Vísir - 31.05.1968, Qupperneq 2
435horfðu á,
„hægum sunnun sjö"
Landslið — M.W. 2:4 i Laugardal i gærkvöldi — Þórólfur meiddist illa
lundsleik"í
MIKLAR hetjur eru þær
435 sálir, sem lögðu leið
sína á Laugardalsvöll í gær
kvöldi til að horfa á óopin-
beran landsleik, sem leik-
inn var í „hægum“ sunnan-
sjö eins og sagt hefur ver-
ið. Já, 435 borguðu sig inn
þrátt fyrir veðrið, þar af
218 börn og 217 fullorðnir,
en veðrið var slíkt, að marg
ur hefði notað slíkt sem af-
sökun fyrir að nenna t. d.
ekki út í mjólkurbúð, en
knattspyrnan hefur sem sé
aðdráttarafl og virðist veð-
ur ekki hafa teljandi áhrif
á suma áhangendur þess-
arar íþróttar.
Leikurinn bar öll einkenni veður
lagsir(s eins og gefur að skilja,
leikmenn liðanna náðu litlu sem
engu úr leik sínum. Bretarnir léku
undan veðrinu í fyrri hálfleik og
skoruðu 3 mörk gegn engu. Fyrst
kom sjálfsmark Guöna Kjartans-
sonar, eins bezta manns fsl. liðs-
ins á 1. mínútu, þá þrumuskot
Colletts á 30. mín sem lenti uppi
undir þverslá algjörlega óverjandi
og loks á 43. mín klaufamark sem
reiknast á vörnina.
í seinni hálfleik byrjuðu M.W. á
að skora. Fay skoraði með hörku-
skoti á ská við markið.
Þórólfur Beck, sem hafði verið
iangbezti maður ísienzka liðsins í
fyrri hálfleik lék ekki með seinni
hálfleik og veikti það að vonum lið
ið mjög. Inn kom í staðinn Gunn-
ar Gunnarsson. Hermann skoraði
4:1 á 12. mínútu með góðu skoti
utan vitateigs, og á 43 mín skoraði
Guðmundur Eyjólfsson úr Breiða-
bliki 4:2, sendingin kom frá Eyleifi
og skoraði Guðmundur örugglega
úr góðu færi.
Hannes Þ. Sigurösson dæmdi
leikinn og gerði það vel.
Þórólfur fór eins og fyrr segir af
leikvelli í hálfleik. Hann hlaut
slæman skurð á annan fótinn og
verður e.t.v. frá knattspyrnu um
nokkum tíma af þessum sökum
aö þvi er iþróttasiðan frétti seint
í gærkvöldi.
GUÐMUNDUR GISLASON
Hefursett 100 Islamfsmet!
Þeir eru sannarlega ekki
margir íþróttamennirnir í
heiminum, sem geta státað
af þvf að hafa sett 100 sinn-
um landsmet. Þetta getur
Guðmundur Gíslason, sem í
fyrrakvöld setti sitt hundr-
aðasta met frá þvf að hann
tók að keppa f sundi. Hann
synti þá 100 metra flugsund
á 1.02.5, sem er nýtt íslands-
met.
Hörkukeppni var 1 200 m
baksundi kvenna, en þar kom
Sigrún Siggeirsdóttir fyrst i
mark á nýju íslandsmeti 2.44.1,
Hrafnhildur Guðmundsd. varð
önnur á 2.45.0, en gamla metið
er 2.45.7, þannig að báðar syntu
þær á betri tíma en metið var.
Glæsilegum árangri náði Ellen
Ingvadóttir, var aðeins 1/10 frá
meti Hrafnhildar Guðmundsd. í
100 m bringusundinu, synti á
1.21.2. Er það bezta metið í
kvennagreinum samkvæmt stiga
töflunni.
Ekki tókst Leikni Jónssyni að
bæta met Harðar B. Finnssonar
í þetta sinn en hann synti á
1.12.5 í 100 metra bringusund-
inu, metið er 1.11.1.
Tvö íslandsmet til viöbótar
voru sett á mótinu, og sýnir
þaö að sundíþróttin er í miklum
uppgangi. Ármannsstúlkurnar
settu met í 4x50 metra skrið-
sundi á 2.06.2, en gamla met-
ið var 2.10.5 og Ármannssveit
setti met í 4x100 metra bringu
sundi á 5.00.5, gamla metið
5.16.2. Millitlmar 1 sundinu voru
góðir, Leiknir fékk 1.13.0 og
Guðmundur Gíslason 1.13.2.
M U N I Ð,
60 km hámarkshraða á Keflavíkur-
vegi á leið á leik Keflavikur og
I Schwartz-Welss á 'annan í hvita-
EINAR BOLLASON — ákveðinn í sunnu.
aö halda uppi merkinu með félög-1
um sinum í Þór á Akureyri,
Hans Hiilsmann, miðvörður liösins. Merchel, markvörður Schwarz-
Weiss.
h
Kracht miðherji.
Þýzkir atvinnumenn leika
ium i por a AKureyn. $-; m æ # ■ | ■
Einar Bollasoa ! Keflavík á 2 ' nvítasunnu
ófram
0 I viðtali við Akureyrarblað-
ið Dag skýrir Einar Bollason frá
þeirri ákvörðun sinni að halda
áfram að þjálfa körfuknattleiks
menn á Akureyri og leika með
þeim, en eins og kunnugt er
náði hann ótrúlegum árangri á
stuttum tima með körfuknatt-
leiksmenn Þórs, sem urðu í 3.
sæti á íslandsmóti 1. deildar.
Segir í upphafi greinar Dags
að sú saga hafi verið á kreiki í
bænum „að KR-ingar legðu mik-
nyrðra
ið kapp á að ná Einari Bollasyni
suður aftur“, og að alveg óvíst
væri að hann yröi á Akureyri
næsta vetur.
í viðtalinu staðfestir Einar að
hann muni í vetur starfa viö Gagn
fræðaskólann á Akureyri og þjálfa
flokka Þórs í körfuknattleik auk
þess sem hann leikur með liðinu.
Telur hann ólíklegt að sigrar
vinnist á vetri kömanda gegn ,,stór
veldunum ÍR og KR” — Akureyr
inga’skorti hæð gegn þessum tveim
liðum enn sem komið er. ,
• Vestur-þýzka knattspyrnu-
liðið Schwarz-Weiss frá Essen
er væntanlegt til íslands um
næstu helgi í boði iþróttabanda-
lags Keflavíkur. Liðið mun leika
þrjá leiki hér á landi, hinn fyrsta
við Keflvíkinga mánudaginn 3.
júní (annan í hvítasunnu) kl.
4 e. h. f Keflavík. Annar leikur-
inn verður svo við nýiiðana í
I. déild þ. e. lið íþróttabandalags
Vestmannaeyja sem fyrir nokkr
um dögum sigraði ísiandshieist-
arana Val í 1. deild. Fer sá leik-
ur fram miðvikudaginn 5. júní í
Keflavík. Þriðji og síðasti leik-
ur Þjóðverjanna verður svo á
Laugardaisvellinum föstudaginn
7. júní og leika þeir þá við úr-
valslið landsliðsnefndar.
Schwarz-Weiss er atvinnulið sem
hefur náð ágætum árangri í Þýzka
landi á undanförnum árum. Árið
1959 varð Schwarz-Weiss bikar-
meistari Þýzkalands i knattspyrnu
og f fyrra urðu þeir nr. 2 í „region-
allikunni“.
Leikmenn Schwarz-Weiss sem
hingað koma eru 15 talsins en auk
þess þjálfari og 4 fararitjórar, eða
alls 20 manns.
Leikmenn Schwarz-Weiss:
Markverðir: Hermann Merchcl
og Manfred Muller.
Varnarleikmenn: Herbert Stoffmehl
Horst Kracht Hans HUlsmann H.J.
Launert. Rolf Bauerkamper.
Tengiliðir: Heinz Ressemann Wol
fgang Klein, Gerd Demmer, Heinz
Redepennig.
Framherjar: Hans Joachim Horst
Grenda, Peter Wirsching, Manfred
Kaufmann.
Fararstjórar: Klaus Dieter Richt
er, Willi Kaiser, Rudi Theilmann,
Paul Saupke.
Þjálfari liðsins er Host Witzler.
Lið Keflvikinga.
Lið I.B.K., sem leikur við Þjóö-
verjanna á mánudag annan í hvíta-
sunnu) kl. 4 e.h. verður þannig
skipað: Kjartan Sigtryggsson, Ást-
ráður Gunnarsson, Guðni Kjartans-
son, Einar Magnússon, Sigurður Al-
bertsson, Hjörtur Zakaríasson,
Karl Hermannsson, Grétar Magn-
ússon, Einar Gunnarsson, Magnús
Torfason, Jón Ól. Jónsson.