Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1984, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR15. NOVEMBER1984.
5
Finnur Jónsson í banda
rískri listaverkabók
Nýlega er komin út í Bandaríkjun-
um mikil og glæsileg listaverkabók um
nútímalistasafniö fræga í Yale, Yale
University Gallery. Þar er aö finna tvö
málverk eftir íslenska listmálarann
Finn Jónsson máluð árið 1925. Myndir
af þessum sömu verkum er einnig að
finna í bókinni um Finn Jónsson sem
kom út í fyrra hjá Almenna bóka-
félaginu.
Þetta er mikil alþjóðleg viðurkenn-
ing fyrir Finn Jónsson sem í bókinni er
settur við hliðina á heimsfrægum
frumkvöölum nútímalistar eins og
Nolde, Kandinsky o.fl.
Finnur Jónsson er 92 ára í dag, 15.
nóvember, og er þessi frétt um hina al-
þjóðlegu viðurkenningu, sem hann
hlýtur í ofangreindri bók sem berst
víðs vegar um heiminn, verðskulduð
afmælisgjöf honum til handa.
Frank Ponzi listfræðingur mun
innan skamms skrifa grein um bókina,
safnið í Yale og stofnendur þess í Les-
bók Morgunblaðsins.
-óm
Umferð takmörkuð í Heiðmörk
Hliðunum í Heiðmörk, þ.e.a.s. við
Vífilsstaðahlíð, Strípsveg við Ferða-
félagsplan og Hjallabraut, hefur verið
lokað og meðan svo er er bifreiðaum-
ferð um Mörkina takmörkuö. Hægt
verður að aka veginn um-Rauðhóla
fram hjá Jaðri upp eftir Heiðarvegi og
eftir Hraunslóð út hjá Silungapolli eða
öfugt.
Vegimir um Heiðmörk eru aðeins
gerðir fyrir sumarumferð og þola ekki
umferð þann árstíma sem frost og þíö-
viðri skiptast á og er því nauðsynlegt
að hlífa þeim viö bifreiðaumferð yfir
veturinn og þar til frost er aö mestu
leyti f arið úr jörð að vori.
Þaö er ósk félagsins að fólk noti
Mörkina til gönguferða og annarrar
útivistar þrátt fyrir takmarkaða bif-
reiðaumferðyfirveturinn. -óm
Nýjung á ísiandi:
Veðurhiíf á vinnupallana
LATT'EKKI
REGNIÐ OG ROKIÐ
BERJA ÞIG AÐ ÓÞÖRFU!
Svissneska Tegunet
veðurhlífin bætir aðstöðu á
vinnupöllum og tryggir þér
fleiri nothæfa vinnudaga.
Fundur um nýju tóbakslögin
Mánudaginn 19. nóvember heldur
Krabbameinsfélag Reykjavikur
fræðslufund fyrir almenning í hinu
nýja húsi Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8. Fundurinn hefst kl. 20.30.
Á dagskrá eru málefni sem nú eru
mjög ofarlega á baugi: Ingimar Sig-
urðsson deildarlögfræðingur kynnir
nýju tóbakslögin sem taka gildi um
áramótin og Sigurður Arnason læknir
heldur fyrirlestur um óbeinar reyk-
ingar. Að loknu kaffihléi mun Helgi
Valdimarsson prófessor flytja erindi
um ónæmisfræði krabbameina.
Víða, einkum á Vesturlöndum, hafa
nú verið sett lög sem banna reykingar
á tilteknum stöðum eða takmarka þær
við ákveðin svæði. Sívaxandi vitneskja
um skaðsemi óbeinna reykinga gefur
þessari þróun byr undir báða vængi.
Með nýju tóbaksvarnalögunum er Is-
land komiö í hóp þeirra landa sem
setja skorður við reykingum á al-
mannafæri, auk þess sem í lögunum
eru ýmis önnur mikilvæg ákvæði.
Að því er varðar ónæmislækningar
er þess skemmst að minnast að nóbels-
verðlaunin í læknisfræði voru að þessu
sinni veitt fyrir rannsóknir á því sviði,
m.a. aðferðir við framleiöslu svo-
nefndra einstofna mótefna sem vænst
er að geti komið að gagni við greiningu
og meðferð krabbameina.
Þetta er fyrsti almenni fræðslufund-
urinn sem haldinn er í Skógarhlið 8 og
erhannöllumopinn. -óm.
Stof nfundur kvennalista
Um síðustu helgi voru haldnir stofn-
fundir Samtaka um kvennalista í
þremur kjördæmum landsins og gerð-
ust þar tugir kvenna stofnfélagar. Á
laugardaginn var haldinn framhalds-
stofnfundur Kvennalistans í Borgar-
nesi en aðalstofnfundur var á Akranesi
nú fyrir skömmu. Sama dag var hald-
inn á Selfossi stofnfundur Samtaka um
kvennalista I Suðurlandskjördæmi og
fyrirhugaðir eru framhaldsfundir I
sýslum austanfjalls og i Vestmanna-
eyjum. Þá var á sunnudaginn fjöl-
mennur stofnfundur Samtaka um
kvennalista á Höfn í Homafirði. Stuðn-
ingsskeyti barst þangaö frá konum á
Héraði sem ekki komust til fundarins
vegna veðurs. I yfirlýsingu, sem ný-
stofnaöur Kvennalisti á Höfn sendi frá
sér, kemur fram að mikill hugur er í
konum þar eystra og hyggja þær á
framhaidsstofnfundi á Austurlandi á
næstu vikum.
-óm
Hringið í síma 91-42322 og fáið allar nánari upplýsingar.
Pallar hf.
Vesturvör 1
200 Kópavögi
Sími 42322
Tegunet veðurhlífin er fislétt en grimmsterk og
auðveld í uppsetningu. Hún tekur u.þ.b. 70% af
öllum vindi, hleypir litlu sem engu í gegn af
úrkomu, heldur inni dýrmætum hita og veitir
kærkomið skjól á vinnupöllunum.
Tegunet veðurhlífin skapar þannig um leið
stóraukin þægindi fyrir alla byggingariðnaðarmenn
og fjölgar veruiega þeim dögum sem hægt er að
vinna viðkvæma útivinnu, s.s. einangrun utan frá,
sprunguviðgerðir, málningarvinnu, múrhúðun o.fl.
Tegunet veðurhlífin kemur einnig í veg fyrir að
hvers konar smáhlutir falli fram af vinnupöllum.
Tjón og slysahætta minnkar þannig til muna.
Verðið er einstaklega hagstætt -
og getur skilað sér margfaldlega til baka með fleiri
vinnudögum, auknum þægindum og um leið
frekari afköstum.
Iðnaðarmennirnir í viðbyggingunni á Hótel
Sögu hafa litlar áhyggjur af íslensku roki og
rigningartíð.
Hugmyndin að Tegunet veðurhlífinni er
einföld — fínofið net úr hinu grimmsterka
en fislétta Polyáthylen.
Nýtt skip
Hafskips
HofsA. nýja skip Hafskips.
Nýjasta kaupskip Hafskips hf., m.s.
Hofsá, kom til Reykjavíkur sl. laugar-
dag með fullfermi frá Evrópuhöfnum.
Hofsá, sem er sjöunda skipið í kaup-
skipaflota félagsins, er smíðuð í
Austurríki 1972, en skipið var kevpt af
kanadísku skipaf élagi.
M.s. Hofsá er 3.200 lestir og tekur
183 gámaeiningar fulllestuð. Áhöfnin,
12 manns, er íslensk og skipstjóri er
Guðmundur Eyjóif sson.
Með tilkomu nýja skipsins fer m.a.
Hvítá, sem er spánskt leiguskip með
spánska áhöfn, úr leigu Hafskips hf.
M.s. Hvítá lestar nú vöru í Banda-
ríkjunum fyrir Hafskip hf. í síöasta
sinn en skipinu verður skilaö í byrjun
næsta mánaðar.
M.s. Hofsá verður í áætlunar-
siglingum til Norðurlandahafna á móti
m.s.Skaftá.
-óm.
KENNARANEFNDIR
AÐ HEFJA STÖRF
I menntamálaráðuneytinu er nú
unnið aö samningu frumvarps um lög-
gildingu starfsheitis kennara. Nefnd,
sem sett var á fót í þessu skyni, tók til
starfa fyrir hálfum mánuði, en í henni
eiga sæti þrír fulltrúar Bandalags
kennarafélaga og þrír starfsmenn
ráðuneytisins.
Menntamálaráðherra hefur enn-
fremur ákveðiö að láta fara fram
endurmat á störfum kennara til sam-
ræmis við menntun þeirra og ábyrgð.
Voru kennarasamtökunum send til-
mæli um það í sl. viku að þau tilnefndu
fulltrúa í nefnd þessa og mun hún taka
til starfa strax og þær tilnefningar
hafa borist.
-óm