Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
5
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
Sigrún Magnúsdóttir fær koss frá Kristni Finnbogasyni.
B-listinn á Hótel Hofi:
„Erum
hamingjusöm"
„Við erum hamingjusöm héma,“
sagði Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Tímans, sem staddur
var meðal stuðningsmanna Fram-
sóknarflokksins á Hótel Hofi er fyrstu
kosningatölur fóru að berast. Allt
benti til að Framsókn fengi einn mann
i borgarstjóm.
Það var létt yfir framsóknarmönn-
unum, kaffi og kökur og börn léku sér
á gólfi. Barinn var opinn fyrir þá sem
vildu.
„Það er bersýnilegt að þær tölur,
sem komnar em, sýna andstöðu við
ríkisstjómina um land allt,“ sagði
Magnús Ólafsson, fyrrum ritstjóri NT.
Mikil fagnaðarlæti bmtust út er
Sigrún Magnúsdóttir, efsti maður á
lista Framsóknar, kom hlaupandi inn
í salinn rétt eftir miðnætti. Hún var
létt i spori og henni var fagnað sem
sigurvegara af stuðningsmönnum sín-
um.
„Miðað við fylgi okkar í síðustu
borgarstjómarkosningum gerðum við
okkur aldrei von um nema einn mann
eftir að borgarfulltrúum var fækkað,"
sagði Kristinn Finnbogason. „Þetta
er allt í góðu lagi.“
-EIR
Kvennalistinn í Duushúsi
Mikill hugur í kvennalistakonum
Það voru lika karlmenn hjá kvennalistakonum.
„Eigi vil ég með körlum búa,“ sungu
kvennalistakonur fullum hálsi á kosn-
ingavöku Kvennalistans sem var í
Duushúsi. Það var mikil stemmning
hjá konunum og troðfullt á báðum
hæðum. Svo sem eðlilegt má teljast
vom konur í meirihluta, en inni á
milli mátti greina karlkyns stuðnings-
menn.
Fólk hafði komið sér vel fyrir við
langborð og hafði geinilega mætt tím-
anlega og fengið sér snæðing og
hressingu með. Það var því mikill
hugur í þeim konum sem sungu marg-
raddað lagið „Karlaflokkar" við lagið
Ólafur liljurós. Karlmennimir á Duus-
húsi urðu heldur niðurlútir við laglín-
ur eins og „allir vöktu þeir hennar
sorg“ og „eigi vil ég með körlum búa
- heldur vil ég á hug minn trúa“ o.s.frv.
Það bmtust út mikil fagnaðarlæti
þegar tölur frá Reykjavík birtust loks
á skjánum. „Við erum mjög ánægðar
með að ná Ingibjörgu Sólrúnu inn en
auðvitað hefðum við viljað ná tveim
fulltrúum. Það er þó ekki útséð um
þetta ennþá." sögðu kvennalistakonur
og fögnuðu óspart.
-S.Konn
M-listinn á Hverfisgötu:
„Allt í
Kampakátir M-listamenn.
blús hjá okkur
Það var fremur dauf stemmning á
kosningavöku Flokks mannsins á
kosningaskrifstofunni við Hverfis-
götuna er DV leit þar inn skömmu
eftir að fyrstu tölur vom birtar úr
Reykjavík, enda ljóst samkvæmt þeim
að flokkurinn var langt frá því að
koma manni að.
„Það er allt í blús hjá okkur núna."
sagði einn viðmælenda blaðsins er
fyrstu tölur úr Revkjavík lágu fyTÍr
og ekki höfðu þær tölur, er áður höfðu
birst frá öðrum stöðum. gefið þeim er
sátu kosningavökuna tilefrii til mikill-
ar gleði.
„Þó að þessar tölur séu svartar fy'rir
flokkinn þá þýðir ekkert að gefast
upp. Við höldum ótrauð áfram enda
rétt að bvrja í pólitíkinni.-1 sagði einn
stuðningsmanna flokksins en flestir á
vökunni létu lítið í sér heyra um síð-
ustu tölur. -FRI
T C -0 boo
• o © ©
• o © ©
o © © ©
>MOSiftk
AIOBIRk
TALKMAN
Fremstur
á Nordurlöndum
Mobira Talkman bílasíminn er ótvírætt í fararbroddi á Norðurlöndum. Þar tala
opinberarsölutölur skýrustu máli.
Kaupendur bílasíma setja gjarnan þrjár kröfur á oddinn við val á bílasíma.
Mikil ending, lág bilanatíðni og fjölbreyttir notkunarmöguleikar.
í þeim efnum hefur Mobira Talkman vinninginn meðal notenda
innan NMT á Norðurlöndum.
Líkur Mobira Talkman til forystu á fslandi aukast enn frekar við það að öll
þjónusta, eftirlit og ísetning er í höndum þrautreyndra og valinkunnra fagmanna.
Renndu við eða hringdu í Hátækni í Ármúlanum og fáðu allar nánari
upplýsingar um Mobira Talkman - söluhæsta bílasímann á Norðurlöndunum.
Góð greiðslukjör
hJLm
Ármúla 26, símar: 91 -31500 - 36700
108 Reykjavík
MARKAÐSHLUTDEILD FRAMLEIÐENDA BÍLASÍMAINNAN NMT ARIÐ1985*
Alls seldir árið 1985:83.525 bílasímar. Fjöldi nofenda bílasíma innan NMT 31.12.1985:217.785
‘Samkvæmt opinberum upplýsingum samnorrænnar stjórnarnefndar NMT á Norðurlöndum.