Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Side 4
DV. LAUSAROAGUR-28. APRtt, 1984. ”
4 '
Með því verra sem fyrir fólk getur
komið er án efa að vera statt í flugvél
og flugmaðurinn meðvitundarlaus af
einhverjum ástæðum. Hætt er við að
margir teldu sig ekki eiga mikið lengri
h’fdaga fyrir höndum við þær
aöstæöur. En ekki verður ófeigum í hel
komið eins og margoft hefur sannast
og það á svo sannarlega viö um hana
Edithu Merrill.
Hún og vinkonur hennar þrjár tóku
litla flugvél á leigu til að fljúga frá
Lake Pleasant Mobile Home Estates í
Arizonafylki í Bandaríkjunum til
Sedonaflugvallar, norður af borginni
Phœnix í sama fylki.
Flugvélin var af geröinni Piper
Cherokee og flugmaðurinn, Bruce
Tumer, gamalreyndur kappi úr síðari
heimsstyrjöldinni.
Skyndilega fékk hann hjartakast og
féll meðvitundarlaus fram á stýri flug-
vélarinnar. Kona flugmannsins sem
einnig var meö í förinni hóf þegar að
kalla á hjálp í talstöö flugvélarinnar en
hin 78 ára gamla Editha Merrill tók við
stjórn flugvélarinnar.
Hún vissi ekki hvað sneri fram og
aftur á stjórntækjum flugvélar en það
var ekki um neitt að ræða, einhver
varð að reyna að stjórna vélinni.
— Eg hef aldrei á ævinni verið jafn-
hrædd, segir Editha Merrill.
— Mér leiö einsog ég get ímyndað
mér að fólki líði þegar byssu er miðað
að því. Eg var skrælþurr í munninum
og titraði öll.
Fljótlega tókst aö ná sambandi við
Við skulfum i hnjáliðunum þegar við stigum út úr flugvélinni, en við komumst til jarðar hei/u og höldnu.
Guði sé lof,
ég er lent
SedonaflugvöU þar sem Jack Seeley
flugmaöur tók að sér að leiöbeina
Edithu við stjórn flugvélarinnar.
— Það hefur komið fyrir áður að við
höfum þurft að leiðbeina óvönu fólki
við stjóm flugvélar en aðeins einu
sinni hefur það tekist svo vel að allir í
flugvélinni komust heilu og höldnu til
jarðar, segir Jack Seeley.
En það tókst líka I þetta sinn. Með
aöstoð Jacks tókst hinni 78 ára gömlu
konu að lenda flugvélinni á herflugvelli
í næsta nágrenni við Sedonaflugvöll.
Og svo vel tókst til hjá Edithu að
enginn í flugvélinni hlaut hina minnstu
skrámu.
— Hún sýndi aðdáunarveröa rósemi
og stillingu, það bjargaði þeim öllum,
segir JackSeeley.
— Þetta var allt Jack að þakka.
Hann útskýrði allt fyrir mér svo listi-
lega vel að mér fannst eins og hann
sæti við hliðina á mér, segir Editha.
Sá eini sem ekki lifði flugferðina af
var flugmaöurinn, Bruce Tumer.
Hann reyndist látinn þegar komið var
með hann á sj úkrahús.
Strax eftir þessa einstöku lífsreynslu
fór Editha til New Vork til að koma
fram í sjónvarpi og að sjálfsögðu fór
hún þangað með flugvél og það meira
aðsegja þremur.
— Eg hitti flugstjórana að máli í
öllum flugvélunum og allir spurðu þeir
mig hvort ég vildi ekki lenda vélinni
fyrir þá. En ég afþakkaði öll boðin, ég
er búin að fá nóg af því að lenda flug-
vélum, segir Editha Merrill.
KRISTJÁN
n\\ít»sso\
á Feneyja-
biennalnuni 1984
Kristján Davíðsson fæddist árið
1917. Hann hóf ungur að mála og telst
vera sjálfmenntaður listamaður ef
undan er skilið tveggja vetra nám við
háskólann í Pennsylvaníu sem fór aö
mestu leyti fram í fyrirlestrum.
Kristján hafði snemma mikla sér-
stöðu í íslensku málverki. Hann
hafnaði alfariö hinni heföbundnu aka-
demísku skólasýn og tók fremur mið af
frjálsari myndgerð. Fljótlega á list-
ferli sínum kynntist Kristján evrópska
formleysismálverkinu og sá í því and-
stæðu hins menningarlega málverks
sem einkennt hafði evrópska listasögu
í aldaraðir. Hann skynjaði að form-
leysismálverkið stæöi nær náttúrunni
og eðli mannsins. Þessi beina og
í
f