Dagur - 13.03.1999, Síða 5
LAUGARDAGUR 13. MARS 1999 - 5
Ðumir^
FRÉTTIR
Kolbrún Halldórsdóttir á röddina á
símsvaranum í farsímakerfinu.
Símarödd
í framboð
„Við höfum ekki velt þessu fyrir
okkur en ég held ég geti sagt að
okkur finnist það ekki skipta
neinu rnáli," segir Olafur Steph-
enssen upplýsingastjóri um fram-
bjóðandann sem talar inn á sfm-
svarann í farsímakerfi fyrirtœkis-
ins. Kolbrún Halldórsdóttir sem
skipar 2. sætið á lista Vinstri
hreyfingar græns framboðs í
Reykjavík svarar í farsíma lands-
manna ef ekki næst í númerið
einhverra hluta vegna.
Þáttagerðarmönnum og jafnvel
veðurfræðingum er umsvifalaust
kippt út úr dagskrá Ríkisútvarps-
ins ef þeir fara í framboð en það
er ekki á Olafi að heyra að til
standi að skipta um rödd í far-
símakerfinu. Hann segir aðalat-
riðið að vel og skýrt sé lesið. „All-
ar rásir uppteknar eða síminn
utan þjónustusvæðis eru ekki
pólitísk skilaboð," segir Ólafur.-vj
Snjóflóöavörn
in sannar sig
ÓfullgerðiLr snjó-
flóðavamargarðiu
bægir snjóflóði frá
húsum í suðurhluta
Siglufjarðar.
Býsna öflugt snjóflóð féll í suð-
urhluta Siglufjarðarbæjar laust
eftir hádegi í gær án þess að
valda tjóni. Flóðið fór á varnar-
garð sem ekki er þó búið að full-
vinna. Hann nægði þó til að
breyta stefnu flóðsins og telur
Iögreglan á Siglufirði að farið
hefði illa ef garðsins hefði ekki
notið við.
„Menn áttu ekki von á að garð-
urinn myndi sanna sig á fyrsta
ári, en svo virðist vera, sem er
hið besta mál,“ segir Jón
Traustason hjá Iögreglunni á
Siglufirði. Hann segir að ef flóð-
ið hefði fallið óhindrað, hefðu
nokkur hús verið í hættu. Það
féll niður svokallað Strengsgil og
er talið 4-5 metrar á hæð og 15-
20 metrar á breidd. Flóðið end-
aði 5-10 metrum neðan við garð-
inn.
Engin aðvörun hafði borist um
snjóflóðahættu þegar flóðið féll f
gær en síðdegis höfðu Almanna-
varnir tilkynnt viðbúnaðará-
stand. Engar rýmingar höfðu þó
verið fyrirskipaðar þegar Dagur
fór í prentun, en Siglfirðingar
voru í viðbragðsstöðu.
Veðurfarslegar aðstæður voru
varasamar á Siglufirði í gær með
tilliti til snjóflóðahættu Töluverð
úrkoma frá norðaustri og hiti um
eitt stig. - BÞ
30 imlljóna
gjöfÞÞÞ
Dómskvaddir matsmenn hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
þegar Þórður Þórðarson þáver-
andi eigandi ÞÞÞ á Akranesi
seldi hlutafélagi sona sinna
rekstur og eigur bifreiðastöðvar
sinnar, áður en til skattsvikamála
hans og síðar gjaldþrots kom,
hafi hann selt eigurnar á undir-
verði sem nemur um 30 milljón-
um króna. Þetta kemur fram í
því riftunarmáli sem skiptastjóri
ÞÞÞ ákvað að fara út í og Dagur
hefur greint frá.
Þessi upphæð nær til ótraustra
87 milljóna króna skuldabréfa,
sem greitt var með fyrir eigurnar
og í ljósi þess að eigur voru seld-
ar vel undir sannvirði. Fyrir utan
fasteignir og bifreiðar voru
hlutabréf í Vöruflutningamið-
stöðinni og Haraldi Böðvarssyni
seld sonunum á undirverði.
Framlagðar kröfur í búið eru upp
á 1 56 milljónir króna. - FÞG
Arnþrúöi boðið í
dans með Sverri
Arnþrúöi Karlsdðttur
varaþingmaimi Fram-
sóknar í Reykjavík
hefur veriö boðið
1. sætið á lista Frjáls-
lyndra á Norðurlandi
eystra.
Arnþrúður Karlsdóttir, varaþing-
maður Framsóknarflokksins í
Reykjavík, hefur fengið tilboð frá
Sverri Hermannssyni og flokki
ftjálslyndra um að taka fyrsta
sætið á lista flokksins á Norður-
landi eystra fyrir komandi alþing-
iskosningar. Arnþrúður sagði í
samtali við Dag í gær að hún
hefði enga ákvörðun tekið en
Arnþrúður Karlsdóttir.
myndi hugsa málið vandlega um
helgina og taka ákvörðun á
næstu dögum. I fréttatilkynn-
ingu frá Frjálslynda flokknum
segir að Arnþrúður hafi þegið
boðið og muni leiða lista flokks-
ins en hún segir það ekki rétt.
Arnþrúður hefur verið í Fram-
sóknarflokknum í hartnær 30 ár
og hún segir það stórt skref að
segja skilið við flokkinn. Hún
náði aðeins sjötta sæti í prófkjöri
Framsóknarflokksins í Reykjavík
á dögunum og er því ólíkleg sem
þingmannsefni.
Alfreð Þorsteinsson, samherji
Arnþrúðar í Framsóknarflokkn-
um í Reykjavík, segir það mikinn
skaða fyrir flokkinn ef hún fari á
brott. Alfreð sagði aðspurður að
sér hefði ekki verið boðið sæti á
lista Framsóknar í Reykjavik.
Hann taldi hins vegar fráleitt að
spyrja sig hvort hann horfði sjálf-
ur til Sverris og frjálslyndra. - BÞ
Fékk hálfan skafmiðabíl
dæmdan af svila síimm
Sigurður T. Magnússon í héraðs-
dómi úrskurðaði í gær í sérstæðu
dómsmáli að Elías Rúnar Reynis-
son skuli greiða Mogens Löve
Markússyni svila sínum 782 þús-
und krónur eða andvirði helm-
ings bifreiðar sem vannst á skaf-
miða.
Svilarnir höfðu keypt Kóka-
kóla-kippur vegna sameiginlegs
afmælishalds og í þeim voru
skafmiðar, sem svilarnir afhentu
börnum sínum að skafa. Bíla-
vínningurinn kom á miðann sem
dóttir Elíasar skóf, en dómarinn
úrskurðaði að úr því hann gæti
ekki sannað að dóttirin hefði
fengið miðann gefins þá hlyti
hann að vera sameign og þar
með vinningurinn sömuleiðis.
Svilarnir voru að halda sameig-
inlegt fertugsafmæli þegar miða-
málið kom upp, en þeir eru mak-
ar systranna Dagbjartar og Rúnu
Þorsteinsdætra. Svilarnir versl-
uðu saman í Bónus og deildu
kostnaðinum. Þegar kókkippurn-
ar voru rifnar upp skófu sonur
Mogens og dóttir Elíasar skaf-
miðana og kom vinningurinn þá í
ljós á miðanum sem dóttirin
skóf. Elías sló þegar eign sinni og
Ijölskyldu sinnar á vinninginn,
sótti síðar 1,6 milljóna króna bif-
reiðina, en seldi hana á 1,2 millj-
ónir og keypti ódýrari bifreið en
lagði mismuninn inn á banka-
reikning sinn. Þessu mótmælti
Mogens ítrekað og höfðaði síðan
mál. Dómarinn hafði enga stoð f
fyrirliggjandi lagareglum og
byggði úrskurðinn á óskráðum
reglum eignaréttar og reglum
samningalaga. Yrði þá að líta á
öll innkaupin vegna afmælis-
haldsins sem sameign. - FÞG
Lá við stórslysi í Langadalmim
Litlu munaði að illa færi þegar rúta fór út af þjóðvegi eitt í Langadal
við bæinn Björnólfsstaði rétt fyrir klukkan 13.00 í gær. Brjálað veð-
ur var á þessu slóðum. Vindhviða skall á rútunni og hentist hún öll
út af veginum. Þetta gerðist hins vegar á besta stað að sögn lögregl-
unnar á Blönduósi, þar sem lítill halli er þarna út af veginum. Eng-
in meiðsli urðu á fólki og rútan skemmdist ekki.
Rútan var á norðurleið þegar þetta gerðist og voru allmargir farþeg-
ar í henni. Annar bíll fór út af vegna veðurs skammt frá á sama tíma
og lögreglan setti upp viðvörun í kjölfarið. Meðalvindhraði í gær var
11-12 vindstig á Blönduósi sem þýðir allt að 14 vindstig í verstu
hryðjunum.
Að sögn talsmanns lögreglunnar á Blönduósi ríkti stilling meðal
farþega rútunnar. Skýringin kann að vera sú að farþegarnir voru að
langmestu leyti Iæknar og hjúkrunarfólk sem var á Ieið norður tii
Akureyrar í afþreyingarskyni. - BÞ
Hrókering á heilsugæslustöð í
Mosfellsbæ
Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að
ráða Guðmund Einarsson til að sinna tíma-
bundið framkvæmdastjórastörfum hjá
heilsugæslustöðinni í Mosfellsbæ. Guð-
mundur hefur starfað sem forstjóri heilsu-
gæslunnar f Reykjavík en hrókeringin er til-
raun til að tryggja að skjólstæðingar stöðv-
arinnar í Mosfellsbæ fái lögbundna þjón-
ustu. Elísabet Gísladóttir, framkvæmda-
stjóri heilsugæslustöðvarinnar í Mosfells-
bæ, hefur þegið starf við heilsugæsluna í
Reykjavík. Fjöldi starfsmanna hefur sagt
upp störfum að undanförnu við heilsu-
gæslustöðina í Mosfellsbæ. - bþ
Sviptiir en ók samt og
út af ölvaður
Ölvaður ökumaður ók ásamt frú sinni út af veginum í Botnastaða-
brekkunni í Vatnsskarði á fimmtudagsmorgun. Hann var próflaus
eftir að hafa verið sviptur ökuleyfi vegna ölvunaraksturs og frúin var
einnig ölvuð. Parið er á fimmtugsaldri og stórskemmdi bílinn. Þau
eiga von á þungum viðurlögum. - BÞ
Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra reynir
að skapa sátt í
Mosfellsbæ.