Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
63
Dómur upp kveðinn
Besta smáskífan
1. SHE SELLS SANCTUARY,
Cult, Beggars Banquet
2. BRING ON THE DANCING
HORSES, Echo & The Bunny-
men, Korova
3. BETWEEN THE WARS EP,
Billy Bragg, Go! Discs
4. INBETWEEN DAYS, The Cure,
Fiction
5. RUNNING UP THAT HILL,
Kate Bush, EMI
6. THE BOY WITH THE THORN
IN HIS SIDE, The Smiths, Rough
Trade
7. ALIVE AND KICKING, Simple
Minds, Virgin/ROAD TO NOW-
HERE, Talking Heads, EMI
9. UNFORGETABLE FIRE, U2,
Island
10. DUEL, Propaganda, Z'TT
Versta smáskífan
1. THE POWER OF LOVE, Jennifer
Rush, CBS
2. l’M YOUR MAN, Wham! Epic
3. THE SHOW, Doug E. Fresh And
The Get Fresh Crew, Cooltempo
4. MERRY CHRISTMAS EVERY-
ONE, Shakin’ Stevens, Epic
5. LIVE IS LIFE, Opus, Polydor
6. 19, Paul Hardcastle, Chrysalis
7. WE BUILT THIS CITY, Starship,
RCA
8. CLOUDS ACROSS THE MOON,
Rah Band, RCA/ELECTION
DAY, Arcadia, Parlophone/
TARZAN BOY, Baltimora, Col-
umbia
o ’,'htí Smiths
3- The Cure
*• Plrc Straits
5- New Order
7 £°Cttíau Twins
'■ Oie CuJt
' jhe Alarm
2 jj2 iv/,**ieiKU/
2' The Smiths
3. Live Aid
4' wiv Aimmd And
WiIJmg Sinners
o. Pogues
10■ Spear of Destiny
Poppblöð hafa frá því elstu menn muna fengið lesendur sína
einu sinni á ári eða oftar til þess að gefa poppfólkinu einkunn-
ir; þá á vel við að vori að dæma um frammistöðuna síðustu
mánuðina og úrslit árlegrar kosningar Melody Makers voru
birt á dögunum. Urslit í nokkrum helstu flokkunum eru birt hér
á síðunni.
Lesendur Melody Makers virðast að mörgu leyti vandlátari en
lesendur margra annarra breskra blaða sem fjalla um popp. Stóru
unglingatímaritin einsog Smash Hits og No. 1 vaða uppi með
A-ha, Madonnu og Wham! í efstu sætunum en eins og þið sjáið
á þessum listum fer lítið fyrir slíku undirmálsfólki í kosningaúr-
slitum MM.
Eflaust vekur mesta athygli vinsældir U2 en írska hljómsveitin
hirðir tvo af eftirsóttustu titlunum: besta hljómsveitin og best á
hljómleikum. Eins og alkunna er hefur U2 haft hljótt um sig
mörg undanfarin misseri og þvi er sigur hennar i kosningunum
núna enn stærri af þeim sökum. Bono er líka álitinn besti söngv-
arinn.
Ef mig misminnir ekki þá eru lesendur MM sammála gagn-
rýnendum blaðsins um bestu breiðskífuna 1985: Head On the
Door með Cure. Hins vegar virðast skoðanir skiptar á plötu
Dire Straits, Brothers In Arms, sem finna má á báðum listunum
yfir bestu og verstu plöturnar! Bjartasta vonin eða nýliðar árs-
ins eru samkvæmt þessari lesendakönnun hljómsveitin Jesus
And Mary Chain og söngkona hljómsveitarinnar Cocteau Twins
prýðir efsta sætið á listanum yfir bestu söngkonurnar: Liz Frazer.
Hljómsveitin Fine Young Cannibals, sem hingað kemur í næsta
mánuði á Listahátíð, hafnar í öðru sæti yfir nýliða ársins og
minna má á að Lloyd Cole & the Commotions, önnur Listahátíð-
arhljómsveit, var talin efnilegust í sömu kosningum fyrir ári.
The Smiths má vel una við niðurstöður kosninganna í MM.
Hljómsveitin er víða í öðru sæti: yfir bestu hljómsveitina, best
á hljómleikum, önnur besta platan kemur í hlut Smiths: Meat
is Murder, og Morrissey er talinn annar besti söngvarinn. Hann
er aukinheldur sagður best klæddi popparinn og Johnny Marr
er álitinn bestur hljóðfæraleikari i poppinu.
Af flokkum sem ekki var pláss fyrir hér á síðunni má nefna
„mann“ og „konu“ ársins. Bob Geldof var - að sjálfsögðu liggur
manni við að segja - valinn „maður ársins“ en Winnie Mand-
ela, dóttir Nelsons Mandela, hlaut viðurnefnið „kona ársins“.
Besta myndbandið var álitið Take On Me með A-ha; það léleg-
asta hins vegur I’m Your Man með Wham! Besta dansplatan
var kjörin You Spin Me Round með Dead or Alive og Dancing
in the Street með Jagger og Bowie hlaut annað sætið í þessum
flokki. Besta kvikmyndin er sögð Back to the Future og lesend-
ur Melody Makers söknuðu sárast Phil heitins Lynotts.
-Gsal
Lesendur Melody Makers
segja álit sitt
Besta breiðskífan
1. HEAD ON THE DOOR, The Cure,
Fiction
2. MEAT IS MURDER, The Smiths,
Rough Trade
3. LOW LIFE, New Order, Factory
4. PSYCHOCANDY, Jesus And
Mary Chain, Warner Bros
5. HOÚNDS OF LOVE, Kate Bush,
EMI
6. BROTHERSIN ARMS, Dire Stra-
its,Vertigo
7. RUM, SODOMY AND THE
LASH, The Pogues, Stiff
8. MISPLACED CHILDHOOD,
Marillion, EMI
9. FIRST AND LAST AND AL-'
WAYS, Sisters Of Mercy, Merci-
ful Release/LOVE, The Cult,
Beggars Banquet.
Versta breiðskífan
1. LIKE A VIRGIN, Madonna, Sire
2. SO RED THE ROSE, Arcadia,
Parlophone
3. LOVE, The Cult, Beggars Ban-
quet
4. PARTY PARTY 2, Black Lace,
Telstar
5. BROTHERSIN ARMS, Dire Stra-
its, Vertigo
6. NOW THAT’S WHAT I CALL
MUSIC, Various, EMI/Virgin
7. GO WEST, Chrysalis/BORN IN
THE USA, Bruce Springsteen,
CBS/JENNIFER RUSH, CBS
Bjartasta vonin
1. Jesus And Mary Chain
2. Fine Young Cannibals
3. Half-Man Half-Biscuit
4. Cactus World News
5. A-Ha
6. Woodentops
7. Men They Couldn’t Hang
8. Balaam and the Angel/House-
martins/James