Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 27
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. 27 Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga - Knattspyrna unglinga 4/ flokkur: Breiðablik Faxaflóa- meistari 4. flokkur Breiðabliks sigraði í nýaf- stöðnu Faxaflóamóti með nokkmm j’firburðum þvi hann vann alla sina leiki. Drengimir sýndu einnig oftast góða knattspyrnu og árangursrika. - Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Helgi Þorvaldsson þjálfari, Vilhjálmur Haraldsson, Heimir Kristjánsson, Daði Vilhjálmsson, Hákon Sverrisson, Arn- ar Grétarsson, Hafsteinn Hafstcins- son, Halldór Kjai-tansson, Ragnar Sverrisson, Ásgeir HaUdórsson og Þórður Guðmundsson Uðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Krist- insson, Jón Bergþórsson, Guðmundur Þóröarson, Agnar Heiðarsson, Tcitur Jónasson, Jóhunn Ásgeir Baldurs fyr- irliði, Björgvin Björgvinsson og Viðar Guðmundsson. DV-mynd HH Lokaúrsiit frá Reykjavíkurmótinu Úrslit síðustu leikja Reykjavfk- urmótsins urðu þessi: 2. flokkur: Valur-KR A 1-3 ÍR-Leiknir A 2-1 4. flokkur: Fram-Valur A 6-1 F'ram-Valur B 5-0 KR-V íkingurA 4-0 KR-Víkingur B 2-3 Ármann-Leiknir 1-7 iR-Fylkir A 1-7 5. flokkur: Valur-Fram A 2-6 Valur-Fram B 1-8 Víkingur-KR A 1-1 Víkingur-KR B 3-3 Fylkir-lR A 1-7 Fylkir-lR B 1-0 Lokastaðan í 4. og 5. fL: Lokastaðan í 4. fl. A er sem hér seg- ir: Fram 14 stig, Fylkir 14 stig en lakari markatölu, KR 11 stig, Leiknir 10, Víkingur 9, Valur 6, ÍR 6, Þróttur 2 og Ármann 0 st. - 1 keppni B-Uða sigraði Fram með 12 stig. 1 2. sæti varð Valur með 8 stig, Víkingur í 4. sæti með 8 st. en lakari markatölu, KR 6 st., Fylkir 6 og lR 0 st. Lokastaðan í 5. fl. A: ÍR 13 st., Fram 12, KR 7, Leiknir 7 st. en lakari marka- tölu, Valur 6, Víkingur 5, Þróttur 4 og Fylkir 2 st. B-lið: Fram 13 st., Víkingur 11, KR 9, Fylkir 8, Valur 5, Þróttur 4, Leiknir 4 og ÍR 2 st. -HH Þetta er leynivopnið gegn Hafnar- fjarðarliðinu!! 4. flokkur - A-riöill: „Stefnum á íslandsmeistara- titil“ segir Jóhann Ásgeir Stórgóður leikur Breiðabliks í sigri gegn KR Jóhann Asgeir Baldurs, fyrirliði 4. fl. Breiðabliks, átti góðan leik gegn KR og sagðist hann vera bjartsýnn á framhaldið. „Við stefnum á íslands- meistaratitil," sagði hinn röggsami fyrirliði. DV-mynd HH Breiðabliksstrákarnir i 4. fl. sönnuðu það rækilega 29. maí sl., í leik gegn KR á KR-velU (gras), að það var engin tilvfljun að þeir stóðu uppi sem sigur- vegarar í nýafsröðnu Faxaflóamóti. Liðið er skipað skemmtUegum strók- um sem eiga örugglega eftir að ná langt í íslandsmótinu. í fyrri hálfleik skoruðu Blikarnir 2 mörk og voru þar að verki Hákon Sverrisson og Viðar Guðmundsson. í upphafi síðari hálfleiks bætti Arnar Grétarsson við 3. markinu og um mið- bik hálfleiksins gerði Hákon Sverris- son sitt annað mark í leiknum og 4. mark Breiðabliks. Lokatölur leiksins, 4-0 fyrir Breiðablik, eru í hæsta máta réttlátar. Breiðabliksliðið virkaði sterkara, sérstaklega var líkamsstyrk- ur strákanna mun meiri. KR-strákam- ir léku í sjólfu sér ekkert lakari knattspyrnu en það vantaði styrkinn til að útfæra hlutina til fulls. Hjá Breiðabliki var Amar Grétars- son góður. en dútlaði stundum einum of mikið með boltann í stað þess að gera hlutina strax. Arnar er mikið efni sem gaman verður að fylgjast með. Halldór Kjartansson átti þokkalegan leik að þessu sinni þótt hann hafi ver- ið betri. í vörninni stóð Ragnar Sverrisson upp úr og Teitur Jónasson sýndi örv’ggi í markinu. Fyrirliðinn Jóhann Ásgeir Baldurs er einnig mjög harðsnúinn leikmaður. Annars er Breiðabliksliðið skipað nokkuð jafn- góðum strákum. KR-Iiðið virtist allt árinu yngra svo nærri má geta að þessi leikur hefur verið því erfiður. annars lék KR- liðið góðan fótbolta, strákar sem lofa mjög góðu. Bestir í annars jöfnu liði þeii-ra KR-inga voru þeir tengiliðimir Olafur Jóhannsson og Siprurður Ómarsson, einnig átt Kristinn Kjærnested góðan dag. Óskar Þorvaldsson lék oft af skvnsemi en vantaði hraða. Leikurinn var skemmtilegur. Bæði liðin reyndu ávallt að leika fótbolta. -HH 2. flokkur A-riðill: Markaregn í Garðabæ - Stjaman-Akranes 4-4 IStjaman og Akranes áttust við í 2. flokki íslandsmótsins sl. sunnudag í IGarðabæ. Leikur liðanna einkenndist af baráttu og miklum hraða. Oft brá Iþó fyrir nokkuð góðum tilþrifum beggja liða. Stjörnumenn tóku snemma út refsingu fyrir slælegan | varnarleik. Stjarnan skoraði fyrsta Imark leiksins sem Loftur Loftsson gerði. Akumesingar vom fljótir að Ijafna með marki Þrándar Sigurðsson- ar. Stuttu seinna nóðu Akurnesingar Ifomstu með marki Sigurðar Más Harðarsonar. Þriðja mark Akurnes- Iinga kom svo úr vitaspyrnu sem Valdimar Sigiu-ðsson tók og skoraði af öryggi. Stjörnumenn löguðu stöð- I una i 2-3 með marki Guðmundar * Hafsteinssonar. En undir lokin juku IAkumesingar fomstuna í 2-4. Markið gerði Sigurður Másson, hans 2. mark Ií Ieiknum. Þannig var staðan í hálfleik. f síðari hálfleik fengu Stjömumenn Idæmda vítaspyrnu sem Heimir Erl- ingsson skoraði úr af öryggi. Loftur ISteinar Loftsson jafnaði svo um mið- bik síðari hálfleiks fékk boltann einn Iog óvaldaður á markteig og skoraði af öryggi. Lokatölur þessa leiks því 4-1. ‘ Eins og áður segir var þetta mikill Umsjón: Halldór Halldórsson baráttuleikur og bar því minna á góðri knattspyrnu fyrir vikið. Leikurinn var harður og lítið gefið eftir. Að fá 4 mörk á sig í leik verður að teljast íhug- unarefni fyrir vamarleikmenn beggja liða. Hjá Akumesingum var Alexander Högnason potturinn og pannan í öll- um aðgerðum, sterkur tengiliður. Sömuleiðis Haraldur Hinriksson, sem skilaði vel boltanum. Athygli vakti og vinstri bakvörðurinn Bjarki Jóhann- esson sem reyndi ávallt að finna samherja og byggja upp spil. Hjá Stjömunni var Hilmar Hjalta- ■ son sem sýndi oft skemmtileg tilþrif | og hugmyndaríki, bestur ásamt Ragn- . ari Gíslasyni tengilið. Heimir Erlings- I son átti af og til góða spretti. Athygli vakti í þessum leik hvað lið- I in áttu misjafna kafla. Miðbik síðari * hálfleiks var allt Skagamanna og I hefðu þeir getað aukið forustuna í 5-3 ■ með smáheppni - en síðustu 15 mín. I vom það Stjörnumenn sem réðu lög- ■ um og lofum á vellinum. Jafhtefh I var ekki ranglát úrslit. Meiri festa og I betri völdun þarf að koma til hjá báð- I um liðum ætli þau að verða með i I toppbaráttunni. -HH | Eitthvað er dekkingin ekki I lagi hjá Skagamönnum að þessu sinni. Hilmar Hjaltason Stjornumaður skallar boltann fyrir fætur Heimi Erlingssyni, sem siðan skorar jöfnunarmarkið, 4-4, án þess að Sveinbjörn Allansson, markvörður Akurnesinga, komi nokkrum vörnum við. DV-mynd HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.