Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 2
26 MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987. Iþróttir DV Stórieikur Amórs - skoraði bæði möik Anderiecht gegn Waregem Kristján Bemburg, DV, Bélgíu; Anderlecht sigraði Waregem á úti- velli, 1-2, í belgísku 1. deildar keppn- inni í knattspymu um helgina. Amór Guðjohnsen átti stórleik með And- erlecht og er markahæstur í deildinni. Leikir Waregem og Anderlecht hafa alltaf verið mjög spennandi í gegnum ári og engin undantekning var að þessu sinni. Anderlecht byrjaði leikinn með hörkusóknum en Waregem svar- aði með skyndisóknum. Strax í byrjun átti Vercauteren gott skot af stuttu færi og Amór sömuleiðis af löngu færi. De Connick, markvörður Ware- gem, var vel á verði f bæði skiptin og varði glæsilega. Waregem tókst að skora fyrsta markið þegar De Kenne skallaði í markið. Á 19. mínútu leiksins skeði alvarlegt atvik. Anderlecht-leikmað- urinn Lozano lenti í tæklingu við De Sloover og var Lozano borinn af leik- velli með beinbrot á báðum pípum - fóturinn hékk á í orðsins fyllstu merk- ingu. Trúlega mun þetta verða enda- lok hins 31 árs gamla leikmanns. Hann hefur í mörg ár verið talinn einn besti leikmaðurinn í Belgíu í mörg ár að öðrum ólöstuðum. De Sloover fékk að sjá rauða spjald- ið eftir að dómarinn sá að um opið beinbrot var að ræða. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks fékk Amór góða fyrirgjöf frá danska lands- liðsmanninum Andersen, kom á fullri ferð og skallaði glæsilega í netið og jafnaði leikinn, 1-1. I síðari hálfleik fór Amór á kostum. Tókst honum að skora sigurmarkið og aftur með skalla. Markvörður Wa- regem reyndi að verja en boltinn fór inn fyrir línuna - gott mark. Waregem sótti stíft eftir þetta og átti meðal annars skot í stöng og eitt í slá en inn vildi knötturinn ekki. Lokatölur urðu þvi 1-2 fyrir And- erlecht. Anderlecht var sterkari aðil- inn í leiknum með þá Amór og Scifo sem bestu menn í leik sem bauð upp á mikla spennu. Anderlecht náði forystu í deiidinni við þennan sigur, hefur hlotið 44 stig. Aðalkeppinautar þeirra Mechelen em í öðm sæti með 43 stig en þeir gerðu jafntefli við Beveren. Guðmundur Torfason lék ekki með Beveren þrátt fyrir mikil forfóli í liðinu. • Amór er nú markahæstur í deild- inni, hefur skorað 16 mörk. Annar markahæstur er Ronnie Martens hjá Mechelen með 14 mörk. • Waterschei-liðið, sem Ragnar Margeirsson leikur með, gerði jafn- tefli við Hasselt, 1-1, í 2. deildinni. Ragnar lék ekki með vegna meiðsla. -JKS Iþróttamenn skrifa um íþróttaviðburði liðinnar viku: Margir vilja breytingar - Bjóm Bjorgvinsson, formaður KKÍ, skrrfar: Nú er einu keppnistímabili íslenskra félagsliða lokið. íslandsmeistari varð Ungmennafélag Njarðvíkur og var það vel að sigrinum komið. Lið Njarð- víkur hóf keppnistímabilið mjög vel og hélt flugi allt mótið. í lok deildar- keppninnar stóðu Njarðvíkingar uppi sem deildarmeistarar og í úrslita- keppninni unnu þeir alla sína leiki og Islandsmeistaratitillinn er þeirra. I 1. deild kvenna urðu KR-stúlkumar Is- landsmeistarar. Þeir sem fylgjast með kvennakörfunni merkja talsverðar framfarir hjá stúlkunum. Keppnin i 1. deild karla var jöfn og skemmtileg. Þijú lið háðu spennandi keppni, ÍR, Þór frá Akureyri og Grindvíkingar. I lokin stóðu ÍR-ingar uppi sem sigur- vegarar. Vert er að geta þess uppgangs sem orðið hefur í körfuknattleiknum á stöðum eins og í Grindavík, á Akur- eyri og Sauðárkróki og verður gaman að fylgjast með framvindu mála hjá þessum félögum. í 2. deild karla sigr- uðu ÚÍA-menn en það em leikmenn frá Austurlandi og er þetta vonandi vísbending um uppgang körfunnar þar um slóðir. í íslandsmeistarakeppni yngri flokka er árangur Hauka athygl- isverður en þeir sigmðu í þremur flokkum, 5., 4. og 3. flokki og það sem er eftirtektarvert er að sami þjálfari er með alla þessu flokka, Ingvar Jóns- Bikarkeppni 1987 Á fóstudagskvöldið vom háðir úr- slitaleikir í bikarkeppni KKÍ en þar áttust við í kvennaflokki ÍBK og KR og í karlaflokki Valur og Njarðvík. I kvennaflokki sigmðu KR-stúlkumar eftir æsispennandi leik. Margir höfðu á orði að þetta væri sá skemmtilegasti leikur sem fram hefði farið á íslandi. Stúlkumar í ÍBK leika flestar með 2. flokki enn og eiga því bjarta framtíð fyrir sér. Ekki kæmi mér á óvart þó þær gerðu tilkall til einhvers titils á næsta ári. Leikurinn í karlaflokki gaf öllum vísbendingu um hvaða lið er best á Islandi í dag og að það var eng- in tilviljun að Njarvíkingar em íslandsmeistarar einnig. Styrkleika sinn sýndu Njarðvíkingar í seinni hálfleik er þjálfari þeirra og einn besti leikmaður Islendinga í dag sat á bekknum og stjómaði sínum mönnum. Landsliðið Framundan em mörg verkefhi hjá landsliðinu. I lok apríl heldur landslið- ið út á Norðurlandamót karlalands- liða en mótið fer fram að þessu sinni í Danmörku. Á undanfömum árum hefur þriðja og fjórða sæti verið okkar hlutskipti en í ár ætlum við okkur betra sæti. Um miðjan maí heldur ís- lenska landsliðið á ólympíuleika smáþjóða en sú keppni fer fram í Mónakó. Eftir að ólympíuleikunum er lokið heldur landsliðið til Englands á geysisterkt mót en þátttökuþjóðir þar verða auk íslands Belgía, Noregur og gestgjafamir Englendingar. Öll þessi verkefhi em liður í undirbúningi íandsliðsins okkar fyrir Evrópukeppni landsliða en sú keppni fer fram í haust í fjórum riðlum í jafnmör'gum löndum. Þar sem Island er B-þjóð er von um gott sæti í einhverjum riðli. Dregið verður í riðla í lok júni. Tvær efstu þjóðimar halda áfram í keppnina heima og heiman. I byijun ágúst held- ur landsliðið í æfingabúðir til Danmerkur. I þessari ferð verða einnig leiknir landsleikir við Dani en þeir em einnig að undirbúa sitt landslið fyrir Evrópukeppnina. UM næstu áramót er ætlunin að halda fjögurra landa mót hér á landi og er þegar hafinn undirbúningur að því verkefhi. Það er stefna landsliðsnefndar KKÍ að landsliðið leiki um 30 landsleiki á þessu ári. Helsti höfuðverkur lands- liðsnefhdar KKÍ er hve allt kostar mikið. Þó birtir upp stundum eins og í síðustu viku er stórfyrirtækið Hag- kaup færði Körfuknattleikssambandi Islands 100.000 krónur í styrk til lands- liðsins vegna undirbúnings fyrir Norðurlandamót karlalandsliða. • Hart barist i úrslitaleik bikar- keppninnar á föstudagskvöld. DV-mynd Gunnar Sverrisson Unglinganefiid KKÍ hefur unnið mjög mikið og gott starf á undanföm- um árum. I dag er unglinganefndin með tvö landslið í gangi, drengjalands- lið og unglingalandslið. Þessa stund- ina er drengjalandsliðið statt í Portúgal og tekur þar þátt í móti og einnig verður liðið í æfingabúðum í Portúgal fyrir Evrópukeppni drengja- landsliða en sú keppni fer fram í Englandi síðar í þessum mánuði. I þessari ferð er hópur fómfúsra drengja en þeir söfnuðu fyrir þessari ferð. Unglingalandsliðið heldur til Noregs um næstu mánaðamót til keppni á Norðurlandamóti. Undirbúningur fyr- ir þessa keppni er þegar hafinn og var m.a. farin ferð til Skotlands og leiknir þar tveir landsleikir við jafnaldra. Kvennalandsliðið 1 framhaldi af þátttöku íslenska landsliðsins í Norðurlandamóti kvenna sl. vor var þá sett á fót kvenna- landsliðsnefhd. Nefiidin hefur þegar unnið mjög gott starf og m.a. farið með unglingalandsliðið til Skotlands þar sem liðið lék tvo landsleiki. Úrslit- in úr þeim leikjum lofa góðu um framtíðina. Kvennakörfuknattleikur hefur staðið höllum fæti í samanburði við aðrar þjóðir. Það er uppi áætlun um að vinna á þessu plani en til þess að það geti orðið verða allir að hjálp- ast að. Ársþing KKÍ8.-9. maí Ársþing KKÍ verður haldið 8. og 9 maí nk. Þetta þing mun verða mjög stefnumarkandi fyrir framtíð körfu- knattleiks á íslandi. Fyrst vil ég nefna fyrirhugaðar breytingar á því keppnis- fyrirkomulagi sem við höfum í dag og í öðru lagi skiptingu á Lottó-pening- um. Körfuknattleiksmenn enda sitt íslandsmót með svonefndri „úrslita- keppni“. Þegar liðin sex, sem skipa úrvalsdeild, hafa lokið við að leika fjórfalda umferð hefst barátta fjögurra efstu liða um íslandsmeistaratitilinn. Ákveðin þreyta er komin í þetta keppnisform og vilja margir breytingu. Einkum er nefht að fjölga liðum í níu og leika tvöfalda umferð. Þakkir I lok verðtíðar vil ég nota tækifærið til að þakka öllum körfuknattleiks- mönnum fyrir samstarfið í vetur. Einnig vil ég færa íþróttafréttamönn- um bestu þakkir fyrir þeirra framlag til eflingar körfuknattleik á íslandi. Bjöm Björgvinsson • Þeir sögðu í Höll- inni i gær aö Stjömu- menn væru orðnir svo ríkir núna að þeir sæju stjömur, þó vonandi ekki undir stýri á nýja bilnum. MUGGUR A MANUDEGI: Einar er vinsæll Eins og þeir áhorfendur liafa séð og heyrt, sem fylgst hafa með körfuboltaleikjum frá NBA-deild- inni á Stöð 2, þá hefur Einar Bollason landsliðsþjálfari lýst leikjunum með Heimi Karlssyni. Nú brá hins vegar svo við í íþrótta- þætti Bjama Felixsonar í sjón- varpínuá laugardag, er sýndur var úrslitaleikurinn í bikarkeppni KKÍ, að Einar var mættur þar og kom það mörgum á óvart. Greini- legt að umsjónarmenn íþróttaþátt- anna á sjónvarpsstöðvunum treysta Einari best í lýsingunum. DV-menn steinlágu Mikill íþróttaáhugi ríkir á meðal starfsfólks DV. Um helgina tók handknattleikslið blaðsins þátt í firmakeppni í Hafnarfirði sem ekki væri í frásögur færandi ef liðið hefði ekki tapað öllum leikjunum. Mikla athygli vakti ungur leik- maður í liði DV, Jón Om Guð- bjartsson, en hann var rekinn út af fyrir kjaftbrúk svo til í öllum leikjunum og var því nánast leng- ur utan vallar en innan. Skapheit- ur maður, Jón öm, enda vanari því að standa í fremstu röð í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Þá vöktu taktar Gunnars Bender mikla athygli í liði DV en hann er þekktari fyrir að kasta flugu en handbolta en árangur hans í veið- inni er vist í miklu samræmi við gengi DV-liðsins um helgina. Gunnar var ekki kominn heim til sín eftir keppnina þegar forráða- menn Gummersbach höfðu haft samband, að sögn Gunnars. Maður stóð í þeirri meiningu að forráða- menn bestu handknattleiksliða í heimi væru á höttunum eftir góð- um leikmönnum en ekki þeim sem ávallt em í tapliði. Gífurlegur áhugi á US Masters Áhugi almennings á golfi er allt- af að aukast hér á landi. I gær lauk einu stærsta golfinóti at- vinnumanna í heiminum ár hvert, US Masters. Fjöldi íslenskra kylf- inga beið með mikilli óþreyju eftir úrslitunum. Margir lögðu leið sína upp á Keflavíkurflugvöll, en þar mun keppnin hafa verið sýnd beint 32 fóru holu í höggi Greint var frá því DV fyrir skömmu að 30 íslenskir kylfingar hefðu unnið það afrek að fara holu í höggi í golfi á síðasta ári en þess- ar upplýsingar komu frá Einherja- klúbbnum. Þetta mun hins vegar ekki vera rétt því tveir íslenskir golfleikarar gerðu sér lítið fyrir og fóru holu í höggi erlendis á síðasta ári og því er tala þeirra sem náðu draumahöggi allra kylfinga á síð- asta ári ekki 30 heldur 32. Frábært afrek hjá þessum kylfingum. Miklir pen- ingar í húfi Það var mikið í húfi hjá liðunum sem léku til úrslita í bikarkeppni HSÍ í gær. Stjömumenn unnu sem kunnugt er sanngjaman sigur og er ekki ólíklegt að handknattleiks- deild félagsins hafi fýrir vikið orðið fleiri hundmð þúsund krónum rík- ari. Daihatsu bíllinn, sem félagið eignaðist eftir leikinn, er 320 þús- und króna virði og þá á eftir að gera ráð fyrir tekjum vegna inn- komu aðgangseyris og auglýsinga. Þegar allt er tekið með í reikning- inn er ekki ólíklegt að handknatt- leiksdeild Stjörnunnar hafi jafnvel orðið einni milljón ríkari eftir leik- inn í Höllinni i gær. Muggur óskai- Stjömumönnum til hamingju með glæsilegan sigur. -Muggur. • Hannes Leifsson, fyrirliði Stjörnunnar, tók við lyklunum að Daihatsu bifreiðinni sem hann og félagar hans unnu i Höllinni í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.