Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 5

Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 5
5 V1SIR . Þriðjudagur 22. október 1968. I Framtíðarhugleiðingar lum eldhúsið árið 2001 ' 2 □ Fyrir skömmu rák- \t umst við á hugleiðingar e í sænsku blaði um fram- '2 tíðar-eldhúsið. Sænskur • húsmæðrakennari tók 2 þær saman. Þar sem allt • af er gaman að því að ,2 spá fram í tímann segj- • um við frá nokkrum J þeim nýjungum, sem 2 verða orðnar daglegt • brauð árið 2001. P'jölskylda ársins 2001 borðar daglega úti eina eöa tvasr máltíðir og notar eldhúsiö sitt á frídögum og fyrir smárétti. Þetta er vegna þess að eldhúsið er annað nú en árið 1968. Það er ekki herbergi, fullt af skáp- um og eldhúsáhöldum. Eldhúsið er hluti dagstofunnar, vegna þess að engin matarlykt þekkist lengur, og allir hlutir £ eldhúsin eru glsesflegir og falla inn í heildina. • Þegar borðað er úti er sama J næringargildi 1 matnum og • heima. 1 skólanum eru það skóla '2 máltíðirnar. Nemendumir ráða • þvi sjálfir hvaða rétti þeir velja • sér. Iðnaðurinn hefur tekið að 2 sér að búa til allan mat og • skólaeldhúsið bætir aðeins 2 herzlumuninum á, skreytingum 2, þvílíku. • Fjölskyldan 2001 eyðir ekki a miklum tíma £ aö losa sig við 2 gufu af rjúkandi réttum og pott- • unum. í lok 1980 hvarf gufan 2 af heimilunum, fyrst með sjálf- 2 virkum gufusjúgurum en þeir • urðu ómóðins og núna er til 2 sameiginlegt kerfi fyrir loftræst 2 ingu, hita, rakastig og hreinsun. 2 Ef gera á hreint, kem- • ur Jireingemingamaður á vett- • váiig og „skúrar" allt húsið. 2 Ekki með vatni og sápu heldur • últrasóntækjum. Frú 2001 hefur aldrei séð neinn handþvo diskana. Þegar hún var nýfædd áttu foreldrar hennar uppþvottavél. Hennar uppþvottavél er öðru visi, innbyggö i skápinn. Um leið og hún setur gler og postu- lin í hana þvæst það sjálfkrafa og gerilsneyðist um leið. Allar leifar hverfa eins og fyrir töfra- bragði — hvemig veit hún ekki en syni hennar, sem þykir gam- an að rafeindafræði finnst það segja sig sjáift. Skermurinn á myndsímanum sýnir nýjungarnar, þær vörur, sem fást á hagstæðu verði í svip inn og hvar sé veittur afsláttur. Frúin kaupir flestar vömmar í gegnum myndsímann — þar fær hún upplýsingamar og þarf svo aðeins aö fylla út kort og senda það símleiöis til kjör- búðarinnar, sem eiginlega er stórt vörugeymsluhús og sjón- varpsstöð. Vömmar koma sið- an beint til eldhússins. Og borg- unin — séö er um hana með beinum greiðslum á reikninginn. í bankanum. Það er sjaldgæft að borga út í hönd. Það er fljótlegt að verzla í gegnum myndsímann, Fjölskyld an 2001 notar hann einu í mánuði eða tvisvar, þegar keyptar em nauðsynjavörur. Það era engin vandræði með geymslurými. Nýjar þurrkaðferð ir hafa gert það að verkum að næstum öllum nauðsynjavörum er dreift í þurrkuöu ástandi. Þurrkunin er samt ekki notuö, þegar um er að ræða salat t.d., tómata, gúrkur eða fisk — þar hafa geislunaraðferöir tekið við og fjölskyldan 2001 getur glaðzt yfir því að fiskurinn, sem hún kaupir er sem nýr eins lengi og hver vill. En það er ekki eingöngu verzl að um myndsimann. Smábúðir em i hverfi þar sem fjölskyld- an fer daglega til þess að hitta kunningjana og kaupa smávegis inn. Þegar maður ætlar að kaupa eitthvað sérstakt er farið til hinna mikhi matarmiðstöðva þar sem smáverzlanir selja fágæti eins og ekta kjöt. Allur matur er næringarríkur og fjölskyldan veit hversu mikil næringarefni hún þarf að nota daglega til þess að lifa heilsi;- samlegu lífi. Feitar manneskj# eru nú svo sjaldgæfar, aö fólk snýr sér við á götunum til þess aö horfa á þær. Matartilbúningurinn er auð- veldur. Frúin tekur fram matinn, nokkrum mínútum áður en hann á aö vera á borðinu. Maturinn samanstendur mest af tilbúnum réttum, með öllu, sem tilheyrir á diskum eða stóru fati. Hún set ur matinn í sérstakan ofn — rafeindaofninn, sem er sérstak lega útbúinn með tækjum fyrir þurrkaöa rétti. Maður þrýstir á hnapp og á nokkmm mínút- um veröa þurrkuðu réttimir eins og nýir. Matreiðsla með gamla laginu er aðeins stunduð trl skemmtunar og hjá flestum fjöl skyldum er matur búinn til nokkrum sinnum í viku til gam ans. Það eru margir af báðum kynjum, sem hafa matreiðslu, sem tómstundagaman. Fjölskyldan 2001 borðar oft safarík buff — en núna era þau gerð úr grænmeti og betrum bætt með olíu. Vítamínum og næringarefnum öörum er bætt viö þann mat, sem ekki er nær- ingarríkur fyrir. Grænmetið er vinsælt hjá fjölskyldunni. Ykk- ur skal ekki furða það. Græn- meti fæst á öllum árstímum, margar tegundir og glænýtt. Sahara er eitt þéirra svæða, sem mikið af grænmeti er reektað á. „Get ég fengið 8 poka af bjór og einn af brennivíni?" Jú drykk ir fást nú í dufti í pökkum. Bjór inn, nokkrar víntegundir og bfennivín. Fínni drykkir em tappaðir á flöskur eins og í gamia daga. Og það að vera undir áhrifum við akstur er óþekkt fyrirbrigöi á árinu 2001. Árið 1986 fannst lyf, sem á nokkrum mínútum gerði manneskjuna bJáedrú eftir veizlur. Áður fyrr hafði thnbur roanna-vandamáliö verið leyst. Verzlunin Vnlvn Álftamýri 1 og Skólavörðustig 8 AUGLÝSIR: Telpna- og drengjapeysur, skyrtur, buxur gjafavörur og fleira. FRAMLEIÐENDUR: TIELSA, VESTUR-ÞÝZK GÆÐAVARA OG JÓN PÉTURSSON HÚSGAGNA' FRAMLEIÐANDI IsIaBIaíalalalalalaEsIalatsIalalalalálala 151 151 E1 151 151 151 151 151 EIDHUS- MBÍIH BllalalalalalalalalalaEIalala % KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐl - % STAÐLAÐAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI OG ÖLL TÆKI FYLGJA % HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR ODDUR HR UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN KIRKJUHVOU SÍMI 21718 og 42137 FULLKOM1Ð SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI Bílaþvottur 40.00, 45.00 og 50.00 kr. Þurrkun 30.00, 35.00 og 40.00 kr. Ryksugun 15.00 kr. ÞVOTTASTWÐIN SUÐURLANDSBEAUT SÍMI 30100 — OPIÐ FRÁ KL. 8—22.30 SUNNUD. FRÁ KL.: 9—22.30 W ——ii ■imi m Verzlunar- og iðnaðarhúsnæði 200—400 fermetra óskast til leigu. — Kaup koma til greina. Tilboð merkt: „Verzlun — iðnaður — 987“ sendist augl.d. blaðsins fyrir 26.10. n.k.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.