Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 8
8
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Utlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Stjórnvöld á Sri Lanka hafa nú hert mjög alla öryggisgæslu í landinu eftir blóðuga helgi þar sem 55 manns létusl
í átökum við skæruliða.
Vargold á
Sri Lanka
Vopnaðir lögreglumenn leituðu í
gær í bifreiðum á leið til höfuð-
borgar Sri Lanka er öryggisráðstaf-
anir voru hertar til muna eftir
blóðuga helgi. Fimmtíu og fimm
manns létust og yfir eitt hundrað
særðust í árásum skæruliða Tamíla
víðs vegar um landið.
Lögreglan sagði að hún myndi
styrkja þær sveitir sem eru á verði
í höfúðborginni og rannsakaði mjög
vandlega bifreiðir er fólk streymdi
aftur til vinnu. Öryggisverðir skoð-
uðu skilríki og töskur þeirra sem
fóru inn í opinberar stofnanir og
skrifstofúhúsnæði.
Talsmaður ríkisstjómarinnar
sagði að skæmliðum hefðí tekist að
gera þrjár árásir um helgina vegna
þess að öiyggisráðstöfunum hefði
ekki verið fylgt nógu vel.
Spennan jókst er orðrómur komst
á kreik um að skæruliðar hefðu
kveikt í ríkisspítalanum. Lögreglan
sagði hins vegar að eldur hefði kom-
ið upp í tannlæknadeildinni, sem er
áfost spítalanum, og að orsökin væri
líklega bilun í rafmagni. Einn maður
lést og nokkrar skemmdir urðu.
Fjöldi þeirra sem létust í árásum
helgarinnar fór upp í 555 er sex
manns létust á sjúkrahúsi, að því er
haft var eftir lögreglu.
Þrettán manns létust og yfir fimm-
tíu særðust er sprengja sprakk á
föstudag í gosdrykkjaverksmiðju
rúman kílómetra frá miðborginni.
Herflutningalest var gerð fyrirsát
og jarðsprengja sprengdi í loft upp
bifreið og varð 30 manns að bana.
Á laugardag sprakk sprengja í
jámbrautarlest í úthverfi Colombo
og varð 12 manns að bana og særði
52.
Byltingarhreyfing stúdenta, sem
er ein af fimm skæruliðahreyfingum,
lýsti á hendur sér ábyrgð á árásinni
á gosdrykkjaverksmiðjuna og fyrir-
sátinni við flutningalestina, að því
er haft var eftir indversku fréttastof-
unni.
Fréttastofan segir að sama hreyf-
ing beri ábyrgð á sprengingu í
flugvél frá Air Lanka í síðasta mán-
uði. í henni fórust 17 manns, flestir
útlendingar.
Lögreglan segir að maímánuður,
sem er heilagur fyrir búddatrúar-
menn, hafi verið sá blóðugasti á
þessu ári, yfir 130 fallið í árásum
skæruliða.
Flotaæfingar Kínverja
Umfangsmiklar flotaæfingar kín-
verska sjóhersins áttu sér stað á
vesturhluta Kyrrahafs í síðasta mán-
uði og var meginmarkmið þeirra að
auka bardagahæfhi og þjálfún sjóliða
vegna hugsanlegra átaka við sovéska
Kyrrahafsflotann, að þvi er segir í frétt
kínversks dagblaðs í morgun.
Segir blaðið að sex herskip, þar á
meðal tundurspillir og fjölmargar H.6
sprengjuflugvélar, hafi tekið þátt í
æfingunum á hafsvæði er náði allt frá
Iwo Jima á Vestur-Kyrrahafi til Kína-
hafs í austri.
Hér mun vera um eina mestu flota-
æfingu kínverska sjóhersins á út-
höfúnum frá upphafi.
Nakasone
sendi þing-
ið heim
Yasuhiro Nakasone, forsætisráð-
herra Japan, leysti í morgun upp neðri
deild japanska þjóðþingsins, og er tal-
ið að forsætisráðherrann muni boða
til almennra þingkosninga í landinu
innan skamms.
Stjórnarandstæðingar hafa lýst yfir
andstöðu sinni við hugmyndir stjóm-
arflokks Nakasone um kosningar og
óttast að sumarkosningar muni aðeins
enn auka fylgi ríkisstjómarinnar.
Fréttaskýrendur í Tokýo bjuggust
við því í morgun að Nakasone lýsti
síðar í dag formlega yfir boðun kosn-
inga og ér búist við því að 6. júlí
næstkomandi verði fyrir valinu, átján
mánuðum áður en kjörtímabil núver-
andi ríkisstjómar rennur út.
Kosningasigur flokks Nakasone í
sumarkosningum myndi auka til
muna líkumar á að Nakasone yrði
endurkjörinn til formennsku í flokkn-
um og yrði þar með áfram forsætisráð-
herra, en Frjálslyndi flokkurinn,
flokkur forsætisráðherrans, heldur
flokksþing sitt í október næstkomandi
þar sem nýr formaður verður kjörinn.
Umsjón:
Ólafur Arnarson og
Hannes Heimisson
Búist er við því að Nakasone, (orsæt-
isráðherra Japan, boði formlega til
þingkosninga í dag.
Brasilíumenn
endurnýja
gömul kynni
Brasilískir knattspymuaðdáendur
stöðvuðu bílaumferð í miðborg Gua-
dalajara þriðja kvöldið í röð í
gærkvöldi er þeir fögnuðu 1-0 sigri
landsliðs síns yfir Spánveijum.
Þúsundir aðdáenda, bæði brasil-
ískir og mexíkanskir, komu saman
á torgi einu í Guadalajara, þar sem
þeir jusu hveijir aðra og bfla, sem
óku fram hjá, með vatni úr gos-
brunni sem er á torginu.
Fólkið dansaði, söng og veifaði
grænum og gulum fána Brasilíu.
Brasilískir knattspymuaðdáendur
hafa litið á Guadalajara sem sitt
annað heimili allar götur síðan í
heimsmeistarakeppninni 1970 er
Brasilía lék alla sína leiki, nema
úrslitaleikinn, þar og varrn sinn
þriðja heimsmeistaratitil.
Völlurinn var í gær skreyttur með
fánum og borðum sem á stóðu setn-
ingar eins og „Brasilía og Guadalaj-
ara - fullkomin ást“.
Pardus -stál
prýdir husm
Stallað þakstál á aðeins
48°, “ kr. ferm í brúnu.
510, ■ kr. ferm í svöftu.