Dagur - 30.05.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 30.05.2000, Blaðsíða 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 rOMtpr SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: GEIR A. GUÐSTEINSSON gg@dagur.is „Galdurinn er að gera sem minnst en koma öllu í verk þannig að starf manns verði sem óstöðvandi elfur“ Hallur Hallsson Keikóvinur og kraftaverkamaður í DV Nemendur setja agareglur, ekki keunarar Það vekur stundum furðu mína að það skuli verða til skólareglur í íslenskum grunnskólum. Sérstaklega þegar agi virðist vera víðsfjarri og kennara tekst ekki að koma námsefninu til skila til þeirra nemenda sem virkilega vilja læra. Reglugerð er þó til, samin af menntamálaráðuneytinu þar sem segir m.a. að skólastjóri skuli hafa förgöngu um og beri ábyrgð á að skólareglur séu settar og reglurnar skuli unnar í samvinnu við fulltrúa nemenda og foreldra. Það er athyglisvert að skólastjóri á að setja reglurnar í samráði við foreldra og nem- endur en þess hvergi getið að samráð eigi að hafa við kennara eða aðra starfs- menn skólanna. Það eru þó þeir sem eiga að framfylgja reglunum, ekki satt? I reglunum eru líkamlegar refsingar bannaðar, hvað annað, en hins vegar mega starfsmenn skóla neyta aflsmunar til að stöðva ofbeldi eða koma í veg fyrir að nemandi valdi sjálfum sér eða öðrum skaða eða líkamstjóni. Þetta þarf að tilkynna foreldrum, að vfsu eftirá, enda varla tök á öðru, eða hvað? Fleira merkilegt má Iesa í þessum reglum, m.a. að skólastjóri skal útvega nemenda sem hefur þurft að sæta brottreksti „viðunandi lausn“, en ef ekki skal skólanefnd útvega viðundandi kennsluúrræði, hvað svo sem það táknar. Sumum börnum í efsta bekk grunnskóla líður einfaldlega betur úti í atvinnu- lífinu en glíma við námsefni sem þau ráða ekki við og leiðist óstjórnlega. Að græða á fiílmennsku Garri birti nýlega vísu sem fullyrt er að sé röng. Vísan eigi að vera eftirfarandi, en hún Ijallar um það að fylgi Reagans þáverandi Bandaríkjaforseta haB aukist svo mikið þegar honum var sýnt banatilræði: Fylgið er Reagan að færa í kaf á fúlmennsku annara trúi ég hann græði Hjörleifi veitti sko ekki af einu slíku banatilræði. I annari línu stóð: ... á fólskunni trúi ég hann græði.. svo merkingunni var snúið við, þ.e. það var sannarlega ekki fólska Reagans sem færði honum fylg- ið, hvaða skoðun sem fólk hafði annars á honum með- an hann var forseti. Biört hlið klómmar Loksins kom að því sem ég hef lengi beðið eftir. í nýjasta hefti „LIFANDI VISINDA" segir að nú virðist mega gæta bjartsýni hvað varðar hagnýtum ávinningi einræktunar. Þar er bent á ódýrari lyf en einræktuð dýr með ígræddum erfðavísum úr mönnum framleiða lyf fyrir sjúklinga á borð við blæðara og einræktuð tilraunadýr með ígræddum sjúkdómsvaldandi erfðavís- um vísa veginn til Iækninga á sjúkdómum á borð við Alzheimer og Parkinson. Bravó! ■ fína og fræga fólkið Leikkonan Claudia Cardinale hefur leikið í um hundrað kvikmyndum en nú 62 ára gömul leikur hún í fyrsta sinn á leiksviði í 16. aldar leikriti sem ber nafnið La Vénitienne og sýnt er í París. A fremsta bekk sátu eiginmaður Claudiu og dóttir en Claudia hefur verið gift í tuttugu og fimm ár. Eiginmaðurinn býr í Róm og hún í París en þau ferðast á milli borganna því eins og Claudia segir: „Við verðum að sjá hvort annað einu sinni í viku.“ ÍÞRÓTTIR Einar sigraði á Akureyri Fyrsta torfærukeppnin í mótaröð Torfærusambands íslands, sem er annað tveggja Islandsmeistara- móta í torfæru sem haldið er í sumar, fór fram á Akureyri á laug- ardaginn. Eins og kunnugt er, stofnuðu Ijögur akstursíþróttafé- lög, sem eru Jeppaklúbbur Reykjavíkur, Bílaklúbbur Akur- eyrar, Bílaklúbburinn Start og Bílaldúbburinn á Hellu með sér ný samtök, Torfærusamband Is- lands, eftir að ósættanlegar deilur komu upp innan Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga og heldur Torfærusambandið nú sitt eigið Islandsmót. Tíu keppendur tóku þátt í þess- ari fyrstu keppni TSI á Akureyri og þar á meðal voru kappar eins og Einar Gunnlaugsson, Helgi Schiöth og Sigurður A. Jónsson frá Akureyri og Austfirðingurinn Gunnar P. Pétursson. Sigurvegari varð Einar Gunn- arsson, en hann náði forystunni strax eftir fyrstu braut og hélt henni til loka. Annar að stigum varð Gunnar P. Pétursson, en hann sigraði í götubílaflokki. Pen- ingaverðlaun, að upphæð kr. 750 þúsund, voru veitt í keppninni og þar af hlaut sigurvegarinn 225 þúsund króna verðlaunafé. Úrslit: 1. Einar Gunnlaugsson 2323 2. Gunnar P. Pétursson 2180 3. Helgi Schiöth 2110 4. Ragnar Skúlason 1968 5. Sigurður A. Jónsson 1968 6. Eyjólfur Skúlason 1150 7. Jón A. Gestsson 833 8. Tryggvi Pálsson 430 9. GunnarGuðmundsson 370 10. Hlynur M. Jónsson 235 Feðgamir unnu fyrsta rallið Feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson, Islandsmeistar- ar síðasta árs, sigruðu í fyrstu keppni Islandsmótsins í rall- akstri sem fram fór á Reykjanesi um helgina. Keppnin hófst á föstudaginn og voru þá eknar fjórar leiðir um Kleifarvatn og nágrenni og um Isólfsskálaveg áður en eknar voru tvær sýning- arleiðir um Keflavík á malbiki. A laugardag voru síðan eknar átta leiðir, þar sem byrjað var við Stapann og síðan ekin leiðin um Reykjanes, Isólfsskála og Kleifarvatn og aftur sama Ieið til baka. Feðgarnir sem aka á Subaru Impreza, höfðu í lokin 19 sek- úndna forskot á næstu keppend- ur, sem voru þeir Baldur Jóns- son, bróðir Rúnars og Geir Ósk- ar Hjartarson á Subaru Legacy. I þriðja sæti urðu svo þeir Hjört- ur Jónsson og Isak Guðjónsson sem aka nýrri Toyota Corollu, sem er nýkomin til Iandslins frá Bretlandi eftir breytingar. Úrslit um helgina Landssímadeild karla ÍA-KR 1-2 Fram-ÍBV 1-1 Leiftur - Breiðablik 2-6 Stjaman - Fylkir 0-1 Næstu leikir: Miðvikud. 31. maí Kl. 20.00 KR - Leiftur Fimmtud. 1. júni Kl. 16.00 Fylkir - Breiðablik KI. 20.00 Grindavík - ÍA Kl. 20.00 ÍBV - Keflavík Kl. 20.00 Stjaman - Fram Landssímadeild kvenna KR-ÍBV 3-1 FH - Breiðablik 1-8 Stjaman - ÍA 5-0 Þór/KA - Valur 0-3 Næstu leikir: Fimmtud. 1. júní Kl. 14.00 FH - Þór/KA Kl. 14.00 KR - ÍA Ki. 14.00 Stjaman - Valur (Leikur ÍBV - Breiðabliks í 3. umferð fer fram 30. júní.) 1. deild karla: Tindastóll - Valur 0-3 Skallagrímur - ÍR 1-3 Dalvík-FH 1-2 Þróttur-KA 1-2 Víkingur R. - Sindri 0-0 Staðan: Valur 2 2 0 0 7:0 6 FH 2 2 0 0 4:2 6 ÍR 2 110 4:2 4 Dalvík 2 1 0 1 4:3 3 KA 2 1 0 1 3:3 3 Víkingur 2 0 2 0 1:1 2 Sindri 2 0 2 0 1:1 2 Tindastóll 2 0 1 1 1:4 1 Skallagr. 2 0 0 2 2:6 0 Þróttur 2 0 0 2 1:6 0 Næstu leikir: Fimmtud. 1. júnt Kl. 14.00 Valur - Víkingur Kl. 14.00 Sindri - Skallagr. Föstud. 2. júní Kl. 20.00 KA - Tindastóll Kl. 20.00 ÍR - Dalvík KI. 20.00 FH - Þróttur 2. deild karla KS - Selfoss 2-1 HK - KÍB 0-2 KVA - Afturelding 1-1 Leiknir R. - Þór A. 1-3 Víðir - Léttir 2-2 Staðan: KÍB 2 2 0 0 5:1 6 Þór A. 2 2 0 0 5:1 6 Víðir 2 1 1 0 3:2 4 Selfoss 2 1 0 1 6:2 3 KS 2 1 0 1 3:4 3 Afturelding 2 0 2 0 3:3 2 HK 2 0 1 1 2:4 1 KVA 2 0 1 1 1:3 1 Léttir 2 0 1 1 2:7 1 Leiknir R. 2 0 0 2 1:4 0 Næstu leikir: Miðvikud. 31. mat Kl. 20.00 Selfoss - HK Kl. 20.00 Afturelding-Leiknir R. Fimmtud. 1. júnt Kl. 14.00 Þór A. - Víðir KI. 14.00 Léttir - KS Kl. 14.00 KÍB - KVA 3. deild: A-riðiII: Bruni- HSH 1-0 Fjölnir - Þróttur V. 8-0 Barðastr. - Njarðvík ] -4 Næstu Ieikir: Miðvikud. 31. mat. Kl. 20.00 Barðaströnd - Fjölnir Kl. 20.00 Þróttur V. - Bruni B-riðill: Grótta - ÍH 4-1 Næstu Ieikir: Miðvikud. 31. mat Kl. 20.00 Haukar - GG Kl. 20.00 KFS - Hamar/Ægir Kl. 20.00 Reynir S. - Grótta C-riðill: Völsungur-Magni 1-1 Nökkvi - Hvöt 0-0 Næstu Ieikir: Miðvikud. 31. mat' Kl. 20.00 Neisti H. - Völsungur Fimmtud. 1. júnt Kl. 14.00 Magni - Hvöt D-riðiU: Þróttur N. - Neisti D. 4-0 Hug./Hött. - Leiknir F. 3-2 Næstu leikir: Miðvikud. 31. maí Kl. 20.00 Neisti D. - Huginn/Höttur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.