Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Side 7
DV. LAUGARDAGUR11. JUNÍ1983.
7
Fresta má 25% afgreiðslu íbúðarlána
Ríkisstjórnin hefur samþykkt nánari
reglur um frestun á greiöslum vegna
verðtryggðra íbúðalána.
Samkvæmt bráðabirgðalögum frá
27. maí getur ríkisstjómin ákveðið að
fresta greiöslu á allt að 25% af saman-
lagðri fjárhæð afborgana, verð-
tryggingarþátta og vaxta verð-
tryggðra íbúöalána. Greiðslunum sem
frestaö yrði ætti þá að bæta við höfuð-
stól lánsins og lánstíminn lengdur eftir
þörfum, þannig að greiðslubyrðin á
hverjum tíma ykist ekki af þeim
sökum og að lánið yrði meö óbreyttum
kjörum að öðru leyti og með hlið-
stæðum áfangagreiðslum og ella hefði
verið.
Ríkisstjómin hefur nú náð
samkomulagi um þetta við Húsnæöis-
málastjórn annars vegar og Seðla-
bankann fyrir hönd viöskiptabanka og
sparisjóða hins vegar. Enn hefur ekki
náðst samkomulag um breytingar á
lánum lífeyrissjóða, en það mál er enn
í athugun.
Húsnæðismálastjórn ákvaö að lögin
skyldu ná til lána sem veitt hafa verið
einstaklingum úr Byggingasjóði
verkamanna frá 1. júlí 1980 og úr
Byggingasjóði ríkisins frá 1. júlí 1974.
Reglurnar em afturvirkar þannig að
þær ná til ofangreindra lána sem gjald-
falla á tímabilinu frá 1. maí 1983 til 30.
apríl 1984, en aðeins að því tilskildu að
um fulla greiðslu á gjalddaga sé að
ræða. Með fullri greiöslu er átt við
vexti, afborgun og verðbætur.
Fjárhæðinni, sem frestað er, verður
bætt viö höfuðstól lánsins og kemur
hún til greiðslu aö loknum láns-
tímanum. Hún ber þá gmnnvísitölu
sem í gildi var á þeim gjalddaga sem
til þessa var stofnað.
Sé um vanskil að ræða reiknast fullir
dráttarvextir af því sem gjaldféll, að
frádreginni þeirri f járhæð sem frestað
er. Þeir sem greitt hafa af húsnæðis-
málastjómarlánum sem gjaldféllu
eftir 1. maí síðastliðinn geta fengið
endurgreiðslu ef greiðslurnar falla
undir framangreindar reglur. Beiðni
um frestun skal berast Húsnæðisstjórn
ríkisins skriflega á sérstöku eyðublaði
sem stofnunin leggur til og skal hún
berast innan þriggja mánaða frá
gjalddaga. Eyðublöðin munu liggja
fyrir um mið ja næstu viku.
Bankar og sparisjóðir munu veita
frestun á greiðslum afborgana og verð-
bóta íbúðarlána sem falla i gjalddaga
á timabilinu frá 28. maí 1983 til 27. maí
1984. Frestunin nær þó ekki til íbúðar-
lána sem veitt voru vegna skuldbreyt-
ingar á lausaskuldum í föst lán árið
1981 og lánum sem tekin hafa verið
eftir 27. maí verður ekki frestað.
Frestunin skal framkvæmd á þann
hátt, að þeim greiðslum sem eftir eru
verði fjölgað þannig að greiðslur á
tímabilinu verði 75% af því sem annars
hefði orðið. Þau 25% sem frestað
verður, eru bundin lánskjaravísitölu
og samningsvöxtum á frestunartíma-
bilinu og koma til greiðslu á fyrsta ári
eftir að áöur umsömdum lánstíma
lýkur. Að öðru leyti gilda sömu láns-
kjör um frestaða fjárhæð og gilda um
upphaflegt lán.
Verði vanskil eftir 27. maí 1983
reiknast fullir dráttarvextir frá g jald-
daga af 75% þeirrar upphæðar sem
upphaflega átti að greiða.
Ef lántakandi óskar eftir frestun á
greiðslu íbúðariáns frá banka eða
sparisjóði skal hann senda inn skrif-
lega beiðni á sérstöku eyðublaði.
Umsóknarfresturinn er til 1. ágúst
næstkomandi.
I næstu viku munu viðskiptaráð-
herra og félagsmálaráðherra hefja
viðræður við fulltrúa banka og spari-
sjóða um skuldbreytingalán fyrir þá
sem stofnað hafa til skuldar vegna
byggingar eða kaupa á eigin húsnæði í
fyrsta sinn undanfarin 2 til 3 ár. -ÓEF.
't
Verð kr. 395,-
Á LAUGAVEG 71
Verð kr. 395,-
Verð kr. 485,-
Verð kr. 395,-
Verð kr. 295,-
Verð kr. 295,-
Póstsendum
^JÍmnnScrti,
6rœdur
Laugavegi 71,
simi 13604 - 75955.
Kylfingar, áhugamenn um golf og svo auðvitað öll við hin, koma upp í Grafarholt um
helgina til að fylgjast með NISSAN-DATSUN mótinu, síðasta stigamótinu fyrir val
landsliðsins, sem keppir í París. Á Grafarholtinu getum við notið golfsins, kaffisins,
útsýnisins og síðast en ekki síst notið þess að sjá og fræðast um hina ódýru og
bankaborguðu ____
INII55AIM
CHERRY
OG
NIS5AN
SUNNY
Ef þú hefur ekki tíma til að fara upp á Grafarholt (5 km. frá Reykjavík), þá bjóðum við
það sama (fyrir utan golfið) í
Sýningarsalnum v/Rauðagerði.
Allar gerðir teknar upp í nýja.
INGVAR HELGASON HF.
Sími 33560
NISSAN rzzxzzn- wsso«nr SUBARU
INGVAR HELGASON HF.
Tvær bílasýningar á sama degi
Jaugardag og sunnudag kl. 2-5.
Sýnum að Rauðagerði 27 og við
Golfskála Reykjavíkur, Grafarholti.