Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Á þingi Heimskirkjuráðsins hefur það nú verið ákveðið að lýsa yílr stuðningi við Palestínuaraba í deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Heimskirkjuráðið tekur afstöðu með Palestínuaröbum Heimskirkjuráðið skorar í dag á þjóðkirkjuraðbeita sérfyrir „nauðsyn og réttlæti málstaöar Palestínu- araba”. — Jafnframt hvetur það tsrael, PLO og Arabaríkin til þess aö setjast að samningaboröinu tii lausnar deilunum í Austurlöndum nær. Þessi ályktun var samþykkt á síð- asta degi þingsins sem heimskirkju- ráðið hefur haldið síöustu 18 daga í Vancouver í Kanada. — Innan vé- banda heimskirkjuráösins eru 301 þjóðkirkja með um 400 rriilljón safnaðarmeðlimi. Þingfulltrúar felldu tillögur um að draga í ályktuninni úr gagnrýninni sem þar kemur fram á Israel. — I ályktuninni er einnig skorað á Israel að kalla her sinn burt frá Líbanon. i Skorað er á kirkjusöfnuði að „minna kristna menn á Vesturlöndum á að ör- lög gyöinga í þeirra eigin löndum kunni að hafa mótað afstöðu þeirra til mála Austurlanda nær. Það hafi leitt til gagnrýnislitils stuðnings við Israelsríki þar sem réttindi Palestínu- araba hafi verið fyrir borð borin”. Heimskirkjuráðið lýsti yfir stuðningi við þau öfl í Israel sem vinna að friöi og sáttum. John Habgood, sem nýlega varð erkibiskup ensku biskupakirkjunnar, sagði þingfulltrúum að hann styddi, málstað Palestínuaraba en hvatti menn til þess aö viðurkenna að Israels- stjóm ætti þó við öryggismál að glíma. — þeirri breytingartillögu var samt hafnað. Ályktun heimskirkjuráðsins skorar á Israel að skila aftur hernumdu svæðunum (úr stríðinu 1967), viður- kennir rétt Palestínuaraba til aðstofna sjálfstætt ríki og rétt Israels og araba- ríkjanna til þess aö lifa innan öruggra og viöurkenndra landamæra. Bréfpoka- bandittinn sló viö Dillinger ogBaby FaceNelson Bréfpoka-bandittinn svokallaði, Hjá alríkislögreglunni telja menn sem FBI menn segja að hafi framiö að Bray hafi haft 49 bankarán á sam- flest bankarán í sögu Bandaríkj- viskunni og að hann hafi slegið fyrri anna, var í gær dæmdur í 20 ára met stórbófa eins og John Dillínger fangelsi. og Baby Face Nelson. Robert Bray játaöi á sig 18 banka- Hann var kallaður bréfpoka-band- rán, en hann var dæmdur fyrir 27 ittinn, því að hann krafsaði jafnan bankarán. Þaö er talið að hann hafi orðsendingar sínar á bréfpoka, sem mest haft 250 þúsund dollara upp úr hann rétti síðan bankagjaldkeranum krafsinu en var aðeins með fjóra til þess að fyUa. doUara og tuttugu sent í vösunum Öfugt viö hina frægu fyrirrennara þegar til hans náöist. sína beitti Bray aldrei skotvopnum. Misstu Sovét menn kjarn- orkukafbát? CBS-fréttastofan í Bandaríkjunum sagöi í gærkvöldi að sovéskur kjarn- orkukafbátur með 90 manns innan- borðs hafi sokkið í Kyrrahafi í júní í sumar. Ber fréttastofan fyrir þessu heimUd-' ir í Pentagon (aðalstöðvum yfirstjórn- ar Bandaríkjahers). Munu Banda- ríkjamenn hafa oröiö þessa áskynja þegar sovésk björgunarskip sáust á sveimi út af Kamchatka-skaga, suður af flotastöö Sovétmanna í Petro- pavlovsk. Varnarmálaráðuneytið bandariska hefur ekki viljað staðfesta þessa frétt. CBS segir að ekki sé vitað hvemig áhöfn kafbátsins reiddi af. Fréttastofan heldur að vélarbilun (óviðkomandi kjarnorkuofninum í kaf- bátnum) hafi verið orsök slyssins. Engin geislaeitrun er taUn hafa leitt af óhappinu. Telur CBS að björgunarskip hafi náð kafbátsflakinu upp af hafs- botninum. Ef rétt reynist, er þetta annar kjarn- orkukafbáturinn sem Sovétmenn missa. Hinn sökk við Bretlandseyjar í aprU1970. Bandaríkjamenn hafa misst tvo kjamorkukafbáta. Thresher sökk út af Cape Cod árið 1963 meö 129 menn inn- anborðs. Scorpion sökk í Atlantshafið .1968 með 99 menn innanborðs. UPPREISNARMENN BLÁSA TIL SÓKN- ARí CHAD Meiriháttar orrusta var háö í gær um bæinn Faya Largeau í Chad, þegar tvær herdeildir líbýskra hermanna og uppreisnarmanna sóttu að bænum með brynvögnum og í skjóli loftárása Ubýskra herflugvéla. Stjórriarhermenn endurheimtu bæ- inn úr höndum uppreisnarmanna 30. júlí en þá höfðu hinir síðarnefndu haft hann á valdi sínu í fimm vikur. Síðan hafa Líbýumenn haldið uppi daglegum loftárásumá Faya Largeau. Menn hafa búist viö þessu áhlaupi síöustu daga. Fréttir greina á um hvort áhlaupinu .hafi verið hrundið eða hvort uppreisn- armenn hafi náð bænum aftur á sitt vald. Talsmenn uppreisnaraflanna (staddir í París) segja aö bærinn hafi fallið þeim í hendur en upplýsinga- málaráðherra Chad sagði blaðamönn- um í gærkvöldi að árásarliðið hefði veriö stráfellt. — Sambandslaust varð við Faya Largeau síðdegis í gær, og töldu vestrænir hemaðarsérfræðingar í Ndjamena í gærkvöldi að bærinn væri fallinn eða í þann veginn að falla fyrir áhlaupinu. Fyrstu frönsku fallhlífarhermenn- irnir komu til Ndjamena í gær, en alls ætla Frakkar að senda stjórn Chads um 400 hermenn til liðsinnis. Eru þetta aðallega leiðbeinendur sem ekki eiga sjálf ir að taka þátt í bardögum. Hart var barist við borgina FayaLargeau í gærkveldi og rofnaði samband við borgina svo ekki er vitað á hverra hendl hún nú er. Hér sjést hermenn skæruliða þar sem þelr elda sér mat milli orrusta. SYNDAFLÓD í SPILAVÍTUM í LAS VEGAS ökumenn urðu að yfirgefa bila sína og synda á þurrt land þegar skyndiflóö skullu á Las Vegas, sem aö öllu eðlilegu er talin ein þurrasta borg Bandaríkjanna. Sums staöar varö fólk „að fara í bátana” í þessari eyðimerkurborg. — Tveggja er saknað. Það hafði rignt eins og hellt væri úr! fötu og mældist úrkoman um 2 senti- metrar. Vatn flæddi niöur uppþom- aðan árfarveg og straumurinn var slíkur aö hann velti um bílum við Imperial Palace-spilavítið á Las Vegas Strip. — Spilavíti þetta er hótel í leiðinni og urðu gestir að rýma' herbergi sín á neöstu hæöum vegna flóðahættunnar. Bar svo við að þetta fræga spila- víti, sem aldrei lokar, varð að gera hlé á f járhættuspilinu um hríö. Sums staðar eru bílar á bólakafi og í dag munu björgunarmenn leita í þeim til að ganga úr skugga um hvort nokkur hafi lokast inni í þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.