Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 16
16 Spurningin Á hvaða hljómsveit hlustar þú mest? Stafania Dögg Hauksdóttir nemi: Eg held mest upp á Duran Duran og Wham! Þeir syngja mjög vel og eru mjög sætir. Jóhann Ólafsson, starfsm. Hag- kaups:Eg hlusta mest á David Bowie. Mér finnst Duran Duran og Wham! lé- legir. Sigurbjörg Sigurðardóttir Kúsmóð- ir:Ég hlusta á alla létta tónlist. Duran Duran, Wham!, Pat Benatar og Cyndi Lauper. Guðrún Hreinsdóttir nemi: Mér finnst Wham! best. Æöislega sætir strákar, og svo auðvitað góð tónlist. Ingunn Einarsdóttir nemi: Duran Duran er mjög góð, svo skaðar ekki út- litiö. Margrét Grímsdóttir, starfsm. Hag- kaups: Eg hlusta mest á gömul lög. Eg er mjög lítið fyrir þessi nýju, það er engin sérstök hljómsveit sem ég hlusta mestá. DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lélegar landbúnaðarafurðir Kona hringdi: Ef fólk mundi nú borða hollan og góöan mat þá þyrfti það ekki á öllum þessum vítamintöflum aö halda. Gallinn er bara sá að nú orðið er lítið af slíkum mat á boðstólum nema ef vera skyldi sjófang. Gæði landbún- aðarfurða eru lítil. Svo viröist sem kjúklingar séu óætir nema þeim sé gefiö svo og svo mikið af lyf jum, ann- ars verða þeir sjálfdauðir úr druilu. Kýr lifa yfirleitt ekki nema 2—3 ár, þá er búið að sprengja þær með fóðurbætisgjöf. Síðan eru þær seldar sem nautakjöt. Ef manni verður á að geyma mjólkurafuröir 2—3 daga í kæliskáp þá verða þær fúlar, ekki súrar því að það er búið að drepa alla súrgerla sem voru hvað mikilvæg- astir fyrir geymslu matvæla hér áð- ur fyrr. Þar með er ekki öll sagan sögð. Nú fær lambakjötið ekki einu sinni að vera í friði: þegar lömbin koma af fjalli þarf helst aö stríðala þau á grasi sem ræktað er með notk- un tilbúins áburðar. Þessi gjöf er or- sök fitu sem neytandi sker í burt þeg- ar hann hefur borgað skv. þyngd. Að mínu mati ætti Náttúruvemdarráð að sjá til þess að bændur bæru mykju á tún en ekki eingöngu gerviáburð. Þá þyrftu þeir ekki að plægja annaö hvert ár og láta almenning borga ræktunarstyrkinn. Viðgengst klaufaskapur í landbúnaðinum? „Kona" er þeirrar skoðunar. Ómar sprelli Gunnar og Valgeir skrifa: Kæra sjónvarp. Getið þiö ekki sýnt meira af gömlum myndum úr safni sjónvarpsins, s.s. Ugluþætti Jónasar R? Omari Ragnars- syni væri líka alveg óhætt að láta sjá sig á skjánum og sprella fyrir mann- skapinn. 1 raun ætti sjónvarpiö að sjá sóma sinn í því að hafa viðtalsþátt viö Omar þar sem hann segði frá við- buröaríkum ferli sínum. Það gæti orðið frábær þáttur og vel þeginn af sjón- varpsáhorfendum. Svo éru það nú íþróttirnar. Okkur finnst ótækt að einskoröa íþróttaþætt- ina svona mikið við fótbolta og hand- bolta. Það verður að auka fjöl- breytnina, t.d. með því aö sýna ipeira frá lyftingum og kraftaíþróttum yfirleitt. Að lokum: Af hverju eru engar út- sendingar á fimmtudögum hjá sjón- varpinu? Við getum ekki skilið aö það sé svo dýrt að sýna eins og tvær gamanmyndir á fimmtudagskvöldum. Er þaö kannski fjárhag sjónvarpsins ummegn? Ellert Sigurbjörnsson hjá sjónvarp- inu: Fyrsta árið sem sýnt var úr safni sjónvarpsins var einungis um efni frá frétta- og fræðsludeild að ræða. Nú er hins vegar farið aö sýna efni frá lista- og skemmtideild og þegar hefur veriö sýndur einn Ugluþáttur. Enn er ekki ákveðið hvað verður sýnt í framtíöinni en vonandi eiga fleiri Ugluþættir eftir að birtast. Undanfarið hefur Omar haft í nógu að snúast fyrir sjónvarpið, bæði sem fljúgandi fréttamaður og umsjónar- maður Stiklu-þáttanna. Þetta er engu að síður ágætishugmynd sem viö höf- um hér með tekið á móti. Eg get nú ekki tekið undir það að þaö séu einungis boltaíþróttir í íþróttaþátt- unum. Undanfarið hefur t.d. verið tals- vert sýnt af vetraríþróttum og fyrir stuttu frá stóru frjálsíþróttamóti. Svo veit ég líka aö þaö er ekki hlaupið aö því aö fá myndir frá ýmsum atburð- um. Bjarni Felixson hefur haft orð á 68-66-11 kl. 13 til 15 Fréttamaðurinn fljúgandi á fullri ferð. því aö það sé mjög takmarkaö fram- boð á efni. Varðandi útsendingar á fimmtudög- um þá hefur það mál verið rætt í út- varpsráði en það er ekki hlaupið að breytingum sem þessum. Þær hafa í för með sér aukningu starfsfólks og breytingu á vaktafyrirkomulagi. Fimmtudagar hafa líka nýst sem drjúgur vinnudagar til dagskrárgerð- ar á íslensku efni: það hefur verið hægt að vinna ótruflað fram á nótt. En það eru ýmsir innan sjónvarpsins sem vilja koma þessu á hvenær sem af því getur orðið. ErKristjáni ekki sjálfrátt? Pétur skrifar: Eg varö furðu lostinn er ég hlustaöi á viötal viö Kristján Thorlacius í útvarp-1 inu nú nýlega. Er Kristján oröinn það gamalær að hann sé búinn að gleyma kröfum sínum og BSRB um 30% kaup- hækkun fyrir þá lægstlaunuðu og þá hæstlaunuðu auk vísitölubindingar launa sem samkvæmt reynslu hefur einungis fært okkur óðaverðbólgu og stóraukinn mun milli lægstu og hæstu launa? Kristján sniðgengur og felur þær staðreyndir að dómar kjaradóms í málum alþingismanna og nú BHM eru byggðir á þeim forsendum sem hann skóp með verkfalli BSRB og samning- um þeim sem uröu til við lausn verkfallsins. Þaö er varla nógu sterkt að orði kveöið að nefna þetta hræsni. Reykskynjara í öll hús % Húsmóðir hringdi: Alltaf verða slysin og gera ekki boö á undan sér. Hins vegar held ég að við verðum að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir þau. Oft heyrum við um eldsvoða og jafn- vel manntjón. Ég vil nú bara segja það að mér finnst skjóta skökku við aö þeg- ar við byggjum okkur hús er þess kraf- ist að rafvirki sjái um að raflagnir hússins séu í lagi en hvergi er minnst á aö reykskynjari skuli vera í húsinu. Má það furðulegt teljast því þetta litla tæki getur skipt sköpum um það hvort eldur nái að breiðast út og kostar auk þess nokkrar krónur miöað við bygg- ingarkostnað hússins. Furðuleg vinnubrögð hjá Ingvari Eyþór Ólafsson skrifar: Um síðustu helgi auglýsti bifreiða- umboð Ingvars Helgasonar ferðir sölu- manns um Suöurland af mikilli hörku. Síðast í hádeginu sunnudaginn 10. febr. auglýsti það veru nefnds sölumanns við Víkurskála frá kl. 14—17. Eg og margir aðrir komum aftur og aftur og biðum á auglýstum tíma en ekkert bólaöi á sölumanni. Ckkur, viöskipta - vinum Ingvars hérna í Mýrdalnum, finnst þetta frekleg móðgun, bæði viö okkur og aðra Mýrdælinga. Það var alveg lágmarkskurteisi að hringja í Víkurskála og afboða komu sölu- mannsins ef óviðráðanlegar aöstæður| hindruöu för hans. Við vonum fastlega aö svona vinnubrögð eigi ekki eftir að endurtaka sig, þau eru ekki til þess fallin að auka traust á fyrirtækinu. Framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf.: Þaö fór maður frá okkur að Víkur- skálanum til þess að sýna bíl um síð- ustu helgi en vegna versnandi veöurs sótti hann um leyfi til sölustjóra fyrir- tækisins til að stytta auglýstan sýning- artíma. Virtist honum sem fólk ætlaöi ekki að mæta vegna veðursins. Fékk hann leyfið hjá sölustjóranum og til- kynnti einum starfsmanni Víkurskála að hann væri að fara. Þau skilaboð virðast því miður ekki hafa komist til skila. Fyrirtækið vill biöjast afsökunar á þessu atviki en við höfum í hyggju að koma aftur í Víkurskála fljótlega þannig aö þeir sem sáu ekki þennan bíl umrædda helgi fái tækifæri til að skoöa og reynsluaka honum og eins kynnast öðrum bílum sem við erum meö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.