Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.. íþróttir íþrótt íþróttir Ásgeir með tilboð frá félögum á Italíu og Englandi —einnig tilboð frá félögum í Belgíii og Hollandi Frá Guðna Bragasyni í Miinchen. — Eftir að Ásgeir Sigurvinsson lék með Bayern Miinchen gegn Duisburg fékk hann ekki að leika með nssta leik — gegn Stuttgart. Það er greinilegt að Ásgeir er óánægður með Pal Csernai, ungverska þjálfarann hjá Bayern, sem þykir mjög stirður i samskiptum við leikmenn og skapstyggur. Það er ekkert launungarmál að einhver kergja er komin upp á milli Ásgeirs og Csernai en Csernai sagði í viðtali við Vísi að Ásgeir hefði ekki sýnt það sem hann hefði vænst af honum. — ,,Ég reikna ekki með að Ásgeir fái tækifæri til að leika með GUNNAR KRISTINN Gunnar og Kristinn hættir — með landsliðinu íkörfubolta Tveir af bestu körfuknattleiks- mönnum landsins hafa tilkynnt að þeir gefi ekki framar kost á sér í landsliðið i körfuknattleik. Þetta eru þeir Kristinn Jörundsson ÍR og Gunnar Þorvarðarson UMFN. Búið er að velja liðlega 20 manna hóp til æfinga með landsliðinu fyrir leiki vetrarins en fyrstu leikirnir verða á milli jóla og nýárs þegar Hollendingar koma hingað. Allir sem voru í landsliðinu sl. vetur eru í þessum hópi nema þeir Kristinn og Gunnar. Þeir gáfu ekki kost á sér. Margir nýliðar eru í hópnum, þar á meðal einir 7 piltar sem hafa æft og leikið með unglinga- landsliðinu í haust. -klp- P Körfubolta- skór Stærðir: 3 1/2-14 Verð frá kr: 270-420.- Póstsendum Ingólfs Óskarssonar Klapparstfg 44 — Slmi 11783 Bayern á næstunni,” sagði Csernai. Þessi ummæli koma mjög á óvart því að það er vitað að Ásgeir hefur ekki fengið nein tækifæri til að njóta sín í leik með Bayern. Csernai hefur yfirleitt 4. deild í knatt- spyrnu? Stjórn KSÍ mun bera fram þá tillögu á ársþingi sambandsins 6. desember að stofnuð verði 4. deildarkeppni í knatt- spyrnu. Þessi tillaga nýtur mikils fylgis hjá liðum á landsbyggðinni og er fast- lega reiknað með að hún verði sam- þykkt. -SCfe. sett hann inn á þegar stutt er til leiksioka. Það er vitað hér að Asgeir er snjall leikmaður og það hafa mörg félög áhuga á að fá hann til sín — hann hefur fengið tilboð frá félögum í Hollandi, Belgíu, Ítalíu og Englandi en fyrir stuttu hafði þekktur umboðsmaður í Englandi samband við hann. Ásgeir er ekki fyrsti leikmaðurinn sem hefur verið „frystur” hjá Bayern — hann hefur fyrir sér víti til varnaðar þar sem Karl Del-Haye er. Þessi v- þýski landsliðsmaður, sem var einn af bestu leikmönnum Borussia Mönchengladbach, hefur lítið fengið að leika með Bayern síðan hann var keyptur þangað 1980. Menn hér í V- Þýzkalandi kalla varamannabekk Bayern nú „geðveikrahælið” því að sagt er að margir snjallir leikmenn hafi orðið „ruglaðir” af að þurfa að sitja á honum í langan tíma, án þess að fá að spreyta sig. -GB/SOS. ÁSGEIR . . hefur lítið fengið að spreyta sig með Bayern. Hann bíður þolinmóður eftir sinu tækifæri. Sjö á opna skandínavíska mótið í júdó Opna skandínavíska meistaramótið í júdó fer fram í Gautaborg í Svíþjóð um næstu helgi. Sjö íslendingar eru til- kynntir sem þátttakendur í mótið og eru það þessir: Á opna skandínavíska meistaramót- inu í fyrra vann Bjarni Ág. Friðriksson gullverðlaun í sínum þyngdarflokki. -klp- X Bjarni Ág. Fríðriksson. Kolbeinn Gíslason, Halldór Guðbjörnsson, Bjarni Ág. Friðriksson, Niels Hermannsson, Sigurbjörn Sigurðsson, Ómar Sigurðsson og Viðar Guðjohnsen, Mark Holmes fær ekki húsaskjól — og er á förum f rá Grindavík Mark Holmes, bandarfski körfu- Konan hans hefur verið i Bandarikj- knattleiksleikmaðurinn hjá Grinda- unum — beðið með að koma til ís- vfk, mun að öllum likindum fara frá lands þangað til Holmes fengi hús- Grindavfk um áramót. Ástæðan fyrír næði. þvf er að hann fær ekkert húsnæði fyrir fjölskyldu sina i Grindavfk. -SOS. ÍS-Njarðvík íkvöld Einn leikur verður f úrvalsdeildinni í körfuknattleik i kvöld. ÍS og íslands- meistarar Njarðvfkur mætast í íþrótta- húsi Kennaraháskólans kl. 20.00. Hörður settur „útí í kuldamT fær ekki að dæma í úrvals- eða 1. deildinni f körfubolta eftir áramót alltaf meir en viljugur til að starfa. Því er þessi niðurröðun furðuleg og meir en það þegar körfuknattleiksforustan getur ekki gefið honum né öðrum neinar viðhlítandi skýringar á þessu. -klp- Það hefur vakið undrun körfuknatt- leiksunnenda við útkomu leikjaskrár i körfuboltanum um leikina eftir áramót að annar af tveim millirikjadómurum i fþróttinni er þar settur út i hom ef svo má segja. Það er Hörður Tulinius sem af ein- hverjum undarlegum ástæðum fær ekki að dæma einn einasta leik í úrvals- deildinni eða i 1. deild karla. Honum er aðeins raðað niður á 3 eða 4 Ieiki — allt 2. deildarleiki á Akureyri. Hörður er einn færasti körfuknatt- leiksdómari landsins og er nú eins og Aas f ót- brotnaði — þegarForestlagði Sunderland að velli Norðmaðurinn Einar Aas hjá Nott- ingham Forest varð fyrir því óhappi að fótbrotna eftir aðeins 20 sek. þegar Forest lagði Sunderland að velli, 3:2, á Roker Park i gærkvöldi. Colin Walsh og Justin Fashanu komu Forest á bragðið — með mörkum á 31. og 51. mín. — en þeir Rob Hind- march og Ally McCoist náðu að jafna (2:2) — áður en David Need- ham skoraði sigurmark Forest fjórum mín. fyrir leikslok. Aston Villa sló Leicester út úr deildabikarkeppninni í gærkvöldi— vann 2:0 á Villa Park. Frank Wall- ington, markvörður Leicester, átti stórleik—markvarsla hans minnti á Gordon Banks þegar hann var upp á sitt besta. Wallington gat þó ekki komið í veg fyrir að Gordan Cowans og Peter Withe skoruðu. Úrslit urðu þessi í ensku knatt- spyrnunni í gærkvöldi: 1. deild: Sunderland—Nott. For. 2:3 2. deild: Blackburn—Shrewsbury 0:0 Derby—Cambridge 2:1 Deildabikarinn: Aston Villa—Leicester 2:0 Lincoln—Watford 2:3 Aston Villa mætir Wigan í 16-Iiða úrslitum og Watford mætir Q.P.R. Biissett, Terry og Rostron skoruðu mörk Watford. -sos. Þeir sovésku tóku gullið Sovétríkin sigruðu í liðakeppninni í fimleikum karla á heimsmeistara- mótinu sem nú stendur yfir i Moskvu. Japan varð i 2. sæti, Kina, sem nú sendi keppendur á iþróttamót í Sovétrikjunum í fyrsta sinn í 30 ár, varð í 3. sæti og Austur-Þýskaland f 4. sætinu. -klp-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.