Dagur - 20.03.1999, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUR 20. MARS 19 9 9
ÍÞRÓTTIR
UM HELGINA
Laugard. 20. mars
■ fótbolti
Deildarbikarinn
Asvellir:
Kl. 11:00 Völsungur - Haukar
KI. 13:00 Njarðvík - Þór, Ak.
Kl. 15:00 Magni - Keflavík
Kópavogsvöllur:
Kl. 11:00 Tindast. - Víkingur
Kl. 13:00 Breiðabl. - Stjarnan
Leiknisvöllur:
Kl. 13:00 Valur - KVA
Kl. 15:00 Fylkir - Hvöt
■ KÖRFUBOLTI
VlS-deiId kvenna - Urslitak.
Kl. 18;00 KR - Grindavík
Kl. 16:00 ÍS - Keflavík
■ HANDBOLTI
1. deild kvenna - Urslit
Kl. 16:15 Fratn - ÍBV
Kl. 16:1 5 Víkingur - FH
2. deild karla
KJ. 14:00 Víkingur - Fylkir
■ SKAUTAÍÞRÓTTIR
Íslandsmótið í listhlaupi
Mótið hófst í gær og heldur
síðan áfram í dag kl. 08:00 -
13:00 og á sunnudag kl. 9:00 -
12:30.
■ blak
1. deild karla - Urslitak.
Kl. 14:00 ÍS - Stjarnan
■ SUND
IMÍ - Innanhússmeistaramótið
Mótið fer fram í Vestmanna-
eyjum og hófst í gær kl. 17:00.
Mótið heldur áfram í laugardag
með undanrásum kl. 9:30 og
úrslitum ld. 17:00 og á sama
tíma á morgun, sunnudag.
■ fimleikar
Íslandsmótið í áhaldafimleikum
Mótið fer fram í LaugardalshöII
og hófst í gær með keppni í
Iiða- og einstaklingskeppni.
I dag, laugardag, hefst keppni
kl. 15:00 og á morgun, sunnu-
dag, kl. 14:00
Siuuiud. 21. mars
■ fótbolti
Deildarbikarinn
Ásvellir:
Kl. 11:00 ÍA - Tindastóll
Kl. 13:00 Fram - Völsungur
Kl. 15:00 Þróttur, R - KA
Leiknisvöllur:
Kl. 11:00 ÞórAk- Skallagr.
Kl. 13:00 Afturelding - KS
Kl. 15:00 KVA - Magni
Kl. 17:00 Léttir - Leiknir R
Kópavogsvöllur:
Kl. 13:00 Reynir S - KR
■ körfubolti
DHL-deild - Urslitakeppni
Kl. 16:00 KR - Grindavík
Kl. 20:00 Tindastóll - KFÍ
Kl. 16:00 Haukar - Keflavik
Kl. 20:00 Snæfell - Njarðvík
■ handbolti
1 ■ deild kvenna - Urslit
Kl. 20:00 Grótta/KR - Stjarnan
KI. 20:00 Haukar - Valur
2. deild karla
Kl. 13:30 Þór, Ak - Breiðablik
Kl. 16:00 Hörður - Völsungur
■ blak
1 ■ deild kvenna - Urslitak.
Kl. 16:00 ÍS - Þróttur, Nes
KI. 14:00 Víkingur - KA
Á SKJÁNUM
Laugard. 20. mars
Fótbolti
Kl. 14:25 Þýski boltinn
Nurnberg - Frankfurt
Fimleikar
Kl. 16:25 íslandsmótið
Utsending frá Laugardalshöll.
STÖÐ 2
Fótbolti
Kl. 12:00 AJltaf í boltanum
Kl. 14:45 Enski boltinn
Arsenal - Coventry
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-tiIþrif
Hnefaleikar
Kl. 22:55 Hnefaleikar
Lou Savarese - Mount Whitaker
Laurent Boudouani - David Reid
Laurent Boudouani er heims-
meistari WBA-sambandsins í
veltivigt
Sunnud. 21. mars
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-Ieikur vikunnar
Kl. 16:00 DHL-deildin - Úrslit
KR - Grindavík
Fótbolti
Kl. 14:00 ítalski boltinn
Juventus - Roma
Fótbolti
Kl. 11:15 Enski boltinn
Aston Villa - Chelsea
Kl. 13:30 Enski boltinn
Svipmyndur úr leikjum Chelsea.
Kl. 14:45 Enski deildabikarinn
Tottenham - Leicester
Kl. 19:25 ítalski boltinn
Udinese - Parma
Kl. 21:30 ítölsku mörkin
Golf
Kl. 17:00 Golfmót í USA
Kl. 18:00 Golfmót í Evróðu
Kl. 18:55 19. holan
Oðruvísi golfþáttur.
O’Neill óttast Ginola
Á morgun fer fram á Wembley í
London úrslitaleikurinn í enska
deildarbikarnum milli Totten-
ham og Leicester. Fram kemur í
enskum blöðum að Martin
O’Neal, framkvæmdastjóri
Leicester, óttast mjög franska
leikmannin David Ginola og
segir að hann að geti hreinlega
unnið leikinn fyrir Tottenham.
„Miðað við það hvernig hann
hefur verið að spila í vetur, þá
verður mjög erfitt að stöðva
hann. Hann er á ferðinni um all-
an völl og virðist alltaf finna
réttu leiðina til að Iosna úr gæsl-
unni. Hann hefur verið að spila
alveg frábærlega að undanförnu
og á þriðjudaginn sá ég hann
skora einstakt glæsimark á móti
Barnsley," sagði O'Neal.
„Hann er heimsklassa Ieik-
maður og svo sannarlega vildi ég
frekar hafa hann með mér en á
móti. En eitthvað verðum við að
gera til að stöðva hann og það
eigum við eftir að fara rækilega
yfir fyrir leikinn," bætti O’Neal
við.
Alþjóðlegt
badmtn-
tonmót á
Akureyri
Um helgina fer fram í Iþrótta-
höllinni á Akureyri árlegt bad-
mintonmót, sem nú er haldið tí-
unda árið í röð. I tilefni tíma-
mótanna er mikið Iagt í alla um-
gjörð þess og er búist við met-
þátttöku. Keppt verður í fjórum
flokkum, meistaraflokki, A-
flokki, B-flokki og flokki 40 ára
og eldri og verða keppendur vel á
annað hundraðið og þar á meðal
allir bestu badmintonmenn
landsins. Auk þess verða með á
mótinu keppendur frá Kína,
Englandi, Danmörku, Þýska-
landi, Litháen og Færeyjum.
Mótið hófst í gær kl. 15:00 og
heldur áfram í dag, laugardag,
kl. 09:00 og verður spilað þar til
úrslit liggja fyrir. Ætlað að úr-
slitaleikirnir befjist kl. 13:30.
United mætir
Juventus
I gær var dregið um það
hvaða lið mætast í undanúr-
slitum Evrópumótanna í
knattspyrnu.
Meistaradeild Evrópu:
Man. United - Juventus
Dynamo Kiev - Ba Munchen
Evrópukeppni bikarhafa:
Chelsea - Real Mallorca
L. Moskva - Lazio
Fyrri leikirnir fara fram 7. og
8. apríl og þeir seinni 21. og
22. apríl.
BRIDGE
L.
Jákob og félagar skipa landsliðið
Um síðustu helgi var spilaður
seinni hluti landsliðskeppninnar
í opnum flokki. 4 sveitir tóku
þátt í keppninni og sigraði sveit
Jakobs Kristinssonar með
nokkrum yfirburðum. Sveitina
skipa: Jakob Kristinsson, Ás-
mundur Pálsson, Anton Haralds-
son, Sigurbjörn Haraldsson og
Magnús Magnússon. Allt eru
þetta Akureyringar fyrir utan Ás-
mund sem keppir nú fyrir Islands
hönd í fyrsta skipti í 20 ár! Sveit-
in á eftir að velja sér 6. mann en
heimildir Dags segja Iíklegt að
Ragnar Hermannsson verði fyrir-
liði. Verkefni landsliðsins er að
taka þátt í Evrópumótinu á
Möltu í sumar.
Bridgeþáttur Dags tók Ás-
mund tali í dlefni tímamótanna
og sagði hann að verkefnið legð-
ist vel í sig. Ásmundur tók fyrst
sæti í landsliðinu árið 1959, þá
með Hjalta Elíassyni, en síðast
spilaði hann með landsliðinu
árið 1979. Ásmundur hefur unn-
ið Qölda Islandsmeistaratitla og
ávallt staðið í fremstu röð. Hann
segir óneitanlega skemmtilegt að
koma inn eftir svona langt hlé.
Ásmundur byrjaði barn að
aldri að handleika á spilin, „enda
úr sveit og fyrir tíma sjónvarpsins
var mikið spilað". Hann er á 71.
aldursári og óskar Dagur honum
velfarnaðar á Möltu ásamt félög-
um.
Einar velur kvennalið
Einar Jónsson, þjálfari og ein-
valdur í kvennaflokki, hefur valið
kvennaliðið sem er þannig skip-
að: Esther Jakobsdóttir, Ljósbrá
Baldursdóttir, Anna Ivarsdóttir,
Guðrún Óskarsdóttir, Hjördís
Sigurjónsdóttir og Ragnheiður
Nielsen.
Evrópumót í tvímenningi
kvenna verður spilað á Möltu
13.-15. júní. Þærkonursem hafa
áhuga á að taka þátt í mótinu,
eru beðnar að hafa samband við
skrifstofu BSÍ s. 587 9360.
Paramót á Akureyri
Bridgesamband Norðurlands
eystra stendur fyrir svæðismóti í
paratvímenningi um næstu helgi.
Spilað verður á Fosshótel KEA á
Akureyri sunnudaginn 21. mars.
(Ath. ekki laugardag eins og seg-
ir í mótaskrá). Spilamennska
hefst kl. 10 og mótslok áætluð
um kl 17:30. Spilað verður sam-
kvæmt barometer fyrirkomulagi.
Þátttökugjald er 1000 kr. á
raann, molakaffi innifalið.
Áhugafólk hvatt til að fjölmenna
og njóta skemmtilegrar spila-
mennsku í notalegu umhverfi.
Skráning hjá Ragnheiði Haralds-
dóttur, s. 462 2473 eftir kl. 19.
Enn leiðir Stefán
Nú stendur yfir Board-a-match
sveitakeppni hjá Bridgefélagi Ak-
ureyrar og er fyrsta kvöldinu af
þremur lokið. 11 sveitir taka þátt
og spila allir við alla, 7-spiIa leiki.
Þannig er staða efstu sveita:
1. Sveit Stefáns Stefánss. 106 stig
2. Sveit Gylfa Pálssonar 83 stig
3. Sveit Unu Sveinsdóttur 79 stig
4. Sveit Björns Þorlákssonar 77 stig
5. Sveit Bjarna Sveinbjörnss. 72 stig
Stefán Stefánsson og félagar
fóru á kostum síðasta keppnis-
kvöld og náðu tvisvar að
„hreinsa” andstæðingana á núlli.
Þeir unnu einnig öruggan sigur á
sveit Björns Þorlákssonar og
voru duglegir að taka inn tví-
menningsbónusinn sem fylgir
Board-a-match fyrirkomulaginu.
Þannig sögðu Stefán Ragnars-
son og Stefán Stefánsson á spil-
in sín í eftirfarandi spili gegn
sveit BÞ:
Vestur/enginn
* DT63
* 42
* G62
* ÁKD8
♦ 742
T ÁT
♦ ÁKT8
♦ 9753
♦ ÁKG
V KDG9876
♦ D7
*T
* 985
* 53
* 9543
* G642
Ásmundur Pálsson er síungur í spilinu þótt hann sé kominn á áttræðisaldur.
Hann skipar nú landslið íslands í opnum flokki í bridge ásamt norðanmönn-
um, en 20 ár eru síðan Ási spilaði fyrir íslands hönd.
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull pass
1 grand pass
3lauf pass
4hjörtu pass
5hjörtu pass
lhjarta pass
2 lauf pass
3hjörtu pass
4grönd pass
óhjörtu
Sagnir skýra sig sjálfar. Check-
back Stayman og fimm ása
spurning. Suður kom út með
spaða og Stefán fékk alla slag-
ina. Á hinu borðinu komust AV
einnig í 6 hjörtu en þar kom út
lauf og andstaðan fékk einn slag.
Hittingur? Nei norður kom inn á
tveimur laufum á fjórlitinn á
hættunni og uppskar vel íyrir.
Stuð á liðsmönnum Stefáns.
Svæðismót Norðurlands
vestra
Svæðismót Norðurlands vestra í
tvímenningi fer fram á Sauðár-
króki laugardaginn 27. mars nk.
Mótið hefst kl. 10.00 stundvís-
lega og er reiknað með að spila
60 spil. Mótshaldari er Bridgefé-
lag Sauðárkróks og spilastaður
er veitingahúsið Kaffi Krókur við
Aðalgötuna á Króknum. Spilað-
ur verur barómeter. Keppnis-
gjald er kr. 2000 á parið. Mótið
er öllum opið.