Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1982, Page 33
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. JUU1982.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
SJALLINN ER
RISINN UPP ÚR
ÖSKUSTÚNNI
- Glæsilegasti skemmtistaður norðan Alpafjalla
Séð yfir rúmgott marmaragólf S jallans.
„Sjallinn” á Akurey'ri er risinn úr
öskustónni, rétt eins og öskubuska i
ævintýrinu, og ekki er Sjallinn síður
fallegur en öskubuska varð sem prins-
essa, því glæsilegri skemmtistaður
fyrirfinnst tæpast norðan Alpafjalla!
Sjallinn, en nafniö er stytting úr
„Sjálfstæðishúsið”, var upphaflega
tekinn í notkun 1963 og þótti þá eitt
glæsilegasta skemmtanahús landsins.
Ingimar Eydal hélt þar uppi lands-
frægri „Sjallastemmningu” frá því að
húsiö opnaði og næstu 15 árin. Gamli
Sjallinn brann svo 19. desember sl. Eft-
ir brunann seldi Sjálfstæðisflokkurinn
hlut sinn í húsinu til einstaklinga. I
framhaldi af því heitir húsiö ekki Sjálf-
stæðishúsið lengur, heldur bara, JSjall-
inn”.
Þegar búið var að ganga frá kaupun-
um var hafist handa við að hreinsa
brunarústimar og hanna nýjan
skemmtistaö. Hönnunin var sett í
hendur þeirra Jóns Kaldals, Arnmund-
ar Jóhannssonar og Róberts Karlsson-
ar hjá teiknistofunni Arko. Hefur þeim
tekist virkilega vel til, því nýi Sjallinn
er glæsilegur, rétt eins og upp á búin
„glimmerpía” eins og Þórður
Hljémsveitin Jamaica mun leika dansmúsfk fyrir gesti Sjallans á næstu mánuð-
um.
Fyrirtækið Magnús E. Baldvins-
son á 35 ára af mæli í dag
Fyrirtækið Magnús E. Baldvinsson vörur er 35 ára I dag. Fyrirtækið var
sf. sem selur úr, skartgripi og gjafa- stofnað af Magnúsi E. Baldvinssyni úr-
smíðameistara árið 1947 og var fyrst
til húsa að Laugavegi 82, en fluttist síð-
an á Laugaveg 12 og var rekið þar í 26
ár en árið 1975 fluttist þaö síöan á
Laugaveg8.
Starfsemin hefur veriö verzlun með
úr, klukkur, skartgripi, gjafavörur og
verðlaunagripi ásamt því að halda úti
viðgerðarþjónustu á úrum og klukk-
um.
A vegum þessa fyrirtækis hefur
einnig verið rekin Málmiðja sem fram-
leiðir félagsmerki, verðlaunapeninga
og ýmiss konar minjagripi.
Arið 1977 gerðist tengdasonur
Magnúsar, Bjöm Ágústsson, úrsmíöa-
meistari meðeigandi í fyrirtækinu og
hefur það síðan verið rekið undir nafn-
inu MagnúsE. Baldvinsson sf.
Þérður Gunnarsson aðaleigandi Sjallans flytur aðalræðu kvöldsins.
Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður Sjónvarps á tali við óperusöngvarann kunna
Krist ján Jóhannsson.
Gunnarsson framkvæmdastjóri húss-
ins orðaöi það í ræðu viö opnunarhátið-
ina. Húsið er glæsilegt og það krefst
þess að gestir þess séu glæsilega upp á
búnir. Verður eftir því gengið við inn-
göngu, að sögn ráðamanna hússins.
Fljótlega eftir að hönnun var komin í
gang hófust akureyrskir iðnaðarmenn
handa af krafti, svo miklum krafti að
hönnuðumir höfðu vart undan við að
teikna. Þrem vikum eftir aö klæðning-
in var negld á þakið komu fyrstu
gestirnir í Sjallann, þó ekki væri hann
þá alveg fullbúinn, en þó vel ballfær.
Það var að kvöldi 16. júní, sem verð-
andi stúdentar og júbílantar streymdu
inn um aðalinnganginn, á sama tima
og iðnaðarmennirnir laumuðu sér út
bakdyramegin. Því hefur verið líkt við
kraftaverk, alla vega ævintýri, að
þetta skyldi takast á svo stuttum tíma.
— Það hefði þurft að sundurliöa þetta
og kanna síðan hvort afrekið á ekki
heima í heimsmetabók Guinnies, sagöi
Jón Kaldal, einn af hönnuöum hússins.
Það vom allir sem unnu við að innrétta
húsið áhugasamir um aö þetta mætti
takast. Það tókst, enda era akureyrsk-
ir iðnaðarmenn engir aukvisar, allra
sízt þegar Aðalgeir Finnsson, þygginga-
meistari, er potturinn og pannan í öllu
saman, en hann stjórnaði endurbygg-
ingu Sjallans. Formleg opnunarhátíð
var haldin sl. föstudagskvöld. Þá var
öllum þeim sem þátt tóku í uppbygg-
ingu staöarins boðið til hátíðarveislu, í
kokkteil og mat á eftir. Vora boðsgest-
ir á 4. hundrað. Þar eru meðfylgjandi
myndir teknar.
GS/Akureyri.
Gunuarsson, Sigurður Sigurðsson, bryti og f jær sést Magnús Gisiason, úti-
bústjóri Landsbankans á Akureyri.