Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1987, Blaðsíða 8
30 FÖSTUDAGUR 13. MARS 1987. I ■ ____________© Bleik brugðið Það er langt síðan ein mynd hef- ur tekið listann í jafnmiklu stökki og gerðist þessa vikuna. Mvndin um karatestrákinn er greinilega feikivinsæl og stekkur hún beint í fyrsta sæti listans. Það ætti því að vera unnendum þessa „mynda- flokks" mikil gleðitíðindi að nú stendur einmitt yfir framleiðsla á The Karate Kid III og er ómögu- legt að spá fyrir um hvar þetta endar. Lítil breyting er á þáttalistanum en þó er athvglisvert að sjá þættina byggða á sögu Tolstoy komna inn á listann. Litlar brevtingar eru í Bandaríkj- unum en Rodney Dangerfíeld er greinilega óhagganlegur í 1. sæti. Af hverju er erfitt að segja. -SMJ DV—LISTINN MYNDIR 1. (-) The Karate Kid II 2. (2) Jewel Of the Nile 3. (1) Out of Afríka 4. (7) After Hours 5. (2) Commando 6. (5) Agnes of God 7. (10) At Close Range 8. (8) Iron Eagle 9. (-) Heat 10.(4) 91/2 vika _________ÞÆTTIR__________ 1. (1) Who’s Baby 2. (2) Að yfirlögðu ráði 3. (4) V 4. (-) War and Peace 5. (3) Lancaster Miller Affair | BANDARÍKIN 1. (1) Back to School 2. (2) The Karate Kid II 3. (12) Running Scared 4. (8) Extremities 5. (3) Labyrinth 6. (5) Big Trouble in Litle China 7. (6) Flight of the Navigator 8. (7) Club Paradise 9. (4) Short Circuit 10.(10) Psycho III A FINE MESS Útgefandi: RCA/Skifan. Framleiöandi: Tony Adams Handrit/leikstjórn: Blake Edwards. Aðalhlutverk: Ted Danson, Howie Mand- el, Rlchard Mulligan. Öllum leyfð. Blake Edwards virðist hafa tapað kímnigáfunni meðan jafnaldrar hans misstu hárið. Frá því hann leikstýrði Peter Sellers í Pink Panther myndunum hefur orðspori hans sem leikstjóra hrakað jafnt og þétt. Undantekning 'var þó kannski Victoria Victoria. S.O.B. er aftur á móti dæmi um hið gagn- stæða. A Fine Mess samræmist þeim væntingum sem gerðar eru til Blake Edwards í dag. Maður býst ekki við neinu og það er næstum nákvæmlega það sem maður fær. Hann skrifar sjálfur handritið, sögu af ungum galkopa (Ted Dan- son c/o Staupasteinn) sem kemst á snoðir um svindl í veðreiðum. Síð- an er hann eltur myndina út í gegn af afkáralegum bófum, lendir í ást- arævintýri með eiginkonu bófafor- ingjans og þar fram eftir götum. Hér er allt við sama heygarðs- hornin. Ef undan eru skilin nokkur vel heppnuð atriði í byrjun leysist myndin upp í eina allsherjar vit- leysu. Blake stýrir hér hópi leikara sem alræmdir eru fyrir ofleik. Ric- hard Mulligan er nærtækasta dæmið um það. Honum hefur hvorki fyrr né síðar tekist að kom- ast úr Löðurs rullunni sinni. Alger fiflalæti virðast vera það eina sem hann hefur upp á að bjóða sem leik- ari. Danson er að vissu leyti af sama sauðahúsi og Mulligan. Sem sjón- varpsleikari reynir hann nú fyrir sér í kvikmyndum. Frammistaða hans í þessari mynd er þokkaleg. Hann leikuraðalhetjuna, glaðværa og kærulausa glaumgosann, af ör- yggi. Aðrir leikarar fíflast mun meira, væntanlega samkvæmt handriti. A Fine Mess stendur þannig al- gerlega undir nafni. Sem gaman- mynd nær hún meðallagi fyrir að ganga oftar en ekki gersamlega fram af áhorfandanum. Blake Ed- wards á ennfremur þakkir skildar fyrir að hafa hlíft myndinni við eiginkonu sinni, Julie Andrews. Hún virðist enda hafa gerst frá- hverf gamanmyndum, eins og sjá má í nýjustu mynd Andrei Konc- halovsky, Duet For One. Sem betur fer liggur manni við að segja. Ted Danson. Töffarinn i bænum. v? ★★ I byssulandi Byssan/The Gun. Útgefandi: Laugarásbió/Universal. Framlelöendur: Rlchard Levinson og William Link. Leikstjóri: John Badham. Aöalhlutverk: Stephen Eliiot, Jean Le Bouvier og Wallace Rooney. Bandarisk, 1974. Bönnuö yngri en 12 ára. Mynd þessi segir frá skammbyssu einni og lifshlaupi hennar, ef svo má að orði kom- ast. Hún flakkar á milli eigenda og hefur afdrifarík áhrif á líf þeirra. Þetta er nokkuð óvenjuleg mynd fyrir þær sakir að aðalleikarinn er 38 kalibera byssa. Byssan kemst þokkalega frá hlutverki sínu, svipað og flestir leikarar myndarinnar. Þetta er í raun samsafn af smásögum þai sem einu sjáanlegu tengslin á milli perón- anna er byssan. Hún kemur eins og storm- sveipur inn í líf fólksins og þó hún stoppi yfirleitt stutt við þá tekst henni undantekn- ingarlaust að umbreyta lífi flestra þeirra sem koma nálægt henni. Sögumar eru mjög mismunandi að gæðum enda virðist misjafnlega vandað til þeirra. Best þótti mér frásögninn af skrifstofubló- kinni sem tapaði áttum í tilverunni þegar honum var skyndilega sagt upp starfi sínu. Hann fer þá út á tröppur og bregður sér í byssuleik. Hann fær lengi vel að beina óá- reittur byssunni að fólki og má enginn vera að því að skeyta um hann. Hin almenna byssueign Bandaríkjamanna er sérkapítuli í nútímanum enda hlutur sem veldur sífelldum deilum. Þessi 13 ára gamla mynd bregður nýju og oft á tíðum skemmti- Iegu ljósi á þetta furðulega fyrirbæri. -SMJ M íþróttatrúðum Stjörnuliö Bingo Long og Mótorhjólaprinsarnir. Útgefandi: Laugarásbíó/Universal. Framleiðandi: Rob Cohen. Leikstjóri: John Badham. Handrit: Hal Barwood og Matthew Robbings. Aðalhlutverk: Billy Dee Williams, James Earl Jones og Richard Pryor. Bandarisk, 1976. Úllum leyfö. Nokkrir svartir hornaboltaleikarar ákveða að reyna fyrir sér upp á eigin spýtur enda löngu orðnir þreyttir á að lúta stjórn peningamanna sem hugsa um það eitt að græða á þeim. Þeir stofna því stjörnulið og leggjast í ferðalög. Þetta er önnur mynd leikstjórans Johns Badham á þessari síðu svo að aðdáendur hans ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Badham er líklega kunnastur fyrir myndir eins og Wargames, Blue Thunder, Saturday Night Fever, American Flyer og Short Circuit. Hér reynir hann að fást við jafn- alvarlegan hlut og vitundarvakningu svertingja á gamansaman hátt. Það gengur varla upp hjá honum. Hvorki verður gaman- ið skemmtilegt né boðskapurinn markviss. Það er mikið stjömuflóð svartra leikara í myndinni enda er þeim auðvitað efnið hug- leikið. Það er engum blöðum um það að fletta að íþróttir hafa gert geysilega mikið fyrir réttindabaráttu svertingja. Til að gera yfirburði sína ekki eins sláandi fyrir hör- undssára hvítingja þurftu svertingjarnir oft að bregða sér í hlutverk trúðsins. Myndin er forvitnileg að ýmsu leyti, þó ekki væri nema vegna þess að hún hefur áreiðanlega eitt lengsta nafn kvikmyndasögunnar. -SMJ Týndur Llnk/Hlekkurinn. Útgefandi: Háskólabíó/Cannon. Leikstjóri: Richard Franklin. Aðalhlutverk: Terence Stamp, Elisabeth Shue og Steven Pinner. Bandarisk, 1986. Bönnuö yngri en 12 ára. Mannfræðiprófessor gerist upptekinn af því að rannsaka apa til að finna hlekkinn fræga sem aðskilur mann og apa. Hann þjálfar nokkra apa gagngert til að þjóna rannsóknum sínum en að lokum snúast sköpunarverkin gegn skapara sínum. Viðfangsefni þessarar myndar er mjög for- vitnilegt, svo að ekki sé meira sagt. Það er ábyggilega hægt að fræðast mikið um mannseðlið með að rannsaka hina loðnu forfeður okkar, svo fremi sem það er gert á réttum forsendum. Yfir myndinni er ákveð- in dulúð lengst af og fær áhorfandinn fljótlega á tilfmninguna að eitthvað eigi eftir að gerast. Uppgjörið mikla missir hins vegar dálítið marks. Hér virðist að nokkru sama hugsun búa að baki og hjá Alfred Hitchcock í Fuglun- um þar sem dýrin snúast gegn kórónu sköpunarverksins og drottnara jarðarinn- ar, manninum. Hér, eins og í Fuglunum, er ekki reynt að veita einhverja lausn til frið- þægingar. Hegðun dýranna er óskiljanleg. Spenna í myndinni er nokkuð látlaus, þó stundum sé hún keypt ódýru verði. -SMJ hlekkur Bandaríska bragðið JENNY KISSED ME Útgefandi: MDC videó/Arnar videó. Framleiðandi: Tom Bradbridge. Leikstjóri: Brian Trenchard Smith. Aðalhlutverk: Ivar Kants, Deborra-Lee Furness. Bönnuö yngri en 16 ára. Sambúð skötuhjúanna Carol og Lindsey gengur ekki sem best. Carol ákveður að flytja burtu og tekur ellefu ára dóttur sína, Jenny, með sér. Eftir situr Lindsey aleinn og yfirgefinn. Hann reynir að hafa uppi á mæðgunum, þó í raun sé hann ekki faðir bamsins. Jenny unir hag sínum líka illa með móður sinni og hún strýkur frá henni. Þannig kemst hún í samband við Lindsey og þau strjúka saman. EN... þá kemur í ljós að Lindsey er haldinn ólæknandi sjúk- dómi. Það verður til þess að Carol kemur aftur og mæðgurnar sitja í sátt á dánarbeði Lindseys. Svona er söguþráðurinn í Jenny Kissed me, í mjög stórum dráttum. Hún var valin mynd ársins í Ástralíu 1985. Það er gott og vel. Efniviðurinn virðist heldur ekki svo galinn. En dramatíkin í myndinni sjálfri keyrir gersamlega um þverbak og ber sög- una nærri ofurliði, Leikstjórinn Smith hefur að því leyti lítil tök á efninu og lætur tilfinn- ingasemi hlaupa með sig í gönur. Myndin hefði allt eins getað verið banda- rísk framleiðsla. Uppbygging hennar, svo og efnisúrvinnsla, er öll á bandaríska vísu. Jenny Kissed Me kemur okkur alltof kunn- uglega fyrir sjónir. Þessari tuggu höfum við japlað á ótal sinnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.