Vísir - 15.06.1968, Blaðsíða 3
/
V í S I R . Laugardagur 15. júní 1968.
3
MYNDSJÁ
Og hér sjáum viö qinn af hinum fjölmörgu fallegu görðum borgarinnar, sem setja hreinlegan
og menningarlegan blæ f- umhverfið.
mn
Tjessa dagana er unnið af
kappi um allan bæinn við
að snyrta og hreinsa borgina og
miðast nú allt við að koma lóö-
um, görðum og portum í snyrti-
legt horf fyrir þjóðhátíðina á
mánudaginn, Heilu skúrarnir
eru rifnir niður með stórtækum
vélum og vörubilar flytja leifar
þeirra á haugana. Spýtnarusl í
húsagörðum lendir lika á haug-
unum og í staðinn spretta upp
blóm og trjárunnar meðfram
híbýlum manna.
Lóðahreinsunin svonefnda
hefur sem sagt verið í fullum
gangi síðustu vikumar, og er
nú svo komið að vandfundinn
er sá húsagarður, sem hægt er
að telja ósnyrtilegan og borg-
inni til ósóma. Hreinsunardeild-
in svonefnda, sem starfar é
vegum gatnamálastjóra fylgist
lika vel með þrifnaðinum í
kringum hibýli manna og vinnu-
staði og lætur fjarlægja í sam-
ráði við eigendur allt það, sem
til óþrifnaðar er og óprýði.
Árið 1964, þegar lýðveldið
var 20 ára má segja, að veru-
legur skriður hafi komizt á
þessi mál og síðan hefur verið
haldið áfram að brýna fyrir
fölki, að það er ekki nóg að
taka til í stofunni, garðurinn og
það sem að vegfarendunum og
nábúunum snýr þarf líka að
vera snyrtilegt.
Vissulega verður haldið áfram
við að hreinsa til í borginni í
allt sumar, en þessa siðustu
daga fyrir 17. júní reyna þó
flestir að gera svo hreinlegt og
snyrtilegt við hús sin og húsa-
garða, að hægt sé að segja að
höfuðborgin sé falleg á sjálfan
þjóðhátiðardaginn.
Fallegt hús, ósnyrtilegt umhverfi. Reyndar verður líklega búið
að fjarlægja þetta járnarusl, þegar þessi mynd birtist.
■ í"
•***+*?»•*••&
Hér er verið að rífa gamalt íbúðarhús í portinu við Brú í
Brautarholtinu, en þar hefur verið unnið að miklum hreins-
unum undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum Péturs
Hannessonar hjá hreinsunardeiid gatnaihálastjóra.
Einstaka bakgarðar eru ennþá óhreinsaðir. Vonandi víkja flestir spýtnahaugarnir áður en
langt um líður fyrir fallegum blómabeðum og trjárunnum.
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Það sparar yður t'ima og ójpægindi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæð —Vonarstrætismegin — Sími 13175 (3l'mur)
»