Dagur - 15.03.2000, Blaðsíða 3

Dagur - 15.03.2000, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUK 15. MARS 2 0 0 0 -23 1>mur- LIFIÐ I LANDINU Undarlegt hvernig maður heyrir fólk taka til orða - sömu orðanna - í umræðum hér og þar þessa dagana. Aftur og aftur koma tvö orð. Andleg upplausn. Ekki eins og maður sé stöðugt í samræðum við forpokaða presta af gamla §kólanum. Heldur rétta og slétta Islendinga í kaffiboð- um, afmælum og þar sem tveir eða fleiri taka tal sam- an. Ef maður lítur til baka tíu ár og tæplega það mátti sjá ákveðinn forboða. Hvernig æ fleiri hölluðust á sveif með sértrúarsamtökum og fjölgaði f eldmessum ofurpresta sem spúðu eldi og eimyiju. Meirihluti landsmanna hefði sagt að ekki væri grundvöllur fyrir því að markaðssetja heittrúnað í ýmsum myndum hér á landi frjálslyndis. Svo fylltist Laugardals- höllinn hvað eftir annað af fólki sem hreini- lega kom í von um kraftaverk. Islenski meðal- jóninn skildi auðvitað ekki þessa sértrúarvit- leysu. Enda óskiljanleg nema sem tjáning á þörf sem ekki er svalað með öðrum hætti. Núna sér maður að þetta var kannski bara bytjunin. Fólk tjáir sig með undarlegum hætti nú um stundir. Tökin linast Tökum ldámvæðinguna. „Súsan baðar sig“ var stundaríyrirbrigði sem fór um landið íyrir áratugum og fyllti hvert félagsheimili án þess að Iandið yrði undirlagt af nöktum listdans- meyjum í kjölfarið og sérstökum húsum handa þeim. Flestir Islendingar hafa kynnst vel reknum klámvörumarkaði í útlöndum, en fæstum dottið í hug að gera að atvinnuvegi hér, fyrr en nú. Símalínur eru rauðglóandi hjá stynjandi stúlkum. Við eyðum hundruð- um milljóna árlega í þetta. Flestir töldu víst að íslendingum finndist óþarft að bera sam- farir sínar á torg, og enn fráleitara að láta leik- stýra sér fyrir framan myndavélar við þá iðju, til að sýna sem flestum hér í fásinninu. Nú er hvort tveggja nýsköpun í atvinnulífi. Hvers vegna er allt í einu núna grundvöllur fyrir þessu drasli? Þegar framboð af vinnu, pen- ingum og gæðavöru hefur aldrei verið meira? Hvað er mannfólkið að tjá með því að selja og kaupa svona fánýtisiðju? Ofbeldi Mikill Qöldi íslenskra ungmenna telur sér stafa ógn af ofbeldisverkum í eigin hópi. Of- beldi er auðvitað hugtak sem er álíka erfitt og klám í skilgreiningum könnuða. En eins og sagt er þegar rnenn vita eiginlega ekki hvað er á ferðinni, vita samt að þar er eitthvað: þetta er þó vísbending. Við erum í næsta sæti á eft- ir þyssubijálæðingunum í Bandaríkjunum hvað þetta varðar. Ef við getum verið viss um eitthvað, þá er það þetta: Ofbeldi og ótti með- al unglinga er ekki þeim að kenna. Síendur- tekin óhæfuverk óharðnaðra unglinga eru túlkun á þjóðfélagsástandi. Rauiiir Ráðamenn okkar voru snöggir að finna veikan UMBUÐfl- LflUST Stetán Jón Hafsteín skrifar Forboði? Þóoð á barmi taugaá- falls? Efekki, þá hvað. W&M, vísindalega blett á könnun Rauða krossins um efnahagsleg bágindi, vanlíðan og óöryggi sam- borgaranna. Samt er það svo að prestar, fé- lagsmálafrömuðir og aðrir sem starfa í návígi við þá sem erfiðast eiga, flytja reglulegar skýrslur um bölvanleg kjör. Einungis hluti af því er hin efnahagslega klemma. Hin andlega klemma, að fá ekki að vera með í gulldansin- um, og geta ekki veitt börnum sínum hlut- deild í viðteknum neysluvenjum, er af öðrum toga spunnin. En hún er ekkert síður erfið þeim sem eðlilega taka mark á viðmiðunar- kerfí samfélagsins. Það sker úr um hver er maður og hver ekki. Fátækt í okkar samfé- lagi, þó hún sé afstæð, er ekki bara spurning um efnahag heldur mannfélagsstöðu. A sama hátt eru lág laun og efnaleg óvissa í bullandi góðæri það líka. Er það tilviljun að alvarlegast skerst í odda þar sem eigast við ráðamenn og þeir sem lifa af bótum og lægstu laununum á Iandsbyggðinni? Hin dýpri merking þessarar hörku er hlutdeildarkrafa þeirra verst settu í samfélagi sem þeir hafa ástæðu til að ætla að hafi yfirgefið sig. Maiuilífsratsjá Ef mannlífsratsjáin er Iátin varpa geisla sínum út í myrkur fjölmiðlaumræðunnar má grilla í forvitnilegar útlínur á samfélagi sem tjáir kvilla sín með vaxandi öfgum. Offita, lyst- arstol og átröskun verða „vaxandi heilbrigðis- vandamál", en eru Iíkast til oftast tilfinninga- og sjálfsmyndarvandamál.. Ef útbreiðsla geð- deyfðarlylja er mælikvarði á vellíðan erum við fársjúk. Ótrúleg félagsleg upplausn er hafin með búseturöskun: Eftir standa lömuð samfé- lög þar sem hlutfall kynja og aldurshópa er kolrangt, en upp rísa stöðluð og einhæf hrað- vaxtarhverfi í úthverfum borgarinnar. Menn- ingariðnaður gerir út á afhelgun einkalífs í sjoppuritum þar sem eina leiðin til að vera eitthvað er að vera sem lítilmótlegastur. Og opinber þjóðmálaumræða er eins og veggjakrot á almenninsklósetti í fátækrahverfi. Bætum svo við þessari skipulögðu múgæsinu sem reglulega er hrundið af stað, kallast „æði“ fýrir nýrra dóti. Smám saman birtist mynd á ratsjánni af samfélagi sem er á barmi taugaá- falls. En líður alveg stórkostlega. Mótsögn? Þessir punktar sem birtast á mannlífsrat- sjánni, og tákna hver um sig eitt lítið blind- sker, eru fullkomlega á skjön við þá mynd sem við blasir íýrir stafrii. Þar er nefnilega ótrú- Iega margt jákvætt að sjá: velmegun, mennt- un, stóraukin samskipti, ótal tækifæri. Hver er skýringin á þessari miklu mótsögn milli ljómans fyrir stafni og þeirra aðferða sem mannfélagið kýs að nota til að tjá sig með? Peningahyggja, markaðsvæðing, fjölmiðlar: allt eru þetta meðal hinna grunuðu, en það er of einföíd Iausn. Því allt þetta öfgakennda, vafasama, sjúka og ljóta sem hér hefur verið talið er ekki einstök og aðgreind „vandamál“. Heldur mismunandi blæbrigðarík túlkun á hugarástandi þjóðar. IMENNINGAR LÍFID Bibbi. Nýrstíll í Nema hvað Það gerist núorðið ekki á hverjum Bísabetóiafsd degi að myndlist- armenn taki sig saman um stefnu í myndlist. Þetta virðist þó hafa gerst f Hollandi á síð- ustu misserum, þar sem Nýji stíllinn gerir góða lukku með- al ungra myndlistarmanna. Bibbi, sem nú sýnir í galleríi Listaháskóla íslands, Nema hvað, við Skólavörðustíg, var nýverið á ferð í Hollandi og ákvað að flytja Nýja stílinn með sér heim. Nýji stíllinn er fyrst og fremst laus við öll hugtök og Iætur til- finninguna ráða. Tilfinningin hefur reynst Bibba vel í Nema hvað, þar sem fiðrildi flýgur í endalausa hringi og dimm rödd Iokkar gesti að rauðamölshrúgu úti í einu horninu. Innsetning Bibba líkist mest teikningu af stökum hlutum, sem lent hafa saman á blaði án þess að ætlast væri til innri tenginga þeirra á milli. Þetta er sem sagt hinn Nýi stíll. Dulúðug Mona Lisa Morgunblaðið hefur nýverið tekið upp á því að fá prófessora í Háskóla Is- lands til að svara spurning- um lesenda um ýmis málefni. Þannig mátti um helgina lesa allt um Monu Lisu Leonardos da Vinci, án þess þó að Auður Ólafsdóttir list- fræðingur, svaraði því bein- Iínis hvers vegna Mona Lisa er svona fræg í dag. Mona Lisa var nefnilega við það að falla í gleymskunar dá - eins og Auður segir - í byrjun ald- arinnar þegar óprúttinn ná- ungi stal verkinu úr Louvre safninu. Mona Lisa var týnd í nokkur ár, en það nægði til að endurnýja hina fornu frægð hennar, sem ekkert hefur dalað síðan. Mona Lisa. Bamabækixr og boðskapur Það eru að verða tuttugu ár síðan flutt var í Utvarpinu einhver sú skemmtilegasta saga sem ég hef heyrt um dagana. Það var þegar Guðni Kolbeinsson las söguna Mömmustrákur, sem flutt var sem Morgunstund barnanna. Eg hef verið um það bil tíu ára þegar þetta var. Mér býður reyndar í grun að aldur hafi reyndar verið afstæður þegar þessi saga var í annan stað, því fólk á öllum aldri hafði hafði gaman af eigin lestri Guðna á henni. Og það var og kærkomin jólagjöf að fá söguna um Mömmustrák, þegar hún kom út á jól- um þetta sama ár. Þó ég hafi svo í seinni tíð síað barnabækurnar nokkuð út úr bókasafni mínu og geymdi þær flestar í foreldrahúsum suður á Selfossi, hefur svona ein og ein fýlgt mér norður - þar á meðal Mömmustrákurinn. Guðni möuunustrákur Síðan þetta var hefur mér alltaf verið fremur hlýtt til Guðna Kol- beinssonar. Hef reyndar aldrei séð manninn og né átt við hann orða- stað, en það getur ekki verið að nema nokkuð vænn maður sem skrifað hefur jafn skemmtilega bók og Mömmustrákur er. Eg hef nú síðast stundum fylgst með Guðna flytja snaggaralega pistla sem nefridir eru Málfarsmínútan og í þættinum Speglinum sem er á dag- skrá Rásar 1 á sjöunda tímanum á kvöld- in. Og þá segi ég stundum við sjálfan mig, þegar Guðni hefur upp raust sína, að mik- ið sé nú gaman að hlusta á hann Guðna mömmustrák. Annars hef ég stundum verið að velta MENNINGAR VAKTIN Sigunðup Bogi Sæuapsson skrifar „Og þá segi ég stundum við sjálfan mig, þegar Guðni hefur upp raust sína, að mikið sé nú gaman að hlusta á hann Guðna mömmustrák, “ segir m.a. hér I greininni því fýrir mér hvaða barnabækur hafi haft mest áhrif á mig. Mér finnst líklegt - þegar öllu er á botninn hvolft - að það séu bæk- urnar eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson. Af mikilli nærgætni lýsa þau í bókum sfn- um svo mörgu sem böm þurfa að reyna og þar held ég að bókin Grösin í gluggahús- um sé einstæð í sinni röð. Eg tíunda ekki efni þeirrar bókar né heldur Mömmu- stráks, en Iesi þeir sem vilja og ég hef gert forvitna með pistli þessum. Meðan járnið er heitt Stundum er sagt að allar góðar bækur eigi að hafa boðskap. Góðan boðskap. Þannig hef ég í þessum pistlum, Menningarvakt- inni, stundum talað fýrir því og hvatt til að unnið verði að því að jöfnuður manna í millum verði meiri og samhjálpin öflugri. Ef ég hef numið þann boðskap einhvers- staðar þá er það ekki hvað síst af Iestri góðra bóka. Börn eru alltaf móttækileg fýrir boðskap, hver sem hann er, og því ber að hamra jámið meðan heitt er. Það er vissulega gert en betur má ef duga skal, ef áðumefnd markmið um þjóðfélag ffamtíð- arinnar eiga að nást - en fýrir samfélag jöfnuðar og samhjálpar er hvarvetna vilji, ef marka má kannanir. sigurdur@dagur.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.