Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Page 13
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
13
Mannlíf að norðan
Bryiidís ein
med 170 ljómuii
— Frá kiitmagakvöldi lionsmanna
á Akureyri
Síðastliðið föstudagskvöld
hélt lionsklúbburinn Huginn á
Akureyri kútmagakvöld í
Sjallanum. Það var eingöngu
fyrir karlmenn — og Bryndísi
Schram, sem var heiðursgestur
kvöldsins — og flutti ræðu
kvöldsins. Hún var sem sé
maður kvöldsins.
Bryndís kom víða við í ræðu
sinni — satt best að segja óð hún
úr einu í annað, enda hafði henni
verið tilkynnt, af einni kynsystur
sinni, að það væri tilgangslaust
að tala af nokkru viti á svona
karlasamkomum. Virtust það
vera orð að sönnu því ræöa
Bryndísar féll í mjög góðan
jarðveg hjá um 170 ljónum, sem
sóttu kútmagakvöldið. Talaði
hún hughreystandi til þeirra í
lokin; sagði ástæðulaust fyrir
karlmenn að örvænta þótt fyrir-
sjáanlegt væri að konurnar
tækju fljótlega völdin í sínar
hendur því aldrei færi það þó svo
að þeir yrðu ekki nauðsynlegir
til ákveðinna hluta! Á kútmaga-
kvöldum eru eingöngu sjávar-
réttir á borðum. Ber þar hæst
kútmagann, en einnig má nefna
lifrarmaga, ótal síldarrétti,
hrogn, lifur, gellur, humar,
hörpudisk, karfa, saltfisk;
skötusel, smokkfisk, hákarl o. fl.
o. fl. Allt var þetta lystilega
framreitt af matargerðarmönn-
um Sjallans sem eru engir við-
vaningar í faginu. -GS/Akureyri.
Svanlaugur Ólafsson stjórnaði
bögglauppboðinu afröggsemi.
HóreruJón Kr. Sólnes, Bryndís Schram og Gísli Jónsson.
DV-myndir GS/Akureyri.
draga úr ferð eða stöðva.” Svona án
gamans í þessu sambandi, þá er rétt
að taka það fram, að þessi grein reglu-
gerðarinnar hlýtur að vera fallin sjálf-
krafa úr gildi, þar sem lög-
reglusamþykktir taka ekki yfir lands-
lög, í þessu tilviki lög um stefnu- og
hemlaljós ökutækja.
,,Á almannafæri má ekki ríða eða
aka hraðar en á hægu brokki. Þar sem
gatan er mjó og mikil umferð eða far-
artálmi í veginum, skal aðeins fariö fót
fyrir fót,” segir í 49. greininni, þar sem
fjallaö er um reið og umferð með hest-
vagna um götur bæjarins.
Síðar i sama kafla segir: „Okumenn
og vagnstjórar skulu vera nægilega
„Mór er það hins vegar tH efs að
sýning á fallegum, spengilegum
kroppi geti talist hneyksli. . ."
þroskaðir til þess starfa.. „Þessari
reglu þyrftiáðframfylgja betur.
Nú veröum við að fara fljótt yfir
sögu. Við sleppum m.a. kafla meöyfir-
skriftinni „Um friöun almennings-
eigna og einstakra marrna”. Þetta kom
mér á óvart, þar sem mér var ekki
kunnugt um friðaða menn á Akureyri!
Þaö hljóta að vera einhver einstök
eintök, eins og t.d.... nei við skulum
sleppa því.
I sjötugustu greininni segir orðrétt:
Eigi er heimilt að láta ölvuðum manni í
té neins konar veitingar umfram lífs-
nauðsynjar á almennum veitinga- eða
samkomustað.
Þar fór það líka. Á Akureyri má
ekki synda nakinn í höfninni, það má
ekki dulbúa sig, það má ekki hengja
þvott út á svalir, það má ekki stjaka
blómapottum út um glugga í höfuð
óvinanna; og svo til að kóróna allt
saman; það má ekki afgreiða mann á
veitingastöðum ef maður er ölvaður.
Það er aldeilis lán að ég bý í Önguls-
staöahreppi.
-GS/Akurcyri.
Borð voru hlaðin girnilegum sjávarréttum.
Snjókorn Snjókorn Snjókorn
við eigum svona trausta Trausta á
hverju strái?”
Vilmundur náði í
Mjallhvíti
Félög Bandalags jafnaðarmanna
eru víða i uppsiglingu. Eitt slikt
hefur þegar vcrið stofnað á Húsavik,
scm meðal gárunganna er nefnt:
MjaUhvít og dvergamir sjö sam-
kvæmt títtnefndu Víkurblað. Ástæð-
an er sú að á stofnfundinn mættu sjö
karlmenn og Snædis Gunnlaugs-
dóttir sem er Ijós á brún og brá.
Ingimar í framboð?
Dr. Ingimar Jónsson námsstjóri
hefur verið orðaður við framboð í
Norðurlandskjördæmi eystra fyrir
Bandalag jafnaðarmanna i komandi
þingkosningum. Dr. Ingimar er
Akureyringur í húð og hár, sonur
Jóns heitins Ingimarssonar, sem í
fjöldamörg ár var í forystusveit
verkalýðshreyfingarinnar og
Alþýðubandalagslns á Akureyri. Dr.
Ingimar hefur tii skamms tima verið
stuðningsmaður Álþýðubanda-
lagsins en mun vera orðinn blcndinu
í trúnni. Fleiri kandídatar hafa verið
ncfudir varðandi framboð
Bandalags jafnaðarmanna i
Norðurlandskjördæmi eystra. Þar á
meðal er Sturla Kristjánsson, fyrr-
verandi skólastjóri Laugalandsskóia
á Þelamörk, en hann skipaði 2. sætið
á Sólness-listanum við siðustu kosn-
ingar.
Stoltinu mísboðið
Stolti íslenskra karlmanna hcfur
verið freklega misboðið með inn-
flutningi á sæði úr dönskum körlum
fyrir islenskar konur. Við hérna fyrir
norðan höfum leitt þetta hjá okkur,
látum sem við höfum aldrei heyrt
þetta. Hins vegar lét Bryndís
Schram þess getið á kútmagakvöldi
með akureyrskum ljónum, að sunn-
lcnskir karlmcnn vsru gersamlega
niðurbrotnir. En eftir mesta
„sjokkið” hefðu þeir þó snúist til
varnar undir baráttusöngnum: „Rís
þú íslands stóri sterki — og vcitir nú
ckkiaf...”
HÚSBYGGJENDUR - FRAMKVÆMDAMENN
háfell
Leigjum út belta- og hjólagröfur,
jarðýtur, vibróvaltara o.fl. Tökum
að okkur alla jarðvinnu, gröfum
grunna, útvegum fyllingarefni.
Tilboðs- og tímavinna.
HÁFELL SF.
Bíldshöfða 14 — Simi 82616
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Síðumúla 13,105 Reykjavík, sími 82970.
eru til umsóknar
við Vinnueftirlit ríkisins:
EFNAVERKFRÆDINGUR
EFN AFRÆÐINGUR
Starfið felst meðal annars í að gera mengunarúttektir a
vinnustöðum, leiðbeina um notkun varhugaverðra efna á
vinnustöðum og veita ráðleggíngar um úrbætur vegna
mengunar á vinnustöðum.
IÐJUFRÆÐINGUR
Viðkomandi skal hafa staögóöa menntun og starfsreynslu á
sviöi iðjufræði (ergonomics).
R ANNSOKN ARFULLTRUI
Viðkomandi skal vera sérmenntaður heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingur eða hafa jafngilda menntun,
auk starfsreynslu.
Launakjör eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Vinnueftirliti rikisins,
Síðumúla 13, 105 Reykjavík eigi síðar en 21. mars
1983.