Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Page 43
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
51
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Það er engin hálfvelgja hjá hljómsveitinni Hálft í hvoru og hafa þau nú ráðist í það þrekvirki að gefa
út hljómplötuna Götumynd. A henni eru flest lögin eftir liðsmenn hljómsveitarinnar. Utgáfa fjórmenn-
inganna var kynnt í morgunverðarboði á Gauki á Stöng einn fagran sumardag nýlega að viðstöddu
margmenni. Og á þessari DV-mynd GVA eru liðsmenn Hálft í hvoru, Gísli Helgason og Herdís
Hallvarðsdóttir með dótturina Bryndísi, Guðmundur Benediktsson og Hannes Jón Hannesson.
;íj
, ,Hundar eru betri en menn‘ ‘
- segir Doris Day
Sonarsonurinn sleppur í gegnum nálaraugað enda er
sá stutti Ryan Melcher af ómótstæðilegu gerðinni.
Gamla og góða hollístjarnan Doris
Day hefur komist að sömu niður-
stöðu og sú franska Brigitte Bardot.
Karlmenn eru lítt spennandi dýra-
tegund og hún tekur flestar aðrar
framyfir þegar félagsskapur er ann-
ars vegar. Doris býr núna með
tuttugu hundum og tíu köttum - al-
sæl með lífið og tilveruna. „ Oft eru
dýr mun betri félagsskapur en fólk -
betri og tryggari vinir,“ segirstjarn-
an. Og hún bætir við: „Ég eiska allt
sem gengur á fjórum fótum.“
Ástamál hinna frægu og ríku eru
sumsé meiriháttar vandamál en Dor-
is til huggunar vill Sviðsljósið benda
á þá staðreynd að sérlega auðsveipur
og vel vaninn eiginmaður gæti fallið
inn i myndina - jafnvel á íjórum fót-
Fjögur af rásinni - Árdis ívarsdóttir, Jón Axel Ólafsson, Kolbrún Halldórs-
dóttir og Þorgeir Ástvaldsson. Að baki þjónninn Óskar reiðubúinn með súpuna
handa Kolbrúnu.
Raddirnar
á rásinni
Fjölmiðlafólk og makar - Guðrún Alda Harðardóttir, Pálína Ingvarsdóttir, Sig-
urður Blöndal, Katarína Óladóttir, Þórarinn Stefánsson, Guðrtður Haralds-
dóttir, Rannveig Hallvarðsdóttir, Gunnar Salvarsson, Sólveig K. Jónsdóttir og
Sigurður Salvarsson.
Starfsfólkið á rás 2 brá sér á Söng-
bókina hans Gunna Þórðar í Broad-
way til þess að gera sér dagamun og
við það tækifæri var nokkrum mynd-
um smellt af fyrir Sviðsljósið. Hérna
geta því áhugasamir hlustendur rás-
arinnar séð hvernig fólkið, sem að
baki röddunum býr, lítur út í raun-
veruleikanum og vonandi að ein-
hverjir uppfylli þær væntingar sem
hlustendur hafa gert sér með radd-
irnar að leiðarljósi.
DV-myndir KAE.
Af yngri kantinum - Hafdís Harðardóttir, Haraldur Asgelr Aikman, Inger Anna
Aikman, Sigurveig María Yngvadóttir, Friðrik Erlingsson, Ingibjörg Ingadóttir,
Anna Kristin Árnadóttir, Helgi Már Barðason, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunn-
laugur Helgason.
Charlene
Tilton
hefur ekki fitnað verulega ennþá og siglir því hrað-
byri inn í hlutverkið sem Lana Turner. Hún hefur engan
Hamilton sér til hjálpar en trúin er sterkur bakhjarl. Á
hverju kvöldi ákallar Charlene almættið og biður um
að ekkert annað en kálhausar og salatblöð verði á vegi
hennar næsta dag. Fram að þessu virðist aðferðin hafa
verkað ágætlega.
Stefanía
af Mónakó
er tuttugu og eins árs og ætlar að gera það gott sem
söngkona. Platan hennar með laginu Orkan selst eins
og heitar lummur þannig að endurútgáfa er þegar fyrir-
huguð. Furstapabbinn heima í Mónakó er þungur á
brún yfir framgangi mála og leitar logandi ljósi að heppi-
legum tengdasyni sem gæti vakið áhuga dótturinnar á
einkaframtaki í þágu mannfjölgunar í furstadæminu.