Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 8
30 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd Athyglisverðir fræðsluþaettir „Fleira er matur en feitt kjöt,” eins og kell- ingin sagði i kaupKlaginu og að sama skapi er nú fleira til á myndbandamarkaðinum hírlend- is en sápuóperur, bófahasar og fóik bútað niður með vélsögum. 1 Myndbandalelgu kvikmyndahúsanna eru nú tll útleigu tveir flokkar vandaðra sjónvarps- þátta um villt dýralif viða um heiminn. Annars vegar er um að rœða þœtti Lorne Green (Bonanza), Last of the Wlld, og hbis vegar þættina The World of survival, nokkrir af þeim stðarnefndu hafa verlð sýndir f islenska sjónvarpinu. Fræðsluefni á myndböndum ryður sér nú æ meira til rúms á myndbandamörkuðum ytra enda oft ánægjuleg tilbreyting frá hasarmynd- unum. Vonandi eru þessi myndbönd fyrsti vis- irinn að þessari þróun hérlendis. -Ffíl Hryllingsmyndaþvotturinn a myndbandaleigunum: Þörf aðgerð Hreinsun logreglunnar a hryllings- myndum úr myndbandaleigum landsins í þessari viku var í sjálfu sér þörf aðgerð sem framkvæma hefði átt fyrir löngu enda megnið af þessum myndum lítið annaö en fjárplógsstarf- semi óvandaðra manna sem höfða til lægstu hvata fólks. Hins vegar ber að líta á það að viss þörf er og hefur alltaf verið fyrir efni af þessu tagi og vissulega hafa margar ágætar hryliingsmyndir verið gerðar. Af þeim 67 myndum sem kvikmynda- eftirlitiö úrskuröaöi ólöglegar hérlend- is er engin sem hægt er að segja að hefði ekki átt að vera á listanum ef undan er skilin myndin Scanners eftir leikstjórann David Cronenberg sem getið hefur sér gott orð á sviði hryllingsmyndagerðar og þykir með efnilegustu leikstjórum í heiminum á því sviði í dag. Scanners er einnig ein fárra mynda á listanum sem sýnd hefur verið í kvikmyndahúsum hér- lendis. Það eina sem hægt er að gera athugasemd við í sambandi við þann lista sem lögreglan hafði til hliðsjónar er að á honum eru nokkrar myndir sem þegar hafa verið sýndar í kvik- myndahúsum hérlendis, eins og Caligula, Class of ’84, Friday the 13th og Visiting Hours fyrir utan Scanners. Að banna þær er eins og að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í hann. -FRI. Lögreglan í aðgerðum á þriðjudag- inn. DV-mynd S. Mál Videoheimsins til saksóknara: Samningar tókust ekki Mál Videoheimsins verður brátt sent til athugunar hjá ríkissaksóknara og mun embættið kanna gögn þau sem því berast frá rannsóknarlögreglu ríkisins. Kröfur þær sem einstakiingar innan Samtaka rétthafa myndbanda gera á hendur leigunni nema á aöra milljón króna. SRM reyndi að semja viö for- ráðamenn leigunnar en upp úr þeim viöræðum slitnaði og fer málið því sína leið í dómskerfinu. Upphaflega lagði RLR hald á milli 2 og 300 myndbönd í Videoheiminum og síðan nokkur fleiri í framhaldi af því og er þetta mál eitt hið stærsta sinnar tegundar sem nú eru í athugun. Fyrir utan hina opinberu rannsókn munu sex einkamál vera í gangi gegn leigunni. -FRI. 1. Chiefs 2. Falcon Crest 3. Stríðsins blóðuga helvfti 4. Með allt á hreinu 5. Dynasty 6. Lace 7. Ninje Master (4-6) 8. Escape from New York 9. To be or not to be 10. Celebrity 11.48 hrs. 12. Killer on Board 13. Lies 14. Educating Rita 15. Silent Partner 16. Summer Girl 17. The Nurse 18.1922 19. Silkwood 20. Blue Thunder > Q The Anderson Tapes. Leikstjóri Sidney Lumet. Aðalhlutverk Sean Connery, Dyan Cannon. Léttur þriller um innbrotsþjófinn Duke (Connery) sem ætlar sér að hreinsa allt fémætt úr f jórum íbúöum í stórhýsi nokkru. Hann fær til liðs við sig f jóra aðra glæpamenn en það sem er nokkuð skondiö við þetta rán er að frá upphafi 'fylgjast alls um fjórar mismunandi lög- regludeildir með innbrotsþjófunum, mynda þá í bak og fyrir og taka alit upp á segulband sem þeir segja. Þegar þrælskipulagt innbrotið er í fullum gangi kemst það upp, að vísu ekki fyrir tilstilli allra lögregludeildanna heldur lamaðs stráks sem á litla talstöð í einni af íbúðunum sem rændar eru. Lögreglan leggur til atlögu. Lumet á að baki margar stórgóðar myndir og þótt þessi verði seint talin með merkari myndum hans er hún pottþétt skemmtun sem óhætt er að mæla með. Rétt er að geta þess að The Anderson Tapes er fyrsta myndin sem Christopher Walken (The Deer Hunter, Dogs of War) lék í og sýnir hann afbragðsleik eins og raunar flestir aðrir. BEATTHE DEVIL. Leikstjóri John Huston. Aðalhiutverk Humphrey Bogart, Jennifer Jones, Gina Lollobrigida. Að segja að þessi mynd sé skrýtin er vægt til orða tekið. Að óreyndu átti maður von á mun betri mynd, einkum er haföur er í huga sá kokkteill úrvalsliðs sem stendur að gerð hennar. Fyrir utan framangreinda má nefna að Truman Capote skrifaði handritið aö henni ásamt Huston og í aukahlutverkum eru leikarar á borð við Robert Morley og Peter Loore. Handrit myndarinnar er þannig skrifað að áhorfandinn á erfitt með að átta sig á því hver efnistökin eru. Myndin hefst í smábæ á Italíu þar sem hópur fólks bíður eftir skipsfari til Afríku. Meðal þeirra sem bíða er hópur viðskiptamanna sem ætlar sér að semja um úranvinnslu í Afríku, ensk hjón á leið til kaffi- akra sem þau hafa fest kaup á og Bogart og Lollobrigida sem eru í samkrulli með viðskipta- mönnunum. Á miðri leið kemur upp eldur í skipinu og farþegarnir verða að yfirgefa það. Þau fara á árabát til Afríku þar sem hópur araba tekur þau til fanga og þá loks fara línurnar aö skýrast. Leikur er allur meö ágætum í myndinni en hún verður ekki talin með betri verkum Huston. M Ve te The Twooe /, Miib.NoiMWi. an aroc m Class of 1984. Leikstjóri Mark Lester. Afleihlutverk Perry King, Timothy van Patten, Roddy McDowell. „Við erum framtíðin,” segir einn af pönk- urunum í þessari mynd við kennara sinn eftir að gengi þaö sem hann stjórnar og ræður lögum og lofum í skólanum hefur gert kennaranum flest allt til miska nema drepa hann. Framsýn leikstjórans Mark Lester, sem bæði framleiðir myndina og skrifar handritið, er væg- ast sagt ótrúleg, sérstaklega ef haft er i huga að pönkið er meira og minna í andarslitrunum þessa dagana. I skóla einum stjórnar pönkgengi nokkurt öllu og leggur fyrir sig ýmsan óþverra, allt frá fíkni- efnasölu til nauðgana og morða, án þess að skólayfirvöld geri nokkuö af viti í málinu nema einn kennari, sem fær bágt fyrir. Bíll hans er sprengdur í loft upp og konu hans nauðgað og ýmislegt annað. Hann á engra annarra kosta völ en kála genginu sjálfur. Það sem einkum háir þessari mynd er að leikur í henni er allur þriöja flokks ef undan er skilinn Roddy McDowell í hlutverki kennarans. Efni hennar er í sjálfu sér þörf ábending á þessum síðustu og verstu tímum en missir soldiö marks vegna þess hve ýkt það er á- köflum. Hells angels on wheels. Leikstjóri: Richard Rush. Aflalhlutverk: Jack Nicholson. Ein fyrsta mynd Jack Nicholson og áhuga- verð fyrir þá sem vilja sjá kappann á sínum yngri árum, en að öðru leyti er þessi ræma hið mesta bull. Meðalþeirrasem koma fram í henni er hinn þjóðsagnakenndi forseti „engla helvítis”, Sonny Berger. Eg þekki hann ekki í sjón en ef hann leikur sjálfan sig í myndinni, eins og mig grun- ar, verður seint sagt að leikhæfileikar íþyngi honum. Nicholson leikur ungan mann sem tekinn er inn í „engla-gengið”. Síðan gengur myndin út á að lýsa daglegu lífi þessa hóps utangarðs- manna, eilífar mótorhjólaþeysur án markmiös, partí þar sem allir reykja og ríða eins og mest þeir mega, kryddað með slagsmálum við hina og þessa sem „englunum” er á einhvem hátt uppsigað við. Engan eiginlegan söguþráð er að finna í myndinni og ef ætlunin var að gefa ein- hverja innsýn í líf „englanna” bætir myndin engu við sem ekki var vitað fyrir. **** Fróbær *** Góð ★ Léleg -FRI ★ ★ Miðlungs O Afleit

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.