Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1986, Blaðsíða 9
Tímaritlyriralla VERÐ KR. 175! 7. HEFTI Skop........................ Hryggilegur sanuleikur um heilsuíar unglinge...... Spetsnas: Sérbúin árásarsveit Sovet.. Mislukkað {allhlííarstökk.. Sex hindurvitni seiti eyðileggjahjónabandið..... Unaðssemdir móðurhlutverksins......... , Geislavirkni: l Nýfundin hætta í sígar ettum S Hugsuníorðum.............. I Nýiaruppfinningar I - misjafnlega gagnlegar... 1 Bíddu nú aðeins við!...... I Dægradvölfyrir I bömáferðalagi...........' | Mismunandikynþörf.......5 I Úrvalsljóð............. | Völundarhús...........56 I Fellibylur...........57 , I Efþúlendiríflugráni..73 / I ]onniogdraugurinn .76 / , Sexhindurvitml sexn eyðileggjai hiónabanaiðl 1 Bls. 25 \ Unaðssemdir \ móðurhlut- Bis.29! Dægradvöl v fyrirböm' Xáferöalagi \ Bls. 48 VikinguráSuður- Atlantshafi...... Athyglisverð lítilsöfn......S Litli og stóri ....9* rtahafsins er borgin upphaflega frá 1. og 2. öld og a. jrinn alveg einstaklega fallegur. inni, þetta er annað sumarið sem þar er fyrir ung böm og jafhan mikið gert daglega krökkunum til dægrastytting- ar. Meðfram ströndinni eru ýmsir staðir sem hægur vandi er að komast á. Þama vom ýms tæki, rennibrautir og fleiri tæki sérstaklega ætluð fyrir böm. Farið var í leiki með bömunum og verðlaun veitt. Nefna má t.d. Robinson Krúsó sem er strákofastaður á ströndinni þar sem í gangi er skemmtidagskrá allan dag- inn. A morgnana hjálpa baðstrandar- gestir við að draga í land fiskinet sjómannanna. Ekki var aflinn mikill þegar við sáum til því aðeins einn fisk- ur var í netinu og hann var á stærð við löngutöng. En þama var borinn fram fiskur úr ■Svartahafinu. Þeir hjá Robinson Krúsó buðu t.d. upp á glóðaðan fisk sem menn létu vel yfir. Á glóandi kolum A veitingastöðunum er boðið upp á „lifandi1' tónlist, bæði þjóðlega búlg- arska og einnig vestræna dægurmús^ ík. Á einum veitingastaðnum, sem var að miklu leyti undir berum himni, var boðið upp á allsérstætt skemmtiatriði. Tveir menn dönsuðu berfættir á gló- andi viðarkolum. Ekki var annað að sjá en mennimir slyppu algerlega við bmnasár en hitann lagði frá glóandi kolunum þar sem gestimir sátu rétt við. Kossý gaf okkur þá skýringu að þetta væri mögulegt fyrir einhvers konar sálfræðilegar tilverkanir en það var óskiljanlegt hvemig mennimir gátu gert þetta. Heilsubót og endurhæfing í Búlgaríu er að finna mjög full- komna heilsubótarstaði þar sem £á má endurhæfingu vegna hvers konar sjúkdóma. Ekki síst fá menn bót meina í stoð- og taugakerfi. Boðið er upp á heit böð, lækningameðferð með hljóð- bylgjum, nudd, svæðanudd og nálast- unguaðferð, vatnsmeðferð með heitu ölkelduvatni og heitu lindarvatni sem er ríkt af hvers konar steinefiium. Einnig em búnir til heilsubótardrykk- ir úr þessu steinefharíka vatni og þá einnig bætt um betur með alls kyns jurtum. Heilsubótar- og endurhæfingarstað- imir em m.a. í glænýju og glæsilegu hóteli í Sandansky. Það er ekki langt frá höfuðborginni Sofíu og skammt fiá grísku landamæmnum. Svipaða aðstöðu er einnig boðið upp á í Grand Hótel sem er fimm stjömu hótel í Vama þar sem við gistum í tvær nætur. Þar er mjög góð aðstaða fyrir íþróttamenn til æfinga og er hægt að stunda nánast hvaða íþróttagrein sem er. M.a.s. er þama fótboltavöllur til afnota fyrir gesti hótelsins og rúmar áhorfendastúkan þrjú þúsund manns í sæti. 1 viðtali við forstjóra Grand Hótel Vama kom fram að þama koma hópar íþróttamanna til æfinga, bæði inn- lendir og erlendir. Nefhdi hann að þama væri tilvalin aðstaða fyrir landslið að dvelja saman við æfingar. Við getum fullyrt að enginn verður svikinn af aðstöðunni sem þama er að finna. Götumyndin í Vama, fyrir utan gróðurinn, er ekki ólík því sem maður hefur séð á myndum frá Reykjavík fyrir nokkrum tugum ára. En inni á Grand Hótel Varna var allt með öðrum brag. Þar er flest með vestrænu yfirbragði. Herbergin em stór, tvö rúm í hverju herbergi og myndi heil vísitölufjölskylda rúmast í hvom rúmi. Boðið var upp á fjöl- brey.ttan matseðil með ýmsum góðum réttum. Það sem vakti einna mesta athygli gestanna í þessum hóp var sérstakur ábætisréttur, ís sem hjúpað- ur var marengs. Marengsið var „bak- að“ með glóandi koníaki af mikilli snilld framreiðslumannanna og við mikinn fógnuð gesta. Undir borðum var leikin hljómhst á fiðlu og píanó áf mikilli leikni. Dollarabúðir í Búlgaríu er að finna sérstakar verslanir fyrir þá sem eiga erlendan gjaldeyri, svokallaðar dollarabúðir. Þær em víða, t.d. í gestamóttökunni á Elenite og mjög stór verslun í Grand Hótel Vama. Þetta em nánast fríhafh- arverslanir þar sem hægt er að kaupa ýmsan varning, m.a. tóbak, áfengi, snyrtivörur og sælgæti fyrir dollara. Nessebar sem er í hálftíma aksturs- fjarlægð frá Elenite er ævafom borg, allt frá 1. og 2. öld. Borgin er í tveim- ur hlutum, í nýja hlutanum em 5 þúsund íbúar en 3 þúsund í þeim gamla. Sá hluti borgarinnar er undir sérstakri vemd Sameinuðu þjóðanna og þar má ekki byggja neitt nema í samræmi við hina fomu götumynd. I Nessebar andar mannkynssagan á móti manni. Þar er m.a. hægt að skoða mjög gamlar kirkjur, tíu talsins en þegar þessi borg var og hét vom í henni fjörutíu kirkjur! Húsin í Nessebar em úr hlöðnu * grjóti og götumar allar steinlagðar. Rúmgóðir húsagarðar em fyrir utan húsin og girtir vel af með tréveggjum. Fjölskyldumar virðast hafast mikið við i húsagörðunum, mátti sjá fólkið sitja þar að snæðingi. En lítil nútíma þægindi em í þessum húsum, víða ekki öðmvísi salemisaðstaða en tvö spor í kofa úti í garðinum. Víða mátti sjá myndir af fólki með einhverju tilskrifi hengdar á húsa- garðana. Þetta vom tilkynningar um dauðsföll og er skylda að láta þessar tilkynningar hanga uppi með mynd af viðkomandi í heilt ár eftir að andlá- tið ber að höndum. Mikill fíöldi ferðamanna kemur ár- lega til Nessebar og þar var líf og fjör r á aðaltorgi borgarinnar. Loftpúðaskip em í förum milli Nessebar og Vama. Þaðan fara einnig nissnesk farþegaskip til Istambul í Tyrklandi. Hægt er að tengja sólar- hringsferð þangað dvölinni í Elenite. Ferðin kostar 91 dollara og er algjört ævintýri. Við geymum að segja frá þeirri ferð þar til síðar. -A.BJ. blaðsölustöðum um allt land.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.