Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 16
16
wnn; o . 3 r * ^ * f MT 3 t I 1 ffj
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984.
Spurningin
Hefurðu smakkað ~
mangósopa?
Agúst Pétursson iðnnemi: Nei, ég hef
ekki smakkaö mangósopa og langar
ekkert til þess.
Bjarni Einarsson: Nei, en ég gæti vel
hugsaö mér aö smakka hann ef ég fæ
hann frítt.
Pétur Gunnarsson nemi: Já, ég hef
smakkað mangósopa. Þaö er ferlegur
drykkur. Eg henti einu sinni heilli
pakkningu af honum.
Kristinn Gunnarsson nemi: Já, hann
eralvondur.
Skarphéðinn Valsson: Nei, og hef lítinn
áhuga á því.
Birgir Bjarnason kennari: Nei, ég hef
aldrei smakkaö þennan fræga drykk.
Lesendur Lesendur
Lesendur Lesendur
Hart barist i ensku knattspyrnunni.
Viðtölin aftur
íenska boltann
Hrakningar kiwanismanna:
Hjálparsveitir voru
lagöar af staó
innan 40 nn'nútna
—bréf f rá sýslumanni ísafjarðarsýslu
— næsta haust
Kristján skrifar:
Eg veit aö keppnistimabilinu í ensku
knattspymunni er lokiö en ég ætla
samt að koma með smáathugasemd
við ensku knattspyrnuþættina hans
Bjama Fel. hjá sjónvarpinu.
Fyrst ætla ég nú aö þakka góða
þjónustu sem við knattspymu-
brjálæðingar höfum fengið hjá honum.
I einu er þó afturför. Eg man héma í
„den” aö eftir leikina var alltaf rætt
við leikmenn liöanna um leikinn og
annaö á döfinni. En svo var einhverra
hluta vegna skrúfað fyrir þetta. Eg hef
sterkan grun um aö viðtölin fylgi enn
meö filmunum sem hingað koma og
því vil ég biöja Bjarna um aö taka upp
sýningar á þessum ágætu viðtölum í
haust. Þetta færir okkur svo miklu nær
því sem er aö gerast.
ísland verði
auglýstbetur
— fleiri ferðamenn
fengjust hingað
Valgerður Hannesdóttir, Noregi, skrif-
ar:
Þegar ég ræöi viö Norðmenn sem
hafa komið til Islands bera þeir landi
og þjóð yfirleitt vel söguna. En því eru
þá svo fáir Norðmenn sem heimsækja
Island? Jú, viö Islendingar erum bara
aldrei nógu duglegir viö aö auglýsa
okkur.
I þau fáu skipti sem íslenskt efni er í
sjónvarpinu hér þá er það eitthvert
grautfúlt leikrit sem er sett í sama bás
og efni frá Finnum. Botnlaus þvæla.
Þegar myndir af landslaginu á
Islandi koma þá er það annaðhvort af
Geysi aö gjósa eða þá Heklu að gjósa.
Svo eru líka gamlar myndir af fólkinu í
útvíðum buxum og annaö eftirþví.
Hvemig mynd ætli Norðmaöur, sem
ekki veit betur, geri sér af Islandi?
Já, svona er þetta og svona verður
þaö verði ekkert í þessu gert. Nú skora
ég á yfirvöld aö gera góða kynningar-
mynd um land og þjóö í dag og ferða-
málafrömuöina aö bjóða helgarpakka
til Islands frá Noregi því mér segir svo
hugur aö góöur markaður sé fyrir
slíkar feröir hér.
Mynd frá Geysi, bréfritari er ekki
hrifinn af henni sem augiýsingu
fyrir ísland.
Pétur Kr. Hafstein, sýslumaður upplýsingar úr dagbók lögreglunnar ætla mætti að hjálparsveitir skáta á
Isafjarðarsýslu, skrifar: þar sem tímasetning hafði misritast Isafirði hefðu brugðist hlutverki sínu
þannig aö skeikaði einni klukku- á alvörustund. Því fer að sjálfsögðu
Ifrétt iDVlO. maisl. umviðbrögö stund. Hið rétta er að hjálparsveitir viðs fjarri. Hjálparsveitimar
lögreglunnar á Isafirði viö hjálpar- skáta voru lagðar af stað innan 40 brugðust bæöi skjótt og vel viö þessu
beiðni kiwanismanna á Breiðadals- mínútna frá því beiðni barst til næturkalli eins og jafnan endranær.
heiði, aö næturlagi þá skömmu áður, þeirra þessa nótt en ekki að liðinni
er eftir mér haft að „nokkurn tíma” einni klukkustund og 40 minútum Hjálparsveitirskátaálsafiröihafaá
hafi tekið að kalla út hjálparsveit eins og ég las fyrir blaðamanni eftir sama vegogaðrarhjálparsveitirþar
skáta sem nauðsyn þótti bera til aö misritun úr dagbók og þótti „nokkur og i Isafjaröarsýslu jafnan sýnt fá-
kveðja tU aðstoðar. Þetta orðalag, tími” án þess þó að kunna skýringu dæma hugrekki, baráttuvUja, þrek
sem blaðamaöurinn hafði réttUega á. og þor í viöureign við óblíð náttúru-
eftirmér.erviUandi. Þegarégræddi Eg harma þessi mistök sem leitt kjör í þessum harðbýla landsfjórð-
við blaöamanninr. Iágu fyrir mér hafa til þess orðalags í fréttinni að ungi.
Kiwanisfólk ekki í hrakningum
Guðmundur Hclgason og Sveinbjöra þess að bíða aðgerðalaus eftir hjálparsveitin bestu þakkir fyrir
Björnsson skrifa f.h Kiwanisklúbbs- aðstoð. Ekki vitumviðtUþessaöfólk aðstoðina. Hvaðan frétt sú, sem birt-
insBása: sem i rútunni var hafi lent í istíDVfimmtudaginnlO.maí.umað
hrakningum, heitt var í bílnum og „kiwanismenn hafi kvartað og íhugi
Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Bása ekki annað að gera en að bíða þar kæru”, er komin, vitum við ekki en
á Isafirði vUjum viö mótmæla frétta- róleg eftir aðstoð eftir að séð varð aö áður en slíkar slúðurfréttir eru
flutningi DV af hrakningum kiwanis- viðréðumekkiviöaðlosahann. birtar finnst okkur eölUegt að leita
manna á Breiðadalsheiði aðfara- umsagnar hjá þeim sem eru í for-
nótt 6. maí sl. Veður var gott þessa Það hefur aldrei komið til tals svari fyrir klúbbinn. Ef aðrarfréttir
nótt, kalt en bjart. Skafið hafði á meðal ráðamanna kiwanisklúbbsins sem birtast í DV eru jafnáreiöan-
smákafla og nægði það til aö ófært aö kæra lögregluna á Isafirði fyrir legar og fréttaflutningur af þessari
var fyrir rútuna. Það var meira af seinagang í þessu máli. Þaðvarmeö ferðokkargefumviðekkimikiðfyrir
sjálfsbjargarhvöt en af ótta við ein- aðstoð hennar og hjálparsveitar DV sem fréttablaö. Vönduð vinnu-
hverja hættu sem við reyndum að skáta á Isafirði að aUir komust heilir brögð við fréttaöflun hljóta að vera
moka frá rútunni og ýta henni í stað til byggða og hafi lögreglan og aöalsmerki góðs fréttamanns.
Engin lítilsvirðing
við bömíEden
Bragi Einarsson í Eden skrifar:
I rúman aldarfjórðung sem Eden
hefur starfað hefi ég undirritaöur og
starfsfólk mitt sem betur fer sára-
sjaldan átt í útistöðum við þá gesti sem
okkur hafa sótt heim.
Sú mikla aðsókn fólks á öUum aldri
sem staðurinn nýtur bendir ekki til
þess að gestir okkar fái yfirleitt
slæmar móttökur. Hin síðari ár hafa
vinsældir staöarins vaxið með hverju
ári og er það álit okkar sem hér
störfum að það sé meðal annars þvi aö
þakka að reynt er af fremsta megni að
hafa reglu og eftirlit á staðnum.
Undanfarna daga hefur í flestum
dagblöðum mátt lesa pistU frá
nokkrum konum frá skóladagheimUi
Breiðagerðisskóla með fyrirsögninni
„Lítilsvirðing viö böm í Eden — Hvers
eiga þau að gjalda?” Viö hér í Eden
könnumst ekki við að hafa sýnt þessum
börnum eða öðrum lítUsvirðingu. Aftur
á móti greindi okkur á við gæslukanur
þeirra út af agaleysi. Þessar ágætu
konur voru sýnUega eitthvaö þreyttar
á bamahópnum sínum þegar þær
komu hér og við sem vorum hér að
vinna vorum ekki tUbúin að láta taka
hús á okkur og breyta því í skóladag-
heimUi meöan gæslukonur barnanna
slöppuðu af.
Hér eftir sem hingaö til munum viö
taka vel á móti öUum sem heimsækja
staðinn en hafa það samt að leiðarljósi
aö láta ekki undan yfirgangi. Að lokum
spurningin „Hvers eiga bömin að
gjalda?” Því miður í þetta skiptiö
guldu þau þeirra sem áttu að leiðbeina
þeim og gæta og gátu ekki agað sjálfa
sig.
Alþingismennog
hreingemingamenn
Elísabet Helgadóttir hringdi:
Eg fékk tU mín um daginn tvo
hreingemingamenn til að gera hreint í
íbúðinni fyrir sumarið. Því má hrósa
sem vel er gert og þeirra starf var svo
sannarlega til fyrirmyndar.
Stétt hreingemingamanna er víst
ekki sérlega hátt skrifuð af þeim
„háu”. En það væri óskandi að
alþingismenn vorir tækju þá til
fyrirmyndar, þessa tvo menn sem ég
fékk í heimsókn og hreinsuðu í hólf og
gólf meðsóma.
Þessir menn ættu ekki aö hlaupast
frá hálfkláruðu verki í sumarfrí heldur
sjá sinn sóma í því að ljúka við sitt
áður en horfið er á braut.
Unnið við hreingerningar.