Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1986, Blaðsíða 13
DV. FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 1986. 13 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Óþrif í garðlnum Það er ekki eintóm sæla fólgin í því að eiga garð, a.m.k. ekki ef eigandinn leggur einhvem metnað í að hann beri sér gott vitni. Fyrir utan hin árs- tíðabundnu garðverk fylgir sumrinu einnig ýmis ófögnuður sem getur vald- ið eigendunum ómældri gremju og vandræðum. Hér í Reykjavík er það Sölufélag garðyrkjumanna sem hefur eitt rétt til að selja eitur í garða þó hægt sé að fa hættuminni efhi á þensínstöðvum og í hlómaverslunum. Út um landið er venjan að apótekið selji eiturefnin. Neytendasíðan fór og kannaði helstu eiturtegundir sem til sölu eru við al- gengum vandamálum eins og blaðlús, mjöllús, fiðrildalirfum, sniglum, arfa, fíflum, mosa o.fl. tumar. Best er að vökva einu sinni til tvisvar um mánaðamótin júní-júlí. Geigy Þetta lyf er ætlað á illgresi í gang- stéttum og mosa og gras á milli gangstéttarhellna. Eitrið er leyst upp í vökva og á að duga í 3 ár. Preeclone Preeclone er notað á illgresi í görð- um og einnig á matjurir því það eitrar ekki niður í jörðina. Þetta eitur má nota hvenær sem er en það er í hættu- flokki C. Verðið er 343 krónur. Parmasect Þetta eitur er í C-hættuflokki og nýtur sívaxandi vinsælda því það er ekki eins hættulegt og þau eiturefni sem áður hafa verið notuð í garðaúð- un. Parmasect er breiðvirkt plöntulyf og útrýmingarefhi og er einkum ætlað gegn mjöllús og blaðlús á skrautplönt- um, ætum gróðurhúsaplöntum og til útrýmingar á ýmsum hryggleysingjum i híbýlum manna. Parmasect er þynnt með vatni og svo úðað á efra og neðra yfirborð plantna. Úða skal strax og óþrifa verður vart og endurtaka með- ferðina með 5-10 daga millibili þar til óþrifin hverfa. Efnið er vel merkt en er ekki eins bráðeitrað og eldri efni og kosta 100 ml 540 kr. Voress-kverk Þetta er hormónalyf sem virkar vel á fífla og skriðsóleyjar. Eitrinu skal dreifa á fíflana þegar blöðin eru orðin stór því þá klofnar rótin og þeir drep- ast. Ef eitrað er of snemma hefúr það þveröfug áhrif. 250 ml kosta 175 krón- ur. Basudin Þetta eitur er í B-flokki og þarf því að kvitta fyrir þegar það er keypt. Basudin virkar helst á kálmaðk og því er blandað út í vatn og vökvað á plön- Melatonin Þetta er í B- hættuflokki og er mik- ið að víkja fyrir Permasect. Melatonin er ætlað gegn meindýrum í gróðri, s.s. blaðlús, roðamaur, fiðrildalirfum, kál- maðki o.fl. 100 ml kosta 246 krónur og er 15-20 ml blandað í lítra af vatni. Snile-kverk Þetta er sniglaeitur og er því stráð á þá staði sem sniglar herja á. Dós með sniglaeitri kostar 255 krónur. Garðsaltpétur Garðsaltpétur er mjög áhrifaríkur á mosa og er honum dreift eins og áburði fyrst á vorin. Menn verða þó að sýna þolinmæði og láta saltpéturinn liggja á í 3 vikur til mánuð og á þá að hafa slegið verulega á mosann. Garðsalt- péturinn er seldur í pokum og kosta 12,5 kíló 203 krónur. Nokkur atriði ber að hafa í huga þegar eitra á garðinn; allt eitur ber að geyma fjarri fæðu og fóðri og auð- vitað þannig að böm nái ekki til. Kynnið ykkur allt sem að notum gæti komið áður en þið eitrið. Þær upplýs- ingar er best að fá hjá þeim sem selja eitrið, sum efnin virka vel á eina teg- und illgresis en ekki aðra og ber sérstaklega að fara varlega þegar eitr- að er á matjurtir. -S.Konn. Heillaráð ... snið sem þarf að nota mikið er betra að klippa út úr léreftstusku eða ódýru veggfóðri. Það endist langt- um lengur en venjuleg pappírssnið úr smjörpapp- ír... ... ef dökkur skóáburður hej'ur óvart verið settur á Ijósa skó má reyna að bjarga sér með því að nota strokleður... Heillaráð Holl húsráð Aldur rauðvíns og gæði ráðin af lit Rauðvín er pressað úr bláum vín- þrúgum og hýðið er í leginum meðan á geijun stendur. Glæný vín eru næst/ um blárauð á litinn en síðar, þegar vínið hefur legið í tunnum eða flösk- um, verður liturinn djúprauður en nálgast síðar brúnleitan blæ. Liturinn sést gjörla ef glas með víni er borið að ljósu blaði og ljósið látið skína á ská. Ódýr vín em oftast rauðblá af því að þau eru yfirleitt ung. Margar tegundir af garðaeitri eru á boðstólum en hér í Reykjavík hefur Sölufélag garðyrkjumanna einkaleyfi á sölu á sterku eitri. Ef mikil óþrif eru i heilu hverfunum næst enginn árangur nema grannar taki sig saman og úði garðana samtimis. Mynd:KAE GÓÐUR? FjÁRÖFLUN 5. OG 6. JÚNÍ 1986 til tækjakaupa fyrir endurhæfingardeild hjartasjúklinga að Reykjalundi LANDSSAMTÖK HjARTASjUKLINGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.