Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Page 48
68*78*58
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Haíir þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hringdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notaö í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við hréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 2. JÚNl 1986.
Steingrímur
Hermannsson:
Erum á
uppleið
„Ég neita þvi ekki að þetta er tap
miðað við síðustu kosningar en þá
komum við mjög vel út. Það eru þó
ýmsar bjartar hliðar á þessum úrslit-
um. Ég bendi á Reykjavík þar sem
allar skoðanakannanir höfðu spáð
okkur nær engu fylgi. Reyndar miðað
við skoðanakannanir þá erum við á
uppleið," sagði Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
„Ég er ekki mjög óhress með þessi
úrslit. Við komum viða vel út en ann-
ars staðar verr. Það var t.d. mjög
slæmt að missa mann i Kópavogi og
Hafnarfirði.“
-APH
- sjá einnig viðtöl
við forystumenn
flokkanna á bls. 2
Kristín Halldórsdóttir:
Áhrif kvenna-
* framboð-
anna mikil
„Það er ekki rétt að bera þessi úr-
slit saman við úrslit síðustu kosninga.
Kvennalistinn bauð fram á mismun-
andi stöðum og einnig voru kvenna-
listakonur aðilar að öðrum framboð-
um svo sem á Höfn og i Bessastaða-
hreppi," sagði Kristin Halldórsdóttir,
Kvennalista.
„Það sem mér er efst í huga er
hversu mikil áhrif sérframboð kvenna
hafa haft á gömlu flokkana, bæði hvað
snertir áherslur á mál og einnig hversu
mikið konum hefur nú verið teflt frám.
Við teljum því að við höfum náð mikl-
^ um árangri því eitt af meginmarkmið-
um okkar er að koma á hugarfars-
breytingu. Hlutur kvenna er þó ekki
enn nægifega mikill og þess vegna
verðum við að halda áfram barát-
tunni.“
Sjá einnig bls. 2
LOKI
Sigtryggur vann!
Tvær A-stjórnir og
ein viöreisnarstjom
Meirihluti í 13 af 23 kaupstöðum
landsins féll í kosningunum á laug-
ardaginn. Jafhframt er óvíst um
meirihluta í 4 öðrum en hreinn
meirihluti vannst í aðeins 6 kaup-
stöðum, þar með borginni. í Kópa-
vogi er nýr meirihluti A-flokkanna
líklegastur, eins er í Hafnarfirði. Á
Akureyri búast menn hins vegar
helst við viðreisnarstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks.
A-flokkamir í Kópavogi unnu eitt
sæti hvor og hafa nú þrjú sæti hvor
flokkur. Þessir flokkar vom í meiri-
hluta' með Framsóknarflokknum
sem tapaði sæti og hefur aðeins eitt.
A-flokkunum nægja þessi sex sæti í
ellefú manna bæjarstjóm. Gamlar
og nýjar væringar vinstri flokkanna
og Sjálfstæðisflokksins draga mjög
úr líkum á samstarfi hans og annars
hvors A-flokkanna. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur þó óskað eftir
viðræðum við Alþýðuflokkinn.
Þriðji maður á lista Alþýðuflokksins
þvertók fyrir slíkt stunstaif x út-
varpsumræðum.
Alþýðuflokkurinn vann þrjú sæti
í Hafharfirði og hefur fimm, en
Óháðir borgarar, gamall klofiiings-
listi frá Alþýðuflokknum, þurrkaðist
út. Harrn hafði tvö sæti. Samkvæmt
traustum heimildum DV em þegar
á döfinni viðræður Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags sem getur lagt til
sjötta mann í ellefu manna bæjar-
stjóm. Eirmig kemur til greina
samstarf þessara flokka og Frjáls
framboðs með einn mann, svo og
samstarf Alþýðuflokks og Sjálfstæð-
isflokks. Fleiri möguleikar em ekki
fyrir hendi ef marka má yfirlýsingar
M því fyrir kosningar.
Á Akureyii hefur þegar verið
ákveðinn fyrsti viðræðufundur
Sjálfstæðisflokks með fjóra fulltrúa
og Alþýðuflokks með þrjá, þar af tvo
nýja. Þessir flokkar vom í minni-
hluta síðasta kjörtímabil. Heimildir
DV segja að þetta samstarf sé mjög
líklegt á Akureyri. Aðrar þi-eifingar
em ekki á dagskrá þar í bili að
minnsta kosti.
-HERB
Geysileg sigurgleði ríkti að vonum á kosningaskrifstofu Alþýðuflokksmanna kosninganóttina þegar stórsigur flokksins
lá fyrir. „Við eigum landið og miðin,“ varð einum að orði. Alþýðuflokkurinn er nú næststærsti flokkurinn á Akureyri
með þrjá menn og hefur það aldrei gerst áður. Dv-mynd jgh
Veðrið á morgun:
Bjart
austan-
lands
Á morgun leikur vestan- og norð-
vestanátt um landið. Smáskúrum er
spáð vestanlands en bjart verður
fyrir austan.
Hiti verður á bilinu 6-8 stig sunn-
an- og vestanlands en fer upp í 13
stig á Austurlandi.
Afengið vann i
á tveim- f
ur stöðum |
Greinilegt er að áhugi er fyrir að* ,
opna áfengisútsölur í Kópavogi og í ■
Ólafsvík. Kosið var um þetta efni sam-
fara kosningunum á laugardaginn.
í Kópavogi vildu rúmlega 4700 é
áfengisútsölu í bænum, tæplega 2700 i
vom því hins vegar mótfallnir. Rúm- r
lega 1200 skiluðu ógildum eða auðum
seðlum. g
Ólsarar höfðu svipaða skoðun á
málinu. Þar vildu 389 áfengisverslun
en 188 vom andsnúnir. Ögildir og a
auðir seðlar vom 26. -APH