Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 4
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984. Menning Menning Menning Ekið var á bifhjól á Lönguhlíð um kvöldmatarleytið á laugardag. Ökumaður bifhjólsins slasaðist en ekki mjög al- varlega. DV-myndS. Símasamband milli Reykjavíkur og annarra svæða nærri klossfast: Getur tekið tíma að ná einu samtali KONAÁ Leikfólag Reykjavlkur: Félegt fós eftir Dario Fo. Þýðing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjóri: Gísli Rúnar Jónsson. Leikmynd: Jón Þórisson. Frumsýning í Austurbœjarbíói 6. október. Upprunlnn aö miðnætursýningum Leikfélags Reykjavikur var í svo- kölluöum fjáröflunarskemmtunum fyrir hússjóð félagsins á árum áöur, þá voru sýndar margs konar dag- skrár fyrir almenning á ankannaleg- um tímum í stóru holunum, Háskóla- bíói og Austurbæjarbíói, seinna var gripið til heilla verka og þá dregnir fram gamlir ærslafarsar úr þýðingarsafni Emils Thoroddsen og sviðsettir í Austurbæjarbíói. Þá voru miönætursýningar Leikfélagsins ekki lengur til f járöflunar fyrir hús- byggingarsjóð heldur fyrir batteríiö allt sem haföi blásið út; ólygnú segja að starfsemi Leikfélags Reykjavíkur byggist orðiö á því aö farsinn í Austurbæjarbíói gangi vel ár hvert, falli hann sé voðinn vís fyrir starfsemi Leikfélagsins í Iðnó, sem getur aldrei borið kostnaðinn af rekstrinum. Hagfræði Þessi sára lexía leikfélagsmanna í viðskiptalífinu hefur í gegnum árin skemmt mörgum konunglega, mið- nætursýningarnar í bíóinu njóta yfir- leitt verulegra vinsælda. Þegar litið var yfir salinn á laugardagskvöldið var, mátti sjá furðulegt samsafn af leikhúsgestum, hristing úr öllum stéttum sa.nfélagsins, alit komið í þeim tilgangi að fá hressilega skemmtun af leiknum sem þar er nú til sýnis, Félegt Fés, úr leiksmiðju Darío Fo. Sem menningarlegt fyrir- bæri eru þessar sýningar rakið rann- sóknarefni og ættu leikfélagsmenn aö koma henni af staö, þennan hóp verða þeir aö þekkja í þaula, óskir hans og vilja, væntingar um leikhús- ið okkar sem borgin ætlar aö heykj- ast á að klára fyrir tvö hundruð ára afmæliö. Darío Fo er eins og fleiri áhuga- maður um kapítalismann og setur sig ekki úr færi um að gera á honum stuttar stílæfingar, einkum ef alvar- leg og ljót tíðindi úr mannheimum hrinda honum í leikritasmíð. Fo er reyndar svo skæður að ættum við ein- hvem honum sambærilegan þá kæm- ist sá gaur hvergi að, þaö er líka raunin með Fo á Italíu, kerfið hefur allt gert til aö koma einhverju viti fyrir manninn, en það gengur ekki. Hann heldur áfram aö velta valdamönnum og merkikertum Itala upp úr háði og illgirnislegum glósum 14. BEKK og þó þeir taki af honum hvert leik- húsiö af öðru, þá leitar hann áhorfendur sína uppi og nýtur til þess aöstoðar verkalýðs og róttækl- inga. Efni Fo er pólitísk ádeila, vægðarlaus, en klædd í umbúðir og fléttugerð farsans. Leikir Fo ku vera ákaflega staðbundnir, en samt eru þeir að verða einhverjir algengustu sýningargripir á vestrænum leikhús- umídag. Agnelli og Co Hverju tapar stað- og tímabundin ádeila á löngu feröalagi? Sannast sagna þá verður ekkert eftir nema umbúöir, grindin í farsanum hangir saman, en allt annaö glutrast niöur á leiöinni yfir Alpana. Og þegar Félegt Fés skriður loksins saman á sviði Leiklist Páll Baldvin Baldvinsson uppi á Fróni þá er öll sú pólitíska og menningarlega tilvísun sem verkið er hugsað útfrá orðin minniháttar og á skjön. I staðinn má líta velsmuröa hlátursvél, haganlega samsetta og þaulhugsaða í öllum atriöum. Hva’ er það ekki nóg? Ertu orðinn eitthvað ruglaður, vinur? Auðvitað erum við ekki á Itaiíu. Nei, en mikils förum við á mis að geta ekki heimfært farsa- grind sem þessa upp á íslenskar að- stæður, breytt forsendum og afleiö- ingum en haldiö því makalausa vél- virki sem farsinn er. Kveikjan að atburðarásinni í Félegu Fési er mannránaalda sem reið yfir Italíu fyrir nokkrum árum, Fo setur dæmið þannig upp að Antonio, verkamaður hjá Fiat, verð- ur vitni að slysi þar sem mannræn- ingjar eru á ferð með Agnelli, for- stjóra Fiat. Agnelli slasast illa og skaddast svo á andliti að græða verð- ur nýtt andlit á hann, en fyrir glópsku er sett á hann fésið af verka- manninum. Og þá fer allt í gang. Fyrir ofan garð. . . Fo hefur sjálfur fundið sýningum á verkum sínum norðan Alpafjalla þaö til foráttu að þær glati frumforsendu farsans: hann á að hefjast við eðli- legar aðstæöur í lífi venjulegs fólks. Ef sú forsenda glatist þá tapi áhorfendur trúnni á allt sem á eftir komi: mann sem drekkur vatn í gegnum öxl og étur spakkettí gegn- um nefið, flón og fanta í lögreglunni, þvottavélar sem færa sig úr stað, þjón sem kemur í heimsókn gegnum ísskápinn. Sviðsetning Gísla Rúnars á Félegu fési flokkast undir þessa mistúlkun manna á Fo. Sýningin fer allt of ærslalega af stað og þó margt sé dæmalaust vel gert hjá leikflokknum í brellum og áhorfendur hlæi sig máttlausa (kona á 14. bekk hló stans- laust í kortér á laugardaginn) þá verður þess vart í seinni hluta sýn- ingarinnar aö áhorfendur eru þreyttir orðnir af öllu gamninu, einmitt þegar hláturtaugin á að vera þanin til hins ýtrasta. Leikstjórinn hefur meö öörum orðum ekki farið nógu vægt í sakirnar og búiö sýningunni rétta byggingu. Það er mikil synd, því í henni eru mörg meistaralega vel gerð brögð og leikflokkurinn sýn- ir mikla leikni og þrek. I frammistöðu einstakra leikara vantar sömuleiðis drög að persónu- lýsingu sem leysist svo upp í fram- gangi leiksins þegar allt er umsnúiö og komið í vitleysu. Aöalsteinn Bergdal leikur verkamanninn og for- stjórann og tekst að gera báða trú- veröuga, leikur af mikilli list, en framan af var verkamaðurinn helst til ærslafullur. Briet Héðinsdóttir og Hanna María Karlsdóttir hafa hins vegar ekki full tök á þeim fulltrúum stétta og menntahópa sem þær leika, persónurnar eru frá upphafi óljósar og er þaö einkum bagalegt í tilviki eiginkonu verkamannsins sem Bríet leikur. Fulltrúar valdsins, Þorsteinn Gunnarsson og Guðmundur Pálsson, sinna sínu af prýði, en aftur má draga úr fyrirgangi framan af hjá Þorsteini. Mikill f jöldi smáhlutverka er í sýningunni og þau vekja oft mun meiri kátínu en stóru rullumar: Kjartan Bjargmundsson er hrein perla í litlum lögregluþjóni, hófstillt- ur og smekklegur í hverri brellu, enda hitta þær flestar beint í mark. Viðar Eggertsson á nokkra vel mót- aöa fíra í framrás leiksins og Kjart- an Ragnarsson er stórkostlegur lýta- læknir. Til bóta I þessari sýningu má sem sagt margt færa til betri vegar: öll tón- iistarinnskot með breyttri lýsingu eru óþörf og lengja sýninguna, eins má sneiða út úr henni brellur hér og þar. Eg óttast að slíkar aögerðir séu nauðsynlegar til að tryggja Félegu Fési langa lífdaga. Eitt og eitt bak- fall, ein og ein fetta má gjaman missa sín, einkum framan af. Þannig trúi ég að hylli leiksins meöal alþýðu verði meiri og Leikfélaginu til stærri ágóða. Nærri vonlaust má nú telja að ná símasambandi frá Reykjavík til ann- arra símasvæða á landinu. Samband næst eingöngu nánast fyrir tilviljun. Hins vegar er ekki alveg eins vonlítið að ná til Reykjavíkur nema í síma sem byrja á 68. Engin beiðni liggur fyrir um lagfæringu á símasambandinu inn- anlands. „Við erum hér þrjú sem hömumst við að hringja út á land og náum aðeins einu og einu símtali allan daginn. Þaö er skárra að ná til útlanda. Þá kvartar fólk yfir að ná illa til okkar utan af landi og við erum sífellt að h jálpa þeim sem ætla að hring ja í númer sem byrja á 68,” sagði símaþjónn hjá SlS. „Það getur tekiö nokkra klukkutíma Utlit er að á næstunni fari að gæta brauðskorts vegna þess að bakarar eru nú margir að verða hveitilausir. Hjá Samsölunni fengust þær upp- lýsingar að til væri hveiti í dag og á morgun. Eftir þann tíma yröu aðeins bakaðar fáeinar tegundir. Þannig er víst ástandiö hjá mörgum bökurum. Hjá Sveini bakara fengust hins veg- ar þær upplýsingar að þar væru til að ná sambandi út á land en hendir þó að símtal náist strax. Viö notum 02 í neyð, þeim gengur betur,” sagði sú sem varð fyrir svörum á símaborði Landspítalans. „Við gefumst yfirleitt upp,” sagði símavörður hjá Flugleiðum, „og síöan um helgi hefur verið margfalt betra aö ná til útlanda en hér út á land. Þaö hef- ur ekki verið kvartað um að ekki náist í okkurþaðan.” „Þetta gengur voöalega illa en geng- ur þó og það hjálpar að viö getum stundum komist inn í samtöl,” sagöi símavörður á vakt í 02. Þar er nú einungis neyðarvakt vegna öryggis- og sjúkramála. birgðir af hveiti til næstu tveggja eða þriggja vikna. Margir bakarar eru nú þegar hættir aö baka franskbrauð því það er fyrst og fremst hvíta hveitiö sem lítið er orð- iðaf. Hveiti til neytenda er enn fáanlegt í verslunum og ekki neitt yfirvofandi að það hverfi úr hillunum á næstunni. APH HERB Stefnir í brauðhallæri j dag mælir Dagfari________I dag mælir Dagfari _____jdagmælir Dagfari Kratar vilja rannsaka frelsið Eftirlcikur hinna frjálsu útvarps- stöðva hefur verið harla undarlegur, ef ekki tragikomiskur. Alþýðuflokk- urinn, með Eið Guðnason í broddi fylklngar, hefur tekið að sér, ásamt framfarasinnuðum bændum í Framsóknarflokknum, að skammast út í þessar útvarpsstöðvar. Jafnvel kommarnir, sem hafa eölislæga and- úð á öllu því sem bendlað er við frelsi, hafa haft sig hæga og raunar ekki komist að vegna vasklegrar framgöngu krata. Þannig hafa þeir sex landsmenn, sem enn eru kenndir við Alþýðu- flokkinn og allir sitja á þingi, sam- einast í því að iáta það verða sitt síðasta verk, áður en flokkurinn verður allur, að koma því rækilega til skila að jafnaðarmenn séu á móti „ólöglegum” útvarpsstöðvum. Ekki er nóg með að biessaðlr mennirnir ráðist heiftarlega gegn öllum þeim sem að útvarpsstöðvunum stóðu, fyrir óhlýðni við lög og rétt, heldur hafa þeir flutt sérstakar þings- ályktunartillögur um rannsóknar- rétt yfir lögbrjótunum. Nú varð það að visu svo að helftin af þjóðinnl, og nánast hver sem vettlingi gat valdið, hlustaði á hinar frjálsu útvarpsstöðvar og tug- þúsundir manna hafa skriflega vottað stöðvunum stuðning sinn. Samkvæmt skoðanakönnun DV vilja þrír af hverjum fjórum isiendingum að einkaréttur ríkisins á útvarps- rekstri sé afnuminn. En Alþýöuflokknum kemur þetta hreint ekki við enda virðist sá flokk- ur hafa það á stefnuskrá sinni að vera á móti þeim málum sem þjóðin styður. Kannski þess vegna er flokkurinn svo lítill og er ekkert við þvi að gera ef menuirnir eru á annað borð staðráðnh' í því að ganga af> flokki sínum dauðum. Það má svosum segja að farið hafi fé betra en í ljósl sagnfræðinnar og sögunnar hlýtur það að verða for- vitnilegt rannsóknarefni hvernig Alþýðufiokkurinn sá sér leik á borði á síðari hluta tuttugustu aldar að verja síðustu kröftum sinum til að berjast gegn tjáningarfrelsinu. Þegar samfélagið er komið á það stlg að fólk getur hlustað á útvarp og horft á sjónvarp á hverju heimili, stillt tæki sin á tugi erlendra út- varpsstöðva, leiklð sér með mynd- bönd, kapalvætt heilu byggðarlögin, tekið á móti beinum útsendingum í gegnum gervihnetti hvaðanæva að og yfirleltt notið hvers kyns fjölmiðl- unar fyrirhafnarlaust; þegar tæknin og frjálsræðið hefur gert allt þetta kleift, taka nokkrir taugaveiklaðir starfsmenn svokallaðs Ríkisútvarps sig til og belta aðstöðu sinni til að loka fyrir allar upplýsingar og fréttaflutning. Bara rétt si sona. Menn máttu ekki einu sinni fá lesnar upp dánartilkynningar og verða að gera sér það að góðu að kveikja á útvarpinu til að heyra verkfallsverði gefa frá sér píp á klukkutíma fresti. Heil þjóð lætur auðvitað ekki bjóða sér slíkt ástand, enda væri það meiri guðsvolaði aumingjaskapurinn, ef afkomendur víkinganna sætu þegj- andi undir þeirri frelsisskerðingu. Það fór líka svo aö, frjálsum út- varpsstöðvum var tekið fagnandi af öllum nema þeim sem annaðhvort eru ómálga börn eöa sitja á þingi fyrir Alþýðuflokkinn. Ömálga börnin hafa látið málið af- skiptalaust en kratar hafa heimtað rannsóknarrétt á þeirri frelsisbar- áttu sem nefnist lögbrot á þeirra máli. Það verður að segjast eins og er að þeir Alþýðuflokksmenn hafa áreiðanlcga ekki getað fundið betra þingmál til að hrinda þeirri stefnu sinni í framkvæmd að ganga af sjálfum sér dauðum. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.