Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Side 42
50
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
George
Hamilton
er talinn hafa haft nánara sam-
band við Imeldu Marcos frá
Filippseyjum en kurteislegt
þykir með giftar konur. Þegar
forsétinn var spurður nánar
um málið - einkum verslunar-
ferðirþeirra skötuhjúa tveggja
saman í New York - sagði
hann það lítið gaman að vera
einn á ferð og því væri ekkert
athugavert við að verða sér
úti um félagsskap. Þannig að
Hamilton var fylgisveinn
Imeldu um árabil með fullu
samþykki Marcosar. Og Ham-
ilton hefur verið nánasti
hjálparkokkur forsetans við
fjárfestingar í Bandaríkjunum
sem honum eru gersamlega
óheimilar nema hafa þá bæði
bak við tjöldin og undir borð-
ið - eða þannig.
Liz Taylor
segist vera hávær, forvitin og
hreinskilin og umfram allt rétt
að byrja lífið. Vinir leikkon-
unnar telja hana að auki eiga
í miklum erfiðleikum með að
dvelja á sama staðnum til
langframa. Liz hefur núna
slegið persónulegt met í einlífi
- því hún hefur lifað við eigin-
mannsleysi um allnokkurn
tíma. Það er víst síður en svo
einmanalegt líf því húsið í
Hollí er yfirfullt af vinum, ætt-
ingjum, viðskiptafólki, þjón-
ustuliði og húsdýrum. Allir
berjast um athygli leikkon-
unnar. Liz líkar ástandið
stórvel og harðneitar að
nokkrar meiri háttar breytingar
geti komið til greina á næstu
árum.
Larry
Hagman
er alsæll yfir nýja leiknum Tri-
vial Pursuit. Hann sendi
umboðsmönnunum línu þar
sem þakkað var fyrir þennan
stórkostlega nýja leik. „Ég hef
alltaf vitað að ég væri dálítið
ómerkilegur, en aldrei í mínum
villtustu draumum hélt ég að
það myndi gera mig eilífan."
Og Frank Sinatra lét í sér
heyra líka - barnabörnin hans
elska leikinn og sá gamli er
djúpt snortinn yfir að hafa
fengið að fljóta með í fælnum.
Juönu
var
ætlað
að
lifa
í jarðskjálftunum miklu í Mexíkó-
borg týndu fjölmargir íbúarnir lífi
og lengi var grafið í rústum sjúkra-
hússins í þeirri von að finna sjúkl-
inga á lífi eftir margra daga leit. Oft
var starf hjálparsveitanna árangurs-
laust en inn á milli gerðust krafta-
verkin sem stöppuðu stálinu í
björgunarmenn og kveiktu nýjar
vonir.
Fundur hvítvoðungsins Juönu Ar-
ias var eitt þessara gleðilegu atvika.
Hún var aðeins nokkurra daga göm-
ul og lá í körfu á fæðingardeild
sjúkrahússins þegar ósköpin dundu
yfir. Lík móður hennar fannst aldrei
en eftir marga daga komu leitarmenn
niður á körfu Juönu í rústunum. Hún
var á lífi og hefur dafnað stórvel á
síðustu mánuðum. Fósturmóðir
hennar, Maria, segir að augljóslega
hafi þessi litla stúlka ekki verið feig
- henni var ætlað að lifa - og fjöl-
skyldan trúir því að henni muni
fylgja mikil gæfa í framtíðinni.
„Þetta er guðs verk,“ segja þau fjall-
viss í sinni kaþólsku trú og kveikja
á þakkarkertum hvenær sem efnin
leyfa.
ein hvitvoðungskarfan og í þetta skiptið var
kraftaverk á ferðinni - lífsmark reyndist með
ungbarninu.
Juana Arias er sjö mánaða og dafnar vel í höndum fósturfor-
eldranna.
Hlaupandí fegurð tíl hjálpar hungruðum
„ Kannski komumst við ekki alla leið hlaupandi en þá er bara að tölta það sem eftir er,“ sagði nýkrýnd fegurðardrottning íslands, Gígja Birgisdóttir, í
samtali við DV við upphaf Afrikuhlaupsins. Og svo tók hún á sprett ásamt öðrum fegurðardísum keppninnar, umkringd krakkaskara sem fylgdi þeim eftir
við hvert fótmál. Á meðfylgjandi DV-mynd KAE sjást fegurðardísirnar, Gígja önnur frá vinstri ásamt hjálparhellunni Jönu í Broadway og Hollywood og
Hófí alheimsdrottningu.
J*
A