Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984. 9 Alþýðubandalagið f öldudal I síðustu viku voru afgreiddir á al- þingi nýir samningar við Alusuisse vegna álbræöslunnar í Straumsvík. Hluti stjórnarandstöðunnar á þingi hélt uppi nokkurri gagnrýni á þessa viöaukasamninga og þá einkum Alþýðubandalagið sem óskaði eftir útvarpsumræðum um máliö. Sjálf- sagt í þeim tilgangi að ýfa á- greiningsefnm sem mest og koma andstöðu sinni sem best til skila meöal þjóöarinnar. Auðvitað er erfitt að leggja dóm á afstööu og viðbrögö alls almennings út frá eigin mati, en þó verður að álíta að þjóöin hafi varpaö öndinni feginsamlega þegar málið var loks útkljáö. Það hefur ekki heyrst hósti né stuna síöan. Önnur ályktun verður ekki dregin en sú að samningamir hafi notið almenns fylgis og and- staðan gegn þeim hafi ekki fengiö hljómgrunn. Maöur hefur það meira að segja á tilfinningunni aö Alþýöubandalagiö hafi sætt sig viö ósigur í málinu og málafylgja flokks- ins sem og annarra, sem samningana gagnrýndu, hafi verið tilmálamynda. Nú eru ratsjárstöðvarnar að komast í sviðsljósið og af fyrstu lotu má marka aö andstaðan gegn þeim nái sér ekki á flug og veröi kveðin í kútinn. Þegar þetta fer saman við afstöðu Alþýöubandalagsins til nýgeröra kjarasamninga og vanmáttar flokks- forystunnar til að efna til upphlaupa í kjölfar gengisfellingarinnar á dögunum fer að verða ljóst að áhrif Alþýðubandalagsins eru ekki svipur hjá sjón miðaö viö það sem áöur þekktist. Fallandi gengi Þetta er í sjálfu sér býsna merkilegt vegna þess að flestum er ljóst að núverandi ríkisstjórn baðar sig ekki í vinsældum. Alþýðubanda- lagið nær sér ekki á strik þrátt fyrir fallandi gengi höfuðandstæöinganna. Hvað sem líður takmarkaðri út- breiðslu Þjóðviljans og fylgi Alþýðu- bandalagsins í almennum kosning- um (16 til 20%) er enginn vafi á því að blaðið og bandalagið hafði oft á tíðum miklu víðtækari áhrif á al- menningsálitið en nú virðist vera. Bæði var að Þjóðviljinn var fyrr á dögum miklu beinskeyttari og snarpari í skrifum sínum og eins hitt aö Alþýðubandalaginu tókst tíöum að höföa til þjóðerniskenndar og til- finningahita sem rikur er meöal íslendinga. Hvort heldur var í álmálinu hér áður, vamarmálum eöa landhelgis- stríði, svo ekki sé talað um ráöandi áhrif Alþýðubandalagsins i verka- lýösbaráttunni, mátti flokkurinn sín mikils i skoöanamótun hér á landi. Hann réð ekki alltaf ferðinni, en Al- þýöubandalagið var óneitanlega flokkur stemmningarinnar sem dró til sín fylgi og aörir flokkar þurftu að takatillittil. Meö öðrum orðum: Alþýðubanda- lagið var ekki aöeins sósíalskur og róttækur stjórnmálaflokkur, hann var að ýmsu leyti uppspretta og hreyfiafl þjóöernislegra og umbóta- sinnaöra skoðana og hópa. Þetta hefur breyst. Ég er ekki að orða þetta hér vegna þess að ég hafi af því áhyggjur, heldur vegna þess aö þetta er fróöleg þróun og athyglis- verö. Umbótasinnað fólk lítur ekki lengur vonaraugum til Alþýðubanda- lagsins. Nýjar hugmyndir, nýjar uppsprettur eiga ekki lengur heima á þeim bæ. Fram hjá flokknum Ein merkilegasta breytingin, sem nú er að gerast í þjóölifinu, er jafn- réttisbarátta kvenna, vaxandi hlut- deild þeirra og afskipti. Konur hafa kosið aö heyja þessa baráttu fram hjá Alþýðubandalaginu. Allur almenningur í landinu hefur vaknaö til efasemda um ágæti stjórnkerfisins. Gagnrýnir skatta- kerfi og misrétti, slök lífskjör og mis- skiptingu. Fólk er að gera sér grein fyrir að valdajafnvægið og samtryggingin flokkanna í milli er meinsemd sem stendur þjóöfélaginu fyrir þrifum. Alþýðubandalagið er sett á sama bás og aðrir flokkar í þessum efnum. Vandamál nýrrar kynslóðar felast í öðruvísi vanda en þehn sem byggist á hefðbundnu stéttastríði. Einstæðir foreldrar, ungir húsbyggjendur, millistéttarfólk á lágum launum, skattgreiðendur, fó'lk í atvinnuleit, einstaklingar í leit aö lífs- hamingjunni hafa enga trú á sósíalískum eða marxískum Al- þýöubandalagskenningum. Þess vegna er Alþýðubandalagið ekkert skjól fyrir þetta fólk. Ellert B. Schram skrifar: Verkalýðshreyfingin er smám saman að breyta um áherslur og átta sig á hlutverki sínu í nútímasam- félagi. Þess vegna ályktar ASI-þing að stuðla þurfi aö nýju landstjórnar- afli til aö ná fram baráttumálum launastéttarinnar. Alþýðusambandið hefur gefist upp á Alþýðubandalaginu. Farið hefur fé betra Hin nýja kynslóð í landinu vill auk- iö frelsi til fjölbreytni á lífsháttum, tómstundum, heimilishaldi, vinnu og viöfangsefnum. Hún vill samlagast upplýsingaöldinni meö frjálsræði í fjölmiölun, starfi og svigrúmi hvers konar fyrir sjálfa sig. Hún hafnar al- ræðinu og miðstýringunni. Þess vegna er Alþýðubandalagið ekki lengur valkostur fyrir það unga fólk sem krefst breytinga og umbóta á ríkjandi ástandi. Meðal unga fólksins rísa upp hreyfingar í nafni frjálsrar fjöl- miðlunar, húsbyggjenda, feröa- klúbba, kvenréttinda og jafnvel félagshyggju. Jafnvel félags- hyggjan leitar út fyrir Alþýðubanda- lagiö. Og er þá mikið sagt. Það er ekki tilviljun aö Svavar Gestson boöar stift þá kenningu að nú þurfi aö sameinast eða sameina öll þessi öfl undir einn hatt; þau öfl sem flokkur hans hefur misst af á allra síðustu árum. Eins og fyrr er rakið er þessi ferill ekki rifjaður upp af áhyggjum vegna Alþýðubandalagsins. Farið hefur fé betra. Heldur af hinu aö þessi þróun er vísbending um að til tíöinda geti dregiö í íslenskum stjórnmálum. Þeirra tíöinda að Alþýðubandalagið veröi ekki lengur þaö sterka afl í pólitíkinni sem taka þurfi tillit til í næstu framtíð. IMýtt blóð Við skulum átta okkur á því aö núverandi ríkisstjórn liefur safnaö að sér glóðuin. Hún höföar ekki til meirihluta þeirra kjósenda sem næst ganga að kjörborðinu. Um síðustu áramót voru 40% þjóðarinnar á aldrinum 15 til 40 ára. Aðeins 23% Is- lendinga erufertugireðaeldri. Það fólk sem er á fertugsaldrinum og þaðan af yngra vill ekki gamaldagsstjórn. Það vill nýtt blóð og hressileg umskipti. Það vill hrista upp, breyta, þó ekki væri nema breytinganna vegna. Fram- sóknarflokkurinn höfðar ekki til þessarar kynslóðar meöan hann dragnast með hagsmunavörslu fyrir StS í farangrinum, úrelta land- búnaðarstefnu og afturhaldssama frambjóöendur. Sjálfstæöisflokkur- inn er ekki heldur eftirsóknarverður valkostur meðan hann þumbast við stjórnvölinn í fylgd með Framsókn og kerfinu og þráast viö að gefa yngri mönnum sín tækifæri. Þorsteinn Pálsson átti erindi inn í ríkisstjórn eftir aö bann varð for- maður Sjálfstæöisflokksins. En eins og komið er væri þaö óös manns æöi fyrir hann aö bendla sig við stjórn sem lifir sjálfa sig en tilheyrir for- tiöinni. Hans von, og þá Sjáifstæöis- flokksins um leið, byggist á því að tileinka sér þá strauma sem nú fara um þjóðfélagið og láta núverandi ríkisstjórn lönd og leiö. Ekki af því að þar sitji óhæft fólk, síður en svo. Heldur af því að Þorsteinn Pálsson á aö véra samstiga sinni eigin kynslóö, en ekki f ulltrúi þess sem liöiö er. Hver verður fyrstur? Möguleikar Alþýöuflokks, Kvenna- lista, Bandalags jafnaöarmanna og annarra þeirra, sem til framboös hyggja, liggja í því að Alþýðubanda- lag, Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur skilji ekki sinn vitjunartima. Að þeir skynji ekki þá hugarfarsbreytingu sem nú er gerjun. I vaxandi mæli eru kjós- endur aö líta til allra átta; eru opnir fyrir þeim pólitísku öflum sem tala það mál sem þeir skilja. Næstu mánuðir eru spennandi tími. Tekst Jóni Baldvin aö halda dampinum? Ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að láta toga sig dýpra í feniö? Kemst Alþýöubandalagið úr sinni eigin úlfakreppu? Eða leiða þessar hræringar til meiriháttar uppstokkunar á ríkisstjórn og flokkaskipan? Hver verður fyrstur til að svara kalli kjósenda? Þjóðin vill leggja til hliðar lang- . þreyttar deilur um álmál og hermál, frjálshýggju og félagshyggju. Þjóðin vill stjórnmálin upp á annað plan, bæði í efnalegu sem veraldlegu tilliti. I þessu sambandi eru þaö ekki flokkarnir sem skipta máli, heldur einstaklingarnir og hin nýja kynslóð sem á að byggja þetta land. Það er fólkið í landinu, ekki flokkamir, sem þarf að lifa. Flokkamir þurfa hins vegar að laga sig að fólkinu, en ekki öfugt. Það er allt og sumt. Ellert B. Sehram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.