Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1983, Blaðsíða 44
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN i SÍÐUMÚLA 12—14 Isafjörður: femwn — á Húsavíkurverði „Víð pökkum jógúrt í álfóðraðar pappafernur og er verð á hálfum lítra 29 krónur,” sagði Vilbergur Prebensson, verkstjóri hjá Mjólkur- samlagi Isfirðinga, í samtali við DV.” Eingöngu er jógúrt pakkaö þar í hálfs lítra umbúðir. A síðasta ári voru keyptar nýjar norskar pökkun- arvélar Elo-pak, og hafin femupökk- un á mjólk, súrmjólk og jógúrt. Súr- mjólkurfernumar eru ekki álfóðrað- ar. Svo sem kunnugt er af fréttum hefur neytendum á höfuðborgar- svæðinu verið bannað að kaupa jógúrt frá samlagi K.Þ. á Húsavík, sem er ódýrari en hér sunnanlands. Á Húsavík er jógúrt pakkað í fernur (ekki álfóðraðar) og í dag er sama verð á jógúrt á Húsavík og Isafirði. Hér í DV hefur verið haft eftir Grétari Símonarsyni, mjólkurbús- stjóra hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi,, „að komið hafi til greina að framleiða jógúrt í fernuumbúðir, ef áhugi fólks væri fyrir því.” Kvaö hann álfóðraðar femur þá æskilegri en dýrari. Hálfur litri af jógúrt í plastbikurum frá M.B.F. kostar í dag 32,20 krónur. Jógúrtfemumar á Isafirði eru „í dýrari klassanum” en á sama verði ogáHúsavik. -ÞG Uppboðið íKáupmannahöfn: Guðmundurtal- innkaupandi Samkvæmt heimildum DV er Guð- mundur Axeisson í Klausturhólum talinn hafa keypt Jóns Stefánssonar myndina sem slegin var á eitt hundrað þúsund krónur danskar á uppboði í Kaupmannahöfn fyrir viku síðan. Ofan á það verð bætist 121/2% söluþóknun. Margir Islendingar vom: viðstaddir á uppboðinu og auk Guð- mundar bauð Báröur Halldórsson í myndina, sem umboðsmaður Jóns G. Sólnes, og Ríkharður Hördal, sem umboðsmaður Jóns Ragnarssonar í Regnboganum. Akureyringarnir hættu þó að bjóða þegar myndin var komin í 56 þúsund. Guðmundur Axelsson keypti næst- dýrustu myndina, Ásgrímsmálverk, á 64 þúsund krónur danskar. Á uppboöinu voru ennfremur seld málverk eftir Kjarval, Þorvald Skúlason, Júlíönu Sveinsdóttur, Gunniaug Blöndal og höggmynd eftir Tove Olafsson. ihh/HG. LOKI Kvennalistínn þolir ekki nema þriggja ára kjörtíma- bil. . Sampróf un vitnis og ákærða í Skeiðarársandsmálinu: Ber ekki saman um aðdragandann og siálf átökin „Þaö hélt hvort fast við það sem áður hefur komiö fram hjá þeim við yfirheyrslur,” sagði Bragi Steinars- son vararikissaksóknari i samtali við DV en samprófun milli vitnisins Marie Luce Bahuaud og ákærða, Grétars Sigurðar Arnasonar, íSkeið- arársandsmálinufórframí gær. „Það ber töluvert mikið á milli hjá þeim, bæði um hvernig aðdrag- andinn var og um sjálf átökin. Hann segist til dæmis hafa komið í sælu- húsiö vegna þess aö hann hafi fundiö hasslykt en hún segir hann hafa sagst hafa fengið upphringingu frá lögreglunni á Akureyri. Hann segir að hann hafi ekki náð í byssu fyrr en í annað skipti sem hann fór út i bil en en hún segir að hann hafi verið með byssu í öll skiptin,” sagöi Bragi Steinarsson. Vitninu og ákærða ber á milli í fleiri veigamiklum atriðum. Akæröi ber því við í vitnisburði sínum að Marie Luce hafi ráðist á sig klórað sig og rifið föt sín, hafi hann þá slegið hana með skepti byssunnar, skot hlaupið úr henni og lent í Yvette, syst- ur Marie Luce. Marie Luce segir hins vegar að engu skoti hafi verið hleypt af í sæluhúsinu. Marie Luce þvertek- ur ekki fyrir að hafa veitt einhverja mótspyrnu er ákærði réðst á hana. Marie Luce segist hafa misst meðvit- und i átökunum en systir hennar hafi flúið út úr sæhihúsinu. Hún segist hafa raknað úr rotinu og heyrt hróp, síöan skot, aftur hróp og annað skot. Akærði segist hafa farið út á eftir Yvette og leitað hennar en segist að- eins hafa skotið einu skoti — upp í loftið. Yvette var hins vegar með skotsár á baki og er talið að hún hafi verið skotin af alllöngu færi. Marie Luce kannast ekki við að byssur ákærða hafi verið í bílnum er þær óku með honum frá Höfn og að sæluhúsinu en ákærði heldur því fram að þær hafi verið þar, huldar úlpu. Marie Luce hélt fast við framburð sinn um aö ákærði hafi sagst vinna fyrir lögregluna en ákærði ber á móti því. Akærði hélt fast við framburð sinn um aö hann hefði fundið hassiykt í sæluhúsinu. Vitniö bar á móti þvi aö þær systur hefðu reykt hass. Ekkert hefur komið fram við rannsókn málsins sem styður orð ákærða í þessu efni. ás Ms. Edda: Tryggingar- víxillinn fallinnúrgildi Tryggingarvixlamir sem skip- verjar á ms. Eddu skrifuðu upp á þegar þeir réðu sig á skipið erulfalln- ir úr gildi og verður þeim skilað til skipverjanna. „Fyrirtækið sendi út stóran hóp af fólki og þurfti aö leggja út í mikinn kostnað vegna þess,” sagði Einár Hermannsson, framkvæmdastjóri Farskips, í morgun. Þettá liefði að- eins verið aðhaldsaðgerð fyrir þá sem komnir voru meö f arseðlana. Víxillinn var einn þáttur í samn- ingum fyrirtækisins við skipverjana sem gagnrýndur hefur verið. I ákvæðum um tryggingarvíxilinn sagði að undirritaöur samþykkti 10 þúsund króna tryggingarvíxil sem Farskipi væri heimilt að leysa út ef viökomandi kæmi ekki til viiiriu og . hefði ekki læknisvottorð eða annað sem Farskip teldi fullnægjandi af- sökun. JBH Guðrúnþing- flokksformaður Guðrún Agnarsdóttir mun gegna starfi formanns þingflokks Kvenna- listans á komandi þingl Þingmenn Kvennalistans hafa ákveðið að skipta með sér formennsku þing- flokksins á kjörtímabilinu. -ÓEF. 'llIIIIIIflllIlflIIH ílll' 1 ’ SMYRIL-LINE ^nnniinnini!iiuiiu,,‘ ,,,,,,,, ,, Hii> • > " * ■ ■ ' Á annan tug báta tók á móti færeysku ferjunni Norröna þegar hún sigidi i fyrsta sinn inn Seyðisfjörð i gær. Á bryggjunni beið fjöldi Austfirðinga til að fagna skipinu, sem er um átta þúsund tonn, 140 metra langt og 23 metra breitt. Með Norröna komu um 200 farþegar og 40 bilar. Svipaður fjöldi fór út. Alls hafa um þrjú þúsund manns pantað far með skipinu til íslands í sumar. DV-mynd: Jón Guðmundsson,, Seyðisfirði. Kaupmáttur minnkar um 14% Útreikningar Þjóðhagsstofnunar: verðbólguhraðinn verður 27% um áramót tJtreikningar Þjóðhagsstofnunar benda til að kaupmáttur á mann verði að meðaltali um 14% lakari á, þessu ári en á árinu 1982. Spáð er að verðbólga á þessu ári verði um 82%, en verðbólguhraðinn verði kominn niður í 27% um áramót. Að mati Þjóðhagsstofnunar hefði verðbólgan orðið á þessu ári um 134% ef efnahagsráöstafanir ríkis-' stjórnarinnar frá því í lok maí hefðu ekki komið til. Þá hefði verðbólgu- hraðinn um áramót verið kominn í 139%. Kaupmáttur kauptaxta mun minnka um 20% á þessu ári ef notaður er mælikvarði núgildandi framfærsluvísitölu. Þar af mun! kaupmátturinn minnka um 24% á' siðari helming ársins. A móti kemur að kaupmátturinn hefði að mati Þjóðhagsstofnunar minnkað um 13% á árinu ef efnahagsráöstafanimar heföu ekki komið tll, þar af hefði hann minnkað um 14% á síðari helmingiársins. I framangreindum tölum er miöað við Horfur f yrir yfirstandandi ár eftir efnahagsaðgerðimar og eingöngu tekið tillit til taxtabreytinga. Ekki hafa verið metin áhrif þeirra ráð- stafana sem ákveðnar voru i því skyni að milda kaupmáttar-' skeröinguna. Þær ráðstafanir hafa verið taldar svara til 4% aukningar kaupmáttar almennt en 6% fyrir þá sem hafa lægstu laun og mesta fram- færslubyrði. Þá er miðað við árið i heild en tölumar eru hærri ef ein-' göngu er miðað við síðari hluta árs- ins. Þá er i þessum tölum ekki tekiö tillit til yfirlýsinga ríkisstjórnar- - innar um fyrirhugaða lækkun skatta og tolla á nauðsynjavörum sem ekki hafa verið settar fram í nánari at- riðum enn. Ekki hefur heldur verið tekið tillit til frestunar greiðslna vegna verðtryggðra íbúðalána sem ákveöin verður á rikisstjómarfundi í dag. Kaupmáttur kauptaxta mun þvi minnka um 3% á þessu ári, að teknu tilliti til mildandi aðgerða, frá þvi sem orðið hefði að óbreyttu. ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.