Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.05.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.05.1997, Blaðsíða 9
ÍDriöýuAEtriním Miðtikiidagúr't4: rtiaí 1997 - 9 FRÉTTASICÝRING Jón Birgir Pétursson skrifar Vérðsprengjan í ferðamál- um, 9.900 krónur fyrir að upplifa London, ásamt ótrúlegum möguleikum á að ferðast ódýrt frá heimsborginni til allra átta, hefur valdið heila- brotum og svita í ferðamála- heiminum síðustu daga. Keppi- nautar Samvinnuferða- Landsýnar eru gáttaðir á útspil- inu. Þarna kann að vera stigið skref í þá átt að lækka til muna ílugfargjöld. Flugleiðamenn ókátir 5000 farþegasæti í næturflugi með Atlanta, sem munu bjóðast ferðafólki til London í sumar eru almennt talin megabomban á ferðamarkaðnum þetta sum- arið. Ferðamálamenn tala um að Samvinnuferðir-Landsýn sé komið í keppni við sjálfa sig með hinum undurlágu fargjöld- um, 9.900 krónur fyrir fullorð- inn farþega fram og til baka. Eins og fram kom í blaðinu í gær eru Flugleiðamenn hreint ekki kátir yfir þessu útspili Jóns Ólafssonar á Stöð 2, Arngríms Jóhannssonar hjá Atlanta og ekki síst Helga Jóhannssonar hjá Samvinnuferðum. „Þetta skemmir mikið fyrir Flugleiðum á háannatímanum og skaðar markaðinn allan. Það er vandséð að SL hagnist á þessum viðskiptum. Það er Stöð 2 sem græðir á öllu saman. Þeir halda áskrifendum við efnið í sumar, og fá áreiðanlega fjöl- marga nýja með þessu tilboði," Atlanta bókstaflega yfirflýgur Flugleiðir í fargjaldastefnu sinni. Hentug nýting á 360 sæta þotu veitir möguleika á lægstu fargjöldum sem þekkst hafa á ISI a n d Í. Myndvinnsla: JHF. sagði ónefndur ferðamálamað- ur í gær. Jaðrar við undirboð Hann taldi að vera mætti að þarna væri um undirboð að ræða, eða allavega á mörkum slíks. Ljóst væri að arður af hverju sæti væri sáralítill ef nokkur. Ferðaskrifstofumaður sagði í gær að hann kviði fyrir haust- inu, þegar hann ætlar að bjóða ferðir til Dyflinnar fyrir 25 til 30 þúsund krónur. Þá muni far- þegar undrast hátt verð og minna á 9.900 króna fargjaldið í sumarflugi til London. Innan verkalýðshreyfingar- innar ríkir líka nokkur undrun eftir verðsprengju helgarinnar. Svo háttar til að verkalýðsfélög njóta afsláttarfargjalda hjá SL. Fólk var hvatt til að ganga frá sínum málum fyrir sumarið. Og svo dettur verðsprengjan með mun lægri fargjöldum á eftir- sóttan ferðamannastað, Lond- on, aðeins tveim dögum eftir þessa áminningu. 50 milljón króna samningur „Það er athyglisvert að Sam- vinnuferðir standa fyrir spreng- ingu eins og þessari á sama tíma og þeir fara fyrir Sam- keppnisstofnun og kæra Flug- leiðir fyrir að veita þeim ekki nógu rífleg umboðslaun," sagði viðmælandi blaðsins. „Maður nær þessu einfaldlega ekki.“ Aðilarnir sem standa að til- boði tilboðanna eru með samn- ing upp á um 50 milljónir króna fyrir flutningana. Hagnaðarvon- in er nánast öll hjá Stöð 2 en minni hjá SL og Atlanta. Hvað kostar flugið í raun? En hvað kostar í raun farþega- sæti með nútíma þotu frá ís- landi til nágrannalands? Ljóst er að það verðlag sem verið hefur við lýði hjá flugfélögum er á miklu háflugi fyrir ofan raunveruleikann. Ferðaskrif- stofur kaupa heilu búntin af farmiðum hjá flugfélögum á lágum verðum, sem þær síðan framselja í alls konar pökkum fyrir stórfé. Við vitum ekki hver kostnað- ur af flugi 360 sæta þotu í 2,30 klst. kostar, ekki nákvæmlega. En gefum okkur að vélin sé hlaðin með 6000 gallonum af eldsneyti, sem kostar um það bil 20.000 dollara fram og til baka. Lendingargjöld og þjón- usta á flugvöllum og fleira gæti kostað annað eins. Aðeins þess- ir tveir stóru póstar kosta þá 2,8 milljónir króna, - eða nærri 7.800 krónur á hvern farþega. Hér er ekki allur kostnaður inni í myndinni og útreikningurinn er losaralegur, en talsvert í átt- ina. Það er hins vegar ljóst að álagning á farmiða Stöðvar 2 farþega er lítil. Eða er hún eng- in? Hvað um það. Almenningur fagnar tækifærinu til að komast til útlanda fyrir spottprís. Með- an ferðast er verður Stöð 2 á skjánum og býður ferðalangana velkomna þegar þeir koma heim, sólbrúnir og hressir eftir ferðalagið. -JBP Ferðakóngar svitna yfir Stöðvar 2 - fargjaldinu Möðruvellir Fæðingarorlof - rýmkaður réttur Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra skrifar gestaleiðara Réttur foreldra til fæðing- arorlofs er mikilvægur fyrir fjölskyldur yngstu þjóðfélagsþegnanna. Fyrir þroska nýfædds barns er dýr- mætt að það fái næði til að mynda tengsl við sína nánustu fyrstu mánuðina því lengi býr að fyrstu gerð. Stálpuð börn sem eru tekin í fóstur eða ætt- leidd þurfa ekki síður sinn að- lögunartíma. Fyrir nokkru lagði ég fram á Alþingi frumvarp um breytingar á ákvæðum laga um fæðingarorlof og almannatrygg- ingar, sem var samþykkt sam- hljóða. Með breytingunum, sem þegar hafa tekið gildi, er Iagður grunnur að auknum rétti mæðra til fæðingarorlofs. Helstu nýmœli frumvarpsins erw • Fæðingarorlof vegna barns, yngra en 5 ára, sem tekið er í varanlegt fóstur, lengist úr 5 mánuðum í 6. Það er í sam- ræmi við breytingu á lögum frá árinu 1995 þegar fæðing- arorlof vegna frumættleiðing- ar barns var lengt um einn mánuð. • Fæðingarorlof við ijölbura- fæðingar lengist um 3 mán- uði fyrir hvert barn umfram eitt, í stað eins mánaðar áð- ur. Þannig er gert ráð fyrir að fæðingarorlof tvjburamóður verði 9 mánuðir og þríbura- móður 12 mánuðir. Fæðing- arorlof foreldra sem ættleiða eða taka í fóstur fleiri en eitt barn, lengist samsvarandi. • Dvelji barn á sjúkrahúsi eftir fæðingu lengist fæðingarorlof um allt að 4 mánuði. Börn sem þurfa að dvelja á sjúkra- húsi eftir fæðingu vegna al- varlega veikinda eru tæplega 200 á ári. • Heimilt verður að framlengja fæðingarorlof vegna alvar- legra veikinda barns um allt að 3 mánuði, í stað eins mán- aðar nú. • Heimilt verður að lengja fæð- ingarorlof um allt að 2 mán- uði vegna alvarlegra veikinda móður eftir fæðingu. Foreldrar Ijölbura hafa lengi bent á nauðsyn þess að lengja fæðingarorlofið um meira en einn mánuð fyrir hvert barn umfram eitt. Fæðingum íjöl- bura hefur fjölgað nokkuð á síðari árum, ekki síst vegna starfsemi glasafrjóvgunardeild- ar Landspítalans, og eru nú um 80 á ári að meðaltali. í frum- varpinu er komið verulega til móts við óskir íjölburaforeldra með því að lengja fæðingaror- lofið um 3 mánuði fyrir hvert barn umfram eitt. Heimildarákvæði um lengra fæðingarorlof, vegna barna sem dvelja á sjúkrahúsum eftir fæð- ingu, er fyrst og fremst hugsað sem réttarbót fyrir mæður fyr- irbura. Gera má ráð fyrir að Qögur börn af hverjum hundrað fæðist fyrir lok 34 vikna meðgöngu, samkvæmt upplýs- ingum fæðingardeildar Land- spftalans. Sérstaklega vil ég vekja at- hygli á bráðabirgðaákvæði frumvarpsins, þar sem tekið er fram að framlengt fæðingaror- lof eftir samþykkt frumvarpsins skuli gilda fyrir foreldra sem voru í fæðingarorlofi 1. janúar 1997. Þetta þýðir að kona sem eignaðist tvíbura á árinu 1996, og hafði ekki lokið fæðingaror- lofi samkvæmt núgildandi lög- um á nýársdag, getur fengið fæðingarstyrk á 3 mánuði í við- bót. Á sama hátt gæti hún feng- ið fæðingardagpeninga í þrjá mánuði í viðbót, enda hafi hún lagt niður launuð störf og launagreiðslur fallið niður þann tíma. Með þessum breytingum hef- ur margt varðandi rétt til fæð- ingarorlofs verið fært í betra horf. En betur má ef duga skal og enn má gera betur. Öll rétt- indi til töku fæðingarorlofs mið- ast við að annað foreldranna sinni barninu í einu. Algengast er að það hlutverk falli móður- inni í skaut þrátt fyrir ákvæði um að foreldrar megi skipta fæðingarorlofinu. Ég álít að það sé heillavænlegt fyrir fjölskyld- una alla, líka eldri systkini, að foreldrar fái saman næði til að njóta þess að annast og kynnast nýju barni. Því er næsta verk- efni að tryggja feðrum rétt til fæðingarorlofs.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.