Vísir - 08.07.1968, Síða 3
VÍSIR . Mánudagur 8. júh' 1968.
o o FRAM — o □ 'lBK 1:1 (0:0)
Keflvíkingar krækja í fyrsta stigið
— Þorbergur varði vitaspyrnu — lá við aðsúg
að dómara i leikslok
■ Lengi hefur reynzt erfitt að sjá fyrir um úrslit leikja, er botn-
lið og toppiið hafa mætzt, og leikur Framara og Keflvíkinga
á laugardaginn í Keflavík er engin undantekning í þessu efni.
Eftir frammistöðu Keflvíkinga undanfarið mátti halda, að þeir
yrðu Fram fremur auðveid bráð. Svo reyndist þó ekki. Keflvík-
ingar mættu ekki aðeins til leiks í nýjum, alhvítum búningum,
heldur og með „nýtt“ lið, sem barðist af kappi og sigurvilja allan
Ieikinn, þótt uppskeran yrði „aðeins“ 1 stig, sem reyndar hefði
mátt réttilega vera 2 stig eftir gangi leiksins. Framliðinu gekk
hins vegar ekki eins vel nú og áður, og er mér ekki grunlaust um,
að „toppskrekkur“ sé farinn að gæta sín meðal liðsmanna, því
að léttleiki og áræðni liðsmanna var ekki eins rík í þeim og áður.
Fyrri hálfleikur var nokkurs kon-
ar „tíðindalaust frá vesturvígstööv-
unum“ ef svo mætti orða. Aðal-
áherzlan var lögö á varnarleik, þar
sem hvorugur aðiianna lét hlut
sinn, og hefði Valur Benediktsson
dómari átt að taka strangar á brot-
um leikmanna, þegar í fyrri hálf-
leik. „Á skal að ósi stemma“ segir
máltækið, en harka færðist í leik-
inn, harka, sem Valur gat ekki ráö-
ið við að stööva.
Aðeins tvö teljandi marktækifæri
sköpuðust f hálfleiknum. Hið fyrra,
er Jóhannes Atlason, bakvörður
Fram lék meö hliðarlfnu og sendi
knöttinn fyrir markið til Ágústs
miðframherja, sem var óvaldaður,
en hitti ekki knöttinn. Skömmu
seinna varði Þorbergur mark-
vörður glæsilega skot frá Magnúsi
Torfasyni.
Þegar iangt var liðið á hálfleik-
inn, vippaði Grétar Magnússon
knettinum laglega inn fyrir vöm
Fram, og ætlaði hann Jóni Ól., en
Jóhannes bakvörður komst inn í
sendinguna, og spyrnti í eigið mark.
Öllum til mikillar furðu var markiö
dæmt ógilt, og gat ég ekki séð á-
stæðuna til þess.
Síðari hálfleikur:
Sfðari hálfleikur fór að mestu
fram á vallarhelmingi Fram, enda
missti liðið Anton Bjamason út af
seint f f. hálfl. og veikti það vörn-
ina mikið.
Á 12. mfn. tóku Keflvíkingar for-
ystuna, eftir allgóða sóknarlotu.
Magnús Torfason sendi háan knött
inn í markteig til Einars Gunnars-
sonar sem skallaði óverjandi í mark
ið, 1—0.
Keflvíkingar tvíeflast við þetta
mark sitt, sem jafnframt er þeirra
fyrstá mark í 1. deild, og gerast
allaðgangsharöir í vítateig mótherj-
ans. Á 20. mín. er Einari Gunnars-
syni brugöið á vítateig Fram, og
vítaspyrna dæmd. Sigurður Alberts-
son spymir, en Þorbergur ver snilld
arlega fast skot hans.
Framarar eygja nú vonina og
snúa vöm í sókn. Á 24. mín. er
dæmd aukaspyrna á Keflavík, úti
við vítateig. Var þaö ástæðulaus
dómur. Einar Ámason fram-
kvæmdi spymuna, og úr henni datt
knötturinn niður f markteig Kefi-
víkinga, þar sem Ágúst Guðmunds-
son, miöherji Fram, náði honum
og skoraði. Það sem eftir var leiks-
ins tókst ekki að skora mark, þrátt |
fyrir góða viðieitni beggja aðila.
Erfitt er að gera upp á milli leik-
manna Fram, því að þeir em jafnir,
að undanskiidum Elmari Geirssyni,
sem er fljótasti og leiknasti leik-
maður ísl. knattspyrnu í dag. Af
Keflvíkingum kom Magnús Haralds-
son mest á óvart, en allir leik-
menn liðsins áttu góðan dag.
Dómari í leiknum var Valur Bene
diktsson og missti hann gjörsam-
lega tökin á leiknum og gerði marg-
ar skyssur. En það mega áhorfend-
ur í Keflavík þó vita, að þeir leið-
rétta á engan hátt misgjörðir dóm-
arans með því að gera aðsúg að
dómaranum í ieikslok, eins og gert
var í Keflavík. Með slíkri fram-
komu getur komiö að því, að eng-
inn dómari fáist til að dæma leiki
f Keflavfk.
Emm.
Frá keppninni í fimmtarþraut. Berit Berthelsen, Noregi, tryggir sér sigur í greininni og sigrar hér
í 200 m hlaupinu. Númer tvö er Nina Hansen, Danm., og sú þriðja er Cederström Svíþjóð, lengst Lv.
ÆSISPENNANDI LOKAKEPPNI í
TUGÞRAUTINNI
Hedemark vann en Norðurlandamethafinn varð
*
annar. — Tveir Islendingar hættu keppni
■ Svíinn Lennart Hedemark
varð Norðurlandameistari í
tugþraut, annað árið í röð, eftir
æsispennandi keppni viö Dan-
ann Steen Smith Jensen. Báðir
kapparnir hlutu fleiri stíg en
gildandi Norðurlandamet Dan-
ans er, en árangur þeirra verð-
ur líklega ekki viðurkenndur,
vegna of mikils meðvinds í 100
m hlaupl og langstökki. Islenzka
þátttakan f tugþrautinni var
heldur rislág. Valbjörn Þorláks-
son varð að hætta keppni eftir
fjórar greinar, er hann var í
fjórða sæti, Páll Eiríksson togn-
aði f annarri greininni, og Jón
Þ. Ólafsson var þvi einn eftir
af ísienzku þátttakendunum.
Stóö hann sig meö miklum ágæt
um, hætti að vísu keppni í 1500
metra hlaupinu, sfðustu grein-
inni.
Eftir fyrri dag keppninnar
hafði Hedemark forystuna í tug-
þrautinni, var 9 stigum á undan
Dananum. Hélt hann forystunni
unz Daninn hrifsaði hana til sín
f stangarstökkinu, en þar stökk
hann 4,60 m og setti þar með
vallarmet. Sigraði hann með yf-
irburðum í greininni. En í næstu
grein sigraði Hedemark, en það
var í spjótkasti. Kastaði hann
þar 64,20 m. Þessi árangur hans
nægði honum til að ná foryst-
unni á nýjan leik, þar sem ár-
angur Danans í spjótkastinu var
slakur. Þá var aðeins eftir „mara
þonhlaup“ tugþrautarmannanna,
1500 m hlaupið. Ljóst var fyrir
hlaupið, að Daninn varð að
vinna hlaupið með 11 sek. mun,
eða um 60 metrum á undan
keppinautnum í mark. Þetta
tókst honum ekki, þrátt fyrir
hetjulegar tilraunir. Þeir voru
svo til jafnir er um einn hring-
ur var eftir af hlaupinu, og þá
tók Daninn mikinn endasprett,
en Hedemark átti nægilega mik-
ið þol eftir til að koma í veg
fyrir sigur Danans.
Steen Smith Jensen sigraði f
1500 m hlaupinu á tímanum
4:26,2, en Hedemark hlaut tím-
ann 4:33,8 eða um 7,6 sek á eftir.
Hedemark vann því tugþraut-
arkeppnina, hlaut 7625 stig,
Steen Smith Jensen hlaut 7603
stig, þriðji var Tuominen, Finn-
landi, 7187 stig. Jón Þ. Ólafs-
son hlaut 5654 stig, en keppti
aðeins í 9 greinum.
Fimmtarbraut kvenna:
Berthelsen
hafði yfírburSi
Marahonhlaupið:
Finnar í þrem fyrstu sœtunum
Jón Guðlaugsson á fyrsta Islandsmetið i greininni
□ Er yfir Iauk hafði Berit Berthel-
sen, Noregi, nokkra yfirburði
yfir kepplnauta sína í fimmtar-
þrautarkeppninni á Norðurlanda-
meistaramótinu, sem lauk á laug-
ardag. Árangur hennar var betri
en núverandi Norðuriandamet, en
það verður ekki viðurkennt vegna
of mikils meðvinds. Þrátt fyrir, að
Nina Hansen, Danm., væri i fyrsta
sæti eftir fyrri dag keppninnar,
tók norska stúlkan örugga forystu
í fyrstu grein síðari daginn og jók
enn muninn í síðustu greininni,
200 m hlaupinu, en þar sigraði hún
í mjög skemmtilegu hlaupi. ís-
lenzku keppendurnir, Þuríður Jóns-
dóttir og Sigrún Sæmundsdóttir,
ráku lestina í keppninni, og virtist
hvorug þeirra vera í nægilegri þjálf-
un.
Skemmtilegustu greinar þrautar-
innar voru langstökkið og 200 m
hlaupið. — 1 Iangstökkinu hafði
Berthelsen yfirbu.rði, stökk 6,31 m
lengst, en hitti alltaf illa á stökk-
plankann.
. Annars urðu heildarúrslit þessi:
Noröurlandameistari:
Berit Berthelsen, Nor., 4733 stig
2. Nina Hansen, Danm., 4585 stig
3. Gunnilla Cederström, Svíþjóð
4543 stig.
8. Þuríður Jónsdóttir, ísl., 3372 st.
9. Sigrún Sæmundsd., Isl, 3292 st.
□ „Af hverju gáfust þeir upp?“
sagði Jón Guðlaugsson, fyrstur
Islendinga, sem hleypur Maraþon-
hlaup í keppni, er hann frétti, að
fulltrúar Danaveldis í þessu hlaupi
hefðu gefizt upp. Jón kvaðst ekki
hafa verið neitt þreyttur eftir hlaup
ið, en að vísu nokkuö stirður í
hnjáliðum. Er afrek Jóns geysi-
gott, þar sem hinir erlendu kepp-
endur eru allir í mikilli þjálfun og
hafa æft með tilliti til þátttöku í
Olympíuleikum. Áhorfendur fögn-
uðu Jóni mjög, er hann hljóp síð-
asta sprettinn af þessu 42.195 m
langa hlaupi. Annars var þetta
hlaup algjör einkaeign finnsku
hlauparanna, sem röðuðu sér i 3
fyrstu sætin í hlaupinu.
Fljótlega eftir að hinir 13 hlaup-
arar lögðu af stað, og fyrstu tímam-
ir fóru að berast, var ljóst, að tím-
inn í þessu hlaupi myndi verða
góður, þar sem tímar hlaupar-
anna báru með sér, að mun betri
árangur yrði hér en í síðasta Mara-
þonhlaupi Noröurlandameistara-
móts, sem háð var í Kaupmanna-
höfn á síðasta ári.
Þó var nokkuð erfitt aö hlaupa,
þar sem mikil sól var, sem gerði
hlaupurunum erfiðara fyrir. Yfir-
leitt héldu hlaupararnir hópinn,
a.m.k. þeir 6—8 fyrstu, og það var
ekki fyrr en á síðustu fimm km,
sem virkilega fór að draga sundur
með þeim. Hlaupararnir fengu hress
ingu á leiðinni frá þjálfurum sín-
um, og Svíamir í hlaupinu höfðu
sérstakan fylgdarmann, sem hjólaði
með þeim alla leiðina.
Eins og fyrr segir, hljóp Jón
Guðlaugsson þetta hlaup og ákvað
þátttöku á síðustu stundu. Hann
sagði eftir hlaupið, að hann hefði ■
ekki æft rétt. Erfiðast hefði verið
fyrir sig að hlaupa niður brekkum-
ar á leiðinni, en það hefði hann
ekki gert á æfingum sínum, sem
hann stundaði aöallega í fjalllendi.
Annars urðu úrslit í hlaupinu
þessi:
1. Pentti Rummakko, Finnlandi,
2 klst. 17 mín. 47,1 sek.
2. Raimo Tikka, Finnlandi,
2:18:49,2
3. Paavo Pystynen, Finnlandi,
2:19:18,3
4. Bo Johanson, Svíþjóð,
2:20:00,8
5. Erik Östbye, Sviþjóð, 2:20:54,6
6. Harald Bjerge, Noregi, 2:22:51.3
Jón Guðlaugsson kom sfðastur
í mark og var tími hans í hlaupinu
3:51:03,8, sem er nýtt íslandsmet.
i