Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Síða 26
34
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir
• Sepp Piontek, hinn virti þjálfari danska iandsliðsins i knattspyrnu, var kok-
hraustur á blaðamannatundinum i Mexikó. Hér sést hann á ætingu með
danska landsliðsmanninum Sören Lerby sem er einn af burðarásum danska
liðsins í heimsmeistarakeppninni.
Kristján
bjargaði
Völsungum
KA - Völsungur 1-1
Frá Stefáni Arnaldssyni, fréttamanni
DV á Akureyri:
Leikmenn Völsungs frá Húsavík
sluppu með skrekkinn er þeir léku
gegn KA á Akureyri á föstudagskvöld
i 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu.
Leiknum lauk með jafhtefli og skor-
aði hvort lið eitt mark. Markakóngur-
inn Tryggvi Gunnarsson skoraði fyrra
mark leiksins á 18. mínútu eftir langt
innkast Árna Freysteinssonar. Þvaga
myndaðist við mark Völsungs og
Tryggvi náði að skora af stuttu færi
með lúmsku skoti.
I síðari hálfleik sóttu leikmenn Völs-
ungs meira og það var Kristján
Olgeirsson sem jafnaði metin fyrir
Húsvíkinga á lokasekúndum leiksins
með þrumuskoti úr vítateig. Úrslitin
því jafntefli og liðin geta verið nokkuð
sátt við sinn hiut.
-SK.
Skallagrímur
enn án stiga
- UMFN sigraði 0-3 á laugardag
„Þetta hefur ekki gengið vel hjá okk-
ur í sumar en við erum staðráðnir í
að taka okkur saman í andlitinu,"
sagði Valdimar Valdimarsson, þjálfari
Skallagríms i Borgamesi og fyrrum
leikmaður með Breiðabliki, í samtali
viðDV.
Á laugardag tapaði Skallagrímur
enn einum leiknum er Njarðvíkingar
komu í heimsókn og fóru sunnanmenn
með þrjú stig frá viðureigninni. Loka-
tölur urðu þær að Njarðvíkingar
skoruðu þrjú mörk en Borgnesingar
ekkert.
Heimamenn fengu nokkur góð
marktækiferi í leiknum en þeim tókst
ekki að nýta þau. Þeir fengu á sig
ódýrt mark í byrjun leiksins og það
virtist hafa slæm áhrif á hið unga lið
Skallagríms sem ekki hefur enn unnið
leik á þessu keppnistímabili og reynd-
ar ekki á árinu. Margir af bestu
leikmönnum liðsins frá í fyrra hafa
róið á önnur mið og liðið er nú nær
eingöngu skipað heimamönnum.
Rúnar Jónsson skoraði fyrsta mark
Njarðvíkinga á laugardag en Jón Ól-
afkson bætti öðru marki við. Það var
síðan Hermann Hermannsson sem
skoraði þriðja markið og innsiglaði
stóran sigur Njarðvíkinga.
„Fá þrjá bjóra ef
þeir standa sig‘1
- segir Sepp Piontek, landsliðsþjálfari Dana
• Danir binda miklar vonir við frammistöðu Michaels Laudrup á heimsmeistarakeppninni i Mexíkó. Laudrup sem
leikur með italska meistaraliðinu Juventus þykir einn snjallasti knattspyrnumaður Evrópu í dag og hann og Preben
Elkjær Larsen eru taldir skipa einn allra hættulegasta sóknardúett i áifunni i dag. Danir biða spenntir eftir heims-
meistarakeppninni og gera sér vonir um að þeir félagar eigi eftir að skora mörg mörk i Mexíkó.
„Vestur-Þjóðveijinn Sepp Piontek,
landsliðsþjálfari Dana í knattspyrnu,
hélt í lok síðustu viku fyrsta fund með
fréttamönnum frá því að danska
landsliðið kom til Mexikó. Piontek var
kokhraustur á fundinum og var bjart-
sýnn á gott gengi danska liðsins í
heimsmeistarakeppninni.
„Við erum með sterkt tekniskt lið
og við munum leika sóknarknatt-
spymu hér í Mexíkó. Við erum
nýkomnir úr tíu daga æfingabúðum í
Kólombíu og mínir leikmenn eiga ekki
lengur í neinum erfiðleikum varðandi
þunna loftið og hitann. Þetta eru eng-
in vandamál lengur fyrir okkur.
„Danska liöiö Suður-Ameríku-
lið Evrópu“
„Að mínu viti er danska landsliðið
Suður-Ameríkulið Evrópu. Liðið er
mjög frábrugðið til dæmis landsliðum
Svía og Norðmarina," sagði Piontek
en frammistaða danska landsliðsins
eigum góðan dag þá getum við unnið
hvaða landslið í heimi sem er,“ sagði
miðvallarspilarinn Sören Lerby á um-
ræddum blaðamannafundi. Lerby
vann sem kunnugt er bæði deild og
bikar með Bayem Múnchen í Vestur-
Þýskalandi en er nú á förum frá félag-
inu eins og komið hefúr fram í fréttum.
Danir leika í E-riðli með Uruguay,
Skotlandi og Vestur-Þýskalandi og
fyrsti leikur danska liðsins fer fram á
miðvikudag gegn Skotum. Þetta er af
mörgum talinn einn erfiðasti riðillinn
og greinilegt, þrátt fyrir kokhreysti
danska þjálfarans, að ekkert má út af
bera til að danska liðið þurfi ekki að
fara með rófuna á milli lappanna til
síns heima.
Sepp Piontek telur lið Uruguay
verða erfiðasta andstæðinginn í riðlin-
um en næstu daga kemur í ljós hvort
danska liðið stendur sig og þá er viss-
ara fyrir Piontek að vera með bjórinn
til taks. -SK
undir hans stjóm hefur vakið mikla
athygli og hvað bestum árangri náði
liðið í síðustu Evrópukeppni er Danir
komust í undanúrslit keppninnar.
Fá þrjá bjóra ef þeir standa sig
vel
„Leikmenn mínir era reiðubúnir til
að leggja mjög hart að sér en þeir vilja
líka eiga saman góða stund og
skemmta sér. Þegar danska liðið leik-
ur verð ég til dæmis að segja leik-
mönnum mínum að ef þeir standi sig
vel þá fái þeir þrjá bjóra eftir leik.
Þetta hljómar sniðuglega en þetta er
staðreynd. Leikmenn mínir elska
hreinlega að skemmta sér saman.“
„Getum unnið hvaða lið sem
er“
„Við vitum að við getum leikið við
bestu lið Evrópu. Þessa stundina erum
við uppfúllir af sjálfstrausti og ef við
[Þrír fengu að sjá
! rauða spjaldið
| - þegar Barcelona náði jafiitefli gegn Sporting Gijon
Lið Barcelona komst með mikl-
um naumindum í undanúrslit í
spönsku deildarkeppninni í knatt-
spymu cr liðið gerði 2-2 jafntcfli á
útivelli gegn Sporting Gijon.
Barcelona vann heimaleik sinn,
1-0, og vann því samanlagt, 3-2.
Framlengja þurfti leikinn og það
var ekki fyiT en á síðustu mínútu
framlengingarinnar að Barcelona
tókst að jafna metin. Áður hafði
mikið gengið á og dótnarinn haft
nóg að gera. Tveimur leikmönnum
Barcelona og einum í liði Sporting
Gijon var vikið af leikvelli og jöfn-
uðu því níu leikmenn Barcelona
leikinn gegn tíu leikmönnum Gi-
jon. Landsliðsmaðurinn ftá
Paraguay, Raul Amarilla, fékk
rautt spjald á 60. mínútu cftir að
hafa lent í slagsmálum við Cundi
Suares, vamarmann Sporting Gi-
jon. Suares var einnig vikið af
leikvelli. Níu mínútum síðar fékk
Barcelonamaðurinn og fyrirliði
liðsins, Jose Alexanko, rautt spjald
fyrir að mótmæla ákvörðun dóm-
arans.
Quini náði annars foiystunni
fyrir Gijon á 20. mínútu og aðeins
tveimur mínútum síðar komst
Sporting Gijon í 2-0 með marki frá
Alonso. Katalóníumennirnir í
Barcelona vom þó ekki af baki
dottnir þó fáliðaðir væm og Ur-
bano Ortega minnkaði muninn í
1-2 á 71. mínútu og á 119. mínútu
jafnaði Esteban Vigo metin fyrir
Barcelona. Úrslit í hinum leikjum
átta liða úrslitanna:
Real /arag. Reol Sociedad .3—1(3-2)
Atletico Madrid-Sestao...2-0(4-3)
Real Betis-Valencia......2 1(4-2)
Það verða þvi Barcelona, Real
/aragoza, Atletico Madrid og Real
Betis sem leika í undanúrslitunum.
-SK.