-
menn skattarannsóknardeildar. — í
yfirlýsingu frá fjármálaráðuneyt-
inu segir:
„Meö stofnun Skattarannsókna-
deildar var ákveðið að gera skipu-
lagsátak til að uppræta skattsvik.
Hefur þegar orðið mikill árangur af
starfi deildarinnar, sem er fyrst og
fremst að þakka skynsamlegum
vinnubrögðum skattarannsókna-
stjóra. Það hefur verið mikið og
erfitt verkefni að leggja grundvöll
að þessari nýju starfsemi og því
ánægjulegt að jafn hæfur og vel
menntaður maður og Guðmundur
Skaftason fékkst til að vinna þetta
brautryðjendastarf. Harmar ráðu-
neytig að fá ekki notið starfskrafta
hans áfram. Ekki hefir verið um
ágreining að ræða milli ráðuneyt-
isins og skattarannsóknarstjöra. —
Hefur ráðherra ítrekað leitað eftir
að fá hann til að falla frá lausnar-
beiðni sinni og hefur af þeim sök-
um dregizt að staðan væri auglýst.
(Hún hefur nú verið auglýst).
Um uppsagnarfrest þriggja starfs
manna deildarinnar er það að segja
að menn þessir réðu sig fyrst og
fremst með þaö í huga að undirbúa
sig undir að fá réttindi sem löggiltir
endurskoöendur. Einn hpfur lokifi
Framb. á hls 10
StöBug fjölgun þeirra, sem eru
hlynntir hægri akstri / Svíþjóð
Rætt v/'ð Pétur Sveinbjarnarson umferðarfulltrúa, sem er ný-
kominn úr heimsókn til sænsku hægri nefndarinnar
□ Það dylst engum, sem kcmur til Svíþjóðar um þessar
mundir, hvað í vændum er. Hvarvetna getur að líta augiýs-
ingar sem snerta þá fyrirætlun Svía að breyta úr vinstri um-
ferð yfir í hægri umferö 3. september nk. Hin víðtæka upp-
lýsingaherferð framkvæmdanefndar hægri umferðar i Sví-
þjóð setur og mikinn svip á dagskrá útvarps og sjónvarps
og lesefni blaðanna. Það er lögð inikil áherzla á að fræða
sænskan almenning, ekki aðeins um hægri umferð, heldur
um umferðarmál almennt, sagði Pétur Sveinbiarnarson, um
ferðarfulltrúi umferðarnefndar Reykjavíkur í stuttu samtali
við Vísi í gær.
Pétur hefur undanfarinn hálf-
an mánuð dvaliö í Svíþjóð til að
kynna sér starfsemi fram-
kvæmdanefndar hægri umferð-
ar
Megintilgangurinn ineð
ferðinni var tvíþættur, sagði
Pétur. Annars vegar fór ég til
að kynnast starfsemi sænsku
framkvæmdanefndarinnar. Hins
vegar til að kynnast upplýsinga
og fræðslustarfsemi í sambandi
við breytinguna í hægri umferð.
Þá fór ég til borgarinnar Norr-
köping til að kynna mér hvern-
íg ein borg vinnur úr heildár-
áætlun framkvæmdanefndarinn
ar miðað við sína sérstöku stað
hætti.
Undirbúningurinn í Svfþjóð
hefur skipzi í fimm sjálfstæða
meginþætti sem. allír eiga þó
eitt sameiginlegt: Kynningu á
umferðarmálum almennt. Jafn-
framt þessu hefur orðið ger-
breyting á umferðarfræðslu f
útvarpi, sjónvarpi og blöðum.
T.d. vinna 40 manns h.iá sænska
sjónvarpinu, eingöngu við það
að búa til umferðarþætti Aðal-
herferöin fyrir H-daginn 3. sept.
hefst nú upp úr miöjum ágúst
og nær hámarki sínu á H-dag-
inn sjálfan. Daginn áður en
breytingin tekur gildi kemur
handbók um hægri umferð inn
á hvert einasta heimili í'Svfþióð.
— Hvemig eru viðhorf al-
mennings til hægri umferðar?
— Þegar fram fór þjóðarat*
kvæðagreiðsla fyrir 10 árum
Framhald á bls. 10.