Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Page 28
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
36
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Loks skoruðu Eyjamenn
- Jafntefli gegn Blikum
- Elías Friðriksson tiyggði IBV jafritefli, 1-1, gegn Breiðabliki
Frá Friðbimi Ó. Valtýssyni, frétta-
manni DV í Vestmannaeyjum:
v Jafntefli var sanngjöm úrslit er
Vestmannaeyingar fengu Breiðablik í
heimsókn hingað til Eyja á laugardag.
Hvort lið skoraði eitt mark en staðan
í leikhléi var 0-1 Blikum í hag.
Leikið var við erfiðar aðstæður.
Rigning var á meðan á leiknum stóð
og völlurinn því erfiður yfirferðar.
Eyjamenn byrjuðu betur og fengu
nokkur marktækifæri sem þeim tókst
ekki að nýta. Blikar náðu forystunni
á 30. mínútu. Þá var hinn eldsnöggi
Jón Þór Jónsson felldur innan víta-
teigs ÍBV og Þorvarður Bjömsson
dæmdi réttilega vítaspymu. Jón Þór
skoraði sjálfur úr vítinu af miklu ör-
yggí-
Þetta mark kom nokkuð gegn gangi
leiksins og eftir að það var skorað
jafnaðist leikurinn og Blikamir fóm
að taka við sér.
Fyrsta mark Eyjamanna
Eyjamenn, sem ekki höfðu skorað
mark í þremúr fyrstu leikjum sínum í
1. deildinni, mættu ákveðnir til léiks
í síðari hálfleik. Blikamir voru þó
ávallt hættulegir í skyndisóknum sín-
um og úr einni slíkri náði Jón Þór
Jónsson að skora en markið var dæmt
af vegna rangstöðu. Það var síðan á
66. mínútu leiksins að Eyjamenn jöín-
uðu. Ómar Jóhannsson tók þá hom-
spymu og Elías Friðriksson náði að
skalla í mark Breiðabliks af stuttu
færi. Eyjamenn áttu síðan nokkur
marktækifæri til leiksloka og meðal
annars skallaði Lúðvík Bergvinsson í
þverslá blikamarksins eftir hom-
spymu frá Ómari Jóhannssyni. En
heimamönnum tókst ekki að skora og
leiknum lauk því með sanngjörnu
jafntefli.
Lið ÍBV var jafht í þessum leik en
greinilegt er að Viðar Elíasson er að
komast í sitt gamla góða form en hann
byijaði seint að æfa. ÍBV-liðið virðist
vera að rétta úr kútnum eftir slaka
byrjun og allt annað var nú að sjá til
margra leikmanna liðsins en í undan-
fömum leikjum. Sérstaka athygli
vakti ungur framherji í liði heima-
manna, Ingi Sigurðsson, en hann er
aðeins 18 ára og mjög efnilegur leik-
maður.
Hjá Breiðabliki vom vamarmenn-
imir Benedikt Guðmundsson og
Magnús Magnússon góðir en Jón Þór
Jónsson þó bestur og mjög frískur
framlínumaður. Vömin er sterkari
hluti Breiðabliks en hins vegar veik-
ari hluti ÍBV.
Lið ÍBV: Hörður Pálsson, Jón Bragi
Amarsson, Viðar Elíasson, Þorsteinn
Viktorsson, Elías Friðriksson, Lúðvík
Bergvinsson, Jóhann Georgsson, Óm-
ar Jóhannsson, Þórður Hallgrímsson,
Ingi Sigurðsson, Bergur Ágústsson
(Páll Hallgrímsson).
Lið Breiðabliks: Öm Bjamason, Ing-
valdur Gústafsson, Ólafur Bjömsson,
Magnús Magnússon, Benedikt Guð-
mundsson, Jón Þór Jónsson, Hákon
Gunnarsson, Rögnvaldur Rögnvalds-
son (Bjami Frostason) og Guðmundur
Guðmundsson.
• Omar „lundi" Jóhannsson átti
mikinn þátt í marki Eyjamanna gegn
Breiðablik og litlu munaði að hann
leggði upp annað mark tyrir ÍBV.
Varnarleikurinn var
í hávegum hafður
• Oaníel Einarsson, Víði, (til vinstri)
- maður leiksins gegn Þór.
Víðismenn nældu sér í eitt stig á
kosningadaginn á heimavelli sínum
með jafntefli, 0-0, gegn Þórsurum frá
Akureyri, í roki og rigningu. Leikur-
inn einkenndist af föstum varnarleik
svo að lítið varð úr sóknartilraunum
og lítið bar því til tíðinda við mörkin.
Leikurinn fór um of fram á miðjunni
og væri annar aðilinn nær því að sigra
voru það Viðismenn en þeim tókst
ekki að nýta færin sem gáfust. Bald-
vin Guðmundsson, markvörður
Daaskrár-
Sjon varp.
Við leitum að þáttagerðarfóiki. Fóiki
sem getur komið fram á skjánum, f
beinni og óbeinni útsendingu samið
kynningarog unnið að gerð sjónvarps-
þátta bœði eftir eigin handriti og
annarra. Efþú hefur trú á sjáifum þér
í þefta starf, getur unnið sjáifstœtt og
ert drífandi og dugiegur sendu okkur
þá uppiýsingar um þig. Ef við teijum
að þú komir t/i greina sem dagskrár-
gerðarmaður, eftir að hafa skoðað
þœr uppiýsingar og efni sem þú
sendir inn, þá munum við ka/ia áþig
í prufutöku og gefa þér kost á að
spreyta þig tii reynsiu.
Óskað er eftir að menn útbúi um-
sóknir um þetta starf eftir eigin höfði,
t.d. á myndsnœidum. Umsóknum skai
skiiað fyriró. júní tii sjónvarpsins.
Umsóknum veitt móttaka á símaaf
gre/ðs/u Sjónvarpsins, Laugavegi 176.
RIKISUTVARPIÐ
Þórs, sá mest fyrir því. Þeir fengu
heldur ekki blíðar móttökur hjá vörn
norðanmanna.
Þrátt fyrir nokkurn sóknarþunga
undan sunnanvindinum tókst Víðis-
piltunum ekki að rjúfa varnarmúr
Þórsara. Aðeins tvívegis áttu þeir
hættuleg skot að marki Þórs: Klem-
enz Sæmundsson á 24. mín. en
Baldvin varði með glæsibrag og svo
átti Mark Duffield þrumuskot af
löngu færi en knötturinn smaug rétt
utan marksúlu. Sömuleiðis fór knött-
urinn fram hjá marki Víðis úr skoti
frá Hlyni Birgissyni rétt fyrir hlé.
Sama þófið hélt áfram í seinni hálf-
leik. Engin grið voru gefin í varnar-
leiknum svo sóknartilraunirnar
gengu út og suður og nokkur harka
fór að færast í leikinn sem Eysteinn
Guðmundsson dómari hefði gjarnan
mátt taka betur á. Til nokkurra tíð-
inda dró því undir lokin. Helgi
Bentsson, sem norðanmenn slepptu
aldrei auga af, var kominn inn að
vítateigslínu í opið marktækifæri.
Sigurður Pálsson, nýkominn inn á,
sá ekki annað ráð vænna en að fella
Helga og fékk auðvitað rauða spjald-
ið. Skömmu síðar er Þórður Þorkels-
son, inni á sem varamaður í s.h.,
kominn í skotfæri en sýnist brugðið
af Þórsara og fellur kylliflatur innan
vítateigs, en líklega hefur dómaran-
um fundist sem Þórður léti sig detta
svo Þórsarar sluppu með skrekkinn
og eitt stig því skömmu síðar lauk
leiknum.
Varla er hægt að nefna einn leik-
mann öðrum fremur, þó má nefna
Daníel Einarsson í Víði sem sannaði
með afburða góðum leik að hann á
hvergi betur heima en í miðvarðar-
stöðunni.
Lið Víðis: Gísli Heiðarsson, Ólafur
Róbertsson, Daníel Einarsson, Björn
Vilhelmsson, Vilhjálmur Einarsson,
Guðjón Guðmundsson, Marlc Duffi-
eld, Helgi Bentsson, Grétar Einars-
son, Klemenz Sæmundsson, Vilberg
Einarsson, (Þórður Þorkelsson vm.
s.h.).
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson,
Júlíus Tryggvason, Árni Stefánsson,
Baldur Guðnason, Nói Björnsson,
Halldór Áskelsson, Jónas Róberts-
son, Bjarni Sveinbjömsson, Kristján
Kristjánsson (Sigurbjörn Viðarsson,
s.h.), Hlynur Birgisson, Sigurður
Pálsson s.h.), Siguróli Kristjánsson.
Gult: Baldur Guðnason, Þór, Daní-
el Einarsson, Víði.
Rautt: Sigurður Pálsson, Þór.
Maður leiksins: Daníel Einarsson.
Áhorfendur: 370. emm
SeHyssingar á
topp 2. deildar
- eftir 1-0 sigur gegn Víkingum
Frá Sveini Ármanni Sigurðssyni,
fréttamanni DV á Selfossi:
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Selfyssingum í knattspymunni. í
siðustu viku töpuðu Selfyssingar fyrir
4. deildar liði Hvergerðinga í mjólkur-
bikamum en á laugardag gerðu
Selfyssingar sér lítið fyrir og sigmðu
Víkinga í íslandsmóti 2. deildar á Sel-
fossi með einu marki gegn engu og em
nú í efsta sæti 2. deildar.
Rigning var og nokkurt rok á Sel-
fossi á laugardag og aðstæður því
nokkuð erfiðar fyrir leikmenn. Vík-
ingar vom betri aðilinn til að byrja
með en síðan tóku heimamenn við sér
og komu meira inn í leikinn. Lítið var
um marktækifæri í fyrri hálfleik og
ekkert mark var skorað.
Það var síðan á 53. mínútu leiksins
að Jón Gunnar Bergs komst einn inn-
fyrir Víkingsvömina. Brotið var
gróflega á honum og vamarmanni
tókst að bjarga í hom en ekkert var
dæmt. Er knötturinn kom fyrir mark
Víkings hafnaði hann í hendi eins
vamarmanns og vítaspyma var dæmd.
Or henni skoraði Vestmannaeyingur-
inn Tómas Pálsson sigurmark leiksins.
Þegar á heildina er litið vom Sel-
fyssingar sterkari aðilinn í leiknum
og Daníel Gunnarsson átti einna best-
an leik heimamanna þrátt fyrir að liðið
væri jafht þegar á heildina er litið.
Hjá Víkingum var Jón Otti Jónsson
markvörður einna bestur í jöfnu liði.
Hvað gera Selfyssingar?
Hið efnilega lið Selfoss er nú á toppi
2. deildar eins og áður sagði og nú er
spumingin hvort liðið nær að halda
stöðugleika í leik sínum i næstu leikj-
um sem er mikilvægt ef árangur á að
nást.
Víkingar em af mörgum álitnir sig-
urstranglegastir í deildinni og þetta
tap var því áfall fyrir liðið og framtíð-
in verður að skera úr um hvort
Víkingur vinnur sæti sitt í 1. deild á
ný eftir þetta keppnistímabil.
-SK.