Vísir - 13.05.1968, Blaðsíða 1
58. árg. - Mánudagur 13. maí 1968. — 103. tbl.
Aðeins 4 af 10 í starfi 2
árum eftir brautskráningu
Rannsókn hefur leitt i ljós að
um 34% hjúkrunarkvenna hverfa
frá starfi sama ár og þær eru
brautskráöar frá hjúkrunarskólan-
um, en að 2 árum liönum hafa um
60% þessa fríða hóps horfiö frá
starfi. Kom þetta í ljós við rann-
sókn, sem Kjartan Jóhannsson,
verkfræöingur gerði á vegum fjár-
málaráðuneytisins á s.l. ári. Telur
Kjartan að aðeins 1 hjúkrunarkona
af hverjum 3 starfi að meðaltali við
hjúkrun. Innan við % af braut-
skráöum hjúkrunarkonum starfa
við hjúkrun, þar til þær hætta
sökum aldurs.
Þessar upplýsingar birtast í
grein eftir Maríu Pétursdóttur f
Tímariti Hjúkrunarfélags Islands,
1. tbl. 1968, þar sem rætt er m. a.
um hvernig hægt sé að ráða bót á
hjúkrunarkvennaskortinum, og
telur María að nauðsynlegt sé að
fá sem flestar giftar hjúkrunarkon-
ur aftur til starfa og að stuðla
þurfi aö fjölbreytilegri um-
sækjendahópi til hjúkrunamáms.
ísinn þéttist og nólgnst dng frd degi:
ís rekur hratt inn Hrútafjörð
— Allar siglingaleiðir virðast ófærar, fc>ar sem
is er — El á n-austurlandi — Enn er spáð norðanátt
■ Hafísinn þéttist nú dag I fjörð, og virðast allar sigl-
frá degi allt frá Vestfjörð- ingaleiðir lokaðar á þessu
um og suður fyrir Vopna-1 svæði. Norðanátt með élj-
um hefur gengið yfir í nótt
á norð-austurlandi og eru
fjallvegir þar víða ófærir
sökum snjóa.
ísfregnir höfðu borizt I morgun
frá allmörgum stöðum oghvarvetna
Hafisinn veldur Húsvík-
ingum þungum búsifjum
— Goðafoss innilokaður / /s með fyrsta farminn
af kisilgúr
■ Heldur ömurlegar fréttir ber-
ast nú frá Húsavík. Fréttaritari
Visis skýrði frá þvl í morgun,
að flðlnn sé nú fullur af fs og
‘alsvert af jökum hafi komizt
!nn á sjáifa höfnina, þrátt fyrir,
’ð Húsvíkingar hafa strengt stáí
•'fr fyrir hafnarkjaftinn til þess
reyna að haida henni auðri.
Goðafoss er lokaður inni á Húsa
vík, en í gær og fyrradag lestaði
hann 100 kassa af grásleppu-
hrognum og kavíar, 100 tonn
af síldarmjöli og 70 tonn af
kísilgúr, en þar-er á ferðinni fyrsti
kísilgúrinn frá verksmiðjunni, og
þykir mönnum óhönduglega til tak-
ast f þetta fyrsta skipti. 25 af
þessum 70 tonnum eiga að fara til
Englands en afgangurinn er seld-
ur til Þýzkalands.
ísinn hefur valdið Húsvíkingum
þungum búsifjum. Á föstudag sá-
ust fyrstu jakarnir. Þá brugðu
menn við, þeir sem áttu net sín
í sjó, þorskanet og hrognkelsanet
Ekki tókst þó að bjarga netunum
en eftir fjölmargar tilraunir undan
farna daga hefur tekizt að ná upp
um helmingi netanna, en hitt mun
vera glatað. Um 700 þorskanet
voru í sjó upphaflega auk hrogn-
kelsaneta, svo að þarna er um
tilfinnanlegt tjón aö ræða, sem er
enn þungbærara, þar sem margir,
sem misstu net sín f ísnum í vet
ur voru nýbúnir að endumýja
netastól sinn, verða nú aftur fyrir
sams konar tjóni.
m~> 10. síða
Beðið fyrir betri tíð
— Hinn almenni bænadagur er 79. mai
□ „Farsæid lands vors og
friður í heimi“. er yfir-
skriff bænadagsins að þessu
sinni, en hann verður 19. þ.
■m. Biskupinn segir í bréfi
sínu, að miklir erfiðleikar
steðji að á bessu vori og beri
þar fleira til en veðurfarið
eitt.
„Á hinum almenna bænadegi,
19. þ. m., skulum vér minnast
beirra, sem ógæftir, aflabrestur
og vorharðindi bitna mest á. Vér
skulum biðja þess, að þjóðin í
heild takist á við erfiðleika af
manndómi, þegnskap og sam-
huga um almannaheill. Vér höf-
um átt gengi að fagna í ytri
efnum, hvernig sem vér höfum
kunnað að taka því, meta það
og þakka. Biðjum þess, að vér
megum mæta örðugleikum, að
það geri oss meiri menn, þjóð-
ina andlega traustari, raunsærri
og þrekmeiri."
Ennfremur minnist biskup á,
að vandamál okkar eru smávægi
leg hjá þeim raunum, sem aðr-
ar þjóðir búa við. Menn eru
beðnir um að biðja fyrir þeim,
sem vinna að sáttum og friði
og leita lausnar á þeim pólitísku
flækjum, sem tefla oss öllum í
beinan voða og opinn dauða, ef
eigi greiðist úr.
Hvatt er til að biöja fyrir auk-
inni vakningu til trúar og að á-
hrif Jesú Krists megi aukast.
„Guð gefi oss bænaranda og öll-
um, sem hans leita. friö sinn og
eilífa farsæld," segir biskup í
niðurlagi bréfs síns.
virðist ísinn færast nær landinu og
stöðugt þéttast. ísfregnir komu frá
tveimur stöðum, sem ekki hafa
sent ísfregnir til þessa á vetrinum,
en það er frá Þóroddsstöðum í
Hrútafirði, en þar eru ísjakar á
reki hratt inn fjö.rðinn, og frá Sval-
vogum við Dýrafjörð, en þar segir
að talsvert af fsjökum sé á sigl-
ingaleið. Landfastur is er við Siglu-
nes, Mánárbakka og Hraun. Tals-
verður fs er á Norðfjarðarflóa og
Vopnafjörður virðist fullur af fs.
Veðurstofan spáir áframhaldandi
norðlægri átt, og meðan vindur
stendur af ísnum er mjög kalt við
strendurnar. Var hvarvetna norð-
anlands frost í nótt og er þar vfð-
ast hvar alhvftt. Gera má ráð fyrir
að margir vegir hafi teppzt í nótt
sökum snjókomu, en f morgun var
byrjað að ryðja Holtavörðuheiði og
stóðu vonir til að hægt yrði að
opna heiðina um hádegið. Kulda af
fsnum gætir allt hingað suður á
Iand, og f morgun var 2ja stiga
frost í Reykjavík.
skóla
Vorskólarnir byrja i dag, og fá
hundruö reykvfskra barna þvf
sín fyrstu kynni af skólagöng
unni í dag. Veröa bömin ,sem
flest eru sex ára gömul, f undir
búningsskóla þessa viku ,en
næsta haust byrja þau sfðan f
7 ára bekk í barnaskóla. Þessa
mynd tók ljósmyndarinn í morg
un viö Hlíöaskólann i Hamrahlíð
þegar foreldrar voru aö koma
með böm sin í fyrstu kennslu-
stundina.
Meirihluti fólks á móti hægri-umferð!
Breytingin á sér
fáa stuðningsmenn
■ 1 skoðanakönnun um afstöðu
fólks til hægri-breytingarinnar,
sem Vísir framkvæmdi, kom út
sú merkiiega niðurstaða, að
meirihluti fólks er mótfallinn
breytingunni, 54% voru á móti,
en aðeins 31% með, en 15%
óákveðnir.
Ef aöeins er tekiö tillit til þeirra
sem hafa ákveðna afstöðu til
málsins, voru 35% hlynntir breyt-
ingunni, en hvorki meira né minna
en 65% á móti.
Þessar niðurstöður eru harla
athyglisverðar, þar sem þær leiða
í ljós, að andstæðingum breyting
arinnar fjölgar, og fylgismenn henn
ar eru sem óðast að hverfa frá fyrri
afstöðu sinni. í Svíþjóð gengu mál
in ekki svona fyrir sig, heldur var
mikill meirihluti fólks þar hlynnt
ur brevtingunni þegar þeirra H-dag
ur rann upp.
Einhvers staðar hlýtur að vera
pottur brotinn hjá okkur, því að
H-áróöurinn hefur lítil áhrif eða
jafnvel þveröfug við það, sem til
er ætlazt. Hefur fé verið varið til
einskis?
Á bls. 9 í dag er skýrt nánar
frá skoðanakönnuninni um hægri
breytinguna, en hún á tvimæla-
laust etfir að vekja mikla athygli.
VISIR