Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Blaðsíða 26
34 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982. Andlát Útför Guðgeirs Ólafssonar, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 27. marz kl. 1 eftir hádegi. Jarðsett verður að Búrfelli. Ásgrímur Jónsson, Hjallabrekku 7 Kópavogi, fyrrv. útgerðarmaður frá Seyðisfirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag, 26. marz, kl. 15.00. Sólveig Halldórsdóttir, Flókagötu 63, lézt í Landspítalanum 17. þ.m. Jarðar- förin hefur farið fram. Pálína Jónsdóttir, Grund Eyjafirði, sem lézt 21. þ.m. verður jarðsungin frá Grundarkirkju laugardaginn 27. marz kl. 14.00. Þórarinn Magnússon, skósmiður, Haðarstíg 10, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavik mánudaginn 29. marz kl. 13.30. Sigrún E. Hafsteln lézt 18. marz. Hún var fædd á Fáskrúðsfirði 18. júlí 1920. Foreldrar hennar voru hjónin Eyjólfur Ólafsson og Jónína Guðlaug Erlends- dóttir. Sigrún giftist Eyjólfi Hafstein Marinóssyni, eignuðust þau 4 börn. Eyjólfur lézt árið 1959. Sigrún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. 85 ára er í dag, 26. marz, Margrét Magnúsdóttir, Reynimel 23 hér i borg, ekkja Ólafs Gíslasonar stórkaup- manns. Húneraðheiman i dag. Minningarspjöld Minningarsjóður Víkings Minningarspjöld Minningarsjóðs Víkings fást á eftirtöldum stöðum: Bókabúðinni Grímsbæ. Garðsapóteki, Sogavegi. Geysi h/f, Vesturgötu. Sportvali, Hlemmtorgi. Skrifstofu Bústaðakirkju, fimmtudaginn 25 marz. Skrifstofu Búðahrepps, Fáskrúðsfirði. Kvennadeild Vikings. Félagsheimili Vikings við Hæðargarð í síma 83245 kl. 17—19, miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Tapað -fundið Tapað Klói köttur er týndur, hann er gulur og hvítur. Finn- andi vinsamlegast hringi í síma 84360, fundarlaun. Nauðungaruppboð annað og síöasta á hluta I Njörvasundi 27, þingl. eign Hjartar Grímsson- ar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Innheimtustofnun- ar sveitarfélaga á eigninni sjálfri mánudag 29. marz 1982 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Sólheimum 23, talinni eign Valgarðs Magnús- sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Sigurðar Helga Guðjónssonar hdl. og Gjaldheimtunnar í Rcykjavík á eigninni sjálfri mánudag 29. marz 1982 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 46., 50. og 53. thl. Lögbirtingablaðs 1981 á Brautarholti 18, þingl. eign Óskars Karlssonar, fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri mánudag 29. marz 1981 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. FAM RYKSUGUR Haukur og Ólafur Armula 32 - Sími 37700. iBIABIÐt & óskar eftir að ráða umboðsmann á Hellis- sandi. Uppl. gefur Bryndís Sigurðardóttir. Sími 93-6789. Tónlist Jass-kvöld í Stúdentakjallaranum. Sigurður Flosason, Tómas Einarsson og Friðrik Karlsson leika jass í Stúdentakjaliaranum á sunnudags- kvöldið frá klukkan 21.—23.30. Sýningar Gallery Lækjartorg Opnuö veröur i Gallery Lækjartorgi samsýning Ómars Stefánssonar og Óskars Thorarensen. Um 30 myndir verða á sýningunni og verða flestar til sölu. Viðfangsefni þeirra er einkum dulspekilegur symbolismi en hugmyndir sínar útfærðu þeir á ýmsa vegu í olíu, acryl og gouache. Á sýningunni verða einnig nokkrar teikningar og grafikmyndir. Ómar Stefánsson er fæddur í KeBavík 15.8 ’60. Hann útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskólan- um 1981 og hefur síðan haldið 2 einkasýningar og tekið þátt í 2 samsýningum. Óskar Thorarensen er fæddur í Reykjavík 16.4 ’58. Hann er sjálfmenntaður og er þetta í fyrsta sinn sem hann sýnir opinberlega. í tilefni sýningarinnar verða útgefnar 3 myndir eftir þá félaga, hver mynd í 100 eintökum, þar af 50 eintök hverrar myndar tölusett og árituð af höfund- um. Gestur sýningarinnar verður Eva Benjamínsdóttir og sýnir hún 3 gouache myndir i anddyri sýningar- salarins. Eva hefur verið við myndlistarnám í Bandaríkjun- um siðastliðin 5 ár í School og the Museum of Fine Art í Boston. Eva er fædd 23.9 ’46 á Bíldudal við Arnarfjörð en þetta er í fyrsta sinn sem hún sýnir hér á landi og eru myndimar til sölu. Sýningin stendur frá 27. marz til' 12. apríl og er opið virka daga kl. 10—18, laugardaga kl. 14—18og sunnudaga kl. 14—22. Árshátíð Sjálfsbjörg, félag fatlaflra I Reykjavík og nágrenni. Árshátíð félagsins verður haldin laugardaginn 27. marz að Ártúni, Vagnhöfða 11. Borðhald hefst klukkan 19.30. Borða- og miðapantanir í síma 17868. Fundir Samtök gegn asma og ofnæmi Aðalfundur samtakanna verður haldinn laugardag 27. marz að Norðurbrún 1 og hefst klukkan 14 síðdegis. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Fjöl- mennið og mætið stundvíslega. Jenny Wood Allan varaforseti V. svæðis alþjóðasamtaka málfreyja, mun dvelja hér á landi frá 27. marz til 6. apríl nk. Hún mun sitja ráðsfund samtakanna sem haldinn verður þann 3. apríl að Hótel Heklu. Kökubasar Kökubasar verður haldinn í húsi K.F.U.M. og K. i Langagerði 1, laugardaginn 27. marz og hefst hann klukkan 15.00. Stórglæsilegar kökur verður þar að fá. Eins og undanfarin ár er ágóðanum varið til efl- ingar félagsstarfinu þar í hverfinu og frágangi á lóð féjagshússins. Breiðablikskonur halda kökubasar að Hamraborg 1, sunnudagínn 28. marz klukkan 15.00. Kirkjustarf Kvenfélag Langholtssóknar efnir til merkja- og kaffisölu til eflingar kirkju- byggingarsjóði Langholtskirkju sunnudaginn 28. marz klukkan 15 í safnaðarheimilinu. Leiklist Skagaleikflokkurinn frumsýnir Leyni- mel 13 1 kvöld klukkan 20.30 í Bíóhöll- inni Akranesi, einnig verða sýningar á sunnudag og mánudag klukkan 20.30. Leikstjóri er Guðrún Alfreðsdóttir. Formaður leikflokksins er Guðbjörg Árnadóttir. Leikbrúðuland 14.30 Leikbrúðuland sýnir „Hátíð dýranna” og „Eggið hans Kiwi” í sal 3. 20.00 Eric Bass sýnir „Haustmyndir” í sal 4. Laugardagur 27. marz. 14.30 Leikbrúðuland sýnir „Hátið dýranna” og „Eggið hans Kiwi” i sal 3. 16.00 Eric Bass sýnir „Haustmyndir” i sal 4. Sunnudagur 28. marz 14.30 Leikbrúðuland sýnir þrjár þjóðsögur í sal 3. 16.00 íslenzka brúðuleikhúsið sýnir „Gamla konan” og „Kabarett” í sal 2. 16.00 Leikbrúðuland sýnir „Krakkarnir í götunni í kaffistofu. Kvikmyndir Kvikmyndasýning Germaníu: Systur eftir Von Trotta Á laugardag 27. marz kl. 5 efnir félagið Germanía til kvikmyndasýningar í Tjarnarbíói. Sýnd verður hin þekkta mynd Schwestern oder die Balance des Glíicks, Systur eða jafnvægi hamingjunnar. Leik- stjóri er Margarethe von Trotta. Myndin var sýnd á islenzku kvikmyndahátiðinni fyrr í vetur. Efni hennar er viðburðaríkt samband milli tveggja systra og þykir von Trotta lýsa tilfinningum og umhverfi á sérstaklega næman hátt. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Umræðuf undur um kjarnorkuvígbúnað í kvöld kl. 21.00 mun helzti talsmað- ur brezku friðarhreyfingarinnar (C.N.D.) Edward P. Thompson, og kona hans Dorothy Thompson, sem einnig er virkur baráttumaður gegn kjarnorkuvigbúnaði, koma fram á al- mennum umræðufundi 1 hátíðarsal Há- skóla íslands. E.P. Thompson flytur stutt erindi um friðarbaráttu í Austur- og Vestur- Evrópu. D. Thompson flytur einnig erindi sem fjallar m.a. um þátt kvenna- hreyfinga í baráttunrii gegn kjarnorku- vigbúnaði. Að því loku gefst fundargestum tækifæri til að koma með fyrirspurnir til frummælenda. Fundurinn er öllum opinn. -BÁ/ST. Þjónustuauglýsingar // Jarðvinna - vélaleiga MCJRBROT-FLEYGCIN MEÐ VÖKVAPRESSU HLJÓÐLÁTT RYKLAUST ! KJARNABORUN! HjðU HorðRraoo. Vvkíklgq SIMI 77770 OG 78410 Garðyrkja Húsdýraáburður 4 Dreift ef óskað er, sanngjarnt verð. Einnig tilboð. Guðmundur, sími 77045 og 72686. Ennfremur trjáklippingar. Verzlun auáturlcitók unbrabetfU) I Jasroi R fef k Grettisqötu 64 S: 11625 Rýmingarsala Allur fatnaður á niðursettu veröi, kjólar á 200—300 kr., 3E blússur á 90—120 kr., pils á 175 kr., vesti (vatteruð) á kr. 2 150, kjóll+ vesti (sett) á 400 kr., klútar 20—40 krM pils + blússa (sett) á 300 kr., pils + blússa + vesti (sett) á 500 kr. og Z margt fleira. 25% afsláttur af metravöru. Einnig mikið úr- val austurlenzkra handunninna listmuna og skrautvara til S heimilisprýði og gjafa. OPIÐ A LAUGARDÖGUM. aitótudettób unbraberðlb Þjónusta TIL AUGLÝSENDA SMÁAUGL ÝSINGADEILD Dagblaðsins Et Vísis eríÞVERHOLT111 og síminn er27022. Tekið er á móti auglýsingum mánudaga—föstudaga frá kl. 9—22 iaugardaga frá kl. 9—14 sunnudaga frá kl. 14—22. &

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.