Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 11
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
11
Viðtalið
Viðtalið
Viðtalið
Viðtalið
Eyjólfur Sveinsson, formaður Stúdentaráðs:
Labbaði þvert yfir landið
Lánamál stúdenta hafa komið nokk-
uð við sögu á síðustu mánuðum.
Stúdentar hafa staðið í mikilli baráttu,
þeir töldu sig hlunnfama er vorlánum
var úthlutað og fyrirhuga nú málsókn
á hendur menntamálaráðherra. Einn-
ig hafa þeir sent hvert mótmælaskjalið'
á fpetur öðru vegna þess hversu seint
vorlánin bárust og hafa kvartað sáran
undan þjónustu lánasjóðsins. Einn af
þeim sem staðið hafa í eldlínunni fyrir
hönd stúdenta í þessari baráttu er
Eyjólfur Sveinsson, formaður Stúd-
entaráðs Háskóla Islands.
Er félagsmálafrík
Eyjólfur sagði að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem hann stæði í baráttu
fyrir námsmenn, því hann heföi byrjað
strax í grunnskóla að taka virkan
þátt í félagsmálum nemenda.
.,Ég er félagsmálafrík. Sá áhugi
vaknaði strax þegar ég var lítill strák-
ur og byrjaði að taka þátt í skátastarfi.
Nú, þegar ég var 14 ára þá var ég
kosinn formaður Nemendafélags Æf-
ingaskólans. Ég tók einnig virkan
þátt í öðrum þáttum félagslífsins,
skipulagði skemmtanir og þess hátt-
ar,“ sagði Eyjólfur.
Bar út dagblöð
Eyjólfur er fæddur 1964 og er því 22
ára. Hann ólst upp í Hlíðunum í
Reykjavík og var nágrönnum sínum
kunnur fyrir það að hann færði þeim
dagblöð í nokkur ár. „Ég var að safna
mér peningum til þess að komast á
skátamót á írlandi. Maður gerði margt
skemmtilegt með félögunum í skátun-
um. Þegar ég var 16 ára þá labbaði
ég þvert yfir landið með félaga mínum.
Við fórum ótroðnar slóðir og vorum
viku í óbyggðum. Þetta er gífurlega
eftirminnileg ferð.“
ég kosinn fulltrúi í Háskólaráð, þá
formaður Vöku og ætlaði að láta það
nægja.
En síðan sköpuðust þær aðstæður,
með hjálp Vöku og Stíganda, að það
þótti heppilegt að ég tæki að mér for-
mennsku í Stúdentaráði. Það gerðist
nú í mars 1986 . Þessir tveir mánuðir
hafa verið nokkuð stormasamir, eins
og við var að búast. Og mesti tíminn
hefur farið í lánamálin, við höfum
þurft að taka þau föstum tökum.“
Ætlar ekki í pólitík
Aðspurður sagðist Eyjólfur ekki
huga á frama í stjómmálum. „Það er
ekki mín framtíðarsýn að eyða tíma í
pólitík.“ Þótt Eyjólfur hafi í mörgu
að snúast, bæði í námi og stormas-
amri vinnu, þá segist hann hafa tíma
til að stunda sín einka- og áhugamál.
Hann er trúlofaður Margréti Hilmis-
dóttur og hafa þau búið saman í tvö
ár.
„Ég reyni að halda mér í formi. Á
vetuma spila ég veggjatennis og
stunda þrekleikfimi í Háskólanum. Á
sumrin spila ég heföbundinn tennis.
Ég hef áhuga á bókmenntum og nú
um daginn átti ég þess kost að vera
einn stofhfélaga í nýju bókmenntafé-
lagi. Það er stefht að því að félagið
verði stórveldi í íslensku bókmennta-
lífi.“
-KB
Eyjólfur Sveinsson þrumar hér bolt-
anum i vegginn af mikilli list. „Ég reyni
að halda mér i formi og stunda
veggjatennis á veturna."
Eftir að grunnskólanámi lauk ákvað
Eyjólfur eftir mikil heilabrot að fara
i Verslunarskólann. „Þar var að vísu
takmörkuð eðlis- og stærðfræði-
kennsla, sem var slæmt vegna þess að
ég hafði fest augun á verkfræðinámi.
En ég sé ekki eftir því að hafa valið
Versló, þar var mjög góður andi.“
Mælskastur allra
Og Eyjólfur lenti að sjálfsögðu strax
í félagsmálastússi í Verslunarskólan-
um. Hann var kosinn í mælskulið
skólans frá fyrsta degi, varð formaður
Málfundafélagsins og síðar forseti
Nemendafélagsins. „Ur því að Þor-
steini Pálssyni fjármálaráðherra
finnst það nógu merkilegt til nefria það
í blaðaviðtali að hann hafi verið kos-
inn mælskasti maður Verslunarskól-
ans þá má ég ekki láta undir höfuð
leggjast að geta þess að ég hlaut þann
titil tvisvar.“
Árið 1983 hóf Eyjólfur nám í verk-
fræði í Háskólanum. Hann getur að
vísu litið stundað námið um þessar
mundir því formennska í Stúdentaráði
er fullt starf. „Þetta byijaði á því að
ég varð varaformaður Vöku. Síðan var
BILAR SEM TEKID ER EFTIR
MMC Pajero, styttri gerð, bensín,
árg. 1986, ekinn 6 þús. km, sem nýr
bill, litur silfur, B gíra, vökvastýri, út-
varp/segulband. Ath. skipti á ódýrari
bifreið. Verð 800 þús.
Daihatsu Rocky, styttri gerð, disil, árg.
1985, ekinn aðeins 15 þús. km, litur
hvitur, 5 gira, vökvastýri, dráttarkúla,
brettakantar. Ath. skipti á ódýrari bif-
reið. Verð 680 þús.
Subaru station 4x4, árg. 1985. ekinn
31 þús. km, 5 gira, vökvastýri, silsalist-
ar, sumardekk/vetrardekk. Bein sala.
Verð 520 þús. ATH: Ennfremur Subaru
station 4x4, árg. 86. ekinn 9 þús. km.
BMW 520 I. árg. 1982, ekinn 53 þús.
km, litur hvítur, sjálfskiptur, vökva-
stýri, bein innspýting, sumar/vetrar-
dekk. Ath. skipti á ódýrari bifreið. Verð
480 þús.
HÖFUM KAUPENDUR AÐ EFTIRTÖLD-
UM BÍLUM: SUBARU STATION 4x4,
árg. ■83-084.
Volkswagen Golf gl, árg. 1984, ekinn
39 þús. km, framdrifinn, gæðabíll, 3ja
dyra, litur gullsans. Bein sala. Verð 350
þús.
SUBARU JUSTY 4x4, árg. '85.
CITROEN BX, árg. '83-’84.
C0R0LLA árg. '84-'85.
FIAT UN0 árg. '85.
Honda Prelude árg. 1981, ekinn aðeins
46 þús. km, sjálfskiptur, útvarp, sól-
lúga. Ath. skipti á ódýrari. Verð 330
þús.
VANTAR ÝMSAR GERÐIR BIFREIÐA A
STAÐINN. GÖÐ SALA I ÖLLUM VERÐ-
FLOKKUM BIFREIÐA.
BMW 318 I eða 323 I, árg. '85-'86.
Range Rover, 4ra dyra, árg. '82-'83,
skiptum fyrir Range Rover '81.
Reisugilli eftir
Ahaldageymsla m/ferkóntuðum
DYRUM
Ahaldageymsla
GARÐSKÝLl
tima
og kaffitíminn
meðtalinn
LYSTIHÚS
Ahaldageymsla
BARNALEIKHUS
BARNALEIKHÚS
'N
SANDKASSI
GEYMSLA
ELDIVIDARGEYMSLA
STARPLATE
Starplate. Stjörnuplatan er mótuð þannig að hún tengir saman 5 spýtur. Með 11 stjörnuplötum og
25 jafnlöngum spýtum, boltum og róm getur þú byggt sjálfberandi húsgrind til margvíslegra
nota. Stærðin ræðst af lengd spýtnanna og getur verið frá 3 og upp í 13 m2.
V/MIKLATORG, S. 622815.