Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1982- 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Vegna nýju barnalaganna: MEDLAGSGRBDSUIRN- AR FARA FYRIR LÍTH) —segir langþreyft kona verkamanns lENtlS- 18 TtBAKS»»ZLHM KÍKISIM: Þriggja barna móður finnast mcðlags- greiðslur sambýlismanns sins fara fyrir litið og segir: „Það sárasta af þessu öllu er að fyrrverandi eiginkona mannsins mins er alkóhólisti og eyðir öllum sinum peningum ivin." Þriggja barna móðir skrifar: Ég hef fylgzt með bréfum og um- 'íeðum vegna nýju barnalaganna. svo vill til að ég er í þeirri aðstöðu að geta rætt málið frá tveim hliðum. Ég er frá- skilin og fæ meðlag með tveim börnum, bý með manni sem borgar með tveim börnum sínum og svo eigum við eitt barn saman. Þegar ég skildi var ég svo fyrir- hyggjusöm að ég lagði allt mitt í að kaupa íbúð sem ég leigði síðan út í 2 ár til þess að hafa fyrir afborgununum. Á meðan bjó ég, með börnin mín tvö, hjá foreldrum minum og vann úti allan daginn. Án aðstoðar foreldra minna hefði þetta aldrei tekizt. Svo kynntist ég manni. Við fórum að búa saman og eignuðumst eitt barn. Hann er verkamaður og borgar meðlag með tveim börnum eins og ég gat um áðan. Síðan barnið okkar fæddist hef ég ekki getað unnið úti, vegna veik- inda, en hjá því verður ekki komizt til frambúðar. Auðvitað þurfum við að greiða skatta og allt annað, eins og gengur, svo oft er lítið afgangs. Það sárasta af þessu öllu. er að fyrr- verandi eiginkona mannsins mins er alkóhólisti og eyðir öllum sinum pen- ingum í vín. Þegar börnin eru hjá okkur fötum við þau upp, eftir því sem efni leyfa, og látum allt annað sitja á hakanum. Um jól og á afmælum sendum við þeim síðan föt og aðrar nauðsynjar sem við vitum að þau vant- ar. Meðlagið og mæðralaunin, sem ætlað er að vera þeim til framfærslu, fara fyrir lítið. Ef ég hefði ekki átt þessa íbúð og töluvert innbú þá hefðum við víst lítið því það er dýrt að stofna heimili í dag. Sjálf er ég ekkert frekar með því að fá greitt með börnunum mínum til 18 ára aldurs en ekki heldur mótfallin því, svo framarlega sem börnin þurfa þess með, svo sem til náms. En ég er mótfallin því að það sé látið viðgangast að mæður hreinlega drekki upp það sem börnum þeirra er ætlað til framfæris. Sambýlismaður minn borgar meðlag með börnunum sínum, sem er sjálfsagt, og fatar þau algjörlega líka því að það er ekki gaman að horfa á börnin sín eins og útburði til fara. Hjá okkur er útlitið samt oft svart; skuldir á skuldir ofan. Á meðan sparað er eins og hægt er þá gengur þetta einhvern veginn en oft verður mér hugsað til jx-ss hvernig konan hans fyrrverandi ler með pen- ingana. Starfsfólk Hótels Akureyrar — og þá sérstaklega „Harry Bellafonte” og Nonni — fá mikla lofgjörö frá fyrrver- andi strandaglópum er nefna sig ,,Moulinette”-klíkuna. Um hótel Akureyri: Mælum eindregið með þessu hóteli og starfsfólki þess —segja þakklátir gestir Moulinette-klikan skrifar: Við, nokkrir nemendur (og fyrrver- andi strandaglópar), viljum þakka starfsfólki Hótels Akureyrar — og þá sérstaklega „Harry Bellafonte” og Nonna — fyrir frábæra gestrisni og eindæma þolinmæði þegar við vorum i skíðaferðalagi og urðum veðurteppt á Akureyri. Einnig kærar þakkir fyrir hinn góða anda er ríkti innan veggja hótelsins þennan tíma. Ekki má heldur gleyma hinni góðu ,,kraftverk”-máltíð sem við fengum síðasta daginn, fyrir nokkrar krónur, þegar peningar okkar voru á þrotum. Við mælum eindregið með þessu hóteli og starfsfólki þess og höfum þegar ákveðið að koma aftur á sama tíma aðári. Hringið í síma 86611 milli kl. 13 og 15 eða skrifið I / GETBAUNJN næst drogum vidum SUZUK Isuzu dreginn út 27. Janúar. Verðmœti 102.000 kr. Suzuki jeppi droglnn út 28. aprfl. Verðmæti 85.000 kr. DREGIÐ VERÐUR 28. APRÍL. ÁSKRIFTARSfMINN ER 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.