Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Blaðsíða 124

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Blaðsíða 124
24 Lestur og bækur Verðlaunin eru þrenn, 30 kr. fyrir besta svarið og er ætl- ast til að það sje mjög gott. Önnur verðlaun eru 20 kr. og hin þriðju 10 kr. Auk þess hefur Aschehougs forlag, Hafnar- deildin, gefið í viðbót við verðlaunin 3 eintök af hinni frægu ferðabók Friðþjófs Nansens, »Fram over Polarhavet«, skrautrit í 2 bindum, 1094 bls. með mörgum myndum, bókhlöðuverð 20 kr. eintakið. Fræðafjelagið áskilur sjer rjett til að láta prenta í Ársrit- inu þær ritgjörðir, sem verðlaun fá, og greiðir þá ritlaun fyrir þær. Þau eru ásamt prófarkalestri 30 kr. fyrir örkina. Til þess að dæma um ritgjörðir þessar verða fengnir tveir hinir færustu menn, og kjósa þeir 'hinn þriðja með sjer til þess. Þeir, sem vilja sæta þessu, eru beðnir að senda ritgjörðir sínar til forseta Fræðafjelagsins, Boga Th. Melsteðs, og nafn sitt í lokuðu umslagi með einkunnarorði á. Ritgjörðirnar eiga að vera komnar til forseta Fræðafjelagsins fyrir 1. apríl 1918. Lestur og bækur. Allir þurfa að lesa, til þess að bæta reynslu annara manna við eigin reynslu sína, og sjá, hvað best hefur reynst, og geta fært sjer það í nyt. Af góðum fræðibókum hafa menn hið mesta gagn. íslendingar þurfa að lesa, til þess að kynna sjer reynslu sinnar eigifi þjóðar og annara þjóða, hag þeirra, gjörðir og viðskifti, svo að þeir geti valið það, sem best á við, og var- ast það, sem ilt hefur í för með sjer; þá munu þeir taka miklum og góðum framförum. Á íslandi eru mörg heimili, þar sem engin góð og nyt- söm bók er til, framyfir þær fáu bækur, sem hvert heimili verður að hafa, til þess að geta fullnægt nokkurn veginn því, sem þjóðfjelagið og kirkjan krefur. En þetta þarf að breytast, ef þjóðin á að vakna og verða því vaxin, að geta tekið þátt í almennum samtökum til þjóðþrifa, eins og t. a. m. sam vin nu fj elagss kapu r er. Samvinnufjelögin ættu að taka að sjer að koma vekj- andi og fræðandi alþýðlegum bókum inn á þau heimili, þar sem engar bækur koma annars. Menn ættu að gefaung- lingum góðar fræðibækur í staðinn fyrir hitt og þetta, sem þeir hafa ekkert gagn af og oft skaða. Ársrit Frœiafjelagsins mun eftir megni fræða menn um önnur lönd og um ýmislegt úr þjóðlífi íslendinga, einnig um málefni íslensk og erlend, er landsmönnum má að gagni verða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn
https://timarit.is/publication/249

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.