Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 21.11.2000, Blaðsíða 11
Dj&flT ÞKIDJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Monaco hótar slit- um írá Frakklandi Rainier III veifar til þegna sinna á þjóðahátíðardaginn, sem var si sunnu- dag. Með honum eru Albert prins og prinsessurnar Carolina og Stephanie. Franska stjómin ásakar furstadæmið u ni að halda vemdar- hendi yfir skattsvik- urum og eiturlyfjasöl- Ulll Samband furstadæmisins Monaco og Frakklands hefur kólnað mjög undanfarnar vikur. Stjórnendur furstadæmisins hafa tekið mjög illa upp ásakan- ir frá París, en ráðamenn þar ásaka hið örsmáa verndarrfki sitt um að halda verndarhendi yfir skattsvikurum og að þar sé stundað peningaþvætti og mið- stöð fíkniefnasala sé í ríkinu. Furstinn Rainier 111, sem verið hefur við völd síðan 1949, segir fráleitt að Iýst verði yfir stríði á hendur Frökkum, en vel geti svo farið að ríkið heimti aðskilnað frá Frakklandi og að lýst verði yfir fullu sjálfstæði. Furstinn er bæði sár og reiður vegna þeirra grófu ásakana sem franskir ráða- menn beina að ríki hans. Þetta smáríki við Miðjarðar- hafsströnd Frakldands er 2,5 fer- kílómetrar að stærð. Það er tengt Frakklandi með mörgum vinsamlegum milliríkjasamning- um. Frakkar ábyrgjast varnir landsins og annast utanríkismál- in. Sjálfstæði furstadæmisins var skert mjög 1963 með því að sjálfstæði Iagasetningar og dóm- stóla var takmarkað, pólitískt frelsi sömuleiðis og Frakkar hafa hönd í bagga með fjárlagagerð. Franski sendiherrann í Monaco hefur hönd í bagga með stjórnarathöfnum furstans og franskir embættismenn eru æðstu menn dómsmála og efna- hagsmála. Stjórn sósíalista í Frakklandi er ekki sérlega hrifinn af þessu verndarsvæði sínu, sem furstinn ver með oddi og egg og hóta nú að segja upp öllum samningum við Frakldand og lýsa yfir sjálf- stæði. Mónakó er stórveldi á sína vi'su, því þar eru miklir pen- ingar samankomir. Tekjur af spilavítinu nægja fyrir útgjöldum furstadæmisins og þurfa inn- fæddir því ekki að greiða skatta. Tveir þriðju hlutar íbúanna eru sterkrfkir útlendingar, sem njóta skattfrelsisins og veðurblíðunnar á Riveriunni. 1 síðasta mánuði skilaði þing- skipuð rannsóknarnefnd skýrslu um miður þokkalega starfsemi í Monaco. Stjórnin í París gerir nú kröfu um endurbætur og sið- væðingu á fjármálabrallinu sem viðgengst í furstadæminu. Kraf- ist er að 12 þúsund franskir borgarar sem flúið hafa á náðir skattfrelsisins verði látnir greiða það sem þeim ber og að háir skattar verði lagðir á einstak- linga og fy'rirtæki sem komast hjá því að greiða opinber gjöld í skjóli þess að fá inni í fursta- dæminu nteð starfsemi sína eða eignir. Þá krefjast Frakkar skýringar á þeim um mælum Rainiers furs- ta, sem hann viðhafði í blaðavið- tali: „Eg ætla ekki að lýsa yfir stríði á hendur Frakklandi, en París verður að sýna oss virð- ingu, en það hefur stjórnin ekki gert svo mánuðum skiptir. Ásakanirnar á hendur oss eiga ekki við nein rök að styðjast. Hvernig franska ríkisstjórnin notar fjölmiðla til að opinbera kæruefnin, og tóninn í orðsend- ingunum, sýnir að það er viljandi gert að sverta ímynd furstadæm- isins." Furstinn hótar að farið verði að dusta rykið af gömlum sátt- málum og að fullur vilji sér fyrir að furstadæmið fái fyrri stöðu sína og sjálfstæði um málefni sín. Hann segir, að það sé enginn ástæða fyrir ríkisstjórn Frakk- lands að fara að hlutast svo frek- lega um innri málefni Monaco, eins og gert hefur við undan- farnar vikur. Hann ítrekar ein- nig, að engir erlendir aðilar né stofnanir hafi séð ástæðu til að ráðst að furstadæminu með ásökunum um peningaþvætti, eða fyrir að halda verndarhendi yfir skattsvikurum. „Vér erum orðnir þreyttir á að vera úthróp- aðir fíkniefnasalar," segir Raini- er og er farinn að gefa út stórpólitískar yfirlýsingar. Tveir fórust í sprengingu ÍSRAEL. - Tveir menn létu lífið þegar sprengja sprakk við strætis- vagn sem flutti ísraelsk börn og kennara þeirra f skóla á Gaza-svæð- inu í gær. Meðal þeirra níu sem slösuðust voru þrjú börn; þau mis- stu hluta af fótum og handleggjum. Síðdegis í gær gerði i'sraelski her- inn eldflaugaárásir á skotmörk í Gaz.a í hefndarskyni. Heimsókn Clintons lokið BANDARÍKIN. - Heimsókn Bill Clintons, forseta Bandaríkjanna, til Víetnams lauk í gær. I ferðinni Iagði forsetinn áherslu á að þjóðirnar ættu að taka upp nánara samstarf, en aldarfjórðungur er liðinn síð- an Bandaríkjamenn áttu í hatrammri styrjöld við Víetnama. Þingið undirbýr málshöfðun gegn Estrada FILIPPSEYJAR. - Josef Estrada, forseti Filippseyja, lýsti því yfir í gær að hann myndi sætta sig við niðurstöðu réttarhalda þjóðþingsins gegn honum - en þing landsins hefur ákært forsetann fyrir að hafa þegið gífurlegar fjárhæðir í mútur frá glæpamönnum og stórfy'rir- tækjum. Fujimori boðar afsögn PERU. - Alberto Fujimori, forseti Perú, hefur boðað afsögn sína, en hann er nú staddur í Japan. Mikil ólga hefur verið í landinu síðustu vikur og mánuði og háværar kröfur um að forsetinn fari frá völdum vegna margháttaðar spillingar og að landsmenn fái aukið frelsi. Fu- jimori hefur setið á forsetastóli í heilan áratug. Vopnahléi hafnað KASHMIR. - Skæruliðar sem berjast fyrir sjálfstæði Kashmír vísuðu í gær á bug yfirlýsingu indverskra stjórnvalda um tímabundið vopna- hlé í héraðinu. Skæruliðarnir sögðu vopnahléstilboðið blekkingu og hétu því að berjast áfram íyrir sjálfstæði landsins. Enn morð í Suður-Afríku. SUÐUR-AFRIKA. - Að undanförnu hafa verið framin rnörg morð í Suður-Afríku þar sem kynþáttahatur er talin helsta orsökin. Um helgina féllu tveir til viðbótar fy'rir morðingjahendi, annar hvítur en hinn svartur. Mannréttindasamningur við Kína KÍNA. - Mary Robinson undirritaði í gær fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna samning við Kína um mannréttindi. Samningurinn felur í sér, að hennar sögn, aðgerðir til að takmarka svokallaðar vinnubúðir sem nú hýsa mikinn fjölda pólitískra andófsmanna. Saksóknari lýkur máli sínu FIOLLAND. - Saksóknarar í Lockerbie-málinu hafa lokið málflutn- ingi fyrir dómstólnum í Hollandi, en þar eru tveir menn frá Líbýu ákærðir fyrir að hafa komið fyrir sprengju í farþegaþotu sem sprakk í loft upp yfir bænum Lockerbie í Skotlandi árið 1998. Verjendur hinna ákærðu leggja til að málið verði látið niður falla. Pólitískum föngum sleppt. SÝRLAND. - Hinn nýi forseti Sýrlands, Bashar Al-Assad, hefur fyr- irskipað að um 600 pólitískum föngum verði sleppt, og eru þeir fýrstu þegar lausir. FRÁ DEGI TIL DAGS ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 326. dagur ársins, 40 dagar eftir. Sólris kl. 10.16, sólarlag kl. 16.10. Þau fæddust 21. nóvem- her • 1694 Voltaire, franskur heimspeldngur og rithöfundur. • 1768 Friedrich Schleiermacher, þýskur guðfræðingur. • 1898 René Magritte, franskur Iistmálari. • 1900 Bjarni Böðvarsson tónlistarmaður. • 1904 Coleman Hawkins, bandarískur djasstónlistarmaður. • 1940 Dr. John, bandarískur tónlistarmað- ur. • 1945 Goldie Hawn, bandarísk leikkona. • 1953 Áskell Másson tónskáld. Þetta gerðist 21. nóvem- her • 1783 flugu tveir Frakkar, þeir Jean Francois Pilatre de Roz.ier uppfinninga- maður og Francois-Laurent d’Arlandes markgreifi, fyrstir manna í loftbelg. • 1929 hélt „hinn guðdómlegi" Salvador Dali fyrstu málverkasýningu sína. •1931 flutti Ríkisútvarpið í fyrsta sinn leik- rit. • 1973 komst upp að átján og hálfrar mín- útu löng eyða var í hljóðupptökum af sam- tali þeirra Richards Nixons Bandaríkjafor- seta og H.R. Haldemans, starfsmanns Hvfta hússins, sem notað var í Watergate- réttarhöldunum. Vísa dagsins Gengi er vatt, þarfé erfalt, fagna skolt í hljóði. Hitt varð olltaf hundraðfalt sem hjartað galt úr sjóði. Einar Benediktsson Afmælisham dagsins Björk Guðmundsdóttir söngkona og nýbakaður Edduverðlaunahafi fyrir leik sinn í Myrkradansaranum á af- mæli í dag, fædd 21. nóvember árið 1965 og mun því teljast 35 ára. Glæsi- Iegur söngferill hennar spannar nú þegar meira en tvo áratugi, því fyrstu plötuna sendi hún frá sér meðan hún var enn í barnaskóla. Nýlega sagðist hún samt vera rétt að byrja, svo það má eiga von frá ýmsum glaðningi frá henni næstu áratugina. Vitrir menn tala vegna þess að þeir hafa eitthvað að segja; fávitarnir vegna þess að þeir þurfa að segja eitt- hvað. Platón Heilahrot Á Rakarastofu Runólfs eru glerdyr, og þar stendur nafn rakarastofunnar letrað fögrurn stöfum. Þegar maður stendur fyrir utan dyrnar snúa stafirnir rétt. En hvernig snúa stafirnir ef maður horfir ; þá í spegli innandyra þar sem þeir end- urspeglast af öðrum spegli? Lausn á síðustu gátu: Lykill. Vefur dagsins Liberace hét einhver skrautlegasti glam- úrsöngvari allra tíma, og að sjálfsögðu er nú komin á netið síða helguð þessum puntfugli: www.bobsliberace.com

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.