Alþýðublaðið - 30.09.1966, Qupperneq 1
Föstudagur 30. september ™ 47. árg- 220. tbl. ™ VERÐ 7 KR.
KIÐ ANNRÍKI H
NVARPSVIRKJ
I kvöld hefst dagskrá ísl-
enzfka sjásivarpsdnsi. Menn
hafa beöið liennar meS eftir-
væntingu, en því miður hafa
ekJii allir haft vit á því aó láta
.hreyta' k^rf'um sjónvarps-
tækjajina fyrr en á swVustU
stundu. Alþýðublaðið hafð'i í
gær tal af nokkrum siiónvarps
virkjum og sögðu þeir, að þeir
liefðu ekki getað annað öllum
þeim beiðnum mn kerfisbreyt
ingn, sem þeim hefi borizt.
Þessa v'iku liefði til dæmis
einn maður breytt inn 50 tæk-
jum, og væri afköst hinna
elftir því. Kváðu sjónvarps-
virkjar ástandið mjöig baga-
legt, þeir gætu alls ekki breytt
kerfum á öllum tækjum fyrir
föstudagskvöld. Væri þetta
og, miíkið fóíkinu sjíílfu að
kenna. Það hefði ekki haft
vit á því að biðja um kerfis-
breytingu fyrr en í lengstu lög.
Þó tjáðu sjónvarpsvirkjar blað
inu, að þeir mundu reyna ?
gera eins og þeir gæ.j, s\
að sem flestir gætu íiorft ó
íslenzku dagskrána í kvöid.
Schiraeh og Speer hafa afplánað
sinn dóm, sem var 20 ára fangelsi
Hess hefur neitað að, taka á móti
konu sinni og ættingjum í fang
elsinu og hvað eftir annað farið
þes,s á leit að honum verði sleppt
úr ’haldi. Rússar neituðu harð
lega að sleppa von Schirach og
Speer áður en þeir hefðu afplán
að dóminn og vísa nú á bug öll
um áskorunum um að náða Hess.
Ættingjar Speers og von Schir
achs halda því stranglega leyndu,
hvar þeir muni dveljast eftir að
þejm hefur verið sleppt úr haidi
Speer hefur verið beðinn um að
tala við blaðamenn áður en hann.
fer frá Vestur-Berlín til Vestur
Þýzkalands, en óvíst er hvort hann
gerir það. Speer verður í felum.
í tvær vikijr og . heldur .s'íðan
til Heidelbérg. þar sem hann mun
á ný starfa sem arkitekt.
Von Schirach, sem hvatti þýzka
æsku til ofstækisfullrar hlýðni við
skipanir Hitlers, er nú h'álfblind
ur og þjáist af hjartasjúkdómi.
Sonur hans hefur veitt vestur-
þýzku vikublaði rétt til að birta
sjálfsævisögu hans og mun blaðið
hafa tekið flugvél á leigu til að
flytja hann frá Berlín.
Vestur-þýzka innanríkisráðu-
neytið gaf ý dag út tilkvnningu
þess efnis, að hvorki Speer né
von Schirach fengju eftirlaun eða
skaðabætur.
Búdapest: — Kanadískur ríkisborg
ari, Volker Bussi Lemme, 29 ára
og kona hans, Janet Ellen 25 áya
bandarískur ríkisborgari, voru í
igær dæmd í 8 og 6 mánaða fapg
elsi fyrir að smygla tveimur aust
ur-þýzkum flóttamönnum frá Ung
verjalandi.
Þulur sjón-
varpsins
Það er í kvöld, sem íslenzka?
sjónvarpið hefst og er ekki að *
efa, að' allir þeir, sem kost eiga
á, muni horfa á það. Þulur í.
kvöld verð'ur Asa Finnsdóttir
og myudin hér að ofan var tek
in af henni við upptöku í gær
kveld’i. Fleiri myndir sem allar
voru teknar í gær eru í opn-j
unni. — (Mynd Bl.Bl.).
Lands'iminn
161 árs og í
fullu fjöri
. Baku 29. 9. (NTB — Tass) ,
Sovézki bóndinn Sjiraly Mislim
ov sem nýlega hélt upp á 161 árs
afmæli sitt gat í dag gert þau
orð Mark Twains að sínum að
Framhald bls. 10.
Rvík, - KE -
Landsími íslands tók til starfa
29. sept. 1906 og voru því í gær
liðin 60 ór frá stofnun bans. Eins
óg flestum er kunnugt vakti síma
málið harðar deilur með mönn
um hér á landi í upphafi, en þær
deilur heyra nú sögunni til og 1
dag er síminn það þjónustufyr
irtæki, sem enginn vildi án vera
og allra sízt íslendingar, sem tala
allra þjóða mest í síma.
Á þessu merkisafmæli var enn
einum áfanganum í þróun síma
mála náð, en í gær klukkan þrjú
voru teknar í notkun þrjór nýjar
sjálfvirkar símstöðvar, á Selfossi
Eyrarbakka og Stokkseyri. í því
tilefni var fréttamönnum blaða,
útvarps og sjónvarps boðið aust
ur á Selfoss til a'ð vera viðstadd
ir opnun sjálfvirku stöðvarinnar
þar.
Boðið var til hádegisverðar í
Tryggavaskála og flutti póst- og
simamálaráðherra, Ingólfur Jóns
son ræðu við það tælcifæri. Þar
voru einnig mættir, póst oig s-'ma
málastjóri, Gunnlaugur Briem
yfirmenn hinna ýmsu deilda
landssímans í Reykjavík, starfs
menn pósts og síma á Selfossi
og fleiri gestir.
í ræðu isinni minnti Ingólfur
Jónsson á það að 60 ár væru ekki
langur tími í sögu einnar þjóð
ar, en þó væru ekki nema 60 ár
síðan verklegar framkvæmdir hóf
ust á íslandi. Þ’á minntist ráðherra
tveggja framkvæmdamanna sem
báðir voru brautryðjendur,
Tryggva Gunnarssonar, sem m.a.
byggði Ölfusárbrúna, og Hannesar
Haflstein, sem leiddi símamálið
til lykta á sínum tíma. Hannes
kom því til leiðar, að gerður var
samningur við Mikla norræna
Símafélagið árið 1905 um la'gn-
ingu sæsíma til íslands. Símamála
ráðherra taldi uppbyggingu lands
símans hafa tekizt vel, og kæmi
þar margt til en þó væri það
e.t.v. þyngst á metunum, að sím
inn hefði alltaf haft á að skipa
góðu og skylduræknu starfsliði
Því hefði verið ákveðið að gefa
Félagi íslenzkra símamanna 100
þúsund krónur til byggingar sum
arbúða við Apavatn.
P'ramh. á 13 sfð i
Berlín 29. 9. (NTB-Reuter).
Tveir fyrrverandi nazistaleiðtog
ar yfirgefa stríðsglæpamannafang
ejlisi handamanna í Sþandau. á
miðnætti á laugardag, og þá verð
ur Rudolf Hess eini fanginn í fang
elsinu: Á slaginu tólf verða stál
dyr hins rauða múrsteinsfangels
is opnaðar og út munu ganga Bald
ur von Schirach, 59 ára gamall
fyrrverandi leiðtogi Hitlersæskunn
ar, c 1.3 Albert Speer, 61 árs fyrr
vérandi vígbúnnðiarmálaráðherra.
Rudolf Hess, sem nú er 72 ára
j að aldri, var dæmdur í ævilangt
! fangelsi í Niirnberg 1946, en von
varó 60 ára í